Morgunblaðið - 11.06.1987, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987
UTANRIKISRAÐHERRAFUNDUR ATLANTSHAFSB ANDALAGSINSIREYKJAVIK
uTÍWBlMg
Morgunblaðið/Einar Falur
Carrington
hjá utanríkisráðherra
Carrington lávarður, framkvaemdastjóri Atlantshafsbandalags-
ins, gekk á fund Matthíasar Á. Mathiesen, utanríkisráðherra,
siðdegis í gær. Á meðan blaðamaður Morgunblaðsins og ljós-
myndari dvöldust í skrifstofu ráðherrans, lýsti lávarðurinn yfir
mikilli hrifningu vegna útsýnarinnar yfir sundin úr skrifstofu
ráðherrans á efstu hæð lögreglustöðvarinnar f Reykjavík.
afstöðu vestur-þýsku ríkisstjómar-
innar. Taldi hann mestu varða að í
samkomulagi um upprætingu Evr-
ópuflauganna væri að finna skýlaus
ákvæði um eftirlit og bætti við að
það yrði vitaskuld auðveldara að
framkvæma ef samið yrði um algera
upprætingu flauganna.
Varðandi efnavopn kvaðst Carr-
ington lávarður sjá ýmiss teikn á
lofti um að Sovétmenn væru reiðu-
búnir til að semja um takmarkanir
á framleiðslu þeirra. Ríkjum Atlants-
hafsbandalagsins væri að sjálfsögðu
einnig umhugað um að slíkt sam-
komulag næðist. Hann bætti við að
eftirlit með því að ákvæði slíks sam-
komulags væru virt væri mun erfíð-
ara en eftirlit með ákvæðum
afvopnunarsáttmála. Vopnin væru
þess eðlis að tilteknum skaðlausum
efnum væri unnt að blanda saman á
þann veg að úr yrði eitruð efna-
blanda og því væri erfíðleikum
bundið að fylgjast með framleiðslu
þeirra.
Morgunblaðið/Einar Falur
Frá blaðamannafundinum í Háskólabíói. Frá vinstri: Marcello Guidi, aðstoðarframkvæmdastjóri NATO, Carrington lávarður, framkvæmda
stjóri NATO, Henning Wegener, yfirmaður stjórnmáladeildar NATO, og Robin Stafford, blaðafulltrúi NATO
Carringfton lávarður á blaðamannafundi í Háskólabíói:
Stórir hóp-
ar frétta-
manna
komu í
gærkvöldi
AÐEINS rúmur helming-
ur þeirra fréttamanna
sem væntanlegur er vegna
fundar utanríkisráðherra
Atlantshaf sbandalagsins
var kominn til landsins í
gærmorgun þegar Carr-
ington lávarður, fram-
kvæmdastjóri NATO, hélt
blaðamannafund sinn í
Háskólabíói.
Heldur tómlegt var því um
að litast í fréttamannamið-
stöðinni í Hagaskóla, en
margir notuðu daginn til þess
að skoða höfuðborgina áður
en formleg dagskrá fundarins
hefst. Að sögn starfsmanna
utanríkisráðuneytisins er nú
búist við að allt að 250 erlend-
ir fréttamenn verði viðstaddir
fundinn. Stórir hópar voru
væntanlegir í fylgdarliði
þýska, ítalska og bandaríska
utanríkisráðherrans í gær-
kvöldi.
Fundarstaður ráðher-
ranna, Hótel Saga er algjör-
lega lokaður fréttamönnum.
í Hagaskóla hafa hinsvegar
verið fráteknar stofur þar
sem ráðherrar eða talsmenn
þeirra geta haldið stutta
blaðamannafundi fyrir frétta-
menn og er viðbúið að þessir
fundir verði ein helsta upplýs-
ingalind þeirra.
Mikill skriður á afvopmm-
arviðræðum risaveldanna
- eftir leiðtogafundinn í Reykjavík
CARRINGTON lávarður, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins,
boðaði til blaðamannafundar í Háskólabíói á hádegi í gær skömmu
eftir komu hans til landsins. Á fundinum tæpti Carrington lávarður á
þeim málum sem hann taldi að hæst myndi bera á fundi utanríkisráð-
herra Atlantshafsbandalagsins í Reykjavík.
Lávarðurinn minnti í upphafí máls
síns á fund ráðherranna í Reykjavík
árið 1968 og óvæntan fund þeirra
Ronalds Reagan Bandaríkjaforseta
og Mikhails Gorbachev, aðalritara
sovéska kommúnistaflokksins á
síðasta ári. „Frá leiðtogafundinum í
Reykjavík hefur komist mikill skriður
á afvopnunarviðræður risaveld-
anna," sagði hann. Kvað hann ríki
Atlantshafsbandalagsins sammála
því að stefna bæri að útrýmingu
meðaldrægra og skammdrægra
kjamorkuflauga í Evrópu. Sagði
hann að afvopnunarviðræður risa-
veldanna og sameiginleg stefnumót-
un aðildarríkja Atlantshafsbanda-
lagsins til þeirra myndu vafalaust
bera hæst á Reykjavíkurfundi ráð-
herranna. Hann kvaðst jafnframt
telja að ræddir yrðu yfírburðir Sov-
étríkjanna á sviði hefðbundins
vígbúnaðar og minnti á mikilvægi
þess að jafnframt yrði gengið til
samninga um niðurskurð á því sviði.
