Morgunblaðið - 11.06.1987, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987
Morgunblaðið/Einar Falur
Verkfallsverðir stéttarfélags verkfræðmga við Verkfræðiskrifstofu Sigurður Thoroddsen við Armúla
í gær.
Fundað í verkfræðingadeilunni
SAMNINGANEFNDIR verk-
fræðinga og verkfræðistofanna
voru á samningafundi hjá ríkis-
sáttasemjara fram eftir kvöldi í
gær. Þegar Morgunblaðið hafði
síðast spurnir af fundinum var
jákvæður andi í viðræðunum, en
ekki vitað hvort samnmgur væn
í augsýn.
Töluverð harka hefur verið í
verkfalli verkfræðinga undanfama
daga. í gær stóðu verkfallsverðir
vörð við tvær verkfræðistofur í
Reykjavík og meinuðu verkfræðing-
um sem þar vinna og jafnframt eru
hluthafar að komast til vinnu. Síðan
varð samkomulag á milli aðila um
að fresta aðgerðum á meðan samn-
ingafundurinn, sem hófst klukkan
17 í gær, stæði.
VEÐURHORFUR í DAG, 11.06.87:
YFIRLIT á hádegi I g»r: Yfir Grænlandshafi og hafinu norður af
(slandi er 1027 millibara hæðarsvæði sem þokast heldur austur.
Minnkandi 995 millibara djúp lægð er yfir Skandinaviu.
SPÁ: Hæg breytileg átt og víðast léttskýjað nema helst austast á
landinu. Hiti é bilinu 12 tiM6 stig sunnan- og vestanlands en 8 til
10 stig noröan lands og austan.
VEBURHORFUR NÆSTU DAGA:
FÖSTUDAGUR: Norðan- og norðvestan gola, víða skýjað um norð-
anvert landið en víðast bjartviðri í öðrum landshlutum.
LAUGARDAGUR: Vestanátt, gola eða kaldi (3-5 vindstig). Skýjað
og ef til vill smá skúrir á vestur- og suðvesturlandi en annars stað-
ar bjartviðri. Hiti á bilinu 7 til 8 stig noröan- og vestanlands en 10
til 14 stig víða annars staðar.
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
*' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
■* ■# *
* * * * Snjókoma
* * *
1 o Hitastig:
10 gráður á Celsius
SJ Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
_j. Skafrenningur
p7 Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 ígær að ísl. tíma
Akureyri hltl 7 vttður léttskýjafi
Raykjavfk 10 lóttskýjafi
Bergen 11 skúr
Helsinki 18 lóttskýjað
Jan Mayen 0 alskýjað
Kaupmannah. 16 skýjafi
Narssarssuaq 6 rignlng
Nuuk 4 rigning
Osló 13 skýjað
Stokkhólmur 16 skýjað
Þórshöfn 8 akýjað
Algarve 21 lóttskýjað
Amsterdam 16 hitfskýjað
Aþena 28 heiðskfrt
Barcelona 21 skýjað
Berlfn 18 skúr
Chicago 12 skýjað
Feneyjar 23 heiðskfrt
Frankfurt 17 skýjað
Hamborg 17 skýjað
LasPalmas London 16 vantar skýjað
Los Angeles 15 þokumóða
Lúxemborg 16 skýjað
Madrfd 19 Mttskýjað
Malaga 26 heiðskírt
Mallorca 21 skýjað
Miaml 27 skýjað
Montreal 13 lóttskýjað
NewYork 16 heiðskfrt
Parfs 16 skýjað
Róm 23 lóttskýjað
Vfn 18 skýjað
Washington Winnipeg 14 vantar Skýjað
Fiskmarkaðurinn í Bremerhaven
Verð á karfa hærra
en nokkru sinni fyrr
Bremerhaven, frá Hirtí Gíslasyni, blaðamanni Morgimblaðsins.
VERÐ á karfa var á þriðjudag hærra en nokkru sinni fyrr á upp-
boðsmarkaðnum í Bremerhaven í Þýskalandi. Þýskur togari fékk
þá fjögur þýsk mörk fyrir hvert kíló, 85 krónur rúmar. Astæðan
er fyrst og fremst mjög lítið framboð og skortur á karfa. Stjórnend-
ur fiskmarkaðsins telja að þetta háa verð muni stórlega draga úr
eftirspurn en jafnframt sé hætta á auknu framboði í kjölfar þessa,
offramboði og mjög lágu verði.
