Morgunblaðið - 11.06.1987, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987
Grænland:
Stjórnsömu flokka
og fyrir kosningar
Kaupmannahöfn. Frá Niis Jörgen Bruun,
LANDSÞING Grænlendinga var
sett í fyrradag og fór kjör land-
stjórnarinnar fram í samræmi
við samkomulag vinstriflok-
kanna, Siumut og Inuit Ataqat-
igiit, í undangengnum stjórnar-
myndunarviðræðum. Voru
landstjórnarmenn kjörnir með
öllum 15 atkvæðum flokkanna
tveggja, en þingmenn Atassut og
Polar-flokksins, 12 að tölu, sátu
hjá við atkvæðagreiðsluna.
í stjóminni, sem sömu flokkar
standa að og hinni fyrri, sitja sjö
fulltrúar. Fimm sæti koma í hlut
flokks Jonathans Motzfeldts, Sium-
ut, en Inuit Ataqatigiit fær tvö
sætin, sem eftir eru. í stjómar-
myndunarviðræðunum fór I.A.
fram á að stjómardeildum yrði
fjölgað í átta og þar af fengi hann
fréttaritara Morgvnblaösins.
Jonathan Motzfeld, formaður
landsstjórnar.
þtjár. Flokkamir náðu málamiðlun-
arsamkomulagi um þetta atriði og
felur það í sér, að áttunda stjómar-
deildin, sem fjalla á um fjölskyldu-
og heilbrigðismál, verður sett á
Finnskir kratar
skipta um skoðun
Helsinki, frá Lars Lundsten, fréttaritara
FINNSKIR jafnaðarmenn komu
saman á flokksþingi um síðustu
helgi og samþykktu nýja stefnu-
skrá flokksins og stjórnarsam-
starf hans við hægri menn. Búist
var við hörðum deilum innan
flokksins vegna stjórnarsam-
starfsins, en þegar þinginu lauk
á sunnudag gat flokksforystan
andað léttar: Flokkurinn var nær
einhuga. Harðlínukratar komu
að vísu með gagnrýni en það virt-
ist í raun aðeins formannsins
vegna.
Fréttaskýrendur í Helsinki telja
að Jafnaðarmannaflokkurinn hafi
skipt um gmndvallarskoðun á rúm-
um mánuði. Áratugum saman var
Hægri flokkurinn, Kokoomus, tal-
inn aðalóvinur jafnaðarmanna.
Þótti það koma í ljós í lok apríl hjá
almennum flokksmönnum, þegar
flokksforystan fór í stjómarsam-
starf við Kokoomus. Á þinginu kom
hins vegar í ljós að flokksmenn
hafa sætt sig við samstarfið.
Á flokksþinginu var kosinn ný
flokksforysta. Pertti Paasio var
kjörinn formaður, en hann hefur
hingað til verið formaður þingflokks
jafnaðarmanna. Hann er sonur
Rafaels Paasio, sem var formaður
flokksins á undan Kalevi Sorsa, frá-
farandi formanni, sem var kjörinn
í upphafí áttunda áratugarins. Þá
var Uipu Iivari kjörin ritari flokks-
ins. Hún er frekar lítt þekkt meðal
almennings, þótt hún hafi starfað
í flokknum um margra ára skeið,
m.a. sem ritari þingflokksins.
Morgunblaðsins.
Á þinginu var samþykkt að hætta
við smíði kjamorkuvera í Finnlandi
og ósk um bann á útflutningi vopna.
