Morgunblaðið - 24.05.1987, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAI 1987
51
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Þétting hf.
í Hafnarfirði óskar eftir eftirtöldum starfs-
mönnum strax:
Múrara eða manni vönum múrviðgerðum,
málara eða manni vönum málningarvinnu,
vélvirkja/bifvélavirkja eða manni vönum
járnsmíði.
Um er að ræða framtíðarstörf hjá vaxandi
fyrirtæki.
Upplýsingar í símum 52723 á skrifstofutíma,
54410 eftir kl. 19.
Hvammstangi
Skrifstofustörf
Óskum eftir að ráða starfsmenn til eftirtal-
inna starfa.
1. Starfsmann til að hafa umsjón með tölvu-
vinnslu félagsins. Leitað er að starfs-
manni sem getur unnið sjálfstætt á þessu
sviði.
2. Starfsmann til að sinna umboðsstörfum
fyrir Samvinnutryggingar auk annarra
skrifstofustarfa.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist kaupfélagsstjóra eða
starfsmannastjóra Sambandsins er veita
nánari upplýsingar.
& Kaupfélag Vestur-Húnvetninga
Hvammstanga
Hótelstarf
— framreiðsla
Óskum að ráða framreiðslumann til starfa í
veitingasal, nú þegar eða sem fyrst.
Framtíðarstarf.
Nánari upplýsingar veittar á staðnum.
#hótel
OÐINSVES"’
BRAUÐBÆR Óðinstorgi
BORGARSPÍTALINN
LAUSAR STÖDUR
Hjúkrunarfræðingar
Stöður hjúkrunarfræðinga á dag-, kvöld- og
næturvaktir við endurhæfingadeild Grensáss
eru lausar til umsóknar nú þegar. Samkomu-
lag um vinnuhlutfall og vaktafyrirkomulag.
Góð vinnuaðstaða.
Möguleikar á barnagæslu.
Sjúkraliðar
Sjúkraliða vantar til sumarafleysinga í 50%
dagvinnu á göngudeild lyflækningadeildar,
speglunareiningu.
Starfsfólk
Starfsfólk vantar til aðstoðarstarfa á slysa-
og sjúkravakt sem fyrst.
Upplýsingar gefur hjúkrunarframkvæmda-
stjóri í síma 696357.
Ritari
óskast á rannsóknastofu
Fjöjbreytt starf. Meðal annars spjaldskrár-
vinna og sjúklingamóttaka.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Framtíð-
arstarf.
Umsóknir sem tilgreini menntun og fyrri störf
sendist auglýsingadeild Mbl. fyrri 5. júní
merktar: „A — 5303“.
Fiskvinna
— Frosti hf.
Fólk óskast til starfa við snyrtingu og pökk-
un. Mikil vinna. Fæði og húsnæði á staðnum.
Upplýsingar gefur verkstjóri í síma 94-4913
og 94-4986 á kvöldin.
Frosti hf.,
Súðavík.
Auglýsingateiknari
óskast
Ört vaxandi auglýsingastofa óskar eftir að
ráða lærðan auglýsingateiknara með reynslu.
Fjölbreytt og skemmtileg verkefni. Góð laun
í boði.
Áhugasamir leggi inn nafn og upplýsingar
um menntun og fyrri störf á auglýsingadeild
Mbl. merkt: „A — 915“ fyrir 1. júní.
Verslunarstarf
Hressan, fjölhæfan og ábyggilegan starfs-
kraft vantar til framtíðarstarfa í heimilis-
tækjaverslun.
Sértu þessum hæfileikum gæddur og hafir
áhuga á slíku starfi, skrifaðu þá umsókn sem
segir frá aldri, menntun og fyrri störfum og
skilaðu á auglýsingadeild Mbl. fyrir miðviku-
dagskvöld merkt: „O — 2199“.
Lagerstarf
Aðstoðarmaður á matvörulager óskast nú
þegar.
Upplýsingar hjá deildarstjóra.
