Morgunblaðið - 13.06.1987, Page 58

Morgunblaðið - 13.06.1987, Page 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987 hann er innréttaður? !*!»<»»< ™ POLLUX Þetta fer allt vel. Hann kálar henni að lokum! „Eru tígrisdýr í Kongó?“ - frábær sýning Til Velvakanda. Ég fór á sýninguna „Eru tígris- dýr í Kongó?“, sem Alþýðuleikhúsið sýnir í veitingahúsinu Kvosinni, fyr- ir skömmu. Þetta er leikrit sem fólk ætti ekki að missa af því sýn- ingin er frábær. Það að leikritið er sett upp á veitingahúsi setur punkt- inn yfir i-ið, að minnsta kosti hef ég ekki séð slíkt áður. Fyrir bragð- ið verður það meiri upplifun að sjá þetta. Á Alþýðuleikhúsið heiður skilinn fyrir að bijóta upp á nýjung sem þessari. Leikaramir tveir, Har- ald og Viðar, stóðu sig með prýði og er mér til efs að aðrir hefðu náð þessum hlutverkum betur. Ég vil hvetja alla til að sjá þessa sýningu Alþýðuleikhúsins. Jónas Viðar Eggertsson og Harald G. Haraldsson leika rithöfundana tvo í leikritinu „Eru tígrisdýr í Kongó?“ Bágborin umferðarmenning Til Velvakanda: Allir hafa sjálfsagt tekið eftir því hve umferð hefur aukist mikið á götum höfuðborgarinnar að und- anfömu, enda hefur bifreiðaeign landsmanna aukist mjög á þessu ári. Umferðarmenning okkar ís- lendinga hefur löngum þótt bág- borin og ekki batnar hún við þessa aukningu, það hef ég áþreifanlega orðið vör við. Vegna þess hve marg- ir bílar em á ferðinni verða stundum nokkrar tafir, t.d. við gatnamót, og grípur þá suma ökumenn mikill fídonsandi. Þeir hamast á flautunni og troðast áfram án þess að taka tillit til annarra. Þessir ökumenn hafa afar vond áhrif á mann í umferðinni og valda áreiðanlega verulegri slysahættu margir hveijir. Væri ekki hægt að sekta menn fyr- ir tillitslausa framkomu í umferð- inni, rétt eins og menn eru sektaðir fyrir minniháttar brot á umferðar- lögum? Ökukona Þessir hringdu . . Fíkniefnamyndin „Ekki ég, kannski þú“ verður sýnd í sjón- varpi Gísli Arni Eggertson, æsku- lýðsfulltrúi, hringdi. „Vegna fyrirspuma að undanf- ömu um fíkniefnamyndina „Ekki ég, kannski þú“ vil ég upplýsa að þessi mynd verður sýnd í sjón- varpi á næstunni. Forsýning verður fyrir leikara og starfsmenn laugardaginn 13. júní kl. 16 á Hótel Loftleiðum. Myndin verður sýnd í skólum í vetur. Tákn sf. framleiddi myndina fyrir Reykjavíkurborg og var hún gerð undir vinnuheitinu „Þitt er valið". í endanlegri gerð heitir myndin „Ekki ég, kannski þú“. Mig lang- ar til að koma á framfæri þakklæti til þeirra flölmörgu sem að mynd- inni unnu, sérstaklega til þeirra mörgu unglinga sem lögðu á sig mikla vinnu vegna myndarinnar." Urtapaðist Tölvuúr með svartri ól tapaðist er eigandinn setti það óvart í aðra íþróttatösku en sína í búningsklef- anum í Laugardalslauginni. Sá sem hefur úrið undir höndum er beðinn að hafa samband í síma 21624 eða skila úrinu í afgreiðsl- una í Laugardalslaug. Hreinsum Reykja- víkurfjörur G.G. hringdi: „Ég vil taka undir með þeim sem hvatt hafa til þess að fjörur borgarinnar verði hreinsaðar og gerðar ráðstafanir til að betur verði um þær gengið í framtíð- inni. Þessar fjörur gætu verið kjörin útivistarsvæði fyrir al- menning ef ekki væri draslið. Seltimingar hafa sýnt það og sannað að með almennu átaki er hægt að gera mikið í þessum málum og ættu Reykvíkingar ekki að verða eftirbátar þeirra í þessu efni.