Morgunblaðið - 11.06.1987, Page 28
Skemmtilegasti, hagkvæmasti og oft fljótlegasti ferðamátinn I HoU-
andi er án efa hjólandi. Þarna er greinarhöfundur ásamt „systur“
sinni, Pien Bus.
Þessi mynd var tekin í júlí 1986 í Fríslandi, þar sem hópurinn kom fyrst aUur saman og lærði fyrstu orðin
í hoUensku. Orri er í aftari röð, annar frá vinstri. Fyrir utan að læra hoUensku voru nýnemarnir undir-
búnir undir árið, sem i vændum var, af fyrrverandi skiptinemum.
Ár í öðru landi
eftir Orra Steinarsson
Ég ætla að reyna að lýsa reynslu
minni sem skiptinema, en ég hef
dvalið hér í Hollandi með alþjóða-
skiptinemasamtökunum AFS
(American Field Service) undan-
fama mánuði.
Þegar ég rifja upp fimmtudaginn
17. júlí 1986 streyma fram ferskar
minningar í huga mér, því það var
nákvæmlega dagurinn sem ég lenti
á Schiphol-flugvelli f Hollandi
ásamt öðrum skiptinema, Grétu
Guðmundsdóttur.
Þá fyrst fór ég að trúa því sjálf-
ur að þetta væri virkilega byijað.
Nú varð ekki aftur snúið heldur
að takast á við árið sem í vændum
var. Fáeinum klukkustundum áður
hafði ég kvatt alla Qölskylduna úti
á tröppum heima með kossum og
faðmlögum án nokkurs trega því
satt best að segja gerði ég mér
ekki grein fyrir því út í hvað ég
væri að fara, heldur leið mér eins
og ég væri að fara í venjulegt sum-
arfrí.
Tilgangurinn með þessari ferð
var hins vegar ekki sumarfrí, heldur
að koma inn í hollenska ijölskyldu,
ganga í hollenskan menntaskóla,
kynnast nýju fólki, menningu þess
og lífsháttum.
Mig grunar að margir haldi að
svona ár sé bara eins og hvert ann-
að sumarfrí í útlandi en þeir sem
hafa reynsluna vita að svo er ekki.
Hver og einn skiptinemi öðlast
nefnilega einstaka reynslu og hann
ræður hvað hann ætlar að leggja
mikla vinnu í árið. Þetta er nefni-
lega geysileg vinna og maður
verður að vera reiðubúinn að gefa
mikið af sér. í leiðinni er svona ár
þroskandi og spennandi og maður
lærir mikið á því, ekki síst að þekkja
sjájfan sig.
í fyrsta lagi tók ég eftir því að
maður er háður sjálfum sér og ef
eitthvað kemur upp á, hvort sem
það er heimþrá eða bara venjuleg
vandamál á miili skiptinemans og
„En það er spennandi
að fást við eitthvað sem
maður þekkir ekki og
svona ár getur boðið
upp á allt milli himins
og jarðar. Þetta er
ástæðan fyrir því að
árlega fara um 60
íslensk ungmenni út í
heim, til ókunnugs
lands, og dvelja þar í
eitt ár.“
fjölskyldunnar, þá verður maður að
læra að treysta á sjálfan sig.
Bakgrunnur, lífsfyrirkomulag og
eiginlega almennur hugsanagangur
§ölskyldunnar getur oft á tíðum
verið mjög frábrugðinn því sem
skiptineminn er vanur heima fyrir
og stundum þarf ekki mikið til að
valda misskilningi sem síðar breyt-
ist í vandamál og á endanum er
allt komið í hund og kött. Jafnvel
munur á íslendingum og Hollend-
ingum er meiri en margur heldur.
En það er spennandi að fást við
eitthvað sem maður þekkir ekki og
svona ár getur boðið upp á allt
milli himins og jarðar. Þetta er
ástæðan fyrir því að árlega fara
um 60 íslensk ungmenni út í heim,
til ókunnugs lands, og dvelja þar í
eitt ár.
Hér í Hollandi eru um 70 skipti-
nemar, tveir frá íslandi, um 20 frá
Bandaríkjunum og Kanada, aðrir
frá Ítalíu, Finnlandi, Portúgal,
Spáni, Svíþjóð, Afríku, Grænlandi,
Noregi, Venezuela, Ecuador, Hond-
uras, Englandi og Danmörku.