Fyrr á ámm vom það ríkisstjómir
þar sem jafnaðarmenn fóra með
orkumál, sem ákváðu að reisa skyldi
fjögur kjamorkuver í Finnlandi. Þá
undirbjó stjómin, sem sat fyrir
kosningar í vor smíði fimmta kjam-
orkuversins á landinu. Nú hafa
jafnaðarmenn hins vegar kúvent í
þessu máli.
laggimar á árinu 1989 og fellur
þá I.A. í skaut. Gerist það um leið
og heimastjómin tekur við heil-
brigðismálum landsins úr höndum
danska ríkisins. I.A. bætti stöðu
sína í kosningunum og fær af þeirri
ástæðu í sinn hlut formannsemb-
ætti í tveimur mikilvægum nefnd-
um, skatta- og efnahagsmálanefnd,
auk formanns stjómar Grænlenska
útvarpsins. Þessum þremur emb-
ættum gegndu fulltrúar Siumut
fyrir kosningamar.
Eftirtalin landstjómarsæti komu
í hlut Siumut: Jonathan Motzfeldt
gegnir áfram embætti formanns
landstjómarinnar, auk þess sem
hann sinnir kirkju- og menningar-
málum. Moses Olsen fer með
málefni sjávarútvegs og iðnaðar,
framleiðslu og útflutnings. Það
kemur svolítið á óvart. Búist var
við, að honum yrði gert að halda
sig baksviðs í embætti forseta
landsþingsins, en ákveðið hefur
verið að fresta stofnun þess emb-
ættis.
Hans Pavia Rosing fer áfram
með efnahagsmál, og Kaj Egede,
sem nú tekur sæti í landstjóminni
í fyrsta sinn, mun sinna byggða-
og jaðarsvæðamálum. Jens Ly-
berth, formaður grænlensku laun-
þegasamtakanna, SIK, fer með
menntunar- og atvinnumál. Hann
segir jafnframt af sér formennsku
í SIK.
Af hálfu I. A. sér formaðurinn,
Arkaluk Lynge, áfram um félags-,
húsnæðis- og heilbrigðismál, auk
áætlanagerðar. Josef Motzfeldt fer
með viðskipta-, samgöngu- og póst-
mál.
Kosningarnar í Ástralíu:
Reuter
Einn á báti
Timoci Bavadra, fyrrverandi forsætisráðherra Fiji-eyja, á ekki
sjö dagana sæla sem stendur. Eftir stjórnarbyltinguna þar í siðasta
mánuði hefur hann leitað stuðnings Bretakrúnu, en lítt orðið
ágengt. Nú um helgina kom hann til Lundúna og æskti áheyrnar
drottningar. Hún synjaði honum þess eftir að hafa ráðfært sig
við Sir Penaia Ganilau landshöfðingja á Fiji-eyjum, en þess i stað
var honum boðið að ræða við ráðgjafa hennar. Það vildi hann
hins vegar ekki og óvíst hvað hann tekur til bragðs.
Verkamannaflokkur Bobs
Hawke með um 5% forskot
Frjálslyndir leggja fram róttæka stefnuskrá
Sidney, Reuter.
ÁSTRALIR ganga til kosninga
eftir mánuð og samkvæmt skoð-
anakönnunum mun Verka-
mannaflokkur Bobs Hawke,
forsætisráðherra, halda velli
með 5-10% meirihluta. Stjórnar-
andstaðan, með John Howard í
broddi fylkingar, freistar þess
nú að vinna sér traust kjósenda
með því að kynna efnahagsáætl-
un sem meðal annars gerir ráð
fyrir stórfelldum skattalækkun-
um. Samkvæmt þeim myndi
visitölufjölskylda þeirra Ástrala
halda eftir 26 Ástralíudölum á
viku (um 750 islenskar krónur)
umfram það sem nú er. Jafn-
framt segja stjórnarandstöðu-
menn að slíkar ráðstafanir yrðu
áströlskum iðnaði sú lyftistöng,
sem hann þarf á að halda.
Howard Jones, formaður Frjáls-
lynda flokksins, sagði að lækkun
skatta, aukin einkavæðing og sam-
dráttur ríkisins væm efst á blaði
hjá flokki sínum og taldi það vera
einu leiðina út úr efnahagsógöngum
landsins. Ástralía hefur átt í erfið-
leikum vegna erlendra skulda,
innlendra vaxtagreiðslna og fjár-
lagahalla.
