Morgunblaðið - 11.06.1987, Side 6

Morgunblaðið - 11.06.1987, Side 6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987 & ÚTVARP / SJÓNVARP undirstaða Enskan sækir stöðugt á í ljósvaka- miðlunum. Dæmi: Senn siglir sænska hljómsveitin Europe uppað íslands- ströndum að lemja húðir og þenja raddbönd. Að undanfömu hefír einn hljómsveitarstrákurinn sent kveðju til hlustenda Bylgjunnar — nú hugsa víst flestir með sér að kveðjan hafí hljómað á sænsku — nei, aldeilis ekki, hún hljómar á því ástkæra ylhýra alþjóðamáli er ENSKA nefnist og auðvitað dettur ekki nokkrum lifandi manni í huga að þýða kveðjuna, er nokkur ástæða til þess þegar hlustir eru stútfylltar af engilsaxnesku poppi og bandarískar kvikmyndir og sjón- varpsþættir prýða sjónsteina bróður- part hvfldartímans? Ég óttast satt að segja að vamað- arorð íslenskumanna er hefir borið fyrir augu lesenda Morgunblaðsins að undanfömu eigi við rök að styðj- ast, eða tóku menn eftir því að kynning Gunnars Larsen á tískusýn- ingunni á fegurðarhófínu í Broadway var á ensku. Smásmygli máski en margt smátt gerir eitt stórt og hvað um allar sjónvarpsauglýsingamar þar sem enskan sækir stöðugt á — að mér virðist. En hvað sem líður hinum óheillavænlegu áhrifum poppiðnaðar- ins, hins engilsaxneska kvikmynda- iðnaðar og auglýsingafársins á bijóstvöm þjóemis vors þá eru sýnu alvarlegust áhrif hins enskuskotna bamaefnis. Power GrayskullH Undirritaður var staddur á hvíta- sunnudag útí garði að reyta arfa, að sjálfsögðu með í það minnsta eitt viðtæki í gangi, samt bárust dular- full hljóð frá drengjunum á efri hæðinni og byijuðu þau öll á orðinu POWER. Það er ekki að orðlengja að undirritaður hverfur úr arfabeðinu og læðist uppí bamaálmuna. Skýrð- ust nú hin undarlegu hljóð er fjöl- miðlaskríbentinn komst að því að smáfólkið var tekið til við að ræða saman á ensku setningamar hrifsað- ar beint úr uppáhaldsþáttunum á Stöð 2; MASTERS OF THE UNI- VERSE og POWER EXTREME, að sjálfsögðu samhengislausar en samt voru drengimir standandi hissa á gamla manninum er hann spurði: Af hveiju taliði ekki saman á íslensku, strákar? HE-MAN og SKELETOR tala ekki saman á íslensku, pabbi, veistu þetta ekki? Brestur stíflan? Forsvarsmenn Stöðvar 2 hafa löngum lofað að lesið yrði inná bama- efni en ekki hafa þeir staðið við þau loforð. Ég vil minna yfirmenn Stöðv- ar 2 á þá staðreynd að bamaefnið á laugardags- og sunnudagmorgnum réði mestu um söluna á myndlyklun- um á úrslitastundu. En haldiði, ágætu dagskrárstjórar, að fólk uni því til lengdar að bömunum sé boðið uppá myndir með ensku tali, ég læt vera unglingamyndimar er bef fyrir augu áhorfenda þá líður að hádegi. Umsjónarmenn bamaefnis ríkis- sjónvarpsins hafa lagt sig fram um að fínna snjalla upplesara úr leikara- stétt er hafa oft auðgað bamamynd- imar og nefni ég af handahófi hinn fjallhressa Karl Agúst Úlfsson. Hafí umsjónarmenn bamaefnis ríkissjón- varpsins sæmd af en betur má ef duga skal. Það hlýtur að vera frum- krafa íslenskra foreldra og bama þeirra að allt baraaefni í sjónvarpi beri lesinn íslenskan texta. Það er raunar móðgun við smáfólkið er á að erfa landið að bjóða því uppá að hlýða stöðugt á erlent tal og senni- lega þekkjast slík vinnubrögð hvergi nema hjá vanþróuðum þjóðum er kremjast því miður svo alltof oft und- ir hæl hins alþjóðlega vitundariðnað- ar. Ef ekki verður hér gerð bragarbót sé ég ekki annað til ráða en setja lög um að lesið verði inná allt íslenskt bamaefni. En