Morgunblaðið - 11.06.1987, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987
53
Félagar í Kvenfélaginu Öldunni sáu um veitingar á útskriftinni.
Stýrimannasskólinn í Reykjavík:
Skólanum slitið í 96 sinn
Fjölmenni var við útskrift Stýrimannaskólans.
Stýrimannaskólanum bárust
margar kveðjur og gjafir við út-
skriftina. Dætur Guðmundar
Bjarna Kristjánssonar fyrrverandi
kennara, gáfu skólanum 150.000
kr. í minningarsjóð föður þeirra.
Garðar Pálsson skipherra talaði
fyrir hönd 40 ára farmanna og
færðu þeir skólanum mynd af ár-
ganginum og 20.000 kr. í sjóð
Friðriks V.Ólafssonar skólastjóra.
Víðir Finnbogason forstjór talaði
fyrir hönd 30 ára farmanna og
munu þeir gefa í Tækjasjóð, sem
þeir stofnuðu á sínum tíma.
Fyrir hönd 20 ára farmanna
talaði Asgeir S. Asgeirsson kaup-
maður og gáfu þeir eirlíkan af
nýsköpunartogaranum Jóni for-
seta.
Tómas ísleifsson stýrimaður ta'/P*
aði fyrir hönd 10 ára nemenda og
gáfu þeir 45.000 kr. í Sögusjóð
Stýrimannaskólans.
Guðjón Á. Kristjánsson formað-
ur Farmanna- og fískimannasam-
bands íslands færði skólanum
100.000 kr. frá sambandinu til
þess að standa straum af kostnaði
af undirbúningi og framleiðslu
kvikmyndar um Stýrimannaskól-
ans.
Að loknum skólaslitum var gest-
um boðið upp á kaffí og veitingar,
sem kvenfélagið Aldan sá um.
STÝRIMANNASKÓLANUM í
Reykjavík var slitið við hátíð-
lega athöfn á hátíðasal skólans
laugardaginn 16. maí síðastlið-
inn. Þetta voru 96 skólaslitin frá
stofnun hans 1891.
Fjölmenni var við skólaslitin og
minntist skólastjóri, Guðjón Ár-
mann Eyjólfsson í upphafí skóla-
slitaræðu sinnar látinna sjómanna,
en 18 íslenskir sjómenn hafa farist
síðan skólinn var settur. Hann
gerði síðan grein fyrir skólastarf-
inu og prófum.
Samtals luku 104 sjómenn skip-
stjómarprófum til atvinnuréttinda
frá skólanum skólaárið 1986 -
1987.
Skipstjómarprófi 1. stigs luku
36 nemendur. Próf þetta veitir
skipstjómarréttindi á 200 rl. físki-
skip í innanlandssiglingum.
Skipstjómarprófí 2. stigs luku
42 nemendur. Próf þetta veitir
ótakmörkuð réttindi á fískiskip og
undirstýrimannsréttindi á kaup-
skip og varðskip af hvaða stærð
sem er og hvar sem er.
Skipstjómarprófí 3. stigs, far-
mannaprófi, luku 12 nemendur.
Hæstu einkunn á skipstjómar-
prófí 1. stigs hlaut Guðbjartur
Jónsson frá Bolungarvík. Hæstu
einkunn á skipstjómarprófí 2. stigs
hlaut Ingimundur Þórður Ingi-
mundarson frá Reykjavík. Hæstu
einkunn á farmannsprófi hlaut
Ágúst Ingi Sigurðsson frá Vest-
mannaeyjum.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Guðjón Ármann Eyjólfsson skólastjóri Stýrimannaskólans afhendir verðlaun fyrir góða námsárangur.
Skólaslit Grunn-
skóla Stykkishólms
Gunnar Svanlaugsson yfirkennarí og Lúðvík Halldórsson skólastjórí
Grunnskóla Stykkishólms.
Morgunblaðið/Ámi
Stykkishólmi.
GRUNN SKÓLANUM í Stykkis-
hólmi var sagt upp við hátíðlega
athöfn í húsnæði skólans 28. mai
sl., að viðstöddu fjölmenni, nem-
enda og aðstandenda þeirra.
