Morgunblaðið - 11.06.1987, Síða 50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987
Rúmenar komust
áfram á jafntefli
Skák
Margeir Pétursson
Úrslit í viðureign Taflfélags
Reykjavíkur og Politekhnika
frá Búkarest í Evrópubikar-
keppni taflfélaga urðu þau að
liðin skildu jöfn, hlutu bæði sex
vinninga. Var þá gripið til sti-
^aútreiknings til að úrskurða
hvort liðið kæmist áfram í
keppninni og varð niðurstaðan
sú að TR féll út. Keppnin fór
fram á heimavelli Rúmenanna
í Búkarést um síðustu helgi.
Þessi sigur þeirra var óvæntur,
sérstaklega eftir fyrri dag
keppninnar en þá hafði TR yfir,
3'/2-2>/2, en seinni daginn gekk
Rúmenunum allt í haginn, þeir
náðu að jafna metin og vinna á
stigum.
Þetta eru að sjálfsögðu mikil
vonbrigði fyrir okkur Taflfélags-
menn og það er erfítt að skýra
þennan slaka árangur. Rúmenam-
ir áttu sigurinn hins vegar fyllilega
skilinn, þeir höfðu stuttu áður
varið titil sinn í rúmensku deildar-
keppninni og voru greinilega mjög
vel undirbúnir fyrir keppnina. Við
vorum heldur ekki öfundsverðir
af því að þurfa sækja þá heim og
eru menn nú orðnir langeygir eft-
ir heimaleik í þessari keppni. 1985
varð Skákfélag Búnaðarbankans
að fara til Spánar og laut í lægra
haldi fyrir Vulca frá Barcelona.
Úrslit fyrri umferðar:
Helgi Ólafsson — Ghinda 1—0
JóhannHjartarson — Stoica '/2
Jón L. Ámason — Ghitescu '/2
Margeir Pétursson — Marin 0—1
Guðm. Siguij. — Dumitrache 1—0
Karl Þorsteins — Stanciu V2
Úrslit seinni umferðar:
Helgi Ólafsson — Ghinda 0—1
Jóhann Hjartarson — Stoica V2
Jón L. Amason — Ghitescu V*
Margeir Pétursson — Marin 0—1
Guðm. Siguijónsson — Berechet V2
Karl Þorsteins — Stanciu 1—0
Á fjórum efstu borðunum tefldu
menn úr landsliði Rúmena og á
því fjórða var ný stjama, Mihai
Marin, sem í febrúar vann það
afrek að komast áfram úr svæða-
móti Austur-Evrópu, ásamt
tveimur Ungveijum og einum
Búlgara. Hann náði að vinna und-
irritaðan í báðum skákunum og
skipti það sköpum fyrir Rúmen-
ana. Karl og Guðmundur unnu
sína skákina hvor, en á þremur
efstu borðunum urðu úrslit alls
staðar jöfn. Enginn okkar náði sér
virkilega vel á strik og þar sem
ég var alveg heillum horfinn urðu
þessi klaufalegu úrslit að vem-
leika.
Auk þeirra sex sem tefldu, vom
með í förinni Jón Briem, formaður
Taflfélags Reykjavíkur, og Þröst-
ur Þórhallsson, sem var varamað-
ur. Það var ekki sízt fyrir atbeina
Jóns Briem að stjóm TR ákvað
að senda lið í keppnina í fyrsta
sinn og var hann að vonum nokk-
uð sleginn yfír því að sveit hans
skyldi falla úr keppni á jöfnu.
Hann var þó ákveðinn í að TR
verði einnig með næsta ár, enda
menn nú reynslunni ríkari.
Það vom Reykjavíkurborg og
nokkur fyrirtæki sem gerðu Tafl-
félaginu kleift að takast þátttök-
una á hendur. Fyrirtækin vom
Almennar tiyggingar hf., Flug-
leiðir hf., Hampiðjan hf., Sjóvá-
tryggingafélag íslands hf. og
Tryggingamiðstöðin hf.
Það er best að fjölyrða ekki
frekar um úrslitin og heldur ekki
það hvort réttlátt sé að heimalið
komist áfram á jafntefli, en lítum
í staðinn á skemmtilega vinnings-
skák Guðmundar úr fyrri umferð-
inni. Framan af er skákin í jámum,
en í 33. leik hirðir Rúmeninn peð
sem honum verður nokkuð bumb-
ult af. í tímaþröng leikur hann
síðan af sér og Guðmundur nær
að ljúka skákinni á laglegan hátt.
