Morgunblaðið - 11.06.1987, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 11.06.1987, Qupperneq 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fróttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 550 kr. á mánuöi innantands. f lausasölu 50 kr. eintakiö. Erþetta forsvaranlegt? Baráttan gegpn alnæmi: Sömu vanda- málin alls stað- ar í veröldinni Umræðumar um íslenskt mál halda áfram á síðum Morgunblaðsins og ber að fagna því. Aldrei verður sú góða vísa of oft kveðin, að leggja beri mikla rækt við tunguna, varðveislu hennar og rétta notkun. í grein hér í blaðinu í gær ræðir Baldur Ragnarsson, kennari, um íslensku í skólum og fjölmiðl- um og segir meðal annars: „Unglingar lesa dagblöðin engu síður en þeir sem full- orðnir eru. Mikilvægt er því að málfar og stafsetning í dagblöðum sé til fyrirmyndar. Með því móti má vinna gegn fábreyttum orðaforða og rangri málnotkun unglinga og raunar alls almennings. Eitt af því sem dagblöð verða að forðast eins og heitan eldinn eru stafsetningarvillur. Út- varp og sjónvarp byggja fyrst og fremst á töluðu máli, en ekki rituðu, og hafa því tak- markaða möguleika til að rækta þennan mikilvæga þátt móðurmálsins. Öðru máli gegnir hins vegar um dag- blöðin og því hljóta þau að gegna veigamiklu hlutverki á þessu sviði. Reyndir íslensku- kennarar hafa ymprað á því við undirritaðan að stafsetn- ingarkunnáttu grunnskóla- nemenda hafí hrakað nokkuð við tilkomu Dagblaðsins á sínum tíma. Telja þeir að sam- keppni dagblaðanna hafí leitt til fljótfæmislegri vinnu- bragða þeirra. Ekki skal dæmt um það hér hvort dagblöð geta þannig haft bein áhrif á réttritunarkunnáttu bama og unglinga, en vissulega hafa ólíklegri tilgátur verið settar fram.“ Eftir þessar athyglisverðu hugleiðingar víkur Baldur Ragnarsson að Morgunblað- inu og sérstaklega íþrótta- fréttum í því. Bendir hann réttilega á, að á íþróttasíðum hafa stafsetningarvillur verið tíðar og þar hefur mátt líta bæði y-villur og n-villur. Telur Baldur ekki unnt að afsaka þetta sem prentvillur. Og hann spyr síðan: „Er þetta forsvaranlegt í stærsta dag- blaði þjóðarinnar?" Svarið er einfalt: Nei! Með hinni nýju tölvutækni hefur leiðin frá blaðamanni til lesanda styst. Ekki er nóg með að málglöggir setjarar hafí horfíð úr sögunni heldur heyrir það nú til undantekn- inga hér á Morgunblaðinu, að prófarkalesarar lesi yfír fréttir eða annað efni blaðamanna. Þessi nýbreytni gerir auknar kröfur til blaðamanna meðal annars þær, að þeir hafí ís- lenskar stafsetningarreglur þannig á valdi sínu, að þeir geti í flýti og dagsins önn skilað frá sér skammlausum texta. Auðvitað hafa íslenskir blaðamenn alltaf átt að vera færir í íslenskri réttritun. Til þessa hafa þeir haft öryggis- net, sem nú er víða úr sögunni. I meðferð tungunnar eins og endranær skilar það best- um árangri að byggja á góðri kunnáttu og viðhalda henni með skynsamlegri þjálfun samhliða daglegum störfum. Blaðamenn öðlast ekki hæfni í íslensku máli nema þeir lesi góðan texta á íslensku og til- einki sér stafsetningarregl- umar. Hvaða menntunarkröf- ur á dagblað að gera til starfsmanna sinna? Morgun- blaðið hefur fylgt þeirri meginstefnu að ráða enga til starfa sem blaðamenn nema þá, sem lokið hafa stúdents- prófí. Um svipað leyti og prófarkalestur á texta blaða- manna var afnuminn efndi blaðið til íslenskunámskeiðs fyrir starfsmenn sína og fékk reynda kennara til að leið- beina þeim. Þá hefur sú regla verið tekin upp, að sumar- starfsfólk ritstjómar og aðrir, sem ráðast til starfa hjá Morg- unblaðinu sem blaðamenn og hafa ekki öðlast starfsreynslu annars staðar, verða að ganga undir sérstakt próf á vegum blaðsins, þar sem reynir á