Morgunblaðið - 13.06.1987, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 13.06.1987, Blaðsíða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987 -h IÞROTTIR UNGLINGA UMSJÓN/Andrés Pétursson > íslandsmót yngri flokka í knattspyrnu hafið Nú er íslandsmótið í knatt- spyrnu yngri flokka komlA á fulla ferð f flestum aldursflokkum og riðlum. Þó nokkuð hefur verið rœtt um það mikla pláss sem knattspyrna fœr á íþróttasfðum dagblaðanna. Hefur jafnvel verið sagt að blaðamenn séu að ganga af vissum fþróttagreinum dauð- um vegna þess hve Iftið þeir fjalla um þœr. En menn œttu að velta þeirri spurningu fyrir sár hvort knattspyrnan er svona vinsæl af þvf að svona nmikið hefur verið fjallað um hana. Sitt sýnist hverjum í þessu máii en undirritaður getur haldið því fram fullum fetum að aldrei hefur verið mulið undir unglingaknatt- spyrnu í tjölmiðlum. Hvort sem mönnum líkar það betur eða verr, þá er knattspyrnan langvinsælasta íþróttagreinin hér á landi bæði meðal unglinga og fullorðinna. Það er því óhjákvæmilegt að mikið sé um hana fjallað í fjölmiðlum. Menn þurfa ekki annað en iíta í Mótabók KSÍ og sjá hinn gífurlega fjölda kappleikja sem fer fram í öllum flokkum um land allt. Það veit enginn nema þeir sem starfa að þessum málum hve gífur- legt starf er bak við eitt íslands- mót. Það eru ótaldar vinnustund- irnar sem sjálfboðaliðar hafa lagt á sig til að einn leikur fari fram. Við viljum því hvetja foreldra og aðstandendur ungra drengja og stúlkna að standa á bak við börnin sín og félögin og læra að meta það mikla uppeldis og þroskastarf sem íþróttafélögin inna af hendi. Unglingasíðan leit inn á tvo leiki á höfuðborgarsvæðinu í þessari viku. Sá fyrri var í 4. fl. milli stjörn- unnar og ÍBK á Stjörnuvellinum og sigraði Stjarnan verðskuldað, 2:0. Hinn leikurinn var í 5. fl. milli KR og Breiðabliks og sigruðu KR- ing- ar, 4:2, í hörkuleik. • Ur leik KR og UBK en KR sigraði 4:2. Morgunblaðið/AP Stjarnan sigraði IBK verðskuldað Morgunblaöiö/AP Darri Rafnsson og Sigurður Sigurðsson úr Stjörnunni. Flest lið missa leikmenn í sveit Á þriðjudagskvöldið síðastliðið fór fram leikur í 4. fl. milii Stjörn- unnar og ÍBK. Lelkið var á hinum nýja grasveili þeirra Stjörnu- manna og er ekki hægt annað en að hrósa þeim fyrir glæsilegan völl þótt aðstaða fyrir áhorfendur só ekki enn komin f sem best horf. Því miður voru nú ekki margir áhorfendur á leik þessum og má e.t.v. kenna því um að leikurinn var ekki mikið auglýstur enda var spilað kl. 18.00. En leikurinn fór fram og var ágætlega spilaður. Sérstaklega sást oft gott spil hjá Stjörnumönnum og skall oft hurð nærri hælum upp við mark Keflavíkurliðsins. En markvörður þeirra ÍBK-manna, Sigurður Valur Árnason, varði oft vel skot þeirra Stjörnumanna. En Stjarnan með Sigurð Sigurðsson á miðjunni og Jón Gunnar Sævarsson frammi gerði harða hríð að marki ÍBK. Þeir uppskáru erfiði sitt undir lok fyrri hálfleiks og eftir gullfallega stungusendingu inn fyrir vörn ÍBK skoraði Jón Gunnar gott mark án þess að Sigurði tækist að verja. Keflvíkingar áttu nokkrar skyndi- sóknir en þær brotnuðu á sterkri vörn Stjörnunnar. FYRIR leik Stjörnunnar og ÍBK tókum við þá tali þá fólagana Darra Rafnsson og Sigurð Sig- urðsson. Báðir hafa æft knattspyrnu síðan þeir voru átta ára gamlir. Darri