Á AKUREYRI
Staða Ijósmóður
við Heilsugæslustöðina á Akureyri er laus
til umsóknar. Starfshlutfall og vinnutími eftir
samkomulagi. Nýtt og glæsilegt húsnæði
fyrir mæðraeftirlit verður tekið í notkun með
haustinu.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri
Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri, Konný
Kristjánsdóttir daglega milli kl. 11.00-12.00
í síma 96-22311 eða 96-24052.
Sölustarf
Vörumarkaðurinn óskar að ráða sölumann í
heimilistæki og hljómtæki. Starfið er framtíð-
arstarf fyrir góðan starfskraft sem hefur
áhuga og hæfileika til að selja hágæðatæki
í miklu úrvali.
Starfið býður uppá mikla fjölbreyttni fyrir
tæknisinnaðan starfsmann og þægilegt
vinnuumhverfi.
Vörumarkaðurinn er einkaumboðsaðili fyrir
ýmis þekktustu raftæki á markaðinum s.s.
Eletrolux, Gaggenau, Rowenta, Ignis.
Allar uppl. veitir verlslunarstjóri í heimilis-
tækjadeild í Nýjabæ, Eiðistorgi 11.
Fóstrur —starfs-
fólk
Félagsmálastofnun Kópavogs auglýsir eftir-
taldar stöður á dagvistarheimilum bæjarins
lausar til umsóknar. Um er að ræða ýmist
50% eða 100% störf.
Fóstrur að skóladagheimilinu Dalbrekku. Upp-
lýsingar gefur forstöðumaður í síma 41750.
Fóstru að dagveistarheimilinu Efstahjalla. Upp-
lýsingar gefur forstöðumaður í síma 46150.
Fóstru að dagvistarheimilinu Grænatúni. Upp-
lýsingar gefur forstöðumaður í síma 46580.
Fóstru að dagvistarheimilinu Kópasteini við
Hábraut. Einnig vantar starfsmann til afleys-
inga. Upplýsingar gefur forstöðumaður í
síma 41565.
Fóstru og starfsmann við uppeldisstörf að
dagvistarheimilinu Marbakka. Upplýsingar
gefur forstöðumaður í síma 641112.
Fóstru að leikskólanum Fögrubrekku. Upp-
lýsingar gefurforstöðumaður í síma 42560.
Fóstru að dagvistarheimilinu Furugrund.
Einnig vantar starfsfólk til afleysinga. Upplýs-
ingar gefur forstöðumaður í síma 41124.
Fóstru að skóladagheimilinu Ástúni. Upplýs-
ingar gefur forstöðumaður í síma 41750.
Fóstru að dagvistarheimilinu Kópaseli. Einn-
ig vantar starfsmann til afleysinga. Upplýs-
ingar gefur forstöðumaður í síma 84285.
Fóstru að leikskólanum Kópahvoli. Upplýs-
ingar gefur forstöðumaður í síma 41120.
Umsóknarfrestur er til 15. júní nk. Umsóknum
skal skila á þar til gerðum eyðublöðum sem
liggja frammi á Félgsmálstofnun Kópavogs,
Digranesvegi 12, einnig veitir dagvistarfulltrúi
upplýsingar um störfin í síma 45700.
Félagsmálastofnun Kópavogs.
Sunnuhlíð
Kópavogsbrout \ Simi 4 5550
Sjúkraliðar
— lausar stöður
Sjúkraliðar óskast frá 1.7. 1987. Barnaheim-
ili á staðnum. Vinsamlega hafið samband.
Upplýsingar í síma 45550.
Hjúkrunarforstjóri.
EaMÍEajinjLrH
Aðstoðarlæknir
Staða reynds aðstoðarlæknis við slysadeild
er laus til umsóknar. Staða veitist til eins
árs frá 1. júlí. Umsóknir er tilgreini um mennt-
un og fyrri störf, sendist yfirlækni slysadeild-
ar sem jafnframt veitir upplýsingar.
Rafvirki
óskast til lagerstarfa og sölu á rafmagnsvör-
um. Framtíðarstarf í vaxandi fyrirtæki.
Umsóknir berist auglýsingadeild Mbl. fyrir
27.05 merktar: „V — 1534“.
Bifreiðasmiður
eða vanur maður óskast.
Glerið sf.,
Hyrjarhöfða 6,
sími 686510.