Reinhard Meiners, framkvæmda-
stjóri fiskmarkaðsins, sagði í
samtali við Morgunblaðið að þetta
háa verð myndi valda verðlækkun
mjög fljótlega. Næsta vika gæti
hins vegar orðið varasöm fyrir út-
flytjendur á fiski ef þeir gættu sín
ekki og seldu of mikið inn á markað-
inn. Hann sagði menn verða að
fara eftir upplýsingum um framboð
og eftirspum, en boð og bönn, eins
og hugmyndir um útflutningsstopp,
kæmu tæpast til greina.
Ari Halldórsson, einn þeirra sem
sjá um fisksölu í Þýskalandi, segir
að stjóma verði magninu inn á
markaðinn hveiju sinni í samræmi
við aðstæður þannig að engin „slys“
verði eins og því miður hafi komið
fyrir hvað eftir annað. „Það er
ábyrgðarhluti séu menn hvattir til
of mikils útflutnings, en það felst
ekki minni ábyrgð í því fari útflytj-
endur ekki eftir ráðleggingum og
upplýsingum um markaðsstöðuna,
og geti með því, eins og dæmin
sanna, valdið sér og öðrum verulegu
fjártjóni," sagði Ari Halldórsson.
Þórarinn Guðbergsson, sem einn-
ig annast fisksölu í Þýskalandi,
tekur í svipaðan streng og Rainer
og Ari. Hann segir að stöðugt og
jafnt framboð sé forsenda þess að
útflutningur á ferskum fiski gangi
eðlilega fyrir sig, og hvorki kaup-
endur né seljendur verði fyrir
skakkaföllum, framboð megi hvorki
verða of mikið né of lítið, og haga
verði veiðum íslenskra fiskiskipa
þannig að tekið sé tillit til vinnslu-
getu í landi og markaðsaðstæðna
erlendis.
Ríkið og flugumf erðarstj órar:
Samningar
náðust í gær
SAMNINGAR náðust í gær í deilu samning með fyrirvara um sam-
flugumferðastjóra og ríkisvalds þykki félagsmanna.
og undirrituðu fulltrúar aðila
INNLENT
Hafskipsmál:
Fundað hefur verið stíft síðustu
tvær vikur og náðist að lokum sam-
komulag, með því að mikilvægustu
kröfu flugumferðarstjóra var full-
nægt. Að sögn Jón Ama Þórissonar
varaformanns Félags íslenskra
flugumferðarstjóra fólst þessi krafa
í því, að hluti fastra aukagreiðslna
var viðurkenndur til fastra launa,
þannig að kæmi til tekna við
greiðslu eftirlauna. Að öðru leyti
vildi Jón Ami ekki tjá sig um efnis-
atriði samningsins, enda væri
félagsfundur annað kvöld.
Urskurður
umfrávís-
unarkröfuí
júlímánuði
KRAFA veijenda fjögurra fyrr-
um forsvarsmanna Hafskips hf.,
um að máli ákæruvaldins gegn
þeim verði vísað frá dómi, verður
ekki tekin fyrir hjá sakadómi
Reykjavíkur fyrr en i júlL Er það
vegna sumarleyfis dómarans.
Þegar málið var þingfest í saka-
dómi hinn 5. maí síðastliðinn,
kröfðust veijendur þess að málinu
jirði vísað frá, þar sem ríkissak-
sóknari hefði átt að víkja sæti vegna
tengsla sinna við málið. Áður en
frávísunarkrafan var tekin fyrir
kröfðust veijendumir þess að ríkis-
saksóknari og Albert Guðmundsson
yrðu kallaðir fyrir sem vitni og að
aflað yrði upplýsinga um lántökur
ríkissaksóknara. Sakadómur hafn-
aði þessum kröfum og Hæstiréttur
staðfesti þann úrskurð 4. júní sl.
Úrskurður um frávísunarkröfu veij-
endanna verður að öllum líkindum
kveðinn upp fljótlega eftir að Har-
aldur Henrysson, sakadómari,
kemur aftur til starfa 1. júlí, að
loknu sumarfríi.
Kristján Jakobsson
Pilturinn
sem lést í
Vaglaskógi
UNGI pilturinn, sem lést í Vagla-
skógi aðfaranótt sl. laugardags,
hét Kristján Jakobsson, til heim-
ilis að Vanabyggð 8c á Akureyri.
Kristján heitinn var fæddur þann
5. júlí árið 1971 og var því 15 ára
er hann lést.