Morgunblaðið - 16.06.1987, Blaðsíða 31
Suður-Kórea
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987
Atök námsmanna
og lögreglusveita
Seoul, Reuter.
HARÐIR götubardagar blossuðu
upp að nýju S gær í Seoul, höfuð-
borg Suður-Kóreu, og fleiri
borgum landsins en þá lauk fimm
daga vopnahléi sem tekist hafði
að koma á fyrir milligöngu ka-
tólsku kirkjunnar. Nokkur
þúsund námsmenn réðust að
sveitum lögreglu og grýttu þær.
Lögreglumenn vörðust með því
að dreifa mannfjöldanum með
táragasi.
Tugir þósunda námsmanna frá
45 háskólum tóku þátt S mótmælun-
um en ekki er vitað hvort eða
hversu margir slösuðust. Að sögn
sjónarvotta ruddust námsmennimir
út af skólalóðunum og grýttu lög-
reglumenn. Um það bil 3.000
manns börðust við lögreglu í bog-
inni Chonan og um 2.000 í Chinju
í suðurhluta landsins.
Námsmennimir vildu með þessu
mótmæla meðferð lögreglumanna á
einum helsta leiðtoga námsmanna,
Lee Han-yol. í sfðustu viku varð
hann fyrir táragasshylki og hefur
legið meðvitundarlaus í sjúkrahúsi
síðan. Læknar telja að hann muni
tæpast halda lífi. Námsmenn ke§-
ast frjálsra kosninga í landinu og
afsagnar ríkisstjómar Chuns Doo
Hwan forseta.
Vestur-þýskirjafnaðarmenn:
V ogel tekinn
við af Brandt
Bonn, Reuter.
WILLY Brandt lét á sunndag af formennsku i vestur-þýska
Jafnaðarmannaflokknum (SPD) og var hann kvaddur með til-
finningasemi og tárum. Hans Jochen Vogel var kjörinn eftirmað-
ur Brandts og var augljóst að jafnaðarmenn vildu sýna samstöðu
og einingu því að Vogel hlaut
flokksmanna.
Vogel er formaður þingflokks
SPD opg var hann sá eini sem
sóttist eftir formennskunni. Boðað
var til sérstaks flokksfundar í
Bonn á sunnudag eftir að Willy
Brandt tilkynnti í mars að hann
ætlaði að segja af sér formann-
sembættinu, sem hann hefur
gegnt í 23 ár.
A fundinum var einnig valinn
varaformaður flokksins og kom
það embætti í hlut Oskars La-
fontaine, forsætisráðherra Saar-
land. Lafontaine tilheyrir vinstra
armi flokksins. Hann og aðrir
vinstri menn hafa barist fyrir
nokkurs konar málamiðlun við
flokk græningja til að unnt verði
að hrifsa völdin frá kristilegu
flokkunum og frjálslyndum dem-
ókrötum. Á fundinum á sunnudag
var aftur á móti gefin út yfirlýs-
ing þar sem því var mótmælt
hversu gagntekinn flokkurinn
hafði verið af umhverfisvemdar-
flokknum.
fylgi yfirgnæfandi meirihluta
Miðjumaðurinn Johannes Rau,
sem var kanslaraefni jafnaðar-
manna í síðustu kosningum,
verður áfram varaformaður ásamt
Lafontaine.
Brandt lét af embætti ári áður
en hann ætlaði sér og vék hann
bitrum orðum að aðdraganda af-
sagnar sinnar í lokaræðu sinni í
sæti formanns SPD. „Ég hefði
kosið að fara frá með öðrum
hætti," sagði Brandt, fyrrum
kanslari. Deilur brutust út innan
flokksins þegar Brandt tilnefndi
grískan kvenmann, sem ekki var
flokksbundinn, blaðafulltrúa og
talsmann flokksins. Ekki leið á
löngu þar til farið var að rífast
um Brandt, hæfni hans til að
gegna formennsku og framtíð
flokksins.
Framkvæmdastjóm Jafnaðar-
mannaflokksins ákvað á laugar-
dagskvöld að gera Brandt að
sérstökum heiðursformanni til
æviloka.
Reuter
Willy Brandt heldur síðasta ávarp sitt sem formaður vestur-
þýska Jafnaðarmannaflokksins. Arftaki Brandts, Hans Jochen
Vogel, klappar friðarverðlaunahafa Nóbels lof í lófa.
Reuter
Um það bil 6.000 manns söfnuðust saman í miðborg Seoul i gær til að lýsa yfir stuðningi við kröfur
námsmanna.
9.500
fyrirtæki
Handbókin ÍSLENSR FYRIRTÆKI 1987
er komin út Kjá Frjálsu framtaki
Húiv hefur ab geyma eftirf araadi:
1. Fyrirtaekjaskrámeðrúmlega
9.500 starfandi fyrirtækjum,
félögum, samtökum og
opinberum stofrvunum
áöllu landinu.
Oll skráö rrveö nafnnúmer.
2. Vöru-og þjönustuskrá.
3. Umboöaskrá.
4. Skrá yfir íslenska útflytjendur.
5. Skrá yfir öll íslensk skip.
Bókírv er seld í lausasölu hjá
FRJÁLSU FRAMTARI í ÁRMÚLA18.
Eimvig er hægt aö panta hana í sfma og f á hana senda um hæl.
Frjálstframtak
Ármúla 18, sími: 82300