Morgunblaðið - 11.06.1987, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987
45
Verðlagsráð sjávarútvegsins:
til 30. september í ár
SAMKOMULAG varð um það á
fundi Yerðlagsráðs sjávarút-
vegsins í gær að gefa almennt
fiskverð fijálst og einnig verð
á kola frá 15. júní til 30 septem-
ber næstkomandi. Einnig varð
samkomulag um það að verð
sem í gildi var frá 1. janúar til
31. mai framlengdist til 14. júní.
Það sem varð til að liðka fyrir
þessu samkomulagi var ákvörð-
un sljórnar verðjöfnunarsjóðs
fiskiðnaðarins í gær um breyt-
ingu á greiðslum í sjóðinn sem
þýðir í raun að fiskvinnslan
hættir að greiða í sjóðinn og
einnig dregur úr greiðslum
saltfiskvinnslunnar.
Ftjálst fískverð hefur legið í
loftinu um nokkurn tíma, sérstak-
lega eftir að farið var að undirbúa
fiskmarkaði hér á landi. Svo virt-
ist sem Verðlagsráð sjávarútvegs-
ins myndi ná samkomulagi um
þetta fyrir síðustu mánaðamót en
þegar til kom náðist ekki sam-
staða um það hjá kaupendum að
stíga skrefíð til fulls nema til
kæmi breyting á verðjöfnunar-
sjóði. Ákvörðun um fiskverð var
þá vísað til yfimefndar Verðlags-
ráðsins.
Á fundi í stjóm verðjöfnunar-
sjóðs á þriðjudag lá síðan fyrir
að fulltrúar sjómanna og útvegs-
manna voru tilbúnir til að breyta
verðbili fyrir frystan fisk og setja
viðmiðunarverðið það hátt að
frystingin hætti í raun að greiða
í sjóðinn nema freðfiskverð hækki
þeim mun meira. Einnig var verð-
bilum fyrir saltfísk breytt þannig
að fiskverkendur þurfa að greiða
mun minna í sjóðinn en verið hef-
ur.
Að þessari tillögu fenginni var
ljóst að gengið hafði verið mjög
langt til móts við vilja fískvinnsl-
unnar sem viljað hefur leggja
verðjöfnunarsjóð niður. í fram-
haldi af þessu var ákveðið að rétt
væri að gefa fískverðið fijálst.
Á fundi í verðjöfnunarsjóði í
gærmorgun var áðumefnd tillaga
samþykkt. Fulltrúar ríkisins í
stjóm sjóðsins sátu hjá og að sögn
Bolla Þórs Bollasonar, fulltrúa
ríkisins í stjóm sjóðsins og odda-
manns yfimefndar, var aðal-
ástæðan sú að við ríkjandi
markaðsaðstæður væri verðlag
mjög hátt á freðfískafurðum og
saltfískafurðum og því hefðu þeir
talið það eðlilegra að greitt verði
í sjóðinn. Þeir hefðu hinsvegar
setið hjá frekar en vera á móti
ákvörðuninni vegna þess að þetta
hefði verið eitt skilyrði þess að
fískverð yrði gefíð frjálst.
Bolli sagðist ekki meta það svo
að með þessu væri verið að leggja
verðjöfnunarsjóðinn niður þótt
koma kynni að þvi að endurskoða
þyrfti lögin um verðjöfnunarsjóð.
Og verðjöfnun hefði ekki verið
aflögð að fullu með þessari
ákvörðun í sjóðnum því enn væri
nokkur inngreiðsla af saltfíski
þannig að líta mætti á þetta sem
biðleik meðan menn væru að átta
sig á hvemig taka eigi á verðjöfn-
un á gámafíski.
Bolli sagðist búast við að þessi
ákvörðun þýddi að sjóðurinn
missti af um 3-400 milljónum
króna úr frystingunni miðað við
heilt ár og um 100 milljónir út
saltfískverkuninni.
Morgunblaðið/Júlíus
Verðlagsráð sjávarútvegsins á fundi þar sem samþykkt var fijálst fiskverð. Frá vinstri eru Kristján Ragnarsson, Sveinn Hjörtur
Hjartarson, Helgi Laxdal, Óskar Vigfússon, Árni Benediktsson formaður ráðsins, Friðrik Páisson, Bjarni Lúðvíksson og Gunnar
Tómasson.
Sjómenn geta nú betur
gætt sinna hagsmuna
- segir Oskar Vigfússon formaður
Sjómannasambands Islands
„ÞAÐ kom mér algerlega á
óvart að fiskkaupendur skuli
hafa snúið svona við blaðinu
þó svo það sé gert 15 dögum
eftir að verðlagning átti að
liggja fyrir. Að minu mati var
þessi staða uppi þá þegar, en
allt er gott sem endar vel þó
að sjálfsögðu eigi eftir að reyna
á það hjá sjómannastéttinni
hvemig þetta tekst til,“ sagði
Óskar Vigfússon formaður Sjó-
mannasambands íslands og
fulltrúi sjómanna í Verðlags-
ráði sjávarútvegsins.
—Nú hafa verið viðurkenndar
yfirborganir á fískverð undanfar-
ið. Áttu von á að rétta verðið
komi strax í ljós?
