Morgunblaðið - 11.06.1987, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987
Hjálparsveitiii LómfeU
eignast björgunarbát
HJÁLPARSVEIT var stofnuð á
Barðaströnd síðastliðið vor. Ber
hún nafnið Lómfell. í sveitinni
starfa 26 félagar og hefur hún
eignast bíl, talstöð og farsíma en
á næstunni mun henni berast
björgunarbátur. Sveitin gerðist
aðili að Landssambandi hjálpar-
sveita skáta á aðalfundi þess á
Akureyri nýverið.
í frétt hjálparsveitarinnar segir
að hún hafi verið stofnuð fyrir til-
stuðlan Samúels Bjamasonar í
Hvammi sem fékk Nínu Hjaltadótt-
ur frá Landsambandi hjálparsveita
skáta til þess að kenna hjálp í viðlög-
um á Barðaströnd. Á næstunni fara
þrír menn á vegum sveitarinnar til
Skotlands þar sem þeir læra björgun
úr sjó og notkun nýja björgunar-
bátsins. Hann verður búinn tveimur
70 hestafla utanborðsvélum og á
að geta gegnið 40 mílur á klukku-
stund.
Þrír aðilar í hreppnum hafa styrkt
hjálparsveitina til þess að senda
björgunarmennina þijá utan. Eru
það Flóki hf. og útgerðir bátanna
Halldórs Sigurðssonar og Glaðs.
Átta enn eftir að
mÁra og mála?
Hefur þú hugleitt verðmuninn á hefðbundnum
frágangi með pússningu og málningu og
sléttri yfirborðsmeðhöndlun með Thoro
efnum? Þeir hjá Hagvangi hf. sýndu
fram á 40% verðmun Thoro í vil og til
eru húsbyggjendur sem náð hafa 60%
sparnaði með því að nota Thoro efni
Ertu að byggja
og enn x vafa?
Þeír sem önnuðust frágang,
fegrun og vatnsþéttingu á
Hugvísíndahúsí Háskólans,
Fjölbraataskóla Saðurlands
Selfossí, Laugardalshöll og
fjölda eínbýlíshúsa vissu að
þeir völdu fljótlegasta og
endingarbesta fráganginn.
Peír völdu Thoro. Ættir
þú ekkí að slást í hópinn?
Gerðu verðsamanburð
steinprýði
Stangarhyl 7. s. 672777
Útsölustaðir:
BYKO
B.B. BYGGIN GAVÖRUR
HÚSASMIÐJAN
Björgunarbátur sömu gerðar og hjálparsveitin Lómfell er að eignast.
Veitt gráða frá
háskólanum í
Vestur-Ontario
Húsavík.
í DESEMBER síðastliðnum var
Gísla G. Auðunssyni, lækni á
Húsavík, veitt gráðan: „Master
of Clinical Science" við háskól-
ann í Vestur-Ontario (Univers-
ity of Western Ontario) í
Kanada.
Forsaga málsins er sú, að Gísla
var veittur styrkur frá Kellogg-
sjóðnum til tveggja ára fram-
haldsnáms f heimilislækningum
við þennan háskóla á árunum
1983—85. Á þeim tfma lauk hann
tilskyldu námi fýrir titilinn „Mast-
er of Clinical Science“ að undan-
skilinni rannsóknar-ritgerð, sem
hann sfðan lauk við seinni hluta
árs 1986. Opinber vöm fór síðan
fram við háskólann í Vestur-
Ontario hinn 15. desember síðast-
liðinn.
Ritgerð Gísla hefur nú verið
gefin út hér á landi í bókarformi
og er um 120 bls. Hún er á ensku
og heiti hennar „Preventive Infra-
structure in Family Practice", sem
lauslega mætti þýða: Heilsuvemd
í heimilislækningum.
Gísli viðaði að sér efni í ritgerð-
ina úti í Kanada. Annarsvegar
fjallar hún um könnun hans á
því, með hvaða hætti heimilis-
læknar geta best tryggt heilsu-
vemdar- eða forvamarstarf í
daglegri önnun sjúklinga, þ.e.
hvaða fýrirkomulag á læknamót-
töku stuðli helst að öflugu for-
vamastarfí. Hins vegar fjallar
riterðin um samanburð, sem Gísli
gerði á tveim hópum lækna í
Ontario í Kanada. Þar var annars-
vegar um að ræða heimilislækna
án sérmenntunar og hinsvegar
sérfræðinga í heimilislækningum.
Gerður var samanburður á „pre-
ventive infrastracture" hjá þess-
um hópum, það er hversu mikla
áherslu hvor hópurinn um sig
lagði á uppbyggingu forvamar-
starfs í daglegri önnun sjúklinga.
Gísli G. Auðunsson læknir.
Niðurstaðan leiddi í ljós marktæk-
an mun milli hópanna hinum
sérmenntuðu í vil.
Áhugi heilbrigðisyfirvalda á
forvömum í heilsugæslu hefur
aukist víða um heim á undanföm-
um ámm og er ísland þar engin
undantekning. Til að vekja áhuga
lækna og annarra á þessu máli
hefur heilbrigðismálaráðuneytið
staðið að útgáfu á ritgerð Gísla
og er bókin nú nýlega komin út.
Ritgerðin er fáanleg í ráðuneytinu
og hjá höfundi.
Gísli læknir, ásamt starfsfélaga
sínum Ingimar Hjálmarssyni,
lækni, setti á stofn svokallaða
læknamiðstöð á Húsavík fýrir
rúmum 20 ámm, sem síðar varð
að heilsugæslustöð á Húsavík, og
var það jafnframt fyrsta heilsu-
gæslustöðin hér á landi.
Á Húsavík hefur Gísli læknir
starfað í rúm 20 ár, ásamt konu
sinni Katrínu Eymundsdóttur,
núverandi forseta bæjarstjómar
Húsavíkur, og eiga þau þrjú upp-
komin böm.
— Fréttaritari
RÝMINGARSALA
Ungbarnaföt, barnaföt, tækifærisfatnaður og skór fást nú með
40—50% afslætti
Þetta er tækifæri til að gera góð kaup, sem enginn má láta fram hjá sér fara.
Ath. Mothercare er nú á neðri hæðinni í Habitat.
Genqið inn frá Smiðjustíg.
mothercare