„Slíkt samkomulag myndi treysta
mjög öryggishagsmuni ríkja Vestur-
Evrópu", sagði Carrington lávarður.
Aðspurður um önnur umræðuefni
ráðherranna nefndi lávarðurinn sam-
skipti austurs og vesturs og tiltók
sérstaklega veru sovésks innrásarliðs
í Afganistan og mannréttindamál
samkvæmt ákvæðum Helsinki-
samþykktarinnar. Þá taldi hann
einnig líklegt að rætt yrði um ástand-
ið á Persaflóa og ráðagerðir Banda-
ríkjamanna um aukna flotavemd
þar.
Lávarðurinn var spurður um þá
kröfu vestur-þýsku ríkisstjómarinn-
ar að 72 skammdrægar flaugar af
gerðinni Pershing la , sem staðsett-
ar eru í Vestur-Þýskalandi, verði
undanskildar í hugsanlegu sam-
komulagi risaveldanna. Hann minnti
á að flaugar þessar hefðu ævinlega
verið undanskildar þegar samninga-
nefndir hefðu rætt niðurskurð
kjamorkuvopna í Evrópu. Kvaðst
hann því telja kröfuna eðlilega og
minnti á að Bandaríkjastjóm, sem
stæði í þessum samningaviðræðum
við Sovétmenn, hefði fagnað þessari
Á Kjarvalsstöðum:
Reykjavík tekur á móti
okkur með sól og hlýju
- sagði Carrington þegar hann þakkaði borgarsljóra móttökurnar
„ÉG hef heyrt sagt, að leiðtoga-
fundurinn í Reykjavík í október
síðastliðnum hafi verið best heppn-
aði fundurinn af öllum þeim
fundum, sem eru taldir misheppn-
aðir. Ég er ekki sammála þeim,
sem telja, að fundurinn hafi mis-
heppnast og rétt er að minnast
þess, að flestir töldu, að um undir-
búningsfund undir leiðtogafund
væri að ræða. Allt annað og meira
gerðist hér í Reykjavík. Ég leyfi
mér að vitna til eins af heiðurs-
gestum okkar hér i dag, Carringt-
ons lávarðar, sem segir í
Morgunblaðinu í dag, að leiðtoga-
fundurinn hafi veríð einhver
merkasti stjómmálaviðburðurinn í
sögu eftirstríðsáranna." Þannig
komst Davíð Oddsson, borgar-
stjórí, að orði í ræðu á Kjarvals-
stöðum í gær, þegar hann bauð
þátttakendur i utanrikisráðherra-
fundi Atlantshafsbandalagsins
velkomna til Reykjavíkur.
Það var fyöldi manna í móttöku
Davíðs Oddssonar, borgarstjóra, á
Kjarvalsstöðum síðdegis í gær. Ut-
anríkisráðherrar, embættismenn
Atlantshafsbandalagsis, stjómarer-
indrekar, ræðismenn og blaðamenn
nutu þess að vera utan dyra i veður-
blíðunni. Þegar Carrington lávarður,
framkvæmdastjóri Atlantshafs-
bandalagsins, þakkaði móttökur og
viðurgjöming hafði hann orð á því,
að í öllum höfuðborgum á meginlandi
Evrópu og í London leituðu menn
Ljósmynd Bjöm R. Einarsson
Carríngton lávarður, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins og
Davíð Oddsson, borgarstjórí, í sólskininu á Kjarvalsstöðum i gær.
skjóls innan dyra vegna úrkomu og
slagveðurs, en í Reykjavík væri eins
og fyrri daginn tekið á móti fulltrúum
þjóða Atlantshafsbandalagsins með
sól og hlýju í orðsins fyllstu merk-
ingu.
I ávarpi sínu sagði Davíð Oddsson,
að síðastliðið haust, þegar leiðtoga-
fundurinn var haldinn hér með 10
daga fyrirvara, hefðu ýmsir talið, að
um alltof skamman tíma til undirbún-
ings væri að ræða. Annað hefði komið
á daginn í Reylq'avík og síðan einnig
hitt, að þessi fyrirvari væri alls ekki
of skammur, þar sem í ljós hefði
komið, að unnt væri að fljúga inn í
hjarta höfuðborgar annars ríkis án
nokkurs fyrirvara.
Undir lok máls síns sagði borgar-
stjóri, að íslendingar væru stoltir af
því að vera í hópi stofnþjóða Atlants-
hafsbandalagsins. Fýrir fámenna og
herlausa þjóð væri NATO öflugasta
friðarhreyfmgin. Spenna í okkar
heimshluta yrði hvorki minnkuð né
dregið úr vígbúnaði nema bandalagið
héldi vöku sinni og væri öflugt.