Morgunblaðið - 11.06.1987, Side 51
t
1
f._______________________________________
fer dagana 12. til 23. júlí í sumar.
Teflt verður í fimm flokkum, lands-
liðsflokki þar sem tefla aðeins tólf
skákmenn, meistaraflokki sem er
opinn öllum með 2.000 stig og yfir,
almennum flokki A fyrir þá sem
hafa 1.500 til 1.999 stig, almennum
flokki B fyrir þá sem hafa 1.499
stig og minna og einnig er flokkur
fyrir 15 ára og yngri. Keppni í öðr-
um flokkum en landsliðsflokki hefst
þriðjudaginn 14. júlí og lýkur
fimmtudaginn 23. júlí.
Skáksamband fslands veitir allar
upplýsingar um mótið á skrifstof-
unni á Laugavegi 51, 3. hæð, eða
í síma 27570, á virkum dögum
milli kl. 13 og 16. Þar er einnig
tekið við þátttökutilkynningum.
Ætlast er til þess að væntanlegir
þátttakendur skrái sig til leiks fyrir
15. júní. Svo sem að framan grein-
ir er mótið opið fyrir alla, en
þátttakendum er raðað í flokka eft-
ir stigum.
Húnversk
mær mennt-
ar Barð-
strendinga
á tónlist-
arsviðinu
Stað Í Hrútafirði.
ELÍNBORG Sigurgeirsdóttir
kennari við Tónlistarskólann á
Blönduósi er á eigin vegum með
námskeið í hljóðfæraleik á Reyk-
hólum.
Námskeiðið stendur í einn mán-
uð. Eigin tónlistarkennsla er starf-
rækt við skólann á Reykhólum.
Nemendur Elínborgar eru þijátíu
talsins og eru að hennar sögn
áhugasamir. í viðtali við fréttarit-
ara Morgunblaðsins sagði Elínborg
að hugmyndin að námskeiðinu hefði
fæðst þegar hún á síðastliðnum
vetri hefði verið að leika fyrir vest-
an á dansleikjum með hljómsveit-
inni Lexíu, en Elínborg er ein af
meðlimum hennar.
- M.G.
síðustu helgi verðlaunagripi þá sem
stolið var úr skrifstofu Bridgesam-
bands ísladns fyrir tæpum fimm
árum. Gripimir fundust í skúr við
hús í Þingholtunum.
Þama á meðal var tréskjöldur
útskorinn af Ríkarði Jónssyni, og
var skjöldurinn farandverðlaun í
Reykjavíkurmótinu í sveitakeppni á
7. áratugnum. Einnig var þama
silfurslegið víkingaskip, og farand-
gripur sem keppt var um í lands-
keppnum íslendinga og Skota fyrir
20 árum auk fleiri bikara.
Ungir Noregs-
meistarar
Glen Grötheim og Ulf Tundal
hétu tveir ungir norskir keppendur
á bridshátíðinni í vetur. Sjálfsagt
muna ekki margir eftir þeim enda
gerðu þeir engar rósir þá og eru
hvorugur mikið fyrir mann að sjá.
Landsmenn þeirra hafa þó fengið
að kenna á þeim við spilaborðið
undanfarið því þeir unnu Noregs-
mótið í sveitakeppni með yfirburð-
um ásamt bræðrunum Aa sem
einnig eru ungir menn.
Átta sveitir kepptu í úrslitunum
eins og hér á íslandi og sigursveit-
in, Studentens BK frá Þrándheimi,
uppskar 155 stig sem gerir 22 stig
í leik að meðaltali! Til samanburðar
má nefna að sveit Polaris vann ís-
landsmótið með 146 stigum sem
er hæsta skor frá því núverandi
stigakerfi var tekið upp. Næstu
sveitir, Akademisk BK og Bergens
BK fengu 111 stig.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987
51
Bankamannaskólinn:
Breytt skipulag
NÝLIÐANÁMI Bankamannaskól-
ans var slitið 22. maí og luku þá
42 bankamenn námi. Um nokkurra
ára bil hafa um 100 nýliðar útskrif-
ast á hveijum vetri, samkvæmt
eldra skipulagi. Þessi hópur var
sá siðasti samkvæmt þessu skipu-
lagi, þar eð nýtt skipulag verður
tekið upp á næsta hausti.
Samkvæmt hinu nýja skipulagi fer
öll kennsla fram samfellt á fjórum
til þremur vikum, í stað þess að kennt
hefur verið í tvær eða fjórar stundir
á dag í 10 vikur. Einnig taka bank-
amr virkari þátt í verklegri þjálfun
nýliða sinna, m. a. með því að láta
þá ganga á milli deilda fyrsta starfsá-
rið.
Til viðbótar nýliðanámi býður skól-
inn upp á framhaldsnám fyrir eldri
bankamenn, eins konar fullorðins-
fræðslu í viðskipta- og bankagrein-
um. Nýmæli í starfi skólans er
svonefnd fulltrúafræðsla, þar sem
ungum fulltrúm er sagt til í verk-
stjómarhlutverki sínu. Þá heldur
skólinn ýmis konar önnur styttri nám-
skeið, svo og ráðstefnur úti á landi.
Vorráðstefna skólans er nýafstaðin
og var hún haldin á Borgamesi að
þessu sinni. Onnur ráðstefna er fyrir-
huguð í haust.
Bankamannaskolinn er rekinn í
samvinnu banka og sparisjóða annars
vegar og Sambands íslenskra banka-
manna hins vegar.
Sex nemendur, sem sköruðu fram úr í nýliðanámi Bankamannaskól-
ans á vorönn 1987. Efri röð frá vinstri: Guðleif Jónsdóttir, Þorsteinn
Magnússon skólastjóri og Margrét Sigurðardóttir. Neðri röð frá
vinstri: Oddný Helgadóttir, Halldóra Þórarinsdóttir, Margrét Braga-
dóttir og Marsibil Benjamínsdóttir.
ú lœtur þig
reymaum
framandi lönd
undir stýri...
.áttu mikla möguleika á
að draumarnir roetist!
VAKNAÐU MADUR!
Sofandaháttur við stýrið, almennt gáleysi og kæruleysi öku-
manna eru langalgengustu orsakir umferðarslysa. Flest slysin,
verstu óhöppin, mestu meiðslin og flest dauðsföllin veröa þegar
skilyrði til aksturs eru best, bjart, þurrt, auðir vegir o.s.frv. Þá
slaka ökumenn á - og stefna sjálfum sér og öðrum vegfarend-
um í stórkostlega hættu. Breytum þessu strax!
(Niöurstaða úr könnun Samvinnutrygginga á orsökum og afleiðingum umterðarslysa).
5AMVINNU
TRYGGINGAR
-gegn gáleysi
i