“ HÖGNI HREKKVISI Víkverji skrifar „ HOIZFOU 'a M&IMDýRAEyPlMN^ , KANNSKI LÆRIRÐU EITTHVA£>’Ap\/l./'’ eir hafa leikið við okkur höfuð- borgarbúa veðurguðimir að undanfömu. Það er næstum því að þeir sem heima sitja hafí samúð með löndum sínum sem eru að leggja upp í ferðalög til Evrópu- landa og til sólarlandanna, því að hvergi er betra að vera en heima þegar landið skartar sínu fegursta árla sumars þegar dagurinn er hvað lengstur. En þegar íslensk veðrátta er ann- ars vegar er til nóg af svartsýnis- mönnum sem mótaðir eru af biturri reynslu og þeir fullyrða að góðvið- rið hér syðra undanfarinn mánuð eða svo sé aðeins skammgóður vermir. Senn muni þykkna upp og ekki muni síðan sjást til sólar það sem eftir er sumars. Reyndar fóm svartsýnismennimir að halda þessu fram strax eftir fyrstu vikuna sem kom með látlausum sólaril og enn hafa hrakspámar ekki ræst. Víkveiji ætlar því að leyfa sér þá bjartsýni að vona að við séum upp- lifa eitt fegursta sumar sem hér hefur komið um árabil og láta sól- arlöndin lönd og leið að þessu sinni. Víkveiji þessa stundina hefur löngum haldið meira upp á rit- höfundinn Paul Theroux heldur en flesta aðra höfunda sem skrifa á enska tungu um þessar mundir. Fáir standa honum jafnfætis í ritun ferðabóka svo sem The Great Rail- way Bazzaar er e.t.v. besta dæmið um og sögur og sagnir frá fram- andi löndum láta honum einkar vel eins og smásagnasafnið The Cons- uls File sannaði eftirminnilega. Af kvikmyndahöfunum hefur Víkveiji líka haft meira dálæti á ástralska leikstjóranum Peter Weir en flestum öðrum en hann á að baki ekki ómerkari myndir heldur en Vitnið, Skógarferðina að Heng- ingarkletti, Ar hættulífsins og Flóðölduna, sem allar hafa verið sýndar hér og vakið verðskuldaða athygli. Bæði Theroux og Weir eru meist- arar í að vefa söguþráð sem er ekki allur þár sem hann er sður og magna spennu með þungri undir- öldu og dulúð. Það hlaut því að koma að því að leiðir þeirra lægju saman og það gerist reyndar með eftirminnilegum hætti í Moskító- ströndinni, nýjustu mynd Peter Weir sem hann gerir eftir sögu Paul Theroux og sýnd er í Bíóborg- inni um þessar mundir. Þar segir í sem stystu máli frá misskildum bandarískum hugvitsmanni sem snýr baki við vestrænni siðmenn- ingu eða ómenningu eins og hann viil halda fram og flyst með fjöl- skyldu sína inn í frumskóga Mið—Ameríku. Þar ætlar hann að byggja paradfs á jörðu og frelsa innfædda undan áþján þekkingar- leysis og vanþróunar. En hugsjónin snýst upp í andstæðu sína og fyrr en varir er hugvitsmaðurinn kominn í hlutverk kúgarans gagnvart fjöl- skyldunni. Myndin er þó mun margræðari en hér er lýst og þver- stæðumar í fari nútímamannsins og afstöðunni til þróunarlandanna afhjúpaðar af fullkomnu miskunar- leysi. Þetta er mynd sem allir unnend- endur góðra kvikmynda ættu að sæta færis að sjá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.