Morgunblaðið - 13.06.1987, Blaðsíða 41
MORGUNBLAJÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987
Stjörnu-
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Námskeið í stjömuspeki.
í síðasta þætti sagði ég frá
Nostradamus og Luca
Gaurica og spádómum þeirra
fyrir Hinrik 2. konung FVakk-
lands.
Nostradamus
Michael Nostradamus fæddist
í Frakklandi 14. desember
árið 1503 og dó 1566. Upp-
runaleg menntun hans var í
stjömuspeki og læknisfræði.
Hann varð fyrst frægur fyrir
það að lækna sjúka í plágum,
en sfðar varð hann frægur
fyrir spádóma og rit eitt mik-
ið, sem nefnt hefur verið
Aldimar. Ritið samanstendur
af rimuðum vísum sem eru
flokkaðar hundrað saman og
er hver flokkur kallaður öld.
Frcegastur allra
Margir þessara spádóma virt-
ust rætast og því varð frægð
Nostradamusar mikil, svo
mjög að sennilega er hann
frægastur stjömuspekinga
síðustu aldar. Er sagt að
margir af spádómum hans
eigi enn eftir að rætast.
Nýja stjarnan
Ég hef áður minnst á Tycho
Brahe (1546—1601). Einna
frægastur varð Brahe á sínum
tíma fyrir það að spá fyrir
komu Nýju stjömunnar 1572,
súpemóvu, sem vakti mikla
athygli vegna þess að hún var
fyrsta stjaman sem birtist
sjónum manna fyrir ofan
tunglsviðið svokallaða sem
átti að vera óbreytanlegt og
guðdómlegt.
1572
Þetta var geysilega merkileg
uppgötvun því hún kollvarpaði
hugmyndum miðaldamanna
um eðli heimsins. Það sem
einnig var merkilegt er að hún
kippti fótunum undan ný-
platónisma, heimspeki
stjömuspekinnar. Reyndar
létu stjömuspekingar það
ekki á sig fá og héldu ótrauð-
ir áfram og settu fram
spádóma sem byggðust á
þeirri stjömu sem hafði eyði-
íagt heimspeki þeirra. 1572
er samt sem áður ár sem get-
ur talist örlagaríkt fyrir
stjömuspeki. Þar er kannski
að finna upphafið að endalok-
um stjömuspeki sem opin-
berlega viðurkennds fags?
Hvort sú lægð sem þar kom
á eftir verður eilíf eða er ein-
ungis tímabundin niðursveifla
mun tfminn einn hins vegar
leiða f ljós.
Spádómar Brahe
Ég mun síðar ræða hnignun
stjömuspeki. Enn um sinn
leikur allt f lyndi og við getum
litið nánar á feril Tycho
Brahe. Hann sagði ,að áhrifa
þessarar nýju stjömu tæki
ekki að gæta fyrr en eftir
1592 og myndu vara fram til
1632. Áhrif hennar myndu
verða truflandi og í norðri
ætti eftir að fæðast prins sem
myndi leggja undir sig Þýska-
land en hverfa síðan á braut
1632. 17. aldar spekingar sáu
þennan spádóm rætast í lffi
Gústafs Ádólfs Svíakonungs
sem fæddist 1594 ogdó 1632.
TíÖarandi
Það er greinilegt að þegar við
fjöllum um stjömuspeki 16.
og 17. aldar að mikið er um
spádóma, eða á 18. og 19.
öld. Á okkar öld, þeirri tuttug-
ustu, verður sfðan breyting
og í dag em þeir stjömuspek-
ingar sem reyna að spá fyrir
um atburði í miklum minni-
hluta. Almenningur minnist
hins vegar sagna frá liðnum
öldum, enda eru margar
þeirra stórfurðulegar, og telur
stjömuspeki f dag byggjast á
sömu nótum. Svo er ekki frek-
ar, en að veðurfræði 19. aldar
sé sú sama og veðurfræði 20.
aldar. Sem betur fer lfður
tíminn.
GARPUR
S.TORA1U1ZJNN VtSKUBRUNHUZ,
DEynR töfra tiEyR 'akall
/,ni,\JA... /vnrr... sVndu
LOtCS/NS iAFSAk/£>, KÆRU U/K//K.