íslenskukunnáttu. Loks er það sífellt og eilíft baráttumál þeirra, sem bera ábyrgð á efni blaðsins, að fækka þar villum, hveiju nafni sem nefnast. Villur í dagblaði em eins og sjúkdómar í mannfólkinu, allir berjast gegn þeim en erf- itt er að uppræta óvininn. Eins og áður áíigði er ekki forsvar- anlegt að þeir, sem vinna við að rita fréttir, kunni ekki þær grunnreglur íslenskrar réttrit- unar, sem reglumar um y og n em. Er grein Baldurs Ragn- arssonar því þörf áminning til okkar allra, sem í blöð ritum. Frá Jóni Ásgeiri Sigurðssyni, fréttaritara Morgunblaðsins í Bandaríkjunum. Ronald Reagan Bandaríkjafor- seti beindi orðum sínum í fyrsta sinn að alnæmisfaraldrinum í ræðu sem hann hélt 31. maí síðast- liðinn. Hann mælti með blóðpróf- um til að kanna smit þeirra sem hyggjast ganga i hjónaband eða koma til meðferðar vegna kyn- sjúkdóma. Reagan gekk ekki svo langt að krefjast að mönnum verði skylt að gangast undir blóð- próf enda telja ýmsir að slík stefna sé dæmd til að misheppn- ast. George Bush varaforseti hélt einnig sína fyrstu ræðu um alnæmi í síðustu viku, er hann ávarpaði þriéju alþjóðlegu ráðstefnuna um alnæmi, sem var haldin í Washing- ton, DC. Ræður forsetans og vara- forsetans eru til marks um það, að stjómmálamenn einbeita sér sífellt meir að þessu erfiða og vaxandi vandamáli. Á síðustu þremur árum hafa vísindamenn komið saman árlega á alþjóðlegum ráðstefnum, til að fjalla um alnæmi. Sú fyrsta var haldin í Atlanta í Georgia-fylki í Banda- rílqunum árið 1985, sú næsta í París í fyrra og þeirri þriðju lauk nú fyrir hvítasunnuna í Washington. Reglan er sú að halda ráðstefnuna annað- hvort ár í Ameríku, en þar er sjúkdómurinn einna útbreiddastur. Þátttaka í þessum ráðstefnum hefur aukist gífurlega, í Atlanta voru þátttakendur 2.200, í París 2.800 og það var búist við 3.500 manns í Washington, en þátttakend- ur voru 6.500, þar á meðal um það bil 1.000 fréttamenn. Áhugi fjöl- miðla hefur stóraukist, enda eru menn að gera sér grein fyrir því hversu alvarlegt vandamál alnæmi er. Þrír íslendingar sóttu ráðstefn- una í Washington, þau Margrét Guðnadóttir prófessor í veirufræði við Háskóla Islands, Björg Rafnar veirufræðingur og Kristján Erlends- son lyflæknir og ónæmisfræðingur á Landspítalanum. Fréttaritari Morgunblaðsins hitti Kristján að máli í New Haven. — Hvað er helst tíðinda af ráð- stefnunni í Washington? Margir ráðstefnugesta bentu á að - segir Kristján Erlendsson, lyflæknir, sem sat þriðju alþjóð- legu ráðstefn- una um alnæmi í Washington stóraukinn áhugi á eyðni hefur gert vart við sig meðal stjómmálamanna upp á síðkastið. Það er athyglisvert að við heima á íslandi höfum verið að velkjast í svipuðum vanda og aðrar þjóðir, hommar gagnrýna heil- brigðisyfirvöld, og þau svarað því til að það skorti peninga. Svo er kvartað yfír því að heilbrigðisyfír- völd skilji málið ekki . . . þetta eru sömu vandamálin alls staðar í heim- inum. Mér fannst áberandi á ráðstefn- unni í Washington að menn kvörtuðu yfír sambandsleysi milli þeirra þriggja hópa sem aðallega hafa með alnæmi að gera. Þetta eru í fyrsta lagi stjómmálamenn, ennfremur vísindamenn sem fjalla um viðbrögð líkamans við veirunni eða tengdum sýkingum, og loks læknar, félags- ráðgjafar og aðrir þeir sem veita sjúklingunum aðstoð í einhverri mynd. Þessir þrír hópar tala of lítið saman, og ég held að stærsta bilið sé milli stjómmálamanna og hinna hópanna. — Á þetta við um ísland eins og önnur lönd? Við höfum náttúrlega ekki þann hóp sem vinnur við vísindarannsókn- ir á veimnni sjálfri, en samstarf lækna við landlæknisembættið er með ágætum. Hinsvegar fínnst mér vanta á því skilning hjá heilbrigðis- ráðuneytinu, hvað þetta er