Morgunblaðið - 11.06.1987, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987
7
(Paternity). Gamanmynd með
Burt Reynolds. Piparsveini
nokkrum finnst lífsitt innantómt
og til að ráða bót á því ákveður
hann að fá barn inn á heimilið,
- en án móður. Hann ræður
unga þjónustustúlku tilþess að
ganga með og ala barnið.
20:00
Föstudagur
HEIMSMETABÓK
GUimniESS
Stærstur! Mestur! Lengstur!
Bestur! Mesta átvaglið! Stærsti
stóllinn! Sterkasti maður heims!
Allt þetta og fleira isama dúr
erað finna iheimsmetabók
Guinness.
S:62 12 15
Morgunblaðið/Börkur
Nýja útvarpshúsið
vígt 19. júní;
Fréttastofan
flytur í
næstu viku
Undirbúningur að flutningi
fréttastofu útvarpsins úr gamla
húsinu við Skúlagötu f nýja út-
varpshúsið við Efstaleiti er nú
á lokastigi. Að sögn Kára Jónas-
sonar, fréttastjóra, mun flutn-
ingur fréttastofunnar eiga sér
stað dagana 18. og 19. júni næst-
komandi, en sfðari daginn mun
forseti íslands, Vigdfs Finn-
bogadóttir, formlega vfgja nýja
útvarpshúsið við hátíðlega at-
höfn klukkan 17.30. Meðfylgj-
andi mynd var tekin þegar verið
var að ganga frá innréttingum
á fréttastofunni f nýja útvarps-
húsinu. Kári Jónasson er við
stjórnborðið.
Margeir Pétursson ger-
ist atvinnumaður í skák
Fomleifar
á Bessastöðum:
Dýrabein-
in rannsökuð
í New York
HLUTI dýrabeina, sem fundust
þegar gólf Bessastaðastofu var
grafið upp fyrir skönunu, hefur
verið sendur til New York til grein-
ingar. Þar verður unnið að rann-
sókum á þvf hvaða bein er um að
ræða og hver hlutföll eru miUi teg-
unda, svo unnt verði að sjá hvaða
fæði menn Ufðu á forðum og hvern-
ig heilsufar dýranna var.
Guðmundur Ólafsson, fomleifa-
fræðingur, fór með beinin til Hunter
College í New York, en sérstök deild
innan hans vinnur að slíkum rann-
sóknum. Dýrabeinin eru aðallega frá
18. og 19. öld.
„Þessi greining fellur undir svokall-
aða dýrafomfræði," sagði Guðmund-
ur. „Stofnunin sem rannsakar beinin
sérhæfir sig í slíkum rannsóknum og
það verður ekki hafíst handa við
greininguna fyrr en í haust. Þeir sem
vinna við þetta koma hingað til lands
í sumar til að afla sér fleiri dýrabeina
frá ýmsum landshlutum til saman-
burðar. Þannig sést hvort mismunur
hefur verið á fæði milli landshluta og
hvort fæðuöflun hefur breyst frá einni
öld til annarrar. Það er til dæmis
möguleiki, með því að beita vissum
aðferðum við rannsóknir fiskbeina,
að gera sér grein fyrir ástandi fisk-
stofna við landið fyn- á öldum."
Einn þeirra er tekur þátt í þessum
rannsóknum á vegum Hunter College
er fomleifafræðingurinn Tom Amo-
rosi. Hann hefur unnið að rannsókn-
um á fomum dýrabeinum á
norðurslóðum á undanfömum ámm,
meðal annars á íslandi, Grænlandi og
í Alaska, og vinnur að doktorsritgerð
sem fjallar um það efni. Tom vann
til dæmis að greiningu beina sem
fundust við fomleifarannsóknir á
Stóra-Borg.
MARGEIR Pétursson hefur
ákveðið að gerast atvinnumaður
i skák en hann hefur veitt inn-
heimtudeild Búnaðarbanka
íslands forstöðu síðan hann lauk
lögfræðiprófi.
Margeir og Jóhann Hjartarson
héldu í gær áleiðis til Sovétríkjanna
þar sem þeir taka þátt í sterku
skákmóti. í samtali við Morgun-
blaðið sagði Margeir að þátttaka í
því móti væri fyrsta skrefið í að
auka skákiðkunina. Hann hefði ver-
ið í fullu starfi með skákinni og því
hefði hann verið talsvert mistækur
á skákmótum, sérstaklega upp á
síðkastið. Sér væri fulljóst að hann
yrði að sinna skákinni meira en
hingað til ef hann ætlaði að verða
meira en einhver meðaljón í íþrótt-
inni.
14 keppendur verða í mótinu í
Sovétríkjunum sem er í 12. styrk-
leikaflokki og er sterkasta mót sem
Margeir og Jóhann hafa tekið þátt
í fyrir utan IBM-skákmótið hér á
landi í vetur. Níu skákmenn frá
Sovétríkjunum taka þátt f mótinu,
stórmeistaramir Geller, Romanis-
hin, Rasuvajev, Lemer, Dolmatov,
Gurevich og Lputjan, og alþjóða-
meistaranir Malanjek og Pigusov,
sem raunar eru báðir stigahærri en
íslendingamir. Þá keppa júgoslavn-
eski stórmeistarinn Ivanovich og
enski alþjóðameistarinn Hodgson á
mótinu.
Pyrsta umferð mótsins verður á
föstudag.
Verö frá kr.: 348.700,-
Ný sending
af Peugeot 205
Bílar til afgreiöslu strax
JÖFUR HF
Nýbýlavegi 2 • Sími 42600