Morgunblaðið - 11.06.1987, Side 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987
KÓPAR
Skátar
Kópamót verður næstu helgi (12.-14. júní) í
Borgarvík við Úlfljótsvatn.
Brottför frá skátaheimilinu Borgarholtsbraut
7, Kópavogi, kl. 20.00 föstudagskvöld.
Nánari upplýsingar hjá sveitarforingjum.
Gamlir skátar og foreldrar velkomnir á varð-
eld á laugardagskvöld.
Stjórnln.
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖOINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI
T rjáhlífar
Söluaðilar:
Skógrækt ríkisins á Mógilsá,
Skógræktarfélag Reykjavíkur
Fossvogsbletti,
Blómaval Sigtúni.
Heildsölubirgðir,
Skógrækni sf,
sími 98-1500.
UM FORMANNSKJORI
SUS AÐ GEFNU TILEFNI
eftirEvu
Georgsdóttur
Undanfarið hafa orðið nokkur
blaðaskrif um það að í haust fari
fram formannskosningar í Sam-
bandi ungra sjálfstæðismanna. Það
eru 10 ár síðan síðast var kosið um
formann í SUS og því nokkur tíðindi
að tveir ágætir menn hafa lýst yfír
framboði sínu. Það er mikilvægt
fýrir unga sjálfstæðismenn að kosn-
ingabaráttan fari fram á sem
drengilegastan hátt og menn geri
upp á milli manna og þeirra mál-
efna sem þeir leggja áherslu á, en
láti kosningabaráttuna ekki snúast
um aukaatriði. En mönnum hættir
til þess í hita leiksins eins og grein
Sveins Andra Sveinssonar í Morg-
unblaðinu 27. maí sl. ber glöggt
vitni um. Þar gerir hann aukaatriði
í málinu að aðalatriði. Skrif Þjóðvilj-
ans skipta ekki máli þegar ungir
sjálfstæðismenn gera upp hug sinn
um hvem þeir velja fyrir formann
í sínum samtökum. Þjóðviljinn er
bara blað úti í bæ og ungir sjálf-
stæðismenn láta sér í léttu rúmi
liggja hvað því blaði þykir um for-
mannskosningar í SUF.
Sveinn Andri kýs einnig að hnýta
örlítið í fráfarandi formann SUS,
Vilhjálm Egilsson. Sveinn Andri
segir: „Hins vegar má á það benda
að lengi hefur verið ljóst að veljast
yrði nýr formaður SUS þar sem
Vilhjálmur er kominn yfír aldurs-
mörkin."
Hér er réttu máli hallað. Vil-
hjálmur Egilsson verður 35 ára á
þessu ári, en félagar eru fullgildir
félagar þar til þeir hafa náð 36 ára
aldri. í 7. gr. laga SUS segir: „Kjör-
gengir í stjóm sambandsins eru
allir félagar samtaka þeirra sem í
sambandinu eru.“
Eva Georgsdóttir
„Vilhjálmur Egilsson
hefur sérstaklega hvatt
varaformann SUS, Sig-
urbjörn Magnússon, til
þess að gefa kost á sér
til formanns.“
Það er því ekki „löngu ljóst“ að
Vilhjálmur muni vera kominn á ald-
ur, hann er kjörgengur til formanns
jafnvel þó að hann fari yfír aldurs-
mörkin á kjörtímabilinu. Vilhjálmur
tók hins vegar þá ákvörðun að það
væri rétt og í samræmi við tíðarand-
ann að yngja upp í forystu SUS.
A síðustu 2 árum hafa þeir sem
orðnir eru 18 ára tekið þátt í tvenn-
um kosningum, sveitarstjómar-
kosningum vorið 1986 og alþingis-
kosningum nú í vor. Það er því
orðið enn mikilvægara fyrir ungl-
ingahreyfíngu stjómmálaflokks að
höfða til þessara ungu lqósenda.
Innan SUS hefur verið rætt um að
lækka hámarksaldur félaga úr 35
ámm í 30 ár. Það er tímabært að
taka upp þessa umræðu á næsta
SUS-þingi þegar rætt verður um
það hvemig ná eigi sem breiðustum
hópi ungs fólks til fylgis við sjálf-
stæðismenn.
Ég vil ennfremur nota þetta
tækifæri til þess að þakka Vilhjálmi
Egilssyni fyrir að hafa veitt ungum
sjálfstæðismönnum trausta forystu
á síðustu tveimur árum. Hann hefur
sýnt það í verki að Samband ungra
sjálfstæðismanna getur verið vett-
vangur ungs fólks með nýjar
hugmyndir, ungs fólks sem leggur
áherslu á grandvallarhugsjónir
sjálfstæðisstefnunnar og lætur í sér
heyra þegar því fínnst Sjálfstæðis-
flokkurinn í pólitísku samninga-
makki gerast fráhverfur grandvall-
arstefnunni. SUS hefur varað við
villigötum velferðarríkisins, hvatt
til ráðdeildar í ríkisrekstri, barist
gegn erlendri skuldasöfnun og
síðast en ekki síst skapað ungu
sjálfstæðisfólki fótfestu á lands-
byggðinni með byggðastefnu unga
fólksins sem Viihjálmur var aðal-
höfundur að.
Vilhjálmur Egilsson hefur sér-
staklega hvatt varaformann SUS,
Sigurbjöm Magnússon, til þess að
gefa kost á sér til formanns. Við
höfum hingað til treyst farsælli leið-
sögn Vilhjálms og við skulum því
treysta því að Sigurbjöm geti áfram
haldið því merki sem Vilhjálmur
hefur hafíð á loft.
Höfundur er stjórnarmaður í
Heimdalli.
N Ý J U N G A R
Ðf
V
Nýtt og öðruvísi GOÐA gómsæti. Þú opnar
umbúðirnar, skellir frosnu innihaldinu á
pönnuna og á örfáum mínútum verður til
dýrindis máltíð!