átti þá heima í Kópavoginum og æfði með Breiðabliki en eftir að hafa flutt í Garðabæinn hefur hann spilað með Stjörnunni. Þess má geta að þeir tveir hafa verið valdir til æfinga með drengjalands- liði íslands í æfingabúðum þess á Laugarvatni í sumar. Við gefum nú Darra orðið: „Rið- illinn sem við erum í er mjög sterkur en við vonumst til að kom- ast áfram í úrslitakeppnina. Það eru þrjú efstu liðin í A-riðli sem komast beint áfram í úrslitakeppni en fjórða liðið spilar við það lið sem sigrar í undankeppni hinna riðl- anna. Það byrjaði frekar ilia hjá okkur og töpuðum við 3:0 fyrir Aftureldingu en það þýðir ekkert að leggja árar í bát heldur halda áfram að berjast." Úrslit í yngri flokkum í knattspyrnu HÉR ERU öll þau úrslit sem skrifstofu mótanefndar KSÍ höfðu borist þann 11. júnf. Þvf miður er enn misbrestur á þvf að félög skili inn leikskýrslum á róttum tíma, en þau hafa tvo daga til þess eftir að leik lýkur. Við birtum hér leikjaröð og einn- ig þá leiki sem átt hafa að fara fram en engar leikskýrslur hafa borist um til KSÍ. Við skorum þvf á öll félög að sjá til þess að skýrslum sé skilað á réttum tfma til að spara öllum tfma, fé og fyrirhöfn. Þar sem er eyða hafa félögin ekki sent inn skýrslur. 2. flokkur karla A: Þróttur R. — Þór A. ÍBV-FH ÍBK-Fram VlkingurR. —lA Stjarnan — KR 2. flokkur karla B: Valur — Fylkir ÍK —Grindavík 2. flokkur karla C: Umf. Eyrarbakka — Njarðvik 3:2 8:1 2:3 3:2 7:1 1:10 3:3 Grótta — Leiknir R. Njarðvík — Grótta Víðir — Reynir S. 3. flokkur karla A: Valur —Stjarnan Þróttur R. — Fram Týr-lR ÍK —VíkingurR lA-KR Týr-ÍK Stjarnan — lA Valur — Þróttur R. Fram — (R Víkingur R. — KR 3. flokkur karla B: Leiknir R. — Grindavík Selfoss — (BK Haukar —UBK Fylkir — Þór V. Njarðvik — Fylkir Selfoss — Grindavík IBK —Haukar 3. flokkur karla C: Skallagrímur — Reynir S. Víkingur Ól. — Umf. Eyrarbakka Afturelding — Ármann Grótta — Hverageröi Reynir S. — Grundarfjörður Hveragerði — Víkingur Ól. Umf. Eyrarbakka — Grundarfjörður FH — VíkingurÓI. 0:0 1:1 0:2 5:0 1:5 0:0 3:4 3. flokkur karla E: Þór A. — KS Völsungur — Tindastóll 4. flokkur karla A Týr-ÍA Víkingur R. — Fram KR - Fylkir Afturelding — Stjarnan ÍBK-UBK Stjarnan — IBK 7:0 2:1 2:4 0:3 6:1 1:2 2:0 2:2 2:1 7:0 3:0 1:8 11:0 8:0 4. flokkur karla B: ÍR — Leiknir R. FH — Selfoss IK-Valur Haukar — Þór V. ÍR-ÞórV. 4. flokkur karla E: KA — Leiftur Hvöt - UMFS ÞórA.-KS Völsungur — Tindastóll 8:0 5:4 0:3 KR-UBK 5. flokkur karla B: Fylkir — Reynir S. Selfoss —(BK Leiknir R. — Stjarnan lK — Þróttur R. Skallagrímur — Grindavík Reynir S. — Grindavík Selfoss — Fylkir (BK —LeiknirR. Stjarnan — |K Þróttur R. — Skallagrímur 4:2 2:2 3:0 9:0 0:2 1:0 3:0 6:2 6:0 5:1 4:2 2:2 0:3 3:2 3:5 2:1 7:1 7:0 5. flokkur karla A ÍA — VíkingurR. FH-KR Þór V. — Týr UBK-ÍR Fram — Valur Víkingur R. — Valur ÍA - FH |R —Fram 1:0 1:6 5. flokkur karla C: Njarðvik — Ármann Afturelding — Vfðir Grótta — Hveragerði Grundarfjöröur — Haukar Þór Þ. — Afturelding Haukar — Grótta Hveragerði — Njarðvik 5. flokkur karla E Völsungur — Tindastóll ÞórA.-KS 0:5 2:1 5:4 0:11 1:2 1:3 5:2 12:1 1:2 3:1 1:9 2:4 2. flokkur kvenna A KA — Stjarnan Völsungur — Stjarnan 2. flokkur kvenna B IBK —Fylkir UBK-FH (A-ÞórV. 3:0 2:0 1:1 9:1 3:1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.