Morgunblaðið - 11.06.1987, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987
39
Yopnasölumálið:
„North var drauma-
yfirmaður sér-
hvers einkaritara“
- sagði Fawn Hall
við þingyfirheyrslur
Washington, Reuter.
FYRSTU lotu yfirheyrslna
rannsóknarnefndar bandaríska
þingsins vegna vopnasölunnar
til Iran lauk á þriðjudag. Síðasta
vitnið, sem var yfirheyrt, var
Fawn Hall, fyrrum einkaritari
Oiivers North, ofursta. Hall út-
skýrði sinn þátt í vopnasölu-
hneykslinu með hollustu sinni
og væntumþykju í garð Norths.
„North var draumayfirmaður
sérhvers einkaritara“, sagði
hún.
Við yfírheyrslur á mánudag og
þriðjudag bar Fawn Hall að hún
hefði aðstoðað North með því að
smygla mikilvægum Jeyniskjölum
um vopnasöluna til íran og fjár-
stuðninginn við Kontraskæruliða
út úr Hvíta húsinu aðeins nokkrum
klukkustundum eftir að North var
rekinn úr starfi sínu hjá Þjóðar-
öryggisráði Reagans vegna aðildar
hans að málinu.
Einnig viðurkenndi Hall að hafa
villt um fyrir embættismanni
Hvíta hússins, sem hafði samband
við hana tveimur dögum eftir
brottrekstur Norths. Hún sagði
honum að ekkert óeðlilegt væri
við mikla notkun pappírstætarans
á skrifstofu Norths, en reyndin var
sú að tætarinn var notaður til að
eyðileggja mörg viðkvæm skjöl
varðandi vopnasöluhneykslið.
Alagið á tækinu þennan dag var
slíkt, að það bilaði og varð að
kalla til viðgerðamann.
Hall játaði sömuleiðis að hafa
Flug Rusts:
Popplag til heiðurs
unga flugkappanum
Hamborg, Reuter.
NÝ, þýsk popphljómsveit
minnist lendingar Mathias
Rusts á Rauða torginu í
Moskvu með hljómplötu að
sögn dagblaðsins Bild í gær.
I hljómsveitinni eru þrír flug-
klúbbsfélagar Rusts.
í upphafi textans segir:
„Fljúgðu lágt til Moskvu og lentu
á Rauða torginu ef þú þorir.“
Yegor Yakovlyev , sem er rit-
stjóri tímaritsins Moskvufréttiv,
segir í svari til ítalsks ritstjóra að
hann geti enga skýringu gefíð á
þögn sovéskra fjölmiðla um lend-
ingu Rusts. Engar hömlur hafí
verið lagðar á fréttamennina. Rust
lenti 28. maí en það var eki fyrr
en 3. júní að tímarit Yakovlyevs
sagði frá lendingunni, fyrst sové-
skra fjölmiðla.
Þá hefur fleira verið gert en að
poppa um Rust, því nú er seldur
stuttermabolur með mynd af flug- torginu, opnaður 28. maí ’87“.
vél Rusts, en undir stendur: Bolurinn selst að sjálfsögðu sem
„Alþjóðlegur flugvöllur á Rauða heitar lummur.
AP
Hér er vestur-þýsk blómarós, að
nafni Annette i bolnum góða.
Gengi
gjaldmiðla
Lundúnum og New York, Reuter.
BRESKA sterlingspundið og
verðbréf í kauphöllinni í
Lundúnum hækkuðu mjög í
verði í gær og gætir þar bjart-
sýni kaupsýslumanna með
úrslit kosninganna i dag.
Bandaríkjadalur og ríkis-
skuldabréf þar í landi lækk-
uðu hins vegar í verði vegna
fréttaleysis af leiðtogafundin-
um í Feneyjum. Gullverð
hækkaði hins vegar í hlutfalli
við fall dalsins.
Vegna skoðanakannana, sem
gáfu til kynna að íhaldsflokkur
Margrétar Thatcher myndi sigra
kosningamar í dag, jókst trú
manna á efnahagi Bretlands á
næstu árum, ekki síst í ljósi
þess að vantrúar er tekið að
gæta um hagvöxt í Þýskalandi
og Japan á næstu árum. í Wall
Street var fremur tíðindalaust,
en verðbréf þar hækkuðu að
meðaltali ögn í verði. Gullúnsan
hækkaði um 8,60 dali og kostar
nú 458,15 Bandaríkjadali.
Á hádegi í Lundúnum í gær
kostaði sterlingspundið 1,6663
dali, en gengi annarra helstu
gjaldmiðla var með þeim hætti
að Bandaríkjadalur kostar:
1,3401 kanadíska dali,
1,7875 vestur-þýsk mörk,
2,0140 hollensk gyllini,
1,4780 svissneskan franka,
37,06 belgíska franka,
5,9760 franska franka,
1296 ítalskar límr,
141,90 japönsk jen,
6,25 sænskar krónur,
6,6575 norskar krónur,
6,7225 danskar krónur.
Fawn Hall við vitnaleiðslurnar.
aðstoðað North við að breyta
nokkmm skjölum Þjóðaröryggisr-
áðsins til að fela tilvísanir til
fjárstuðningsins við Kontraskæru-
liðana, er þingið hafði bannað
hann. Astæðuna fyrir þessu at-
hæfí sínu sagði Hall vera þá, að
hún hefði viljað halda verndar-
hendi yfir North. „Ég trúði á North
ofursta", sagði Hall. „Stundum
verður maður að sneiða hjá laga-
bókstafnum". Nokkmm andartök-
um síðar krafðist hún þess reyndar
að fá að taka þessi orð aftur.