Hawke og Paul Keating, flár-
málaráðherra, vömðu mjög við
þessari stefnu og kölluðu hana
„efnahagskukl". Félag ástralskra
iðnrekanda fagnaði henni mjög á
hinn bóginn og sagði talsmaður
hennar að menn í viðskiptalífínu
hlytu að taka áætluninni vel.
Kappsigling* víkinga-
skipa um sumarsólstöður
Hróarskelda, Reuter.
UM SUMARSÓLSTÖÐUR, að
kvöldi 23. júní, munu tíu skip,
eftirlíkingar skipa frá timum
víkinga, taka þátt í kappsiglingu
á Hróarskeldufirði f Danmörku.
Kappsiglingin er háð í tilefni
þess að 25 ár eru liðin síðan flök
fimm víkingaskipa náðust af
botni fjarðarins.
Flökin em til sýnis á Víkinga-
skipasafninu i Hróarskeldu. Þau
munu smíðuð um árið 1000 eftir
Krists burð, og sagnfræðingar
álíta að þau hafi verið fyllt stein-
um og sökkt í mynni fjarðarins
til að hindra árás óvinaskipa á
Hróarskeldu, sem þá var höfuð-
borg og helsta höfn Danmerkur.
Um er að ræða tvö langskip,
tvo knerri og eina fiskifleytu. Oll
hafa þau verið endurbyggð nema
annað langskipið, en vonir standa
til að viðgerð þess verði lokið á
næsta ári. Annar knörrinn, sem
er 16.5 metra langur og smíðaður
úr fum, er talinn dæmigerður
fyrir skipin, sem norrænir land-
námsmenn sigldu á til Islands og
síðar til Grænlands og Vínlands.
Tvær skurfur eftir stríðsörvar á
efra byrði skipsins vitna um
stormasama fortíð þess.
Jan Skamby Madsen, safn-
vörður á Hróarskeldusafninu,
segir að fomleifafræðingar, sem
hafa skip að sérsviði, séu fullir
aðdáunar á hæfileikum mann-
anna, sem smíðuðu þessi skip fyrir
nærri 1000 ámm. Hann segir að
skip víkinganna hafi ekki verið
háð byr aftan frá, heldur hafi þau
getað beitt upp í vindinn. Einnig
hafi seglabúnaðurinn verið þeim
eiginleikum búinn að skipsbógur-
inn lyftist í sjónum og skipin
“skautuðu" yfir hafflötinn. Að
sögn Madsens hefur smíði eftirlík-
inga á borð við þær sem taka þátt
í kappsiglingunni um sumarsól-
stöður fært fomleifafræðingunum
mikla þekkingu á siglingaeigin-
munu í kappsiglingunni.
leikum skipanna og smíðaaðferð-
um fommanna, en við smíðina
hafi eingöngu verið notuð verk-
færi frá tímum víkinga.
#1% *
rm 4 ' w*
í
Reuter
Bob Hawke á kosningafundi í
Sidney á þriðjudag.
Meðal fyrirhugaðara breytinga
em niðurskurður á aðstoð og niður-
greiðslum til þurfandi iðnaðar,
róttæk endurskipulagning á heil-
brigðis- og velferðarmálum, og
síðast en ekki síst á að leggja fjög-
ur ráðuneyti niður.
Stjómarandstaðan þarf þó að
herða róðurinn ætli hún að hrinda
þessum áætlunum í framkvæmd,
því sé eitthvað að marka skoðana-
kannanir hefur Verkamannaflokk-
urinn a.m.k. 5% meira fylgi en
Frjálslyndi flokkurinn og Þjóðar-
flokkurinn, sumir segja 12%. v
Kosningarnar verða hinn 11. júlí,
en Bob Hawke boðaði til þeirra
átta mánuðum fyrr en honum bar,
því þriggja ára kjörtímabili hans
líkur ekki fyrr en á næsta ári.