Morgunblaðið - 16.06.1987, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987
Morgunblaðið/Sverrir
Matthías Bjaraason samgönguráðherra tekur fyrstu skóflustunguna að nýju húsnæði Vita- og hafnamálaskrif-
stofunnar við Kársnesbraut i Kópavogi. Hjá honum stendur Hermann Guðjónsson vita- og hafnarmálastjóri.
VEÐURHORFUR í DAG, 16.06.87:
YFIRLIT á hádegi í gœr: Við suðausturströndina er grunn lægð
sem þokast suðsuðaustur en lægðardrag á Grænlandshafi hreyfist
austur.
SPÁ: Hæg breytileg átt. Skýjað að mestu og sums staðar dálítil
súld á annesjum vestanlands. Hiti á bilinu 8 til 15 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
MIÐVIKUDAGUR: Hægviðri og víða lóttskýjað, einkum inn til lands-
ins. Hiti á bilinu 10 til 18 stig.
FIMMTUDAGUR: Hæg suðlæg átt og hiti áfram á bilinu 10 tíl 18
stig. Skýjað og sums staðar súld við suðurströndina en bjart veður
í öðrum landshlutum.
TÁKN:
Heiðskírt
y, Norðan, 4 vindstig:
^ Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
El
Þoka
Þokumóða
Súld
Mistur
Skafrenningur
Þrumuveður
V
*
V
OO
4
K
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hltl veður
Akureyri 11 alskýjað
Reykjavik 10 þokumóða
Bergen 13 úrkomafgr.
Helslnkl 13 rtgning
Jan Mayen 3 þoka
Kaupmannah. 13 skýjað
Narsaarssuaq 7 skýjað
Nuuk vantar
Osló 12 rigning
Stokkhólmur 10 þokumóða
Þórshöfn vantar
Algarve 20 skýjað
Amsterdam 16 skýjað
Aþena 31 helðskfrt
Barcelona 22 hálfskýjað
Berlln 15 skýjað
Chicago 24 heiðsklrt
Feneyjar 16 þokumóða
Frankfurt 14 þokumóða
Hamborg 12 rigning
LasPalmas 23 léttskýjað
london 16 lóttskýjað
Los Angeles 14 léttskýjað
Lúxemborg 11 rlgning
Madríd 18 eký|að
Malaga Mallorca 25 24 helðskfrt léttskýjað
Miami 28 léttskýjað
Montrea! 21 léttskýjað
NewYork 23 mlstur
París 13 skýjað
Róm 22 rigning
Vln 26 skýjað
Washington 24 þokumóða
Winnipeg 16 úrkomafgr.
Vita- og hafnamálaskrifstofan:
Fyrsta skóflu
stunga að nýju
húsi í Kópavogi
MATTHÍAS Bjarnason sam-
göngnráðherra tók í gær fyrstu
skóflustunguna að nýju húsi
Vita- og hafnarmálaskrifstof-
unnar við Kársnesbraut 58-60
í Kópavogi. Fyrsti áfangi húss-
ins verðyr um 800 fermetrar
og er kostnaðaráætlun við þann
hluta um 17,5 milljónir króna.
Aætlað er að í fyrsta áfanga
hússins verði rannsóknadeild
Hafnamálastofnunar ríkisins
sköpuð aðstaða til að vinna að
tilraunum með hafnir og einstök
hafnarmannvirki í líkani. Þá eru
öldur, straumar og botnlag á hafn-
arstæðinu mæld og síðan líkt eftir
þessum náttúrulegu aðstæðum í
líkani til að fínna bestu lausn.
Þegar ekki fara fram tilraunir
með líkön, verður unnt að taka
þar inn ljósdufl og tæki til við-
halds.
Annar áfangi byggingarinnar
er ætlaður sem verkstæði og þjón-
ustumiðstöð fyrir alla vita og
hafnir landsins, og rannsókna-
deildina. Samkvæmt fyrirliggj-
andi teikningum verður
verkastæðishúsið um 400 fer-
metrar á tveimur hæðum.
Arkítekt hússins er Rúnar
Gunnarsson.
INNLENT
Geirþrúður H.
Bernhöft látin
Geirþrúður Hildur Bernhöft,
fyrrverandi ellimálafulltrúi
Reykjavíkurborgar og vara-
þingmaður, andaðist í gjör-
gæsludeild Landspítalans 15.
júni s.l. 65 ára að aldri.
Geirþrúður Hildur Bemhöft
fæddist í Reykjavík 19. júlí 1921.
Foreldrar hennar voru Jón Sívert-
sen skólastjóri og Hildur Helga-
dóttir Zoega. Geirþrúður Hildur
lauk guðfræðiprófi frá Háskóla
íslands 1945 og var formaður
Kvenstúdentafélags íslands á ár-
unum 1946-49. Geirþrúður Hildur
hóf störf sem ellimálafulltrúi
Reykjavíkurborgar árið 1965.
Hún var varaþingmaður Reyk-
víkinga tvö kjörtímabil, árin 1971
til 1978, og sat alloft á Alþingi.
Eftirlifandi eiginmaður hennar
er Sverrir Bemhöft, stórkaup-
maður í Reykjavík.
Geirþrúður H. Bernhöft.
Fargjöld Flugleiða:
Hækkunin aðeins
á ferðir sem hefj-
ast hér á
HÆKKUN á fargjöldum í
miLlilandaflugi, sem Flugleið-
ir hafa ákveðið frá og með
1. júlí næstkomandi, gildir
aðeins fyrir ferðir sem hefjast
á ísiandi, að því er Gylfi Sig-
urlinnason, forstöðumaður
fargjalda- og áætlunardeildar
félagsins, sagði í samtali við
Morgunblaðið.
Gylfi sagði að þrátt fyrir þessa
hækkun væru fargjöld tiltölu-
lega lægri nú en þau hefðu
nokkru sinni verið. Flugfargjöld
hefðu á undanfomum árum ekki
fylgt almennum verðhækkunum
í þjóðfélaginu. Þá mætti benda
á að þessi 7,5% hækkun kæmi
ekki á svokölluð normal fargjöld
landi
heldur aðeins á hin ýmsu sérfar-
gjöld í Evrópufluginu, sem verið
hafa í lægsta verðflokki. Þessi
prósentuhækkun kæmi því á til-
tölulega lágar upphæðir og
meðalhækkunin væri á bilinu
800 til 1.200 krónur.
Eins og fram kom í frétt
Morgunblaðsins á laugardag var
fargjaldahækkunin sögð tilkom-
in til að mæta kostnaðarhækk-
unum sem orðið hafa hér
innanlands að undanfömu. Að-
spurður sagði Gylfí að þar væri
einkum um að ræða launahækk-
anir, hækkun á hráefni í mat
um borð í vélunum svo og hækk-
un á lendingar- og afgreiðslu-
gjöldum.