Morgunblaðið - 11.06.1987, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987
Reuter
Hluti um eittþúsund lögregiuþjóna mynda varnarmúr gegn stjómarandstæðingum í miðborg Seoul,
höfuðborgar Suður-Kóreu. Á þriðja þúsund manna voru handteknir þar í landi i gær.
Noregur:
Upplausn í norsk-
um stjórnmálum
V antrauststillaga til atkvæða á föstudag
Osló, frá fréttaritara Morgunblaðsins, Jan Erik Laure.
Fj öldahandtök-
ur í Suður-Kóreu
Seoul, Reuter.
SEM stendur ríkir algjör upp-
lausn í stjómmálum í Noregi.
Ómögulegt er að sjá fyrir hvort
rikisstjóra Verkamannaflokks-
ins undir forystu Gro Harlem
Brundtlands fellur um helgina.
Afstaða tveggja þingmanna
Framfaraflokksins ræður úrslit-
um.
inn í að slaka til gagnvart Mið-
flokksmönnum og Kristilegum, ekki
síst þar sem Miðflokkurinn setur
sem skilyrði fyrir samstöðu að land-
búnaðarstefnan felli stjómina.
Ef Presthus mistekst að fá Fram-
faraflokkinn til að styðja van-
trauststillöguna má gera ráð fyrir
að dagar hans sem flokksformanns
séu taldir. Er helst rætt um þing-
flokksformanninn Jan P. Syse sem
hugsanlegan eftirmann hans.
Andstæðingar stjórnar Chun
Doo Hwan, forseta Suður-Kóreu,
efndu til mikilla mótmæla i höf-
uðborg landsins, Seoul, í gær.
Lögreglan lét til skarar skriða
og hafði undir kvöldið handtekið
á þriðja þúsund stjórnarandstæð-
inga.
í átökunum í Seoul varð ein lög-
reglusveitin uppiskroppa með
táragas. Hundruð stjómarandstæð-
inga tókst að afvopna lögreglu-
mennina og réðust síðan á þá með
gijóti með þeim afleiðingum að einn
lögregluþjónninn slasaðist alvar-
lega og flmm hlutu talsverð meiðsl.
Fleiri þúsund háskólastúdentar
lögðu undir sig götumar í nágrenni
Hilton-hótelsins, þar sem fulltrúar
á landsfundi stjómarflokksins fögn-
uðu í fundarlok. Réðust þeir að
lögreglustöð og unnu á henni tjón.
Tókst þeim að stökkva 20 lögreglu-
mönnum á flótta. Leituðu þeir slq'óls
inn á veitingahúsi og voru um-
kringdir þar í hálftíma unz liðsauki
barst og bjargaði þeim úr klóm
stúdentanna.
Einnig kom til átaka lögreglu og
stjómarandstæðinga í borginni
Masan í suðurhluta landsins. Að
sögn ríkisútvarpsins vom á þriðja
þúsund manna handteknir í gær og
verða margir þeirra sóttir til saka
fyrir að efna til ófriðar á almanna-
færi.
Átökin í gær em ein hin verstu
frá því Chun hrifsaði til sín völd í
Suður-Kóreu 1980. Aðal hvatamað-
ur að aðgerðunum var Kim
Young-sam, leiðtogi stjómarand-
stöðunnar. Hundmðir bflstjóra
þeyttu bflflautur í 20 mínútur og
kirkjuklukkum um höfuðborgina
alla var hringt samtímis til að láta
í ljós andúð á stefnu stjómar Chun.
Á landsfundi stjómarflokksins
var formaður flokksins og nánasti
samstarfsmaður Chun, Roh Tae-
Woo, útnefndur frambjóðandi
flokksins við forsetakosningar í
Suður-Kóreu í desember nk.
Póllands-
för páfa
JÓHANNES Páll
páfi annar er nú
í Póllandi. Þetta
er þriðja heim-
sókn hans þang-
að eftir að hann
varð páfi.
Tvær milljónir
manna hlýddu á
páfa þegar hann
messaði undir ber- Jóhannes Páll
um himni í bænum páfi
Tamow í suð-austur Póllandi í
gær. Mannfjöldinn náði yfír þriggja
kílómetra svæði fyrir framan altari
sem reist var af þessu tilefni.
16 ára stúlka, Karolina Kozka,
sem lést árið 1914, var tekin í tölu
blessaðra. Það er fyrsta skrefíð í
að gera hana að dýrlingi. Stúlkan
var myrt þegar hún var að veijast
sovéskum hermanni sem reyndi að
nauðga henni. Honum tókst ekki
að koma fram vilja sínum. Við at-
höfnina var afhjúpað þriggja metra
hátt málverk af stúlkunni.
Áður en ferð hans lýkur mun
páfí einnig taka Kozal biskup í tölu
blessaðra, en biskupinn lést í þýsk-
um fangabúðum í seinni heimsstyij-
öldinni.
