Morgunblaðið - 11.06.1987, Síða 79
MORGUNBLAÐIÐ, FTMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987
Hasar að
Hlíðarenda
Morgunblaðið/Júllus
• Jón Grétar Jónsson sækir hór að Baldvini Guðmundssyni
markverði Þórs og Ámundi Sigmundsson er við öllu búinn.
Sanngjarn sigur
Skagamanna
„ÉG veit ekki nákvæmlega hvað
gerðist. Við hlupum samsíða og
allt f einu fókk óg eitthvað f andlit-
ið, strákarnir sögðu að það hefði
verið olnboginn á Nóa,“ sagði
Valsmaðurinn Ámundi Sig-
mundsson um atvikið sem menn
munu minnast einna helst úr leik
Vals og Þórs í 1. deildinni f gær-
kvöldi. Nói Björnsson fókk þá að
sjá rauða spjaldið og vissu fæstir
fyrir hvað. Þórsarar því einum
færri í rúmar tuttugu mínúturl
Leikmenn Vals voru óragir við
að skjóta af löngu færi og fyrra
markið kom einmitt með slíku
skoti. Sigurjón Kristjánsson skaut
þá af löngu færi, Baldvin mark-
vörður lagði af stað í hægra hornið,
þangað sem boltinn stefndi, en á
leiðinni fór boltinn í Júlíus Tryggva-
Valur-Þór
2 : 0
Valsvöllur 1. deild, miövikudaginn 10.
júní 1987.
Mðrk VaU: Siguijón Kríatj&naaon (16.),
Njáll Eiðason (86.)
Gult spjald: Júllus Tryggvason (61.),
Halldór Áskelason (77.) Hlynur Birgis-
son (80).
Rautt spjald: Nói Bjömsson (68.)
Áhorfendur: 1069
Dómarí: Baldur Scheving 8.
Lið Vals: Guðmundur Hreiðarsson 2,
Þorgrimur Þráinsson 8, Siguijón Kristj-
ánsson 8, Magni Blöndal Pétursson 2,
Jón Grétar Jónsson 8, Sævar Jónsson
8, Guðni Bergsson 8, Hilmar Sighvats-
son 1, Valur Valsson 2, Ingvar
Guðmundsson 1, Ámundi Sigmundsson
2, (Njáll Eiðsson vm. á 81. min. lék ot
stutt).
Samtals: 25.
Lið Þóra: Baldvin Guðmundsson 8, Nói
Bjömsson 2, Kristján Kristjánsson 1,
Einar Arason 8, Halldór Áskelsson 2,
Július Tryggvason 2, Ámi Stef&nsson
2, (Guðmundur Valur Sigurðsson vm. á
81. min. lék of stutt), Jónas Róbertsson
2, Hlynur Birgisson 1, Siguróli Kristj-
ánsson 2, Sveinn Pálsson 2.
Samtals: 22.
TRYGGVI Gunarsson tryggði KA
sigur með glæsimarki af 25 metra
færi eftir að FH hafði komist yfir
1:0, í 4. umferð 1. deildar, á Akur-
eyri f gærkvöldi.
Leikurinn fór rólega af stað, liö-
in sóttu á víxl án þess að skapa
sér hættuleg færi. FH komst yfir
á 16. mínútu og var það hálfgert
klaufamark. Eftir hornspvrnu barst
boltinn fyrir markið á Olaf Kristj-
ánsson sem spyrnti honum í stöng
KA-marksins og þaðan fór boltinn
í Steingrím Birgisson og í netið.
Eftir markið dofnaði heldur yfir
leiknum, en KA-menn þó sprækari
fram að leikhléi. Þeir skoruðu mark
sem var réttilega dæmt af vegna
rangstöðu.
FH-ingar voru ákveðnari í upp-
hafi seinni hálfleiks og áttu þá
meðal annars tvö góð marktæki-
færi sem ekki nýttust. Það var því
þvert á gang leiksins að heima-
menn jöfnuðu á 55. mínútu. Gauti
Laxdal fékk þá sendingu frá Þor-
valdi Örlygssyni og skoraði gott
mark úr nokkuð þröngu færi.
Eftir markið komu KA-menn
Bikarkeppnin
SEX leikir fóru fram f 2. umferð
mjólkurbikarkeppni KSÍ f gær-
kvöldi. Úrslit urðu þessi:
Selfoss-Skallagrímur 5:0
Leiknir-Afturelding (2:2)3:2 e. frl.
ÍR-Skotfélagið 1:0
Grótta-ReynirS. 1:2
Augnablik-Stjarnan 1 ;2
Leiftur-Magni 1:0
son, breytti um stefnu og í netið.