Hvítt: Guðmundur Siguijóns-
son.
Svart: Dumitrache (Rúmeníu).
Sikileyjarvöm
I. e4 - c5, 2. Rf3 - Rc6, 3. d4
- cxd4, 4. Rxd4 - Rf6, 5. Rc3
- e5
Lasker-afbrigðið, sem sovézki
stórmeistarinn Sveschnikov gerði
aftur vinsælt á síðasta áratug.
6. Rdb5 - d6, 7. Bg5 - a6, 8.
Ra3 - b5, 9. Bxf6 - gxf6, 10.
Rd5 - Bg7
Hér er mun oftar leikið 10. —
f5. Guðmundur reynir ekki að
færa sér þessa óvenjulegu leikja-
röð svarts í nyt, en það tókst
hvítum í skákinni Jón L. Árnason
- Haukur Angantýsson,
Grindavík 1984. Þar varð fram-
haldið eftir 10. — Bg7: 11. Dd3!?
- Re7, 12. 0-0-0 - Rxd5, 13.
Dxd5 — Be6, 14. Dxd6 — Dxd6,
15. Hxd6 - Bf8, 16. Hxa6 og
hvítur vann endataflið.
II. c3 — f5, 12. exf5 — Bxf5,
13. Rc2 0-0, 14. Rce3 - Be6, 15.
g3 - Hb8
Hér er 15. — Re7 vafalaust
nákvæmara.
16. Bg2 - f5, 17. 0-0 - Kh8,
18. f4 - Dd7, 19. Dd2 - a5, 20.
Khl - b4, 21. Hadl - bxc3, 22.
bxc3 - Hb5?!
Nú nær hvítur að veikja svörtu
peðastöðuna. Vel til greina kom
einfaldlega 22. — e4.
23. De2! - Hfb8, 24. fxe5 -
Rxe5, 25. Rf4 - Bf7, 26. Hd2 -
Rg4, 27. Red5 - He8, 28. Dd3
- Re5, 29. Dc2 - Rc4, 30. Hdf2
- Re3, 31. Rxe3 — Hxe3, 32.
Hf3 - De8, 33. h3 - Bxc3
Síðustu leikir hvíts virðast ekki
hafa verið sérlega markvissir og
það er því skiljanlegt að svartur
hirði peð sem liggur á glámbekk.
En við þetta opnast staðan hvíti
í hag.
34. Hxe3 - Dxe3, 35. Hf3 -
Del+, 36. Kh2 - Bd4, 37. Dc8+
- Kh7, 38. Hfl - De3?
Nauðsynlegt var 38. — De7 og
framhald gæti orðið 39. Hcl —
Hc5, 40. Hxc5 — dxc5, 41. Dxf5
og staðan virðist vera u.þ.b. í jafn-
vægi. Nú nær hvítur hins vegar
hættulegri sókn:
39. Dd7! - He5, 40. Rh5+ -
Kg6,41. Dxd6+! - Be6,42. De7!
Þótt Rúmeninn hugsaði sig nú
um í 45 mínútur fann hann ekk-
ert betra framhald en að gleypa
við tálbeitunni á h5. Lokin eru
þvinguð.
42. - Kxh5, 43. Dxh7+ - Kg5,
44. Dg7+ - Kh5, 45. Bf3+ -
Dxf3, 46. Dh7+ - Kg5, 47. h4+
- Kf6, 48. Hxf3 - Bd5, 49.
Hxf5+! - Hxf5, 50. Dh8+ -
Ke6, 51. Dxd4 — Bxa2, 52. g4
— He5, 53. Db6+ og svartur
gafst upp.
★
Skákþing Norðurlanda
í Færeyjum í sumar
Það fer nú hver að verða síðastur
að tilkynna þátttöku í Skákþingi
Norðurlanda í Færeyjum, sem fram
Frá keppninni í Búkarest.
+
Lögmál Murphys gild-
ir líka um bridsspilara
Brids
Guðmundur Sv.