Nokkurs ósamræmis gætti í
framburði einkaritarans. Hún lét
svo um mælt, að hún hefði lítið
vitað af athæfi Norths, en síðar
kom fram, að hún hefði ekki ein-
göngu staðfasta trú á ágæti
ofurstans, heldur einnig á stefnu
Reagans hvað fjárstyrk til skæra-
liða og sölu vopna til íran varðaði.
Hall skýrði frá því á þriðjudaginn
að North hefði lagt fram lausnar-
beiðni frá hlutverki sínu í veitingu
ágóðans af vopnasölunni til
skæmliðanna í Nicaragua. Aug-
ljóst væri að ekki hefði verið tekið
mark á henni, en hann rekinn.
Yfírheyrslurnar munu hefjast á
ný 23. júní. Ekki hefur verið til-
kynnt hverjir muni fyrstir bera
Reuter
vitni, en North ofursti og fyrmm
yfírmaður hans, John Poindexter,
eiga að koma fyrir nefndina í
næsta mánuði.
Demókratinn Lee Hamilton,
sem veitir rannsóknamefnd full-
trúadeildar þingsins forstöðu,
segir að við yfírheyrslurnar hafi
komið fram að í bandaríska stjóm-
kerfinu ríki „óvenjuleg ringulreið",
og vísar þar meðal annars til þess,
að almennir borgarar, sem sumir
hveijir létu stjómast af gróðavon,
hafi tekið þátt í að framkvæma
utanríkisstefnu Bandaríkjanna, að
háttsettir embættismenn hafi ekki
vitað deili á stjómarstefnunni og
reyndar ekki viljað það, og að
Reagan forseti hafí verið viðriðinn
ijársöfnun einkaaðila til stuðnings
Kontraskæmliðum. Einnig for-
dæmdi Hamilton gerðir Olivers
North og Johns Poindexter. Hann
lét svo um mælt að sagan, sem
nefndin hefði heyrt, væri sorgar-
saga af því hvemig bandaríska
þingið og þjóðin hefðu verið
blekkt. „Þeir sem komu nálægt
þessu máli, hvort heldur almennir
borgarar eða opinberir embættis-
menn, vom ekki í vafa um að störf
þeirra væm í þágu forsetans",
sagði Hamilton.
VXWWN
VILT ÞU NA LANGT ??;
s
Radióamatörar ná daglega um allan heim.... í
20 tima kvöldnámskeið i morsi og radiótækni til s
nýliðaprófs radióamatöra verður haldið 15 -30. júni i
n.k. Nú geta ailir lært mors. ný og skemmtileg aðferð
notuð. Skráning i sima 3 18 50 næstu daga kl. 17-19. 3
'WWWWWWWVWWWWW
(Innhverf íhugun)
V
• Er auðlærð fyrir hvem sem er.
• Veitir djupa hvíld og losar þannig um
streitu og spennu.
• Er undirbúningur undir kraftmikið og
árangursríkt starf.
• Er einfóld, nátturuleg og sjálfvirk.
• Er ekki trú og felur ekki í sér breyt-
ingar á lífsskoöunum eða lifsvenjum.
Hefur verið kennd meira en 2000
íslendingum.
Kynningarfyrirlestur
verður haldinn í kvöld,
fimmtudag, kl. 20.30.
TM-MIÐSTÖÐIN
Gardastræti 17
Sími 16662
íslenska íhugunarfélagid
HANDFÆRAVINDUR
færeyskar
HANDFÆRAVINDUR
norskar m/stöng
SJÓSTENGUR
HANDFÆRAGIRNI
BEITUÖNGAR BULL
PLÖTUÖNGLAR
PIKLAR, SIGURNAGLARR
BLÝSÖKKUR 1,5-2,5 kg.
VIR-OG BOLTAKLIPPUR
SLÖNGUKLEMMUR
nota hinir vandlátu.
Stærðir frá Vz“-12“.
Einnig úr ryðfríu stáli.
•
ÚTI MÁLNING
STEINVARI 2000
FÚAVARNAREFNI
PINOTEX
WOODEX
C-TOX
KARBOLIN
ALLT í GARÐINN
GARÐYRKJUÁHÖLD
SKÓFLUR ALLSKONAR
KANTSKERAR
GARÐHRÍFUR
ORF, BRÝNI
HEYHRÍFUR
GARÐSLÁTTU RVÉLAR
GIRNINGASTREKKJAR AR
VÍRHALDARAR
GIRÐINGARVÍR, GALV.
GARÐKÖNNUR
VATNSÚÐAÐAR
SLÖNGUKRANAR
SLÖNGUTENGI
SLÖNGUGRINDUR
JÁRNKARLAR
JARÐHAKAR
SLEGGJUR
HJÓLBÖRUR
ÚÐUNARKÚTAR
GARÐSLÖNGUR
20 OG 30 MTR.BT.
GÚMMÍSLÖNGUR
allar stæðir
PLASTSLÖNGUR
glærar með eða án innleggs
LOFTSLÖNGUR
MÁLNINGARPENSLAR
LAKKPENSLAR
MÁLNINGARRÚLLUR
LAKKRÚLLUR
TJÖRUKÚSTAR
MÁLNINGARBAKKAR
MÁLNINGARFÖTUR
Ánanaustum, Grandagarði 2, sími 28855
1 Rtacgmi fytafeifr
Áskriftarsíminn er 83033 I