Morgunblaðið - 16.06.1987, Page 59

Morgunblaðið - 16.06.1987, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987 59 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691100 KL. 13-14 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS iur i/^vm/ aw«\ UJtW 'U IT *ÉG SEGI EINS OG 5VERRIRM0NDI S6GJR: ÉG 6R NÚ EKKERT HI^IFINN HF HENNI. HÓN ER ÓNEITHNLEGR EFTlRSÓKNRRVERf). ÞETTH ERBÖLVTOUR ÓSKRPNHÐUR. E&MÆLI EINpRE&IÐ ME0 HENNI" „Nótulaus“ viðskipti - taimlækningakostnaður ætti að vera frádráttarbær frá skatti Til Velvakanda. Ég hlustaði á ágætan samræðu- þátt á rás 2 fyrir nokkrum dögum þar sem rætt var um „nótulausar" bifreiðaviðgerðir. Talað var við Gott há- degisútvarp á Bylgjunni Kæri Velvakandi: Ég vil þakka Þorsteini J. Vil- hjálmssyni fyrir gott hádegisútvarp á Bylgjunni. Þetta eru meiriháttar þættir hjá honum og vona ég að hann verið með hádegisútvarpið sem lengst. Þá vil ég þakka Stöð 2 fyrir góða dagskrá að jafnaði. Kvik- myndimar sem þeir sýna eru miklu betri en þær sem RUV er með. Gunna formann Félags bifreiðavirkja og taldi hann ákaflega miður hve mik- ið væri um bflskúrsverkstæði sem að minnsta kosti sum stunda það að svflcjast um að greiða söluskatt. Þorsteinn J. Vilhjálmsson Áleit hann tímabært að skera upp herör gegn þessari lögleysu. Ekki verður þvf í móti mælt að þetta er rétt athugað hjá manninum. En nú er það ein starfsstétt manna sem lengi hefur stundað „nótulaus" viðskipti og það eru tannlæknar. Vel má vera að þeir greiði sína skatta að fullu — en hafa skattayfirvöld nokkra mögu- leika á að fylgjast með því hvort þeir gera það eða ekki. Hvers vegna eru tannlæknar ekki látnir skrifa nótur fyrir sínum viðgerðum eins og aðrir? í þessu sambandi hefur mér dott- ið í hug að ekki væri nema réttlætis- mál að fólk fengi að draga tannlæningakostnað frá skatti. All- ar aðrar lækningar eru „ókeypis" þó sjáifsagt séu þær jafn dýrar og tannlækningamar. Með þessu móti kæmu skattayfírvöld hnappheld- unni á tannlækna og hjá þeim yrði ekki framar um „nótulaus" við- skipti að ræða. Ríkið myndi ekki tapa á þessu. Tannpínugemlingur Þessir hringdu . . Orðið „alfarið“ er ekki íslenska Hjálmar Pétursson hringd:: „Það fer í taugamar á mér að heyra orðið „alfarið" hvað þá að sjá það á prenti en þessi málleysa er nú mjög í tísku. Stjórmálamenn nota þetta orð oft og það er eins og menntamönnum sé það afar tamt. Þeir eru „alfarið" á ein- hverri skoðun, hafna einhveiju „alfarið" o.s.fr. Að undanfömu hefur verið fjallað um þetta orð í íslenskuþáttum í útvarpi þannig að allir ættu að vita að þetta er ekki íslenska, nema það er auðvit- að hægt að tala um að einhver sé alfarinn. Mér brá því í brún þegar ég sá þetta orð koma fyrir í fyrirsögn í Morgunblaðinu fyrir skömmu. Ég lít svo á að Morgun- blaðið hafa staðið sig ákaflega vel hvað íslensku varðar og þess vegna hef ég orð á þessu. Von- andi varast blaðamenn þetta orðskrípi framvegis." Ekki hræddir við frjálshyggjuna Ellilífeyrisþegi hringdi: „Breskir lq'ósendur virðast ekki vera hræddir við fijálshyggjuna og vestrænt lýðræði eins og sýndi sig hér í alþingiskosningunum.“ Þungar afborg- anir Húskaupandi hringdi: „Nú virðist ljóst að verðbólgan fari á skrið á ný og mun þá kreppa að mörgum sem tekið hafa há vísitölutryggð lán til húskaupa eða húsbygginga. Ef verðbólga verður eins og hún hefur verið mest er hætt við að jafnvel þeir sem hafa haft vaðið fyrir neðan sig í hvívetna verði gjaldþrota. Hvað þá um hina sem ekki hafa farið eins varlega í sínum íjárfest- inum? Ég vil beina því til stjómmála- manna að þeir sjái til þess að afborganir af húsnæðismála- stjómarlánum að minnsta kosti verði jafnaðar út þannig að okkur gefist kostur á að greiða þau upp á þeim fjörutíu árum sem um var samið í upphafi, hvað sem verð- bólgu líður. Ég tel þetta aðeins samgimiskröfu því allir þurfa þak yfir höfuðið." Fjölbreytt úrval garðhúsgagna á frábæru verdi: Gagnvarið tré — reyr — stál eða plast Alltaf besta verðið i Smiðjuvegi 6, Kópavoqi simar 45670 — 44544. SÖLUSKÁLAR VEITINGAHÚS MÖTUNEYTl Dúnmjúkar Duni servíettur fyrir boxin ávallt fyrirliggjandi. Verð á kassa kr. 2.388.- m/sölusk. FAIMINIIR HF Bíldshöfða 14, sími 672511

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.