Morgunblaðið - 11.06.1987, Síða 75
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987
75
L
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691100 KL. 13-14
FRÁ MÁNUDEGl
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu . .
er ekki aðeins dýrt — það er einn-
ig skaðlegt fólki, sérstaklega
bömum sem gæta sín ekki sem
skyldi þar sem nýlega hefur verið
eitrað. Miklar eitranir koma einn-
ig niður á fuglalífi og drepa orma
sem sinna mikilvægu hlutverki í
jarðveginum. Ég vil ráðleggja
garðræktarfólki að nota skordýra-
eitur í hófi því það skapar stund-
um stærri vanda en það leysir."
Notið skordýra-
eitur í hófi
Garðræktarmaður hringdi:
„Nú er kominn sá tími er tré
hafa Iaufgast og þá fer lúsin á
kreik. Eins og allir þekkja, sem
fengist hafa við tijárækt, getur
lúsin verið mikill skaðvaldur.
Margir bregðast við með því að
eitra miskunnarlaust og halda
þannig plágunni niðri. Ég er þeirr-
ar skoðunar að of mikið sé eitrað
og þessar eitranir hafi „farið úr
böndunum“ hér á landi. Sumir eru
að rækta í görðum sínum við-
kvæmar trjátegundir sem komast
ekki meira en svo af hér á landi
og mikið þarf því að eitra gegn
þeim skordýrum sem á þær sækja.
Þetta væri hreinn óþarfi ef menn
héldu sig við þær tijátegundir sem
hér þrífast með góðu móti. Eitrið
Klassísk músík
verður útundan
S.Ó. hringdi:
„Það hefur mátt sjá deilur um
það í Velvakanda að undanfömu
hvort leika eigi þungarokk eða
venjulega dægurlagamúsík í út-
varpi. Ekki tek ég afstöðu til þess
þar sem ég hlusta ekki á dægur-
lagamúsík af neinu tagi og þykir
hún leiðinleg hvaða nafni sem hún
nefnist. Fjölmiðlabyltingin svo-
nefnda heftir ekki haft góð áhrif
á tónlistarsmekk landsmanna þar
sem allar þessar nýju stöðvar
keppast við að spila dægurlög og
popp frá morgni til kvölds, og
reyndar allar nætur. Og fólk virð-
ist aldrei fá nóg af þessu gauli.
Ég vil gera það að tillögu minni
að ein útvarpsstöð að minnsta
kosti taki sér fyrir hendur að út-
varpa eingöngu klassískri tónlist
og tónlist eftir nútímatónskáld
sem skarað hafa framúr. Þetta
væri gott framlag til menningar
þjóðarinnar sem hlýtur að vera
farin að þreytast á dægurlaga-
undanrennunni.“
Litlir möguleikar
í Lottó
Húsmóðir hringdi:
„Ég hef verið með í Lottó 5/32
frá byijun, en er ekki alveg sátt
við þær reglur sem þar hafa verið
settar. Væri ekki skynsamlegra
að skipta fyrsta vinningi til fieiri
til dæmis með því að fækka tölun-
um í röðinni í fjórar tölur? Eins
og þetta er núna er stjamfræði-
legur möguleiki á að hljóta fyrsta
vinning og mun minni en t.d. hjá
happdrættunum. Ef þessu yrði
breytt myndu fleiri spila og þann-
ig mundi meira verða til skipt-
anna.“
íslensk málfræði
Nemi hringdi og spurðist fyrir
um hvort námskeið í íslenskri
málfræði á framhaldsskólastigi
fæm fram einhvers staðar í sum-
ar. Þessari fyrirspum er hér með
komið á framfæri.
Ikipshofn ii
Norðfirði
.
Helga Finnsdóttir hnngdi:
„í Veivakanda sl. laugardagi
birtist mynd sem ólafur ólafsson'
kom með af fóður sínum og fleiri
mönnum sem hann þekkti ckki.
Ég held að þetta sé skipshöfn frál
Norðfirði, fyrir miðju er Vigfús
Sigurðsson frá Hól í Norðfirði og
ég held að til hliðar við ólaf sé
(Si sonur Vigfúsar sem lést ung-
Hverjir eru mennimir?
ólafur ólafsson kom með þessa
mynd til Vetvakanda og langar að
fá upplýsingar um hveijir menxúmir
& myndinni eru, auk föður hans,
ólafs Eyjólfssonar frá Kötiuhób f
Leirum, en hann er lengst til vinstn
á myndinni. ólafur telur að myndin
hafí verið tekin f kringum 1910,
en faðir hans er 16—18 ára á
myndinni. _
Gömul mynd
Til Velvakanda.