/iETJA ETERNhJ FAE/R ENGA HUÍlO
i KVÖLD.. EF ÉG KE/AST i GEG,NUA1
SToR/WNN.
EN SE/E>kONAN N/ER EKK/
SAAAMNO/ U/OGAÆ.
RVEDDU, GLAMUR. DROTT/NS-
SVK U/D K/ZÓNUNA TRyOGTA
PÉR LANGT FRl... i D>ýFL /SSUM
RONUNGSHA L LHfZ /NNAR!
!!l!!!!H!!!.,!Tn??!:!:::
:!:::::::!::!!!n:T!!:l!!::::!!::!i:?::::!!:::::::::::T:"”"!::::!:::!::::::::!:!;:::::!:::::!!!:::;:!::!::::::!!::::::
GRETTIR
DÝRAGLENS
)
6IFTOM OKkXJK, S'iLMiA-1
VIP GETUM BÓIP 0 NPIR
rúnoM trJa&ol i f/n-
HVERRJ /VlýfilNMI.j
Vl€> 6BTUM <SÆ:tT \&|\
ÖKKUFÍ, W UTLUM ( \/t/
ilAODyRÚM OQ 6TOR- J 1 7
UM SKOF.Djjp.0M J___J
HaÚó? Auðvitað, spurðu bara. Sama er mér. Hvernig ætti Ég elska skoðanakannan-
ég að vita það? ir!
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
2-
Bandaríska sveitin, sem sigr-
aði á síðasta heimsmeistaramóti
í Brasilíu fyrir tveimur ámm,
ávann sér nýlega rétt til að veija
titilinn á Jamaíka í haust. Sveit-
ina skipa Martel/Stansby;
Pender/Ross; og Wolff/Hamm-
an. Eftirfarandi spil getur þó
vart talist dæmigert fyrir þessa
sterkustu sveit heims, en það
kom upp í leik við sveit undir
stjóm Edgars Kaplan, ritstjóra
The Bridge World.
Suður gefur; AV á hættu.
Norður
♦ Á865
V D972
♦ -
♦ ÁDG108
Vestur
♦ 2
♦ Á85
♦ ÁKDG853
♦ 43
Austur
♦ 10742
VG43
♦ 1042
♦ 975
Suður
♦ KDG9
¥K106
♦ 976
♦ K62
Á öðm borðinu sátu Martel
og Stansby í NS gegn Berkow-
itz og Pavlicek, liðsmönnum
Kaplans. Sagnir gengu:
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 grand
Dobl Redobl Pass Pass
Pass
Berkowitz sektardoblaði
veika grandopnun suðurs, og
Stansby í norður redoblaði f
þeirri von að makker ætti fyrir-
stöðu í tígli. Vægast sagt mjög
hæpin ákvörðun, þvi mjög líklegt
var að dobl vesturs væri byggt
á þéttum tígli.
Allir sátu sem fastast í redobl-
inu, og Berkowitz tók fyrstu#'.
átta slagina: 600 í AV.
Á hinu borðinu spiluðu Kaplan
og Kay fjóra spaða í NS og
unnu fimm, sem gera 450. Fjór-
ir spaðar er besti samningurinn,
en það er í lagi að villast í sex
lauf, því þau vinnast vegna
þægilegrar legu í hjarta og laufi.
Umsjón Margeir
Pétursson
Þessi staða kom upp
í sfðustu umferð heimsmeistara-
móts unglinga 16 ára og yngri
í Innsbmck um daginn. Hannes
Hlífar Stefánsson hafði hvítt—.
og átti leik gegn Frakkanum
Degraeve. Svartur lék síðast
31. — De7—f7? og Hannes lét
ekki happ úr hendi sleppa:
Dxh7, 34. Dxf6+ — Kg8, 35.
Kxg2 - Hf8, 36. Dg5+ - Kf7,
37. Hxd6+ - De4+, 38. Kfl-
og svartur gafst upp. Þessi sigur
tryggði Hannesi heimsmeistara-
titilinn.