dýrt verkefni — þetta virðist raunar regl- an í öðrum löndum. Mér þótti mjög athyglisvert að hlýða á erindi bandaríska landlækn- isins C. Everett Koop, sem talaði á undan George Bush. Viðstaddir stóðu upp þegar Koop birtist í saln- um og það var klappað einhver reiðinnar býsn fyrir orðum hans. Síðan kom Bush, sem hafði látið 6.500 manns bíða eftir sér í háiftfma og hlaut ekki góðar viðtökur. Ráð- stefnugestir bauluðu meira að segja unnvörpum, þegar Bush minntist á hugmyndir ríkisstjómarinnar um eyðnipróf. Samstarf landlæknis í Banda- ríkjunum og forsetaembættisins virðist vera lélegt hvað þetta mál varðar. Koop landlæknir er algjör- lega á öndverðum meiði að því er snertir eyðniprófín. Ráðstafanir þær sem Reagan hyggst grípa til hafa á sér efnahagslegt yfírbragð. - Nú? Það á að skylda alla innflytjendur til að gangast undir eyðnipróf og stjómvöld segja sem svo, að ef öllu þessu fólki sé veitt landvistarleyfí, þá geti það orðið dýrt spaug að kosta heilbrigðisþjónustu vegna þeirra sem veikjast af alnæmi. Það vekur hins vegar furðu að Bandaríkjamenn hyggist eyðniprófa aðkomumenn, þegar veiran er útbreiddust í Banda- ríkjunum sjálfum! Á ráðstefnunni var lögð fram tillaga um að hvetja stjómmálamenn til að samþykkja ekki reglur og ráðstafanir án þess að eiga náið samráð við vísindamenn og aðra þá sem starfa að þessum málum. — Nú er talað um félagslega útskúfun . . . Þessi útskúfun hefur alltaf verið fyrir hendi, en ég held að fjölmiðla- menn og pólitíkusar hafí ekki gert sér grein fyrir henni. Eyðni fannst fyrst f hommum og eiturlytjaneyt- endum, og það eru hópar sem eiga sko ekki upp á pallborðið hjá fólki almennt. Hræðslan og fordómamir gagnvart þessum hópum eru alveg gífurlegir — ekkert síður á íslandi en annars staðar. Ráðstefnan í Washington var frá- brugðin þeirri í París í fyrra að því leyti, að sérstakir umræðuhópar fjöl- luðu sérstaklega um þessi félagslegu viðhorf og fordómana. Þar var rætt um siðferðileg, lagaleg og félagsleg vandamál sem fylgja útbreiðslu al- næmisfaraldursins. Umræðum þessum stjómuðu einatt hommar sem hafa unnið í hópum sem veita neyðarhjálp. Raunar hafa hommar hér í Banda- ríkjunum verið tveimur til þremur árum á undan stjómvöldum í for- Norrænir álframleið sameinast um kynning SAMTÖK norrænna álframleið- enda, SkanaJuminium, hófu á síðasta ári mikið átak til kynning- ar á eiginleikum áls og mögulegri nýtingu þess. Þetta kynningará- tak mun standa til ársins 1988 og hafa Iðntæknistofnun íslands, Háskóli íslands, og íslenska álfé- lagið hf. tekið höndum saman um þetta verk hér á Iandi undir verk- efnaheitinu íslenskt áltak. Sfðast- liðin miðvikudag kynntu þessir aðilar þetta verkefni fjölmiðlum og ýmsum forsvarsmönnum úr atvinnu lífinu. Við það tækifæri afhenti Ragnar HaUdórsson, for- stjóri ísals, fyrir hönd Skana- luminium, Ragnari Þorsteinssyni, formanni flugsögufélagsins, 20.000 norskar krónur sem viður- kenningu fyrir að félagið hefði á árinu 1979 bjargað norsku flug- vélinni Nordtrop úr Þjórsá, en þar hafði hún legið síðan 1943. Ragnar Halldórsson sagði kveikj- una að þessu samnorræna átaki til kynningar á áli hafa verið könnun sem framkvæmd var í norrænum háskóium árið 1986 og sýndi að þekking á áli og notkun þess væri nokkuð ábótavant. Ákveðið hefði verið að skipuleggja þetta þriggja ára kynningarátak og er kostnaður við það áætlaður 15 milljónir nor- skra króna eða um 90 milljónir íslenskra króna. Þeir Ivar Walseth og Tor Zett- erström frá Skanaluminium gerðu gestum stuttlega grein fyrir því hvað fælist í þessu norræna átaki. Sögðu þeir markhópana sem reynt væri að ná til vera annars vegar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.