Svekkjandi fyrir Þór en að sama
skapi ánægjulegt fyrir Val.
Litlu munaði að Þórsarar gerðu
svipað mark í síðari hálfleik þegar
Einar Arason skaut af löngu færi,
boltinn fór í einn varnarmann Vals
og þaðan rétt yfir slánna. Þórsarar
sóttu mikið um miðjan síðari hálf-
leik og fengu meðal annars þrjár
hornspyrnur í röð eftir að Vals-
mönnum hafði tekist að bjarga
marki á síðustu stundu.
Síðan var Nói rekinn útaf og
efldust Þórsarar til muna við það
og sóttu mikið.
Skömmu síðar lentu Halldór
Áskelsson og Guðmundur Hreið-
arsson, markvörður Vals, í sam-
stuði og um tíma var talið að
Guðmundur þyrfti að fara á sjúkra-
hús. Hann var þó ekki á því, hristi
sig og hélt áfram.
Njáll Eiðsson kom inná sem
varamaður undir lok leiksins og
skoraði síðara mark Vals. Sigurjón
skaut föstu skoti að marki sem
Baldvin varði. Boltinn barst út til
Njáls sem var hinn öruggasti er
hann sendi hann í netið.
Leikmenn Vals eru orðnir mjög
vanir og þekkjast greinilega vel.
Knötturinn gengur lengstum vel á
milli manna þó svo meira hefði
mátt sjást af slíku í þessum leik.
Leikmenn Þórs reyndu hins vegar
of mikið af löngum sendingum sem
báru ekki árangur gegn sterkum
varnarmönnum Vals. Guðni er eld-
fljótur og þeir Þorgrímur og Sævar
geysielga sterkir skallamenn sem
láta boltann ógjarnan fara inn fyrir
sig.
Baldur Scheving dæmdi leikinn
illa. Hafði litla yfirferð, gerði mikið
af mistökum og hafði litla stjórn á
leiknum.
-SUS
meira inn í leikinn og náðu undir-
tökunum og áttu góð færi sem
ekki nýttust fyrr en Tryggvi skoraði
sigurmarkið á 71. mínútu.
Það var reglulega vel að þessu
marki staðið hjá Tryggva. Hann
fékk knöttinn á miðju vailarins, lék
á tvo FH-inga og skoraði með
hörkuskoti af 25 metra færi sem
Halldór, markvörður FH, réði ekki
við.
R.E.
KA - FH
2 : 1
Akureyrarvöllur 1. deild, miðvikudaginn
10. júni 1987.
Mörk KA: Gauti Laxdal (65.) og
Tryggvi Gunnarsson (71.)
Mark FH: Ólafur Kristjánason (16.)
Gult spjald: Enginn
Áhorfendur: 760
Dómarí: Þðroddur Hjaltalin 7
Lið KA: Haukur Bragason 2, Friðfínnur
Hermannsson 1, Gauti Laxdal 2, Araar
Freyr Jénsson 2, Erlingur Kristjánsson
2, Þorvaldur Örlygsson 3, Bjami Jóns-
son 2, Hinrik Þórhalsson 1 (Ámi
Hermannsson vm. 78., lék of stutt),
Tryggvi Gunnarsson 8, Steingrímur
Birgisson 3 og Jón Sveinsson 2.
Samtals: 23.
Lið FH: Halldór Halldórsson 2, Grétar
Ævarsson 1, Ólafur Kristjánsson 2,
Guðmundur Hilmarsson 2, Ian Flemm-
ing 2, Þórir Sveinsson 1, Kristján
Gislason 2, Guðjón Guðmundsson 2,
Kristján Hilmarsson 2 (Henning Henn-
ingsson vm. 67., 1), Magnús Pálsson
2, (Viðar Halldórsson vm. 82., lék of
stutt) og Pálmi Jónsson 3.
Samtals: 21.
SIGUR Akurnesinga í gærkvöldi
var sanngjarn, þeir lóku mjög
góða knattspyrnu í fyrri hálfleik
og skoruðu þá öll sfn mörk.
Þetta var að mörgu leyti góður
leikur og sigurinn var mikilvægur.
„Við spiluðum góða knattspyrnu
og það hlýtur að vera fagnaðarefni
bæði fyrir okkur og eins áhorfend-
ur," sagði Guðjón Þórðarson
þjálfari Akraness eftir sigur sinna
manna og bætti við að þeir ættu
erfiða leiki á næstu dögum.