Grunnskólinn starfaði í 11 deild-
um á þessu skólaári og voru sumar
bekkjardeildirnar tviskiptar. Alls
voru 276 nemendur i skólanum,
20 kennarar og starfsfólk um 12
alls.
Félagslíf var gott og þar komu inn
á milli íþróttir sem skólinn hefír und-
anfarin ár tekið mikinn þátt í, bæði
æfingum og keppni á aðra staði.
Formaður nemendaráðs er Sæþór
Þorbergsson, og eins hefir Jón Bjarki
Jónatansson haft mikil umsvif í fé-
, lagslífi skólans. Kom þetta fram við
skólaslit. Heilbrigði hefir verið góð í
vetur og ekki fallið úr dagar þess
vegna. Bókasafn á skólinn og hefir
það verið nýtt.
Skólaslitin voru stutt athöfn að
þessu sinni. Skólastjóri, Lúðvík
Halldórsson, minntist hins hrapal-
lega slyss fyrir nokkrum dögum
þegar einn nemandi, Dagný Lára
Jónasdóttir, 12 ára, beið bana í
bflslysi í Reykjavík. Risu viðstaddir
úr sætum til virðingar minningu
Dagnýjar.
Eftir þessa athöfn afhenti skóla-
stjóri námsskírteini og viðurkenning-
ar til nemenda fyrir góðan árangur
og var mörg góð bókin sem þeir
voru verðlaunaðir með. Skólastjóri,
lét mjög vel af skólastarfínu í vetur,
góðum samtökum og góðum árangri.
Tveir kennarar láta nú af störfum
og var þeim þakkað gott starf. Gunn-
ar Svanlaugsson, yfírkennari skól-
ans, lauk svo skólaslitunum með því
að segja nokkur orð til nemenda og
sjá um að hver fengi sína einkunna-
gjöf.
Unnur Breiðflörð hefír um 10 ára
skeið skráð feril eins beklgarins í
skólanum, safnað myndum í bók sem
sagan er skráð og nú þegar 9. bekk-
ur lýkur námi, afhenti hún bekkjar-
nemendum þessa fróðlegu bók. Á
eftir stóðu nemendur fyrir veitingum
í skólanum til styrktar ferðastarfí.
Skólinn hefír nú ágæt húsakynni
og öll aðstaða til kennslu getur ekki
verið betri. Samt þarf kennsla að
fara fram í gamla skólanum.
— Árni
Fjölmenni var við athöfnina.
Ibúasamtök Þing-
holtanna:
30kmhá-
markshraði
verði virtur
ÞANN 17. mai sl. var lialdinn
aðalfundur í íbúasamtökum
Þingholtanna. Fundurinn var
haldinn i húsi Verzlunarskóla
íslands við Grundarstíg. Á fund-
inum fóru fram venjuleg aðal-
fundarstörf, en einnig var
Guðrúnu Jónsdóttur arkitekt
boðið á fundinn, til þess að kynna
deiliskipulag hverfisins.
Eftirfarandi aðilar voru lgömir í
stjóm félagsins: Guðrún Ögmunds-
dóttir, formaður, Freyja Kristjáns-
dóttir, ritari. Meðstjómendur:
Hildur Kjartansdóttir, Sigurður
Harðarson, Kári Halldór og til vara
Inga Jóhannsson.
Á fundinum urðu talsverðar um-
ræður um deiliskipulagið, svo og
um umferðarmál hverfísins, og
hvað gera þyrfti til þess að 30 kfló-
metra hámarkshraði yrði virtur í
þessum borgarhluta. Einnig urðu
umræður um skort á félagsmiðstöð
fyrir hverfið. Félagsmiðstöð sem
myndi nýtast öllum íbúum hverfís-
ins, ungum sem öldnum, en fram
kom á fundinum að 20% íbúa Þing-
holtanna eru 67 ára og eldri og að
huga þyrfti að aðstöðu fyrir þennan
hóp hverfisins.
(Fréttatilkynning)