KOSIÐ í BRETLANDI í DAG
Fulltrúar borgaraflokkanna í
landbúnaðamefnd Stórþingsins
samþykktu í fyrrinótt yfirlýsingu
þar sem stefnu ríkisstjómarinnar í
málefnum bænda er mótmælt. Árið
1975 var samþykkt í þinginu að
meðaltekjur bænda skyldu með
tímanum verða jafnháar meðaltekj-
um iðnverkamanna. 1 samningum
bændasamtakanna og ríkisvaldsins
að undanfömu hafa bændur krafist
þess að tveim milljörðum norskra
króna verði veitt f styrki og niður-
greiðslur. Sfjómin hefur boðið einn
milljarð og telja borgaraflokkamir
þrír, Hægri flokkurinn, Miðflokkur-
inn og Kristilegi þjóðarflokkurinn
að ríkisstjómin bijóti þar með gegn
samþykktinni frá 1975.
Yfirlýsing borgaraflokkanna
verður tekin til umræðu í þinginu
á föstudaginn. Flokkamir þrír þurfa
stuðning beggja þingmanna Fram-
faraflokksins til að velta stjóminni
en sá flokkur hefur barist mjög
gegn ríkisstyrkjum til bænda og
hafa flokksdeildir sent flölmargar
áskoranir til formanns flokksins,
Carl I. Hagens um að greiða at-
kvæði gegn vantrauststillögunni
sem þeir telja að verði til að auka
niðurgreiðslur til landbúnaðarins.
„Við viljum fá borgaralega ríkis-
stjóm sem fyrst. Það mun koma í
ljós hvort þetta málefni og þessi
tími eru hentug “, segir Hagen.
Enn fremur hefur Hægri flokkur-
inn barist gegn auknum niður-
greiðslum og vilja tveir fyrrverandi
formenn flokksins, Jo Benkow og
Káre Willoch, að flokkurinn standi
fast á þeirri kröfu sinni að ríkis-
stjómin verði ekki felld vegna
landbúnaðarmálanna heldur vegna
endurskoðaðra fjárlagatillagna sem
einnig verða ræddar á föstudag.
Til að leggja áherslu á skoðun sína
var hvorugur þeirra viðstaddur
þingflokksfund Hægri flokksins í
fyrradag þar sem stjómarkreppan
var rædd. Núverandi formaður,
Rolf Presthus, er hins vegar ákveð-
Allar líkur á meiri-
hluta Ihaldsflokksins
St. Andrews. Prá Guðmundi Heiðarí Frímannssyni, fréttarítara Morgunbiaðsins.
KOSNINGABARÁTTUNNI hér í Bretlandi lauk í gær, og kosið er í dag
í 650 kjördæmum f Englandi, Skotlandi, Wales og Norður-írlandi. A
kjörskrá eru ríflega 43,5 milfjónir manna. Úrslitin ættu að vera ljós,
áður en dagur rís á ný. Kosningar hafa ævinlega verið á fimmtudegi hér
f landi eftir 1931, þó að engin lög kveði á um það. Árið 1918 var f
fyrsta sinn kosið á einum degi, en fram að því höfðu kosningar yfir-
leitt tekið marga daga.
Kosið er í einmenningskjördæm-
um. Það veldur því, að ekki er beint
samband milli hlutfalls atkvæða og
fjölda þingmanna. í sfðustu kosning-
um hefði Bandalag fijálslyndra og
jafnaðarmanna átt að fá 166 þing-
menn samkvæmt hlutfallsreglu, en
fékk einungis 17. Ástæðan var sú,
að fylgi þess var svo dreift um allt
land, að það náði ekki mestum flölda
atkvæða nema í 17 kjördæmum. Það
getur líka gerst, að sá flokkur, sem
fær flest atkvæði, fái ekki flesta þing-
menn. í kosningunum í febrúar 1974
fékk Verkamannaflokkurinn fjórum
þingmönnum fleira en íhaldsflokkur-
inn, en hafði rúmlega 220.000
atkvæðum færra.
Stjóraarár Thatcher
Frú Margaret Thatcher og Íhalds-
flokkurinn undir hennar stjóm hafa
gerbreytt breskum stjómmálum. Hún
er orðinn eins konar alþjóðlegur átta-
viti, sem beinir mönnum í áttina til
aukins markaðsfrelsis, aðhaldsemi í
ríkisfjármálum og meiri einkavæð-
ingar velferðarríkisins. Þau vatnaskil
í breskum stjómmálum, sem hún
hefur skapað, felast fyrst og fremst
í því, að frá stríðslokum höfðu allar
stjómir, hvort sem þær voru undir
forsæti íhaldsflokksins eða Verka-
mannaflokksins, aukið þátttöku
rfkisins þjóðlífinu. Harold Macmillan,
fyrrum forsætisráðherra íhalds-
flokksins, hafði það eitt sinn sem
stefnumál f kosningum að byggja
300.000 nýjar íbúðir á vegum ríkis-
ins. Allar ríkisstjómir höfðu í æ ríkari
mæli orðið að beygja sig undir vald
verkalýðsfélaga. Þessu hefur frú
Thatcher breytt.