Þetta eru allt hressir krakkar á
aldrínum 16—19 ára og reglulega
Ríkisstjórn á grundvelli
sjálfstæðisstefnunnar
eftir Sigurbjörn
Magnússon
Eftir alþingiskosningamar ríkir
mikil óvissa um stjómarmyndun.
Fyrstu tilrau'nimar ganga erfiðlega
og margt bendir til þess að nokkur
stjómarkreppa verði áður en tekst
að mynda starfhæfa ríkisstjóm. Að
undanfömu hefur mikið verið talað
um hvaða skilyrði Kvennalistinn
setti fram fyrir þátttöku í ríkis-
stjóm. Það hefur nú komið í ljós
að Kvennalistinn er óffávíkjanlegur
kröfu um lögbindingu lágmarks-
launa sem þýðir í raun afnám frjáls
samningsréttar. Kvennalistakonur
voru ekki tilbúnar til þess að láta
aðila vinnumarkaðarins semja um
kaup og kjör í frjálsum samningum.
Nú er kominn sá tími í stjómar-
myndunarviðræðumar að rétt er að
ræða hvaða skilyrði Sjálfstæðis-
flokkurinn setur fyrir næstu stjóm-
armyndun. Sjálfstæðisflokkurinn er
stærsti stjómmálaflokkurinn og
verður að axla ábyrgð samkvæmt
því. Sjálfstæðisflokkurinn gat ekki
fellt sig við tillögur Kvennalistans
sem hefðu Ieitt til margfalds ríkis-
sjóðshalla og að verðbólgu yrði aftur
komið á það stig sem hún var þegar
núverandi ríkisstjóm tók við. Eitt
af meginloforðum Sjálfstæðis-
fiokksins f kosningabaráttunni var
að stöðugleikanum yrði viðhaldið og
verðbólgunni yrði ekki hleypt af stað
á ný. En það era ýmis önnur skil-
yrði sem Sjálfstæðisflokkurinn
verður að setja fyrir þátttöku í ríkis-
stjóm.
Óbreytt stefna í ut-
anríkismálum
í utanríkismálum hlýtur Sjálf-
stæðisflokkurinn að leggja áherslu
á að vamir iandsins og öryggi
íslensku þjóðarinnar sé tryggt. Um
það er ekki hægt að semja.
Við íslendingar verðum áfram að
hafa sérfræðiþekkingu á herfræði-
legum og tæknilegum málum og
taka virkan þátt í umræðum um
öryggismál Norður-Atlantshafs-
svæðisins.
Á síðustu. áram hefur aftur á
móti verið lögð aukin áhersla á þann
þátt utanríkismálanna er lýtur að
kynningu íslenskrar framleiðslu,
vöra og þjónustu á erlendri grand.
Halda þarf áfram á þeirri braut og
semja um hvort sameina megi ut-
anríkis- og viðskiptaráðuneyti.
Standa vörð um
skattalækkanir
í skattamálum hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn þá sérstöðu frá öðrum
flokkum að vilja lækka sem mest
álögur á borgarana. Það er því mik-
ilvægt að standa vörð um þann
árangur og þær skattalækkanir sem
náðust fram með samþykkt laga um
staðgreiðslukerfi skatta. Þar var
hæsti jaðarskattur færður niður í
35% og þá prósentu má ekki hækka.
Ennfremur mun Sjálfstæðisflokkur-
inn ekki samþykkja aukna skatt-
lagningu eigna eða eignatekna frá
því sem nú er því ekki má eyði-
leggja þann hvata til spamaðar sem
felst í skattfrelsi vaxta. Hins vegar
á Sjálfstæðisflokkurinn að vera til
samninga og umræðu um endur-
skoðun laga um óbeina skatta,
upptöku virðisaukaskatts, breytingu
á tollalögum og ýmislegt í þeim
dúr. En þess verður að gæta að
skattbyrði aukist ekki frá því sem
nú er. Sjálfstæðisflokurinn verður
að hafa forystu um það að leiða
okkur frá þeirri ógnarskattheimtu
sem margar ríkisstjómir á Norðurl-
öndum hafa leitt þjóðir sínar í.