það mál er að sjálf- sögðu í höndum væntanlegs mennta- málaráðherra er stendur i stafni þess fleys er ber okkur um hringiðusvelg ljósvakaelfunnar. Ólafur Mv Jóhannesson Ríkissj ónvarpið: Góði granninn Sam Góði granninn Ol 35 Sam, bandarísk ^ -1- gamanmynd frá árinu 1964, er á dagskrá sjónvarps í kvöld. Sam nokkrum Bissell er falið mikilvægt verkefni á aug- lýsingastofu þar sem hann starfar. Samtímis býðst honum mikið fé fyrir að leika eiginmann miljóna- erfíngja í nokkra daga. Hann hyggur gott til glóð- arinnar en ekki gengur vandræðalaust að sameina þessi hlutverk. Leikstjóri er David Swift en mað að- alhlutverk fara Jack Lemmon, Romy Schneider, Dorothy Provine og Ed- ward G. Robinson. 'V'r nmr Gamanmyndin Góði granninn Sam er á dagskrá sjónvarps í kvöld. UTVARP © FIMMTUDAGUR 11. júní 6.45 Veðurfregnir. Bæn. 7.00 Fréttir 7.03 Morgunvaktin. Hjördís Finnbogadóttir og Óðinn Jónsson. Fréttir eru sagðar kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Fréttayfirlit kl. 7.30 og síðan lesiö úr forustugrein- um dagblaðanna. Tilkynn- ingar eru lesnar kl. 7.25, 7.55 og 8.25. Guömundur Sæmundsson talar um dag- legt mál kl. 7.20. Fréttir á ensku sagðar kl. 8.30. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. 9.05 Morgunstund barn- anna. Gunnvör Braga les fyrri hluta þýðingar Theó- dors Árnasonar á ævintýr- inu „Litla klárnum" úr bókinni „Gömul ævintýri". 9.20 Morguntrimm. Tónleik- ar. 10.00 Fréttir. Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir 10.30 Ég man þá tfð. Her- mann Ragnar Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum. 11.00 Fréttir. Tilkynningar. 11.05 Samhljómur. Umsjón: Anna Ingólfsdóttir. (Þáttur- inn veröur endurtekinn að loknum fréttum á miðnætti). 11.65 Útvarpiö í dag. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Hádegisfréttir 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.30 ( dagsins önn — Við- talið. Umsjón: Ásdís Skúla- dóttir. (Þátturinn verður endurtekinn nk. mánudags- kvöld kl. 20.40.) 14.00 „Davíð", smásaga eftir Le Clécio. Þórhildur Ólafs- dóttir þýddi og flytur for- málsorö. Silja Aðalsteins- dóttir les síöari hluta. 14.35 Dægurlög á milli stríða. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 15.20 Sumar í sveit. Umsjón: Hilda Torfadóttir. (Frá Akur- eyri.) (Endurtekinn þáttur frá kvöldinu áður.) 16.00 Fréttir. Tilkynningar. 16.05 Dagbókin Dagskrá 16.15 Veðurfregnir 16.20 Barnaútvarpið 17.00 Fréttir. Tilkynningar. 17.05 Síödegistónleikar. a. Hornkonsert nr. 2 í Es- dúr K. 417 eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Barry Tuckwell og St. Martin-in- the-Fields-hljómsveitin leika; Neville Marriner stjórnar. b. Sinfónía nr. 28 í C-dúr K. 200 eftir Wolfgang Ama- deus Mozart. Fílharmoníu- sveitin i Berlín leikur; Karl Böhm stjórnar. 17.40 Torgið Umsjón: Ragnheiður Gyða Jónsdóttir. 18.00 Fréttir. Tilkynningar. 18.05 Torgið, framhald. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir 19.30 Tilkynningar Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá morgni sem Guð- mundur Sæmundsson flytur. 19.40 Aö utan. Fréttaþáttur um erlend málefni. 20.00 Vegryk. Þáttur í umsjá Jóns Hjartarsonar. 20.40 Tónleikar i útvarþssal. a. Elísabet Erlingsdóttir syngur lög eftir Charles Ives og Þorkel Sigurbjörnsson. Kristinn Gestsson leikur með á píanó. b. Margrét Gunnarsdóttir leikur píanósónötu í g-moll SJÓNVARP FIMMTUDAGUR 11. júní 20.00 Fréttir. 