Morgunblaðið - 11.06.1987, Qupperneq 42
42
V8SÍ ÍVÍÚT. .11 ÍIUOAaiTTMMrí .aiOAjaMUDHOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987
Melstaður í Miðfirði:
Hátíðarmessa á 40 ára
vígsluafmæli kirkjunnar
Staðarbakka, Miðfirði.
HÁTÍÐARMESSA var haldin á
Melstað á annan í hvítasunnu í
tilefni af 40 ára vígsluafmæli
kirkjunnar. Sóknarpresturinn,
séra Guðni Þór Ólafsson, messaði
og kirkjukórinn söng undir
stjórn Ólafar Pálsdóttur. Guð-
mundur Þorbergsson söng
einsöng.
Kirkja sú sem stóð á Melstað á
undan þessari var timburkirkja en
fauk í ofviðri 15. febrúar 1942.
Núverandi kirkja er steinsteypt,
byggð á sama stað og var vígð 8.
júní 1947.
Að messu lokinni bauð sóknar-
nefndin kirkjugestum til_ kaffí-
drykkju í félagsheimilinu Ásbyrgi.
Nefndina skipa Lilja Steindórsdótt-
ir, Böðvar Sigvaldason og Theodór
Pálsson. Séra Guðni talaði þar og
minntist á þær umbætur sem gerð-
ar hafa verið nú að undanfömu og
standa enn yfir, á kirkjunni sjálfri,
umhverfí og kirkjugarði. Kirkjunni
voru færðar góðar gjafír. 40 ára
fermingarböm gáfu peningagjöf til
fegrunar á kirkjugarðinum og burt-
fluttir eldri sóknarmeðlimir gáfu
peningagjafírtil styrktar kirkjunni.
Benedikt
Nýja hljómsveitin Batterí, sem tekur til starfa á neðri hæðinni í
Þórscafé nú um helgina, frá vinstri: Jón Ólafsson, Helga Völundar-
dóttir, Sigurður Helgason og Axel Einarsson.
Breytingar í Þórscafé:
Karlakórinn Heimir.
Karlakórinn Heimir 1 söngferð
KARLAKÓRINN Heimir í
Skagafirði fer í söngferð um
Suðurland og til Hornafjarðar
um miðjan júnímánuð. Áætlað
er að halda fimm tónleika í
ferðinni. Fyrstu tónleikar kórs-
ins verða i félagsheimilinu
Logalandi í Borgarfirði mánu-
daginn 15. júní kl. 21.00.
Aðrir tónleikamir verða í Lang-
holtskirkju í Reykjavík þriðjudag-
inn 16. júní kl. 20.30. í Njálsbúð
í Vestur-Landeyjum miðvikudag-
inn 17. júní kl. 21.00. í kirkjunni
á Höfn í Homafírði fímmtudaginn
18. júní kl. 21.00 og lokatónleikar
verða í félagsheimilinu á Flúðum
í Ámessýslu 19. júní kl. 21.00.
Söngstjóri er Stefán R. Gísla-
son, undirleikari er Katharine L.
Seedell. Einsöngvarar með kórn-
um eru Páll Jóhannesson tenór-
söngvari, Pétur Pétursson og
Sigfús Pétursson, sem eru kórfé-
lagar.
Félagar em um 40 talsins. í
vetur hefur kórinn haldið sjö tón-
leika frá áramótum annaðhvort
einn sér eða með öðmm kómm.
Karlakórinn á 60 ára starfsaf-
mæli á þessu ári en hann var
stofnaður í desember 1927.
Reykjavík:
17. júní-hátíðahöld
með hefðbundnu sníðí
Lifandi tónlist
á báðum hæðum
MIKLAR breytingar eru fyrir-
hugaðar á skemmtanahaldi í
Þórscafé nú í sumar. Ber þar
helst að nefna lifandi tónlist á
báðum hæðum, en fram til þessa
hefur verið diskótek á neðri hæð-
inni. Þá munu þekktir söngvarar
koma fram á miðnætursviði á efri
hæð.
