Morgunblaðið - 11.06.1987, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987
Olíuverð hækkaði
ekki í 10 mánuði
Verðið stendur nú í stað á mörkuðum ytra
Olíuverðhækkunin sem varð
1. júní, úr 6,90 krónum lítrinn í
7,70 krónur lftrinn eða 11,5%, var
sú fyrsta hér á landi frá ágúst
1986. Þá lækkaði olfan úr 7,60
krónum og þar áður lækkaði olí-
an f maf 1986 úr 8,40 krónum.
Verð á jarðolíu hefur samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins verið
nokkuð stöðugt á mörkuðum und-
anfarið eða í kringum 18 dalir
tunnan. Miklar verðsveiflur hafa
orðið á olíu undanfarin ár; þannig
var verð á jarðolíu um 28-30 dalir
tunnan í desember 1985 og komst
niður fyrir 10 dali tunnan fyrri hluta
ársins 1986 en hefur sfðan farið
hækkandi.
Verð á unninni olíu á mörkuðum
í Evrópu hefur verið nokkuð stöð-
ugt frá áramótum. Verðið hækkaði
þá vegna kuldanna miklu í Evrópu
og aukinnar eftirspumar í fram-
haldi af þeim. Við það lækkaði
birgðastaða margra landa sem nú
undanfarið hafa verið að lagfæra
hana og því hefur eftirspumin hald-
ist og verðið staðið í stað.
Ekki er búist við að verð á olíu
lækki aftur úr því sem nú er þar
sem samtök olíuframleiðsluríkja
hafa náð samstöðu um framieiðslu
en þau stefndu að því að halda
verði á jarðolíu í 18 dölum á tunnu.
Mokveiði í
Laxá í Þing
— Þrír 20—21 punda laxar veiddust í gær
LAXVEIÐI á stöng hófst í þrem-
ur ám í gær, Laxá í Aðaldal,
Laxá í Kjós og Elliðaánum og
gekk á ýmsu. Þannig veiddist
ekkert á fyrstu vaktinni f Elliða-
Vegavinnu-
menn boða
verkfall
TVÖ verkalýðsfélag á Suður-
landi, Þór á Selfossi og Rangæ-
ingur í Rangárvallasýslu, hafa
boðað verkfall hjá starfsmönn-
um Vegagerðar ríkisins á
svæðinu frá og með 19. júní.
Nýlega slitnaði upp úr samn-
ingaviðræðum ýmissa verka-
lýðsfélaga og ríkisins vegna
starfsmanna Vegagerðarinnar
um allt land.
Verkalýðsfélögin Þór og
Rangæingur hafa jafnframt vísað
samningum starfsmanna Skóg-
ræktar ríkisins og ríkisins til
ríkissáttasemjara og óskað eftir
að mál þeirra verði rætt samhliða
kjaradeilu starfsmanna Vegagerð-
arinnar.
ánum, prýðilega aflaðist f
Kjósinni og mokveiði var f Aðal-
dalnum. Stórlaxar veiddust bæði
f igós og Þingeyjarsýslu.
I Laxá í Aðaldal var sérstaklega
flörugt; Húsvíkingar með þijár
stangir og veiddu fyrir neðan
Æðarfossa mættu í hús á hádegi
með fullan kvóta, 30 iaxa, 10—20
punda, og ein dagstöng í „efri
ánni“ skilaði 5 löxum af fyrri vakt-
inni, en missti fjóra til viðbótar.
Allt var það einnig stór og góður
lax. Að sögn Orra Vigfússonar
formanns Laxárfélagsins sem hef-
ur mikinn hluta Laxár á leigu, var
áin „blá af laxi“ fyrir neðan Fossa
og mikill lax einnig genginn upp.
Helgi Bjamason á Húsavík veiddi
stærsta laxinn, 20 punda hæng.
Veiði var einnig góð í Laxá í
Kjós, en þar bar þó helst til tíðinda
að tveir mjög stórir laxar veiddust
fyrsta morguninn. Jón Bjami Þórð-
arson veiddi 21 punda hæng í
Klingenberg og Ámi Þorvaldsson
fékk 20 punda hæng á Laxfoss-
breiðu. Báðir laxamir tóku maðk.
í Elliðaánum voru rólegheitin alls
ráðandi og í fyrsta skipti í mörg
ár veiddist þar enginn lax í opnun.
Þó er eitthvað af laxi gengið í ána.
Sjá „Eru þeir að fá’ann?" á
bls. 43.
Unnið við útskipun freðfisks f Hofsjökul í Keflavfkurhöfn síðdegis f gær.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Verðmætasti farmur sem
farið hefur frá landinu
HOFSJÖKULL fór í gærkvöldi
frá Keflavfk áleiðis til Banda-
ríkjanna með frosinn fisk á
vegum Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna. Verðmæd
farmsins er nm 450 milljónir
kr. og er talið að þetta sé verð-
mætastí farmur sem fluttur
hefur verið frá landinu f einni
ferð.
Hofsjökull hefur að undanfömu
farið hringinn í kring um landið
og lestað frosinn físk fyrir Banda-
ríkin. Endaði hann hringferðina í
Keflavík í gær og hélt í gær-
kvöldi með fullfermi, eða 2.500
tonn af frosnum sjávarafurðum,
til Bandaríkjanna. Verðmæti
farmsins er 11,5 milljónir dollara,
sem samsvarar 450 milljónum kr.