Þegar hún var kosin leiðtogi
íhaldsflokksins 1976, töldu andstæð-
ingar hennar innan flokks og utan,
að hún yrði Akkilesarhæll flokksins
og lq'ósendur mundu hafna henni
vegna þess, að hún væri svo hægris-
innuð. En annað hefur komið á
daginn. Hún hefur ekki reynst vera
umvöndunarsöm, frek kerling, heldur
einhver snjallasti stjómmálamaður f
Bretlandi eftir stríð, og sennilega er
Churchill sfðasti forsætisráðherrann,
sem unnt er að jafna saman við hana.
Thatcher hafði mótað sér skoðanir
á því, hvert skyldi stefna, þegar hún
tók við árið 1979. Hún hefur verið
óhrædd við að koma skoðunum sfnum
f framkvæmd og haldið fast á stefnu-
málum sínum. Á alþjóðlegum vett-
vangi hefur virðing hennar vaxið
jafnt og þétt. í fyrstunni tóku til
dæmis Helmut Schmidt, kanslari
Vestur-Þýskalands, og Valery Gisc-
ard d’Estaing Frakklandsforseti ekki
mark á henni, m.a. af þvf að hún var
kona. En hún sá rækilega til þess,
að það endurtæki sig ekki. Hún hélt
af fullri hörku á hagsmunum Bret-
lands innan Evrópubandalagsins og
krafðist ýmissa breytinga á stefnu
þess, sem þá voru taldar fráleitar,
en menn telja nú sjálfsagðar.
Á innlendum vettvangi hefur stjóm
íhaldsflokksins gert ýmsar breyting-
ar. Hún hefur dregið úr beinum
sköttum, en aukið óbeina. Nú er
tekjuskattur af almennum launum
t.d. ekki nema 25%. Hún hefur selt
fyrirtæki í eigu rfkisins og aukið
hlutabréfaeign almennings mjög
verulega. Hún hefur einnig sett lög,
sem gáfu leigjendum í opinberu hús-
næði rétt á að kaupa það, og nú búa
65% fjölskyldna í eigin húsnæði, en
einungis ríflega 50% árið 1979. Þetta
hefur verið mjög vinsæl aðgerð, og
Verkamannaflokkurinn hefur átt í
erfiðleikum vegna þess, að hann hef-
ur alltaf viljað leysa húsnæðisvand-
ann með byggingum í opinberri eigu.
Stjómin hefur sett lög, sem afnámu
sérréttindi verkalýðsfélaga og kváðu
á um almenna atkvæðagreiðslu, áður
en farið yrði f verkfall, að viðlagðri
upptöku á eigum þeirra. Þessi lög,
ásamt lögum um verkfallsvörslu, em
lykillinn að þvf, að verkföllum hefur
fækkað og sigur vannst á náma-
verkamönnum undir forystu Scargill
og prenturum í Wapping, þar sem
The Times er prentað. Efnahagslífið
hefur gengið mjög vel síðasta ár,
þótt jrfir þijár milljónir manna séu
enn atvinnulausar.
Á erlendum vettvangi hefur stjóm
Thatcher beitt sér fyrir öflugum vöm-
um Vesturlanda, lagt sérstaka
áherslu á sambandið við Bandaríkin
og að efla áhrif sín innan Evrópu-
bandalagsins. Hún hefur ekki ræktað
sambandið við Breska samveldið,
enda hefur stefna stjómarinnar í
málefnum Suður-Afiríku valdið
ágreiningi innan þess. Sumir fhalds-
menn telja, að samveldið sé eins og
sjórekinn hvalur, sem sé kafnaður
undan eigin fargi. Það þjóni engum
tilgangi lengur og leggja eigi það
niður. En konungsflölskyldan tekur
samveldið mjög alvarlega.
Kosningabaráttan nú
í kosningabaráttunni nú gaf
íhaldsflokkurinn út ýtarlega stefnu-
skrá og hét því að halda áfram á
sömu braut. Einkavæðingunni yrði
haldið áfram af fullum krafti, aukn-
um einkarekstri komið á í heilsugæslu
og skólum heimilað að gerast sjálf-
stæðar stofnanir með eigin stjóm,
óháðar bæjarstjómum. Auk þess
lagði flokkurinn áherslu á verk stjóm-
arinnar: framlög hefðu verið aukin
til heilsugæslu, kaupmáttur launa
hefði stöðugt aukist, verðbólga væri
lægri nú en í tuttugu úr, efnahagslíf-