„Ég á fastlega von á því. Það
sem við höfum fundið því til for-
áttu að vera með verð sem í raun
er ekki í gildi, er að það verð
hafa sjómenn samt fengið til
skipta og mér liggur við að segja
að margir útvegsmenn hafi
beinlínis sagt við sjómenn að þeir
eigi ekki kröfu á öðru verði en
ákveðið er í Verðlagsráði. Með
þessari fijálsu verðlagningu telj-
um við að sjómenn geti frekar
gætt sinna hagsmuna og spomað
gegn slíkum undirborðsgreiðslum,
með því að fylgjast sjálfir með
hvaða verð myndast víðsvegar um
land og á fískmörkuðunum."
—Áttu von á að þetta leiði til
hækkunar fískverðs frá því sem
nú er í raun?
„Miðað við það verð sem nú
virðist vera á markaðnum og það
að fískneysla í heiminum er sífellt
að aukast á ég von á að mínir
menn njóti góðs af því.“
—Og ekkert öryggisnet, svosem
lágmarksverð, sé nauðsynlegt?
„Sjómenn sem siglt hafa með
afla erlendis hafa orðið að taka
því gegnum tíðina þegar markaðs-
verð fellur á erlendum mörkuðum.
„VIÐ gerum okkur grein fyrir
því að þetta er meiriháttar
ákvörðun sem getur stofnað til
ákveðinna erfiðleika f sam-
skiptum útgerðarmanna,
lækkun á einhveijum tegundum
og á einhveijum svæðum ef við
miðum við það verð sem hefur
verið í gildi á síðustu vikum.
—Áttu von á að þetta verði til
þess að spoma við gámafískút-
flutningsþróuninni?
„Það era margir trúaðir á að
svo verði þótt ég sé ekki endilega
einn af þeim. Vonandi gerir verð-
ur þetta þó til þess með einhveij-
um hætti. Ég á þó von á að
breytingin á hlutaskiptum sjó-
manna erlendis sem tók gildi 1.
júní, um að kostnaður sé dreginn
frá fyrir skipti, eigi eftir að hafa
talsverð áhrif auk þess sem verð-
ið erlendis er frekar lágt og því
er ekki vafi á að fískvinnslan hef-
ur mikinn hag af því að vinna
fískinn hér ef hún fær til þess
afla og fólk,“ sagði Friðrik Páls-
son.
Eins er í þessu tilfelli. Þetta er
spuming um framboð og eftir-
spum og eftir því verða sjómenn
og útvegsmenn að haga sér,“
sagði Óskar Vigfússon.
sjómanna og fiskvinnslufyrir-
tækja,“ sagði Kristján Ragnars-
son, formaður Landssambands
íslenskra útvegsmanna, um
ákvörðun verðlagsráðs um
fijálst fiskverð.
„En ákvörðunin gildir í tiltölu-
lega stuttan tíma og er að þvi
leyti til reynslu og þá sjáum við
hvemig þessum aðilum gengur
að semja sín á milli á frjálsum
markaði," sagði Kristján.
Kristján sagði að þessi ákvörð-
un væri gerð í kjölfar samkomu-
lags sem fæli í sér minnkun á
greiðslum fískvinnslunnar í verð-
jöfnunarsjóð. „Við það batnar
staða fískvinnslunnar í samkeppn-
inni um hráefnið sem vonandi
leiðir til þess að þeir fá meira af
físki til vinnslu hér heima en
minna verði flutt út af ferskfiski.
Nú verður fiskverðið breytilegt,
og þó það hækki eitthvað á ég
ekki von á því að tekjur sjómanna
og útgerðarmanna aukist, því
tekjumar minnka eitthvað á móti
með minni ferskfískútflutningi,“
sagði Kristján.
Sannfæring okkar segir
að nú sé lag að reyna
- segir Friðrik Pálsson forstjóri SH
„VIÐ sem tökum þessa ákvörð-
un í Verðlagsráði erum fulltrú-
ar fyrir mjög stóran hóp
manna, sjómanna, útvegs-
manna og fiskvinnslunnar og
vafalítið hefur enginn þessara
aðila fullan stuðning á bak við
sig. Og það hafa ekki orðið
neinar meginbreytingar á af-
stöðu okkar umbjóðenda
heldur fyrst og fremst aðstöðu-
breytingar og okkar eigin
sannfæring sem segir að nú sé
lag að reyna," sagði Friðrik
Pálsson forstjóri Sölumiðstöðv-
ar hraðfrystihúsanna og einn
fulltrúa i Verðlagsráði sjávar-
útvegsins í samtali við Morgun-
blaðið eftir að fiskverðið hafði
verið gefið fijálst.
„Það sem mér fínnst þó skipta
mestu máli við þessa ákvörðun,"
sagði Friðrik, „er að ef við hættum
bítast í Verðlagsráði, eins og
menn hafa gert gegnum árin, gti
það orðið til þess að sætta ólík
sjónarmið I sjávarútveginum og
menn snúi frekar bökum saman
til að vinna þessari atvinnugrein
betra gengi til frambúðar."
—Hvemig má búast við að þró-
unin fiskverðsins verði nú þegar
það er orðið fijálst?
„Það er alveg ljóst að nokkuð
langur tími þarf að líða áður en
menn hafa áttað sig á til hvers
þetta leiðir. Þó held ég að þetta
hljóti að virka beinna á markaðs-
verðið, hvenær dagsins, vikunnar
eða ársins fiskurinn berst á land,
ef þetta verður til langs tíma. Og
ég býst við því að við eigum eftir
að sjá bæði fiskverðshækkun og
A ekki von á því
að tekjumar aukist
- segir Kristján Ragnarsson,
formaður LÍU