Aðalsteinn Vfglundsson geröi
fyrsta markið, fór í gegnum vörn
Keflvíkinga og skot hans af stuttu
færi var óverjandi. Aðalsteinn
bætti öðru marki við ekki löngu
síðar eftir undirbúning Sveinbjamar.
Síðustu mínútur fyrri hálfleiksins
voru árangursríkar fyrir Skaga-
menn því þá skoruöu þeir tvívegis.
Fyrst var það Heimir Guðmunds-
son sem skoraöi gott mark eftir
vel uppbyggða sókn og tveimur
mínútum síðar var Valgeir Barða-
son á ferðinni með gott mark eftir
frábæran undirbúning Guðbjörns.
Keflvíkingar komust meira inn í
leikinn er líða tók á síðari hálfleik-
inn en samt átti engin von á því
að staðan í leiknum myndi mikið
breytast. Rauninn varð önnur.
Guðbjörn Tryggvason felldi sókn-
armann Keflvíkinga og Oli Þór
skoraði örugglega úr vítaspyrnunni
sem dæmd var og mínút síöar
skoraði Ingvar Guðmundsson gott
mark.
Akurnesingar léku þennan leik
mjög vel og verskulduðu stóran
sigur. Leikmenn eru nokkuð jafnir
að getu og virðast til alls vísir.
Olafur Þórðarson og Aðalsteinn
Víglundsson voru bestu menn liðs-
ins í þessum leik en margir aðrir
léku vel. Vert er að minnast á hinn
unga leikmann Harald Ingólfsson
sem yex með hverjum leik.
Um Keflavíkurliðið er það að
segja að það mætti ofjörlum sínum
f þessum leik. Margir góðir leik-
menn er í liðinu en þetta var ekki
þeirra dagur. Varnarleikurinn var
oft fálmkenndur enda er liðið búið
að fá á sig að meðaltali þrjú mörk
í leik í þessu móti. Það er langt frá
því að vera gott ef lið ætlar sér
stóra hluti.
-JG.
ÍA-ÍBK
4 : 2
Akranesvöllur, l.deild, miðvikudaginn
10 júní 1987.
Mörk ÍA: Aðalsteinn Víglundsson (21.
og 39.), Heimir Guðmundsson (42.),
Valgeir Barðason (44.)
Mörk ÍBK: Oli Þór Magnússon (68.),
Ingvar Guðmundsson (69.)
Gult spjald: Jóhann Júiíusson ÍBK,
Sigurður Björgvinsson ÍBK, Ægir
Karisson ÍBK, Sveinbjöm Hákonarson ÍA.
Rautt spjald: Enginn.
Ahorfendur: 703.
Dómari: Sveinn Sveinsson 7.
Uð ÍA: Birkir Kristinsson 3, Olafur
Þórðarson 4, Heimir Guðmundsson 3,
Sigurður Lárusson 3, Jón Askelsson 3,
Sigurður Jónsson 3 , Sveinbjöm Hákon-
arson 3, Guðbjöm Tryggvason 3,
Valgeir Barðason 2, Aðalsteinn
Víglundsson 4, (Guðmundur Matthías-
son vm. á 89. mín. lék of stutt), Haraldur
Ingólfsson 3.
Samtals: 34.
Lið ÍBK: Þorsteinn Bjamason 2, Jóhann
Júlíussonn 2, Rúnar Georgsson 2, Sig-
urður Björgvinsson 2, Gunnar Oddsson
2, Peter Farrell 2, Ingvar Guðmundsson
2, (Einar Kristjánsson vm. á 88. mín.
lék of stutt), Oli Þór Magnússon 2, Jó-
hann Magnússon 1, Freyr Sverrisson
2, Sigurður Guðnason 1, (Ægir Karlsson
vm.á 46. mín. 1)
Samtals: 20
Tryggvi skoraði
sigurmark KA
79
Klapparstig 40.
Á H0RNIKLAPPARSTIGS
0G GRETTISGÓTU
S:il7S3
pninr
íþrótta-
vörur
smmmmm
JNGOLFS
ÓSKARSSONAR
Udo Lattek
Gervigrasskór á götuna.
Með sterkari skóm sem
hægt er að fá. Stærðir frá
4'/2-1 OV2. Verð kr. 3086.-
Fótboltar
Margargerðir.
Verðfrá 1094.-
íþróttafélög athugið
afsláttinn.
Mikasa
körfuboltar
Verðfrákr. 1252.-
Póstsendum.
Speeder
Bláir nælonskór, léttirog x r
þægilegir. Stærðirfrá
34-6V2. Verð kr. 1188.-
Legghlífar
Margargerðir.
Verð frá kr. 1.040.-