Nú um helgina mun ný hljómsveit
taka til starfa á neðri hæðinni í Þórsc-
afé. Það er hljómsveitin Batterí, en
hana skipa Axel Einarsson gítarleik-
ari, Jón Ólafsson bassaleikari,
Sigurður Helgason trommari og
söngkonan Helga Völundardóttir.
Hljómsveitin Pónik leikur fyrir
dansi á efri hæðinni nú í júnímán-
uði. Þeir félagar hafa leikið saman
um langt árabil, en um mánaðamótin
skilja leiðir. Fyrirhugað er að þekktir
hljómlistarmenn, sem leikið hafa með
Pónik í gegnum árin, komi fram með
hljómsveitinni á miðnætursviði nú í
júní. Um helgina verður það söngvar-
inn Sverrir Guðjónsson, sem var
liðsmaður í Pónik hér í eina tíð.
Að sögn Ragnars Björgvinssonar,
framkvæmdastjóra í Þórscafé, verður
lögð áhersla á fjölbreytni í tóplistar-
flutningi á báðum hæðum. Á neðri
hæðinni verður þó frekar höfðað til
yngra fólks, en á efri hæðinni verður
sem fyrr leikin tónlist fyrir fólk á
öllum aldri.
BORGARYFIRVÖLD hafa falið
íþrótta- og tómstundaráði að sjá
um undirbúning hátfðahaldanna
á 17. júní.
Dagskrá þjóðhátíðarinnar í
Reykjavík verður með hefðbundn-
um hætti fram að hádegi. Forseti
borgarstjómar leggur blómsveig frá
Reykvíkingum að leiði Jóns Sig-
urðssonar í kirkjugarðinum við
Suðurgötu og hefst athöfnin kl.
10.00. Síðan verður dagskrá við
Austurvöll kl. 10.40. Júlíus Haf-
stein, borgarfulltrúi, setur hátíðina.
Forseti íslands, Vigdís Finnboga-
dóttir, leggur blómsveig frá
íslensku þjóðinni að minnisvarða
Jóns Sigurðssonar og forsætisráð-
herra flytur ávarp. Þá verður ávarp
fjallkonunnar. Karlakór Reykjavík-
ur syngur og Lúðrasveit Reykjavík-
ur leikur. Kl. 11.15 verður
guðsþjónusta í Dómkirkjunni. Sr.
Frank M. Halldórsson prédikar og
dómkórinn syngur undir stjórn
Gamlir meistar-
ar í Gallerí Borg
Um hvítasunnuna var opnuð
sýning á verkum „gamalla
meistara", sem Gallerí Borg er
með til sölu.
Má þar nefna gamla vatnslita-
mynd frá Borgarfírði eystra,
teikninguna „Vættir á Þingvöll-
um“ eftir Kjarval, glæsilega
Húsafellsmynd eftir Ásgrím,
Bátsmynd, Snæfellsjökul og
hlóðaeldhús eftir Gunnlaug
Blöndal, Strút í Borgarfírði eftir
Jón Stefánsson, Hvítá og Búrfell
eftir Júlíönu Sveinsdóttur, tvær
blómamyndir eftir Kristínu Jóns-
dóttur, tvær vatnslitamyndir eftir
Scheving og mynd frá Hafnarfírði
eftir Jón Þorleifsson.
Ýmsar fágætar myndir og höf-
unda mætti nefna þessu til
viðbótar, ómerkt mynd frá Skaga-
strönd eftir Snorra Arinbjamar,
en augljóst hvað höfund snertir,
og ómerkt mynd eftir Magnús
Jónsson dósent. Mynd úr Mýrdal
eftir Einar Jónsson frá Fossi,
merkt, máluð 1910. Mynd frá
„Sundunum" og önnur frá Dyr-
hólaey eftir Gísla Jónsson frá
Búrfellskoti.
I nýja salnum í Austurstræti
10 hefíjr nú verið komið fyrír
upphengi með myndum margra
starfandi listamanna. Má þar
nefna nokkrar nýlegar myndir
eftir Hring, Magnús Kjartansson,
Vigni, Hauk Dór, Eyjólf Einars-
son, Tryggva Ólafsson og Kristján
Davíðsson. Einnig stór olíumynd
frá Rauðhólum eftir Jóhannes
Geir, þrjár abstrakt myndir eftir
Eirík Smith. Tvær klippimyndir
eftir Björgu Þorsteinsdóttur.