Hermannsson
FYRIR þá svartsýnu hefur verið
búið til máltækið: Ef eitthvað
getur farið úrskeiðis þá fer það
i úrskeiðis. Á þessu máltæki, sem
kennt er við einhvem Murphy,
heftur verið byggð heil heim-
spekistefna og sem dæmi um
kennisetningar þeirrar heim-
speki má nefna: hin biðröðin fer
alltaf hraðar; brauð sem dettur
kemur alltaf niður á smurðu hlið-
ina, og svo framvegis.
Þessi stefna á sér fylgjendur
meðal iðkenda bridsíþróttarinn-
ar eins og annarsstaðar. Alltaf
öðru hvoru heyrist einhver segja:
ég finn aldrei drottningar ef ég
get svínað í báðar áttir; eða: allt
sem ég reyndi var dæmt til að
mistakast þvi andstæðingarnir
grisuðu sig máttlausa.
Þessi heimspeki á örugglega
við um eftirfarandi spil. Það kom
fyrir i sterku móti í Bandaríkjun-
um og í vestur sat kanadíski
spilarinn Allan Graves, sem kom-
ið hefur hingað einum tvisvar
sinnum til að spila á bridshátið-
um. í suður sat margfaldur
heimsmeistari kvenna og stiga-
hæsti kvenspilari heims, Jacqui
Mitchell.
Norður
4 ÁKD9876
¥32
♦ Á
♦ 765
Vestur
♦ G104
¥ G10987
♦ K6532
♦ -
Austur
♦ 32
¥54
♦ G98
♦ KG9843
Suður
♦ 5
¥ AKD6
♦ D1074
♦ AD102
Norður opnaði á 4 tíglum til að
sína góða 4ra spaða opnun, suður
spurði á 4 gröndum um ása, fékk
upp 2 ása með 5 hjörtum og stökk
þá í 6 spaða.
Þetta spil kom fyrir í lok mótsins
eftir stífa spilamennsku og spilar-
amir voru því orðnir þreyttir.
Graves vissi að norður átti spaðalit-
inn og honum fannst endilega að
hann væri því sagnhafi. Og Graves
doblaði því 6 spaða til að benda
austri á að spila út í hans lengsta lit.
Eftir að sögnum lauk biðu allir
eftir útspilinu í nokkum tíma, uns
það rann skyndilega upp fyrir Gra-
ves að hann átti sjálfur út. Honum
tókst þó að láta sem ekkert væri
og spilaði út tígli.
Blindur kom niður og Jacqui leit
grunsemdaraugum á Graves. Á
hvað var maðurinn eiginlega að
dobla? Það eina sem hann gat átt
var öll trompin fimm sem úti voru
— eða hvað?
Svo í stað þess að taka þtjá efstu
í spaða, svína laufinu og renna heim
13 slögum, spilaði Jacqui spaðafim-
munni og þegar vestur setti fjar-
kann var sexunni svlnað í blindum!
Hún hélt slag og Jacqui fékk eftir
sem áður 13 slagi.
En Allan Graves sat lamaður á
eftir og tuldraði lögmál Murphys
fyrir munni sér. Það var ekki nóg
með að hann ruglaðist í ríminu og
útspilsdoblaði þegar hann átti sjálf-
ur út, heldur hafði hann einnig
fengið of góð spil á hendina. Því
ef austur hefði átt annaðhvort
Glen Grötheim og Ulf Tundal spila á Bridshátíð 1987 við Stefán
Pálsson og Rúnar Magnússon.
spaðatíu eða gosa hefði spilið farið
niður: austur hefði komist inn og
gefið vestri laufastunguna til baka!
Garozzo flytur
til Ameríku
ítalinn frægi, Benito Garozzo,
sem til skamms tíma var nær óum-
deilanlega besti spilari heims,
íhugar nú að flytjast til Ameríku,
enda hefur hann undanfarin ár ver-
ið I slagtogi við bandaríska konu,
Lea Dupont sem er glúrinn brids-
spilari auk þess að vera loðin um
lófana.
Garozzo er farjnn að taka þátt I
bandarískum meistaramótum og
um síðustu helgi vann hann Reisin-
ger útsláttarsveitakeppnina ásamt
öðrum gömlum meistara, Sam
Stayman, sem allir bridspilarar
ættu að kannast við af samnefndri
sagnvenju. Lea Dupont var einnig
I sveitinni og George Tomay, Ric-
hard Reisig og Saul Bronstein, allt
kunnir spilarar I Bandarfkjunum.
Bridgesambandssilf -
rið skilar sér
Rannsóknarlögreglan fann fyrir