Morgunblaðið - 11.06.1987, Síða 68
68
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987
fclk f
fréttum )
Mabel Sigurjónsson ásamt bandariskri vinkonu sinni. Morgunbiaðið/KGA
Aldarafmæli
Mabel Signrjónsson
MABEL Siguijónsson, fædd Eyers, náði
þeim merka áfanga þann 27.mái s.l.
að verða hundrað ára. Mabel er fædd í Banda-
ríkjunum en fluttist hingað til lands um 1950
ásamt manni sínum, Lárusi Sigurjónssyni
sem lést 1967, 96 ára gamall.
Mabel Siguijónsson ólst upp í Chicago en
faðir hennar var prófessor og rektor við
Harvard-háskóla. Mabel lærði óperusöng við
háskólann og rak síðar söngskóla í Chicago
frá 1924 og fram undir síðari heimsstyijöld-
ina. Síðustu árin þar vestra vann hún hjá
bandarísku hljómpiötufyrirtæki.
Mabel giftist eiginmanni sínum 1928, en
Íiau voru bamlaus. Um 1950 fluttust þau til
slands til að eyða þar ævikvöldinu og hefur
það reynst Mabel Siguijónsson dijúgt. Hún
hefur eignast fjölda vina gegnum tíðina,
bæði hér á landi og erlendis og alltaf f
sérlega auðvelt með að kynnast fóki og
þekkt fyrir gestrisni sína. Hún stofnaði V g-
ið “Vinahjálp", sem er þýðing á “F dly
help>ers“, en tilgangur þess er að stofna til
kynna meðal erlendra kvenna á íslandi, sérs-
taklega eiginkvenna sendiherra, og hefur sá
félagsskapur árlega staðið fyrir umfangsm-
iklum söftiunum til styrktar líknarmála.
Mabel dvelur nú á öldrunardeild Landsspít
alans að Hátúni 10 og var veislan í tilefni
100 ára afmælisins haldin þar að viðstöddu
fjölmenni, en þangað komu um 100 gestir.
Mabel bárust einnig skeyti víðsvegar að úr
heiminum m.a. færði bandaríski sendiherrann
henni persónulega kveðju frá forseta banda-
ríkjanna, Ronald Reagan og Nancy konu
hans.
Liðskipan Mezzoforte er sú sama og á siðasta ári; talið frá vinstri: Gunnlaugur
Briem, trommuleikari, Jóhann Ásmundsson, bassi, Friðrik Karlsson, gitar, Eyþór
Gunnarsson hljómborð, Noel McCalla, söngvari og sitjandi er saxófónleikarinn,
David OHiggins.
MEZZOFORTE
í fullu fjöri
Um hundrað manns komu i afmælisveisluna.
ÞEIR félagar í Mezzoforte eru nú um það
bil að leggja af stað í tónleikaferð um Evr-
ópu. Þeir munu koma fram á alls 13 stöðum m.a.
í London, Amsterdam, Hamborg, Kaupmanna-
höfn og Osló. Á ður en þeir leggja af stað í
Evrópuferðina ætla þeir að spila fyrir landa sina
í veitingahúsinu Evrópu við Borgartún í kvöld,
fimmtudagskvöld.
Blaðamaður Morgunblaðsins leit inn á æf-
ingu hjá strákunum í Súðavoginum, en þar
hafa þeir fengið fastan samastað til æfinga og
tónsmíða.
“Það hafa ýmsir haldið að hljómsveitin væri
hætt en við erum síður e_n svo að leggja upp
laupana“sagði Jóhann Ásmundsson, hljóm-
borðsleikari, “við tókum okkur stutt hlé en
hættum aldrei og erum nú að fara af stað með
stíft prógram í sumar. Þessi tónleikaferð er
aðeins byijunin á þeirri töm, en síðar munum
við væntanlega gefa út “okkar árlegu breiðskí-
fu“.
Aðspurður um vinsældir Mezzoforte á ís-
landi og erlendis sagði Friðrik Karlsson, gítar-
leikari, að síðasta breiðskífa þeirra, “No Limit"
hefði selst í 120 þúsund eintökum , þar af
a.m.k. 25.þúsund í Noregi; en hér heima hafa
einungis 700 plötur selst. Undanfarin fjögur
ár hefur hljómsveitin leikið á fleiri hundruð
tónleikum í Evrópu og Japan og hafa á þeim
tíma selst rúmlega 600 þúsund breiðskífur og
yfir 300 þúsund smáskífur en til samanburðar
má nefna að árleg sala hljómplatna á íslandi
er um 250 þúsund eintök.
Eftir tónleikana í Evrópu í kvöld heldur
Mezzoforte til Sandane í Noregi þar sem þeir
leika á Glopprock tónlistarhátíðinni og er að
sögn norskra dagblaða búist við mikilli aðsókn
enda vinsældir Mezzoforte miklar þar um slóð-
ir. Tónleikaferðinni lýkur svo 2.júlí þar sem
Mezzoforte kemur fram ásamt ýmsum heims-
þekktum tónlistarmönnum á Midfyns-hátíðinni,
en þeir hafa áður leikið bæði þar og á Roskilde-
hátíðnni.
Mezzoforte á 10 ára afmæli nú í sumar og
að sögn hljómsveitarmeðlima verður væntan-
lega eitthvað gert til að minnast þeirra
tímamóta. Þrátt fyrir velgengni á erlendri grund
segjast þeir síður en svo vera á förum af landi
brott enda nýbúnir að koma sér fyrir í nýju
æfingahúsnæði.
í kvöld ætla þeir félagar að leika sín vinsæl-
ustu og þekktustu lög í gömlum og nýjum
útsetningum og hefjast tónleikamir um kl.22.
50 ára stúdentar
frá M.R.
Þessi fríði hópur hélt upp á 50 ára stúd-
entsafmæli á fimmtudaginn var, 4.júní
, en þau luku stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum í Reykjavík vorið 1937. Með þeim á
myndinni er Sigurkarl Stefánsson, fyrrum
yfirkennari, en hann er eini kennari ár-
gangsins sem enn er k lífi. Myndin var tekin
við heimili Þórhalls Ásgeirssonar ráðuneyt-
isstjóra að Einimel 6 í Reykjavík. Á
myndinni eru, talið frá vinstri: Ágúst
Bjamason, Unnsteinn Beck, Esra Pétursson,
Bjami Einarsson, Ámi Hafstað, Sigmundur
Jónsson, Sigurður Hafstað, Sigurlaug
Bjömsdóttir, Pétur Thorsteinsson, Þórhallur
Ásgeirsson, Sigurkarl Stefánsson, kennari,
Þorsteinn Amalds.Ásberg Sigurðsson,
Margrét Thoroddsen, Jón Skúlason, Sigríður
Jónsdóttir.Guðrún Amalds, Geir Reynir
Tómasson, Páll A. Pálsson, Jórunn Viðar-
Fjeldsted, Ögmundur Guðmundsson og
Hallgrímur Dalberg.
Morgunblaðið/Einar Falur.
}iS \
Kfy,- MMm: ••.' h