Hestar eftir Pétur Behrens og
húsamyndir eftir Ágúst Petersen.
Loks er kominn til sölu fjöldi
nýrra olíu- og vatnslitamynda eft-
ir Karólínu Lárusdóttur. Þær
myndir má sjá í Pósthússtræti 9.
Marteins H. Friðrikssonar, ein-
söngvari er Sólrún Bragadóttir.
Skrúðgöngur verða frá Hall-
grímskirkju og Hagatorgi og leggja
þær af stað kl. 13.45. Skemmtidag-
skráin hefst kl. 14.00 í miðbænum
á þremur leiksviðum: Á Lækjar-
torgi, í Hallargarði og í Hljómskála-
garði. í Hljómskálagarði verða
skátar með trönuhlaup samkvæmt
venju, einnig verður glímusýning,
sýning á fuglum, sýning á ijaður-
bretti ásamt minigolfi, mini-tívolí,
leikjum og þrautum. Á Tjörninni
verða róðrabátar. Á útitafli verður
teflt með lifandi skákmönnum,
fombflasýning í Kolaporti, dagskrá
fyrir eldri borgara verður í Sigtúni
og VR-húsinu. Sundmót verður í
Laugardalslauginni. Tennismót á
íþróttasvæði Víkings í Fossvogi og
Knattspymuhátíð á Laugardals-
velli. Halla Margrét Ámadóttir mun
heimsæka bamadeildir Landspítala
og Landakotsspítala.
Kvöldskemmtun verður á Lækj-
artorgi. Hljómsveit Magnúsar
Kjartanssonar leikur ásamt fleimm.
í Laugardalshölll verða hljómleikar.
Sérstök athygli er vakin á götuleik-
húsi, sem mun starfa um allan
miðbæinn og verður Tjamarbrúin
lokuð milli 14.00 og 16.15 vegna
sýningar þess.
Sjómannadagurinn á Siglufirði:
Guðsþjónusta um
borð í skuttogara
Siglufirði.
NÚ á 50 ára afmæli sjómanna-
dagsins, næstkomandi sunnudag,
verður fjölbreytt dagskrá að
venju við Siglufjarðarhöfn. Að
morgninum verður skemmtisigl-
ing um fjörðinn og að henni
lokinni verður guðsþjónusta um
borð í skuttogara. A sjómanna-
daginn í fyrra var messað um
borð i skuttogara hér á Siglu-
firði, i fyrsta skipti hér á landi.
Guðsþjónustan hefst klukkan 11,
en þar mun sóknarpresturinn, séra
Vigfús Þór Ámason, prédika.
Kirkjukórinn og lúðrasveit flytja
sálma, undir stjóm Tony Raleys. Á
Hafnarbryggjunni verður sæti fyrir
eldri borgara. Eftir hádegið verður
að vanda fjölbreytt dagskrá. Björg-
unarsveitin Strákar hefur umsjón
með hátíðahöldunum.
Sjómannadagurinn var fyrst
haldinn hér á landið árið 1937.
Kvennadeildin Vöm, verður með
kaffísölu í Alþýðuhúsinu eftir há-
degið. Nú er unnið að því að koma
upp minnismerki um dmkknaða sjó-
menn hér á staðnum. Verkið er
eftir Ragnar Kjartansson mynd-
höggvara og verður því komið fyrir
við Sparisjóð Sigluíjarðar. Það er
von manna að það verði vígt á sjó-
mannadaginn að ári. Opnaður hefur
verið reikningur til minningar um
Finn Hauksson sjómann, sem
dmkknaði af skipi frá Siglufírði á
síðasta ári.
Matthías
Mótmælafund-
ur á Hagatorgi
SAMTÖK herstöðvaandstæðinga
efna til útifundar á Hagatorgi
fimmtudaginn ll.júníkl. 18.00.
Fundarstjóri verður Hjördís
Hjartardóttir. Ávörp flytja Margrét
Bjömsdóttir frá Neistastöðum og
Eiríkur Hjálmarsson.