Að sögn Bjama Lúðvíkssonar
hjá SH er þetta lang verðmætasti
farmur sem farið hefur frá
landinu í einni ferð. Lætur nærri
að í þessum eina farmi séu um
5% af útflutningsverðmæti SH á
árínu. Verðmætaaukningin er
vegna verðhækkunar í Banda-
ríkjunum og vegna þess að óvenju
mikið er af humri í þessum farmi.
Húsnæðisstofnun hætt-
ir útgáfu lánslof orða
„Hækka þarf útlánsvexti,“ segir Sigurður E. Guðmundsson
EKKI verða gefin fleiri lánslof-
orð vegna fasteignakaupa frá
Húsnæðisstofnun rikisins fyrr en
vaxtasstefna ríkisstjómarinnar
liggur fyrir og samningar hafa
verið gerðir við lífeyrissjóðina
um kaup á skuldabréfum rikis-
sjóðs í samræmi við hana. Þetta
kom fram á blaðamannafundi,
sem stjóm húsnæðisstofnunar
boðaði tíl í gær.
Það kom fram hjá Sigurði E.
Guðmundssyni á þessum fundi, að
um þessar mundir standa yfír samn-
ingaviðræður milli stofnunarinnar,
fulltrúa lífeyrissjóðanna og ríkisins
um kaup sjóðanna á skuldabréfum
ríkissjóðs til þess að ^ármagna ián
á árínu 1989. Forsenda niðurstaðna
þeirra viðræðna væri þó að hreinar
línur lægju fyrir frá hendi stjóm-
valda um vaxtastefnu. „Ljóst er að
samræma þarf inn- og útlánsvexti,"
sagði Sigurður og taldi að í því hlyti
að felast að vextir á húsnæðismála-
lánum hækkuðu til samræmis við
vexti á lánum lífeyrissjóðanna í
húsnæðiskerfíð. Ársvextir á hús-
næðismálaiánum em nú 3,5% en
6,25% á lánum lífeyrissjóðanna.
Sjá frásögn af húsnæðiskönn-
un Félagsvísindastofnunar á
bls. 13.
Hvammur í Reyðarfirði:
Ibúðarhús eyði-
leggst í eldi
Þriggja milljóna króna tjón
Eskifirði.
ELDUR kom upp í íbúðarhús-
inu á bænum Hvammi í Helgu-
staðahreppi við Reyðarfjörð
laust fyrir kl. 10.30 í gær, mið-
vikudag, og er húsið talið
gjörónýtt af völdum eldsins.
Slökkviliðið á Eskifirði var
kvatt á vettvang og var húsið
alelda er það kom á staðinn.
Enginn var i húsinu er eldurinn
kom upp en eigandi þess, Hörð-
ur Sverrisson, var staddur í
fjörunni beint neðan af bænum
er hann varð eldsins var.
Að sögn Harðar hafði hann
gengið niður í ijöruna og aðeins
verið þar um 20 mínútur er hann
varð þess var að reyk lagði frá
glugga í kjallara hússins. Hljóp
hann þegar heim að bænum og
reyndi inngöngu þar og hann
ætlaði að komast í síma, en varð
frá að hverfa sökum mikils reyks
í húsinu. Fór hann því heim að
næsta bæ, sem er Sellátrar, og
var hringt þaðan í slökkviliðið á
Eskifírði.
Að sögn Ásbjöms Guðjónsson-
ar, slökkviliðsstjóra á Eskifírði,
var siökkviliðið kvatt út um kl.
10.40 og var það komið á vett-
vang laust fyrir kl. 11.00. íbúðar-
húsið í Hvammi, sem er tvílyft
steinhús logaði þá gafla á milli
og stóð eldur út um alla glugga.
Siökkvistörf tóku um það bii eina
Morgunblaðið/IngóUur Friðgeirsaon
íbúðarhúsið í Hvammi eyði-
lagðist af völdum elds í
gærmorgun.
klukkustund, en þá var húsið orð-
ið mikið bmnnið og stórskemmt
ef ekki ónýtt af völdum eldsins.
Aðspurður um upptök eldsins
sagði Ásbjöm að um þau væri
ekki vitað þó telja mætti líklegt
að kviknað hefði í út frá gömlum
kolaofni í kjallara hússins.
Tjónið er metið á þijár milljón-
ir króna.
— Ingólfur
Skákmótið á
Egilsstöðum:
Gulko vann
SOVÉSKA skákkonan Anna
Gulko sigraði á Opna Austur-
landsmótinu, sem lauk á Hotel
Valaskjálf á Egilsstöðum í gær.
Hlaut Anna 7 vinninga af 9
mögulegum.
Anna bar sigur úr býtum eftir
langa og spennandi skák í lokaum-
ferðinni gegn Þresti Þórhallssyni.
Skákinni lauk eftir 80 leiki og sjö
og hálfs tíma setu með sigri Önnu.
í öðm sæti með 6,5 vinning var
Finninn Antti Pyhálá, Sævar
Bjamason í þriðja sæti með 6 vinn-
inga og í flórða til sjötta sæti með
5 vinninga vom Þröstur Ámason,
Hrafn Loftsson og Charles Adel-
man.
Vinningsverðlaunin em 12.000
dollarar eða rúmlega 450 þúsund
krónur og skiptast þau á milli sex
efstu keppendanna. í fyrstu verð-
laun em 6.000 dollarar eða um 230
þúsund krónur.