20.40 Auglýsingar og dag- skrá. 20.45 Ráðherrafundur í Reykjavík. Þáttur á vegum fréttastofu sjónvarpsins um fund ut- anríkisráöherra Atlantshafs- bandalagsríkja I Reykjavík. 21.35 Góði granninn Sam (Good Neighbour Sam). Bandarísk gamanmynd frá 1964. Leikstjóri: David Swift. Aöalhlutverk: Jack Lemmon, Romy Schneider, Dorothy Provine og Edward Q. Robinsoo. Sam Bissel er faliö mikilvægt verkefni á auglýsingastofunni þar sem hann starfar. Um leið býðst honum of fjár fyrir að leika eiginmann milljónaerfingja í nokkra daga. Sam hyggur gott til glóðarinnar en ekki gengur það árekstralaust að sameina þessi hlutverk. Þýðandi: Reynir Harðarson. 23.45 Dagskrárlok. 6 0: STOD-2 FIMMTUDAGUR 11. júní i 16.45 Ástargyöjan Rita Hay- worth (Rita Hayworth. Love Goddess). Bandarísk bíó- mynd frá 1983 um leikkon- una Ritu Hayworth sem lést í maímánuði sl. [ aðalhlut- verkum eru Lynda Carter, Michael Lerner, John Considine og Alejandro Rey. Leikstjóri: James Goldstone. Á fimmta áratugnum lagði kyntáknið Rita Hayworth Hollywood að fótum sér. Hún var sú sem allir menn vildu eiga og allar konur líkjast. En þrátt fyrir frægð og frama — eða kannski vegna þess — mætti Rita andstreymi í sínu eigin lífi. i 18.30 Ljóti andarunginn eftir H.C. Andersen. Teikni- mynd. 19.00 Kattanóru-sveiflu- bandið. Teiknimynd. 19.30 Fréttir. 20.00 Bresku kosningarnar. Þórir Guðmundsson frétta- maöur ræðir við breska stjórnmálaskýrendur og kynnir jafnframt frambjóð- endur bresku þingkosning- anna sem fara fram í dag, 11. júní. 20.30 Sumarliðir. Hrefna Haraldsdóttir kynnir helstu dagskrárliði Stöðvar 2 næstu vikuna, virðir fyrir sér mannlífið og stiklar á menn- ingarviöburðum. Stjórn upptöku: Hilmar Oddsson. 21.05 Dagar og nætur Molly Dodd (The Days and Nights of Molly Dodd). Nýr bandarískur gaman- myndaflokkur með Blair Brown, William Converse- Robberts, Allyn Ann McLerie og James Greene í aðalhlutverkum. Gaman- samir þættir um fasteigna- salann Molly Dodd og samskipti hennar við fyrrver- andi eiginmann, móður, yfirmann og lyftuvörð. § 21.35 Dagbók Lyttons (Lytt- on’s Diary). Breskur sakamálaþáttur með Peter Bowles og Ralph Bates f aðalhlutverkum. Neville Lytton er sá slúður- dálkahöfundur sem á hvað mestri velgengni að fagna á Fléet-stræti. Hann kemst þó oft í hann krappan þegar hann leitar uppi heimildar- menn sína. í þessum þætti kemst Lytton að því að ekki er allt með felldu f einkalífi ástralsks auðjöfurs nokk- urs. § 22.25 Faðerni (Paternity). Bandarísk gamanmynd frá árinu 1981. í aðalhlutverk- um eru Burt Reynolds, Beverly D'Angelo, Norman Fell, Paul Dooley og Lauren Hutton. Leikstjóri: David Steinberg. Piparsveini nokkrum finnst líf sitt orðið innantómt og til að ráða bót á því ákveöur hann að fá barn á heimilið — en án móður. Hann ræð- ur unga þjónustustúlku til þess að ganga með og ala barnið. Hún flytur inn til hans svo hann geti fylgst með meðgöngunni. En hon- um reynist erfitt að gefa piparsveinalífið upp á bát- inn. § 23.65 Flugumenn (I Spy). Bandarískur njósnamynda- flokkur með Bill Cosby og Robert Culp í aöalhlutverk- um. Tveir þrekmiklir og dugandi bandarískir alþjóðanjósnar- ar fela sitt rétta andlit á bak við tennisíþróttina. 00.45 Dagskrárlok op. 22 eftir Robert Schu- mann. 21.30 Skáld á Akureyri. Annar þáttur. Umsjón: Þröstur Ás- mundsson. (Frá Akureyri). 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir 22.20 Meistararnir miklu. Fjall- að um stórmenni tónbók- menntanna, og list þeirra borin saman við tónlist nú- tímans. Umsjón: Sigmar B. Hauksson. 