Morgunblaðið - 11.06.1987, Side 19
rpor TT/fTTT rr ctttha rMnpar mriA tot>tttrvcroA/
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987
»r
19
•að titillinn skipti minnstu máli.
Fyrst og fremst hafí vakað fyr-
ir sér að lífga upp á fremur
kuldalegt og ópersónulegt um-
hverfí með hlýjum og lífgandi
litum.
Fugladans er 3x6 metrar að
stærð og unninn í keramík, eins
og fyrr sagði. Hann er samsett-
ur af fímmtíu 60x60 sm stórum
leirplötum frá Buchtal-verk-
smiðfjunum í Vestur-Þýskalandi.
Þær voru brenndar einu sinni
áður en þær komu til landsins,
en eftir að listamaðurinn hafði
litað þær, voru þær brenndar
öðru sinni hjá fyrirtækinu Glit
hf. hér á landi.
En er ekki erfítt fyrir málara
að vinna svo stórt verk með
annarri aðferð en hann er
vanur?
„Það er ekkert erfítt. Maður
verður náttúrlega að fá aðstoð
við ýmis atriði, sem lúta að
tækninni við vinnuna sjálfa, en
það eru aukaatriði. Listamenn
■ Endurreisnarinnar t.d. hjuggu
ijöfnum höndum í stein, máluðu,
hönnuðu hús og fundu jafnvel
|upp vígvélar. Það er gaman að
skipta um efni. Ég vildi gjama
vinna með eitthvað annað en
ínálverkið svona annað hvert
ár. Það er mjög þroskandi."
Þess má geta, að áður hefur
Hafsteinn unnið og sett upp
stóra veggskreytingu úr málmi
á framvegg Hrauneyjafossvirkj-
unar. En á næstunni mun hann
helga sig málaralistinni að nýju.
George W. Jaeger
SVSogVarð-
berg með
fyrirlestur
EINS OG kunnugt er, er utanrík-
isráðherrafundur Atlantshafs-
bandalagsins haldinn f Reykjavík
11. og 12. júní. Stjórn Samtaka
um vestræna samvinnu (SVS) og
stjórn Varðbergs hafa vegna
þess ákveðið að efna til sameigin-
legs fundar með félagsmönnum
og gestum þeirra um niðurstöður
ráðherrafundarins. Hádegis-
fundur verður haldinn í Átthaga-
sal Hótels Sögu laugardaginn 13.
júní. Salurinn verður opnaður
kl. 12.00. Fundurinn er einungis
ætlaður félagsmönnum í SVS og
Varðbergi, svo og gestum félags-
manna.
Gestur fundarins og framsögu-
maður verður George W. Jaeger,
yfírmaður í Stjómmáladeild NATO,
„Director, Political Directorate".
Umræðuefni hans er: „Samskipti
austurs og vesturs í framhaldi af
Reykjavíkurfundi NATO".
Pramsöguerindið verður flutt á
ensku, og ræðumaður svarar fyrir-
spumum fundargesta að því loknu.
(Fréttatílkynmng)
Eðlisfræðifélag íslands:
Eríndi um kenningar eðlis-
fræðingsins Ernst Mach
ÞÓRIR Sigurðsson mun í dag
flytja erindi á vegum Eðlisfræði-
félags íslands um kenningar
þýska eðlisfræðingsins Ernst
Mach. Erindið, sem ber heitið
„Hvað er tregða: Innri eiginleiki
eða heimsfræðileg áhrif“, verður
flutt í kaffistofu Raunvisinda-
stofnunar, að Dunhaga 5, og
hefst klukkann 17.15. Fyrirlest-
urinn er öllum opinn.
í erindinu verður fjallað á al-
þýðlegan hátt um viðleitni manna
eins og Sciama, Dicke, Hoyles og
Narlikars á síðari árum til að fella
„Lögmál Machs“ inn í hrejrfífræði
Newtons og Einsteins.
Þórir stundaði nám í stærðfræði,
eðlisfræði, stjömufræði og heim-
speki í Svíþjcið og Bandaríkjunum.
Hann lauk M.S. prófi í eðlisfræði
við Purdue-háskólann árið 1972.
Þórir hefur starfað sem mennta-
skólakennari á Akureyri og í
Reykjavík og sem stundakennari
við Háskóla Islands.
Stjórn Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar:
Gefur fé til stofnunar
starfgóðs læknadeildar
Á myndinni eru talið frá vinstri: Þórður Harðarson, yfirlæknir,
Ásmundur Brekkan, forseti læknadeildar Háskóla íslands, Gísli Sig-
urbjörnsson, formaður stjórnar Grundar og Reynir T. Geirsson,
dósent við læknadeild.
í TILEFNI þess að nú eru
sextíu og fimm ár liðin frá
því að elliheimilið Grund,
síðar Elli- og hjúkrunar-
heimilið Grund, tók til starfa,
hefur stjórn Grundar ákveð-
ið, að leggja fram nokkurt
fé úr Stofnendasjóði Grundar
til stofnunar Starfssjóðs
læknadeildar Háskóla ís-
lands. Á þennann hátt vill
stjórnin votta íslenskum
læknum, lífs og liðnum, virð-
ingu og þakklæti.
Markmiðið með sjóðsstofnun-
inni er, að Starfssjóður lækna-
deildar fái fé til eigin umráða
til eflingar og úrlausnar ýmsum
framfara- og velferðarmálum.
Sjóðurinn skal vera í vörslu
háskólans en til ráðstöfunar
samkvæmt ákvörðun stjómar
læknadeildar, en hún mun einnig
gefa sjóðnum starfsreglur. Að
öðru leyti bendir stjóm Gmndar
á Starfssjóð Guðfræðistofnunar
Háskóla íslands og stofnskrá
hans.
Stjómin óskar einnig eftir því
að eftirtalin nöfn verði rituð í
heiðurs- og minningagjafabók
Starfssjóðs læknadeildar, þegar
hún verður gerð:
Bjarni Bjamason, f. 29.10.
1901, d. 23.12.1976
Skúli V. Guðjónsson,
f. 26.11.1895, d. 25.1.1955
Þórður Sveinsson, f.20.12.
1874, d. 21.11.1946
Ef þú getur skrifað
snjallan auglýsingatexta
þa höfum við spennandi
starf við þitt hæfi.
Innan skamms þurfum vi8 hjá Góðu fólki
að ráða í stöðu textahöfundar.
Þess vegna leitum við nú að snjöllum
textasmiði, sem hefur áhuga á vinnu við
auglysingagerð.
Jafnframt textagerð er starfið fólgið í
undirbúningi verkefna og umsjón með
verkefnum.
Ef þú hefur áhuga á spennandi og vel
TaunuFu ™ta r
samstarfsfólki,þá hafðu samband við
framkvæmdastjóra Góðs fólks,
Kristján Jonsson, í síma 39600.
Aftur kljufum við verðmurinn !
Gífurleg verölækkun vegna hagstæöra innkaupa.
ZANUSSI ZF-821X ÞVOTTAVÉL
á kr. 29.900
f Mal (HxBxD) 85x60x55 cm. 9Þvottamagn 4,2 ka
• 400/800 snun. vinduhraði. • 16 pvottakerfi
JQ^^ÆKJARGOTl^^^AFNARFIRÐ^SÍIM^0022