Fyrir rúmlega ári birtist í Vel-
vakanda gömul mynd af skipshöfn
frá Norðfirði og spurðist Ólafur
Ólafsson fyrir um hveijir mennim-
ir á myndinni væru, auk föður
hans. Helga Finnsdóttir hringdi
skömmu síðar í Velvakanda og'
vissi hún nöfn þriggja af mönnun-
um sem á myndinni eru. Þar sem
ég tel mig hafa frekari upplýsing-
ar langar mig til að komast í
samband við Olaf ef hann hefði
tök á að hafa samband við mig f
síma 97-7497 eða Velvakanda.
Þórður Kr. Jóhannsson
Neskaupstað.
Skýringar á ferðasöguþulumii
Til Velvakanda.
Þuluna sem hún Snjólaug var
með á föstudaginn kannast ég við
frá bemsku. Ekki þori ég að ábyrgj-
ast að ég fari rétt með hana en
svona yrði hún þá með skýringum:
Fór ég að finna frændur mína
sólardaginn í sultardyrum.
Sól er sunna öðru nafni, fasta
er sultur og dyr eru inngangur, —
sunnudaginn í föstuinngang.
Skundaði ég eftir skipsbotni -
skipsbotn er lq'ölur,
og kom um bakhlut til kunningjanna.
Bakhlutur er að aftan, — hefur
komið að aftni — um kvöldið.
Hitti ég þá óskerta á hestfæti,
heila á hófi,
hafði ég þar góðar hjúastöður.
Hjúastaða er vist og vistir eru
matur.
Var þar með réttur af vatni ströngu
samnefndur fiskmiði Sunnlendinga.
Hér mun átt við miðið Svið og
stranga vatnið er trúlega á, svo að
sögumaður hefur fengið ærsvið.
Fuglaklyflar og fjöldi af skottum.
Klyfjar eru baggar og til er fugl
sem heitir lundi. Skott heitir rófa.
Hér hafa því verið lundabaggar og
rófur.
og einnig andvana afkvæmi sálar.
Hér mun sálin heita önd og vera
átt við andaregg.
Fékk ég þar síðan ferðlítið pláss
og þar þeyttist ég ofarlega.
Sögumaður fékk hægt rúm og
hraut hátt.
Dignuðu menn þá dagsvört litu.
Að digna er að vökna og svört
hryssa er sögð brún. Menn vöknuðu
þegar þeir sáu dagsbrún.
Fór ég þá strax í stórar tunnur.
Stórar tunnur heita föt.
Frændur buðu mér byltu sauðar,
sauðarfall
en ég hafði ei lyst á öðru en húsum.
Kofum.
Hélt ég svo þaðan er hafði hlemmað
visu minni svo vel sem kunni.
Þessi vísa mun vera erindi og
sögumaður hafi lokið erindi svo sem
hann gat best.
Streymdi ég lengi á stórum nagla.
Það sem rennur streymir og stór
nagli er gaddur.
Fann ég svo stóran fataspilli.
Sá fataspillir er melur sem oft
er þó kallaður mölur.
Flýtti sá fyrir ferðum mínum
heim að málfæris hinsta rúmi.
Hinsta rúm er gröfin og tungan
er málfæri og því mætti þetta vera
heim að Tungugröf.
H. Kr.
Hefur ekki verið
hirt um öryggi?
Til Velvakanda.
Á baksíðu Morgunblaðsins í
dag, 5. júní, er haft eftir Áma
Þorgrímssyni, formanni Félags
flugumferðarstjóra, að flugum-
ferðarstjórar fari nú eftir ýtrustu
öryggisreglum.
Ber að skilja þetta svo að flug-
umferðarstjórar hafi hingað til
ekki unnið samkvæmt ítrustu ör-
yggisreglum? Það er ógnvekjandi
fyrir flugfarþega og áhafnir flug-
véla að sjá þetta svart á hvítu.
Hafa þessir menn ekkert skeytt
um öryggisreglur hingað til?
Fríðrik Einarsson
jpAbu
Garcia i
\feiðivörur íyrir þig g
’Lygilegt.en satt t
ZANUSSI K/ELISKÁPUR
• Gerð C 23/2
• 190 lítra kælir.
• 40 lítra Irystihóll.
• Mál: HxBxD
141,5x52,5x59,0 cm.
• Sjálfvirk afhríming í
kæliskáp.
• Frystigeta 5 kg/24 klst.
•Góð kjör.
LÆKJARGOTU 22
HAFNARFIRÐI SÍMI 50022
DACHSTEHM
Fjallaskór
Ósvlknir DACHSTEIN með tvöföldum saumum, nlö-sterkum
gúmmlsóla, vatnsþéttri reimingu. Framleiddir I Austurrlki og
sórstaklega geröir fyrir mikiö álag og erfiðar aósfæður.
FALKINN
SUÐU RLAN DSBRAUT 8, SÍMI 84670
9WM
Fálklnn tr styrktaraðlll
lalanska úlymplullAalna
I Saoul 1988