23.00 Kvöldtónleikar a. Fiðlukonsert I a-moll eftir Johann Sebastian Bach. Henry Szeryng og „Colleg- ium Musicum“-kammer- sveitin í Winterthur leika. b. Píanósónata í Es-dúr eftir Joseph Haydn. Anrej Gawri- low leikur. c. Sinfónfa nr. 5 f B-dúr eft- ir Franz Schubert. Filharm- oníusveitin f Vínarborg leikur; Karl Böhm stjórnar. 24.00 Fréttir. 00.10 Samhljomur. Umsjón: Anna Ingólfsdóttir. (Endur- tekinn þáttur frá morgni.) 01.00 Veðurfregnir. Næturútvarp á samtengd- um rásum til morguns. & FIMMTUDAGUR 11. júní 00.10 Næturvakt útvarpsins. Magnús Einarsson stendur vaktina. 6.00 í bítiö. Snorri Már Skúla- son léttir mönnum morgun- verkin, segir frá veðri, færð og samgöngum og kynnir notalega tónlist í morguns- árið. Fréttir á ensku sagöar kl. 8.30. 9.05 Morgunþáttur í umsjá Kolbrúnar Halldórsdóttur og Skúla Helgasonar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.46 Á milli mála. Umsjón: Leifur Hauksson, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Svanbergsson. 16.06 Hringiðan. Umsjón: Broddi Broddason og Erla B. Skúladóttir. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Vinsældalisti rásar 2. Gunnar Svanbergsson og Georg Magnússon kynna og leika 30 vinsælustu lög- in. 22.05 Tfska. Umsjón: Katrfn Pálsdóttir. 23.00 Kvöldspjall. Haraldur Ingi Haraldsson sér um þáttinn að þessu sinni. (Frá Akureyri.) 00.10 Næturútvarp. Magnús Einarsson stendur vaktina til morguns. Fréttir kl. 7.00, 8.00, 9.00, 10.00, 11.00, 12.20, 15.00, 16.00, 17.00, 18.00, 19.00, 22.00 og 24.00. SVÆÐISÚTVARP AKUREYRI 18.03—19.00 Svæöisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni — FM 96,5 M.a. er leitaö svara við spurningum hlustenda og efnt til markaðar á Markað- storgi svæöisútvarpsins. FIMMTUDAGUR 11. júní 07.00—09.00 Pétur Steinn og morgunbylgjan. Pétur kem- ur okkur réttu megin framúr með tilheyrandi tónlist og lítur yfir blöðin. Bylgjumenn verða á ferð um bæinn og kanna mannlíf og umferö. Fréttir kl. 7.00, 8.00 og 9.00. 09.00—12.00 Valdís Gunnars- dóttir á léttum nótum. Sumarpoppið allsráðandi, afmæliskveðjur og spjall til hádegis. Fjölskyldan á Brá- vallagötunni lætur í sér heyra. Fréttir kl. 10.00 og 11.00. 12.00-12.10 Fréttir. 12.10—14.00 Þorsteinn J. Vil- hjálmsson á hádegi. Þor- steinn spjallar við fólkiö sem ekki er í fréttum og leikur létta hádegistónlist. Fréttir kl. 13.00. 14.00—17.00 Ásgeir Tómas- son og síðdegispoppið. Gömlu uppáhaldslögin og vinsældalistapopp i réttum hlutföllum. Fjallað um tón- leika komandi helgar. Fréttir kl. 14.00, 15.00, 16.00. 17.00—19.00 Ásta R. Jóhann- esdóttir í Reykjavík síðdeg- is. Ásta leikur tónlist, lítur yfir fréttirnar og spjallar við fólk sem kemur við sögu. Fréttir kl. 17.00. 18.00-18.10 Fréttir. 19.00—21.00 Anna Björk Birgisdóttir á flóamarkaöi Bylgjunnar. Flóamarkaður og tónlist. 21.00—24.00 Sumarkvöld á Bylgjunni. 24.00—07.00 Næturdagskrá Bylgjunnar — Valdfs Óskarsdóttir. Tónlist og upplýsingar um veður og flugsamgöngur. ALFA KHMlUa >nn>.illl, FM 102,9 FIMMTUDAGUR 11. júní 8.00 Morgunstund: Guðs orð og bæn. 8.15 Tónlist. 12.00 Hlé 13.00 Tónlistarþáttur með lestri úr Ritningunni. 16.00 Hlé. 20.00 Biblíulestur í umsjón Gunnars Þorsteinssonar 21.00 Logos. Stjórnandi: Þröstur Steinþórsson. 22.00 Fagnaðarerindið flutt f tali og tónum. Miracle. Flytj- „^ndi: Aril Edvardsen 22.15 Síðustu tímar. Flytjandi: Jimmy Swaggart 1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.