Fjármögnun ríkis
sjóðshallans
Sjálfstæðisflokkurinn á að bjóða
til samninga um stjómarmyndun á
grandvelii þess hvemigþeim tekjum
sem að ríkið hefur nú verði ráðstaf-
að á sem bestan hátt og hvemig
rikissjóðshallanum verði eytt á
næstu áram. Til þess eru ýmsar
leiðir. Þær sem sjálfstæðisstefnan
hefur lagt mesta áherslu á era inn-
lendur spamaður, ráðdeild í ríkis-
rekstri og sala ríkisfyrirtækja. Þetta
ætti að verða grundvöllur sjálfstæð-
ismanna í komandi stjómarmyndun-
arviðræðum.
Sala ríkisfyrirtækja
Sala ríkisfyrirtækja hefur verið
eitt af helstu baráttumálum ungra
sjálfstæðismanna og er mönnum í
fersku minni slagorð ungra sjálf-
stæðismanna um „báknið burt“. Nú
kemur þetta upp aftur þar sem slík
skipulögð sala ríkisfyrirtækja gæti
verið liður í ijármögnun fjárlaga-
hallans jafnframt sem mögulegt
væri að viðhalda því frelsi í atvinn-
ulífi og stöðugleika f efnahagsmál-
um sem nú ríkir. Og síðast en ekki
síst að komið verði í veg fyrir stór-
felldar skattahækkanir.
Sala ríkisfyrirtækja hefur tekist
vel bæði á íslandi og erlendis. Við
þekkjum dæmið um Granda hf.
Hver man ekki eftir því þegar Reyk-
víkingar greiddu 1,0 millj. kr. á viku
með Bæjarútgerð Reykjavíkur. Nú
er Grandi vel rekið hlutafélag og
hlutabréf Reykjavíkurborgar verða
vonandi seld innan tíðar þeim sem
óska eftir að gerast þátttakendur í
þessum atvinnurekstri. í tíð núver-
andi ríkisstjómar hafa ennfremur
verið seld Landssmiðjan og Siglósíld
og hlutabréf ríkisins í Eimskip og
Flugleiðum. Þessi sala hefur tekist
vel. En ríkisfyrirtæki era ekki ein-
ungis seld til þess að draga úr
ríkisútgjöldum og minnka halla
ríkissjóðs. Fyrirtækin era miklu
fremur seld til þess að þau lúti að-
haldi markaðarins og komist í
hendur þeirra manna sem best era
til þess fallnir að reka þau. Enn,
fremur greiða vel rekin einkafyrir-
tæki að jafnaði hærri laun en
ríkisfyrirtæki.
í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins
er vikið að nokkram ríkisfyrirtækj-
um sem ástæða væri til að losa um
eignaraðild ríkisins á. Kveðið er
skýrt á um að viðskiptabönkum í
eigu ríkisins verði breytt í hlutafélög
og þeir síðan smám saman seldir.
Sagt er að kanna skuli sérstaklega
hvort selja beri einhveija þætti sem
nú heyra undir Póst og síma. Sú
könnun gæti leitt það í ljós að heppi-
legast væri að gera Póst og síma
að almenningshlutafélagi líkt og
gert hefur verið í Bretlandi og Jap-
an og gefist vel. Ennfremur er rætt
um að selja fyrirtæki eins og Ferða-
Sigurbjöm Magnússon
„Eittaf meginloforðum
Sjálfstæðisflokksins í
kosningabaráttimni var
að stöðugleikanum yrði
viðhaldið og verðbólg-
unni yrði ekki hleypt
af stað á ný. En það eru
ýmis önnur skilyrði sem
Sjálfstæðisflokkurinn
verður að setja fyrir
þátttöku í ríkisstjórn.“
skrifstofu ríkisins. Fleiri fyrirtæki
mætti nefna en um þessi fyrirtæki
hafa sjálfstæðismenn náð sam-
komulagi á landsfundi og á þeim
mætti byija.
í umræðum um stjómarmyndanir
er stundum meira talað um hvort
mynda eigi þriggja eða fjögurra
flokka stjóm en minna rætt um
málefni, en ríkisstjóm verður að
mynda á grandvelli málefna. Sala
ríkisfyrirtækja er eitt þeirra mála
sem Sjálfstæðisflokkurinn þarf að
leggja áherslu á og í viðræðunum á
næstu dögum og vikum verður spurt
um skilyrði Sjálfstæðisflokksins.
Höfundur er varaformaður Sam-
banda ungra sjálfstæðismanna.