Morgunblaðið - 16.06.1987, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987
53
Bill Cosby
heiðurs-
doktor
Bandaríski gamanleikarinn,
Bill Cosby, sem þekktastur
er fyrir túlkun sína á fyrirmynd-
arföðurnum Cliff Huxtable, var
útnefndur heiðursdoktor frá
Wesleyan háskólanum í
Connecticut í Bandaríkjunum,
nú í lok maí. Tilefni útnefningar-
innar var útskrift Eriku Cosby,
dóttur leikarans.
Bill Cosby hefur aflað sér
geysilegra vinsælda í Banda-
ríkjunum og m.a. verið kosinn
vinsælasti bandaríski karlmað-
urinn í skoðanakönnun sem
þarlend kvennablöð hafa gert;
næst á undan Reagan forseta.
Cosby hefur unnið mikið að vel-
ferðarmálum og góðgerðarstarf-
semi og í heimafylki sínu, New
Jersey hefur hann staðið fyrir
umfangsmiklum söfnunum til
styrktar heimilislausu fólki.
„ Fyrirmyndarfaðir inn “, Bill
Cosby heldur ræðu við út-
skrift dóttur sinnar, Eriku,
sem er til hægri á myndinni,
en hann var sjálfur útnefndur
heiðursdoktor frá skólanum.
Reuter
Reuter
Risapöndur
í sumarfríi
Tveir kínverskir panda-birnir
verða í sumar til sýnis í dýra-
garðinum í Antwepen í Belgíu, en
þeir eru fengnir að láni frá Kína
og verður skilað aftur í haust. Bim-
imir tveir, sem eru ellefu ára
gamlir, þekkjast ekki og em því
ekki sýndir saman, heldur sinn í
hvom lagi.
Risapandan Wan-Wan, frá Kína,
nartar í bambuslauf í dýragarð-
inum í Antwerpen, þar sem hún
verður höfð til sýnis í sumar.
Deilt um
drottningar-
skartið
Deilur hafa risið innan sænsku
konungsfjölskyldunnar um
skartgripi sem frændi Gústafs
konungs telur sig eiga rétt á sem
erfðagripum. Skartgripimir til-
heyra nú sænsku konungshjónun-
um og Sylvía hefur oft borið þá
við opinber tækifæri.
Frændi Gústafs konungs, Sig-
vard Bernadotte, greifi, sem er
ný orðinn áttræður, krefst þess
að skartgripunum, sem hann seg-
ir móður sína hafa arfleitt sig að,
verði þegar í stað skilað aftur.
Sigvard veðsetti skartið 1936 til
að verða sér úti um peninga, en
tókst síðar, með aðstoð föður síns,
Gústafs VI., að bjarga sér úr
skuldasúpunni. Skartgripirnir
lentu þá í höndum konungsins,
sem trygging fyrir láninu. Að
Gústaf VI. látnum var Sigvard
Bemadotte boðið að leysa skartið
út, en það er ekki fyrr en nú að
hann gerir kröfu til að fá það
afhent.
Sænsku konungshjónin, Karl Gústaf og Sylvía. Áttræður frændi
þeirra vill nú endurheimta erfðagripi móður sinnar sem Sylvía hef-
ur margsinnis skartað opinberlega.
HEIMAEYJARKONUR
Munið dagsferðina laugardaginn
20. júní.
Mætum allar hressar og kátar.
Nánari upplýsingar hjá:
Löllu í síma 671331 og
Hönnu í síma 32463.
Stjórnin.
Nú geta allir
flaggað!!!
Stuttar fánastangir með
einföldum festingum utan á hús.
Tilvalið fyrir
fyrirtæki og einstaklinga.
Heildsala og smásala.
VATNSVIRKINN
Ármúli 21, 128 Reykjavík - Sími í verslun: 686455.
Skrifstofa: 685966 - Lynghálsi 3, símar673415, 673416.
Hitamælinga-
miðstöðvar
Fáanlegar fyrir sex, átta,
tíu, tólf, sextán, átján
eða tuttugu og sex
mælistaði.
Ein og sama miðstöðin
getur tekið við og sýnt
bæði frost og hita, t.d.
Celcius+200+850 eða
0+1200 o.fl. Hitaþreifarar
af mismunandi lengdum
og með mismunandi skrúfgangi fáanlegar.
Fyrir algengustu rið- og jafnstraumsspennur.
Ljósastafir 20 mm háir.
Það er hægt að fylgjast með afgashita, kælivatns-
hita, smurolíuhita, lofthita, kulda í kælum, frystum,
lestum, sjó og fleira.
VESTURGÖTU 16 SÍMAR 14680 21480
Þú svalar lestrarþörf dagsins
áBÍóum Moggans!