Morgunblaðið - 11.06.1987, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987
69
Brigitte
NÝJASTA kvikmynd Eddie
Murphy,“Löggan í Beverly
Hills 2“ þar sem Brigitte Nielsen-
Stallone leikur eitt af aðalhlut-
verkunum hefur fengið
meðtaðsókn í Bandaríkjunum.
Myndin var frumsýnd 20.maí s.l.
í 2.326 kvikmyndahúsum víðs
vegar um Bandaríkin. Fyrstu sýn-
ingarhelgina komu inn hvorki
meira né minna en 26.348.555
dalir sem er meira en nokkur
önnur mynd_ hefur halað inn á
einni helgi. Á einni viku kom inn
um 41 miljón dala í aðgangseyri.
Brigitte, sem er 23 ára gömul,
fékk sitt fyrsta kvikmyndahlut-
verk í ævintýramyndinni Rauða-
Sonja. Síðan lék hún í myndum
Sylvester Stallone; Rocky IV og
Cobra. í “Beverly Hills löggunni"
fær hún í fyrista sinn að spreyta
sig án aðstoðar eiginmannsins,
þar sem hún leikur harðsvírað
glæpakvendi og hefur h ún þegar
fengið hrós fyrir leik sinn.
slær Stallone við
Brigitte og Sylvester Stallone
Bátasmíði og kveðskapur
stundaður af kappi
- í heimsókn hjá Elíasi Þórarinssyni á Sveinseyri
Sumir bændur telja sig mestu
búskussa og segjast ekkert
gera almennilega, þótt bátasmíði
og kveðskapur sé stundaður af
kappi. Sú iðja gerir engan ríkan af
peningum, enda er Elías Þórarins-
son á Sveinseyri lítill kaupmaður
og ríkidæmi hans er ekki ávaxtað
í bönkum. Enginn borgar fyrir
ball-, þorrablóts- eða sjómanna-
dagsljóð um hin ólíkustu efni — og
ekki ætlast til þess af þeim sem
yrkir.
Hlaða sem Elías reisti fyrir
nokkrum árum er minnst notuð
fyrir hey enda maðurinn ekki við
eina fjölina felldur, dverghagur og
orðhagur. Hann kveðst aldrei hafa
gengið í skóla utan farskóla í
Keldudal í tilskilinn tíma. Ýmislegt
kann hann þó, það sýna bátamir
sem hann hefur smfðað fyrir ætt-
ingja sína og fleiri.
Hlaðan er notuð sem skipasmíða-
stöð og þaðan koma happafley sem
flytja afla að landi, hvar sem þeir
eru_ staðsettir.
Á skáp á veggnum í hlöðunni eru
hripaðar nokkrar lausavísur, þ. á m.
þessi kveðja til bátsins sem er í
smíðum:
Nú skal hnoða nagla að ró
nökkvar hafflöt skáru.
Far þú vei á sollnum sjó
sigraðu hveija báru!
Bátur þessi ber nafnið
Hlyn frá Sveinseyri og
er verk Elíasar.
Elías Þórarinsson í hlöð-
unni við tíunda bátinn
sem er í smiðum, þegar
undan eru skildir bátar
sem hvorki bera menn
né flytja afla að landi.
Eigandi þessa báts verð-
ur sonur hans, Skúli
Elíasson stýrimaður á
Framnesinu.
Við smíðar í kaldri hlöðunni í
vetur fékk hann heimsókn:
Öldnu bijósti yljar veig
engu fram'ar kviðum.
Gott að una'öls við teyg
og eiga bát í smíðum.
Á smíðaferli fleysins:
Eftir að gnoð er afsúðuð
öll að fomum hætti.
Sérhvert unnfar gæði Guð
giftu sinni og mætti.
í þyngri þönkum:
Ei skal greina víl né vol
virðum hreinust gæði.
Látum reyna á þrek og þol
þó að meinin blæði.
Margur gæti margt lært af Elí-
asi, þótt hann hafí ekkert lært, að
eigin dómi. 0g ríkur er hann á það
sem hvorki mölur eða ryð fær
grandað er samdóma álit þeirra er
þekkja manninn.
COSPER
Tískusýnirtg
í Blómasal á morgun
á íslenskum fatnaði.
Módelsamtökin sýna nýjustu línuna í
íslenskum fatnaði í hádeginu alla föstudaga.
Fötin eru frá íslenskum
heimilisiðnaði og Rammagerðinni.
Víkingaskipið er hlaðið íslenskum
úrvalsréttum alla daga ársins.
HÓTEL
LOFTLEIÐIR
FLUGLEIDA fB HÓTEL
Gott verð.
Leitið
nánari
upplýsinga
G.J. Fossberg
vélaverzlun hf.
Skúlagötu 63
Símar 18560-13027
Útvegum
þessar
sænsku
fræsi-borvél
ar beint frá
framleiðanda
Sýningarvél
í versluninni
- Hulda
Auglýsingastofa Gunnars SlA