Morgunblaðið - 31.05.1987, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 31.05.1987, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1987 Brautskráðir nemendur frá Fjölbrautarskóla Suðurnesja. Morgunblaðið/Halldór Rósmundur Guójónsson Hjálmar Árnason skólameistari afhendir Einari Fal Ingólfssyni verð- laun fyrir g-óðan árangur í íslensku. Fjölbrautarskóli Suðurnesja: Fleiri nemendur braut- skráðir en nokkru sinni Stúdentar, sem verðlaun hlutu. Sandgerði ELLEFTA skólaári Fjölbrautar- skóla Suðumesja lauk með skólaslitum laugardaginn 23. maí síðastliðinn. Sú venja hefur skap- ast að láta athöfn þessa fara fram í þeim sveitarfélögum, sem að skólanum standa. Að þessu sinni fór brautskráningin fram í íþróttahúsinu í Sandgerði að við- stöddu fjölmenni. Dagskrá var með hefðbundnum hætti, en var um annað nokkuð óvenjuleg. Þannig var brautskrán- ingarhópurinn stærri nú en nokkru sinni áður eða samtals 92 nemend- ur. Einnig var afhent þúsundasta brautskráningarskírteinið frá skól- anum. Féll það í hlut Sigurbjargar Jóhannesdóttur. Hópurinn skiptist þannig eftir brautum: Af fiskvinnslubraut I einn nemandi, vélaverðir voru 14, af tæknisviði 28 nemendur (þar af tveir úr meistaraskóla), tækniteikn- un einn, af tveggja ára brautum 8 nemendur og stúdentsprófi luku 40 nemendur. Margir stúdentar hlutu braut- skráningu af fleiri en einni braut, þó sló Viktor Kjartansson öll met en hann tók við skírteini af átta námsbrautum. Hjálmar Árnason skólameistari Fjölbrautarskóla Suðumesja sagði í samtali við Morgunblaðið, að hann byggist við að á næsta skólaári myndu 660 nemendur stunda nám við skólann og yrði það nýtt met. Þá yrði hafin kennsla á fjórum nýj- um brautum, sjúkraliðabraut, skipstjóra-, rennismíði- og vél- virkjabraut. Nú er verið að byggja 7 nýjar kennslustofur við skólann og eiga þær að vera tilbúnar í haust. Hjálmar sagði, að á síðast- liðnum vetri hefði verið kennt á 8 stöðum í Keflavík, en með tilkomu nýju kennslustofanna væri fyrirsjá- anlegt að öll kennsla gæti farið fram innan veggja skólans. Óvenju mörg verðlaun voru veitt að þessu sinni, enda námsárangur með besta móti. Flest verðlaun hlutu: Guðmundur Jón Bjamason, Halla J. Guðmundsdóttir og Jón Már Bjömsson. Halla hóf nám sitt í öldungadeild. Þá voru afhent fimm verðlaun frá Sparisjóðnum í Keflavík, en sú stofnun ákvað fyrir ári að veita myndarleg verðlaunnæstu fímm árin. Sparisjóðsverðlaunin í ár hlutu: Bókfærslubikarinn Ómar Ell- ertsson, vélritunarbikarinn Guð- björg Jónsdóttir, íslenskubikarinn Halla J. Guðmundsdóttir, hagfræði- bikarinn Guðbjöm Jóhannesson og bókaverðlaun í íslensku hlaut Guð- laug Sveinsdóttir. Skólanum voru færðar að gjöf kr. 40.000 frá Vélstjórafélagi Suð- umesja til uppbyggingar á vél- stjórabraut. Skólameistari er Hjálmar Áma- son og aðstoðarskólameistari Ingólfur Halldórsson. Kvennaskólmn: Ný skólanefnd skipuð KVENNASKÓLANUM í Reykjavík, einum elsta skóla landsins en einum yngsta menntaskólanum var slitið laug- ardaginn 23. maí. Útskrifaðir voru 47 stúdentar; þar af fjórir piltar. Stúdentamir, sem útskrifuðust, brautskráðust allir frá sömu braut; uppeldissviði. Verðlaun úr Minning- arsjóði Þómnnar Melsteð, stofn- anda og fyrsta skólastjóra Ragnheiður Elín Arna- dóttir tekur við verðlaun- um fyrir bestan námsárangur. Kvennaskólans, fyrir bestan heild- arárangur, hlaut Ragnheiður Elín Ámadóttir úr Keflavík. Skólanefnd sú, sem stýrt hefur skólanum frá upphafi, nú síðast undir stjóm Halldóru Einarsdóttur lét af störfum, en tilkynnt var um skipan nýrrar skólanefndar eftir hinni nýju reglugerð um skólann. Hana skipa Bessí Jóhannesdóttir formaður, Ragnar Júlíusson og Ragnheiður Heiðreksdóttir. Lögfræði eða fjölmiðla- fræði í stuttu samtali við Morgunblaðið sagði Ragnheiður Elín Ámadóttir, dúx skólans, að hún stefndi á nám við Háskóla íslands í haust. „Aðra stundina spái ég í lögfræði, en ég er mjög opin gagnvart öllu og lang- ar eiginlega í allt.“ Ragnheiður gerði hlé á námi sínu í eitt ár og var skiptinemi í Banda- ríkjunum. „Ég vildi útskrifast með mínum bekkjarfélögum og þess vegna ákvað ég að taka skólann á þremur árum. Kvennaskólinn er mjög skemmtilegur skóli, þar sem maður getur lært sitt lítið af hverju og er það gott fyrir óákveðna." WÆk y - flj m'm ■mmm : 1 iife f 1 UíÆM BSf' 1 «Wfl Nýstúdentar frá Kvennaskólanum Siglufjörður: 940 tonn af rækju kom- in á land Siglufirði. RÆKJUBÁTAR hafa landað 940 tonnum af rækju á Siglufirði það sem af er þessari vertíð og þrátt fyrir sjómannaverkfall í janúar er þetta meiri afli en kominn var á land á sama tíma i fyrra. Það gengur frekar treglega að selja smárækjuna en ágætlega að selja stórrækjuna. Bátarnir hafa verið að koma með upp í 30 tonn og í gær lönduðu þrír bátar. Miðin eru á Rifsbanka og einnig hafa minni bátamir verið að veiða við Grímsey. Matthías
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.