Morgunblaðið - 16.06.1987, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987
35
Mokveiði í norð-
lenskum laxveiðiám
Morgunblaðið/gg
Lax hefur tekið undir Laxfossi i Laxá í Kjós og g-Iíman er hafin.
Nokkru síðar spriklaði 12 punda hrygna uppi á bakkanum.
Morgunblaðið/gg
Þennan gæðastimpil er að finna á flestum löxunum sem eru að
veiðast viða um land þessa dagana.
Laxamokstur í Vatns-
dalsá
„Menn eru orðnir gersamlega
geggjaðir héma, enda hafa sumir
varla komist úr hyljum sínum, svo
ör er takan. Og þetta eru allt
boltar, einn vel minnstur 10
punda, og að minnsta kosti tíu
iaxar 20—23 punda,“ sagði Bryn-
jólfur Markússon, einn leigutaka
Vatnsdalsár í samtali við Morgun-
blaðið í gærdag, en veiði hófst í
ánni í gærmorgun og drógu menn
á fyrri vaktinni hvorki fleiri né
færri en 38 laxa. Það var Biynjólf-
ur sjálfur sem veiddi stærsta
laxinn og þann minnsta I morgun.
Að sögn hans er lax í nánast
hveijum hyl og mikið af honum
í mörgum þeirra. Þeir sem áttu
til dæmis Bjamastein og Litlu-
kvöm í morgun hreyfðu sig til
dæmis ekki frá þeim alla vaktina
og héldu í hús á hádegi með átta
stórlaxa hvor. Tveir laxar veidd-
ust f Torfhvammshyl sem er með
efstu hyljum og þar hristi mjög
stór fískur úr sér, „og það er
uggi við ugga um alla Hólakvöm-
ina“, bætti Brynjólfur við glaður
í bragði. Laxinn er allur nýr, en
ekki allur lúsugur. Að sögn Brynj-
ólfs hafa maðkur og spónn gefið
best, en nokkuð hefði einnig veiðst
á flugu. Brynjólfur sagði menn
hafa rætt það á milli sín hvort
önnur eins byijun hefði nokkru
sinni verið og þótt sumir í opnun-
arhollinu hefðu veitt í ánni
áratugum saman, þá mundi eng-
inn eftir öðra eins.
„Meiriháttar
byrjun...“
Snorri nokkur Hauksson á
Tjamarbrekku við Víðidalsá var
hinn kátasti er Morgunblaðið
ræddi við hann síðdegis í gær. ■
„Þetta var meiriháttar byrjun,
þeir fengu 24 laxa á 8 stangir
og sá stærsti var 24 punda. Eg
held að að minnsta kosti tveir
aðrir laxar hafí verið um 20 pund
og allt var þetta boltalax, enginn
undir 10 pundum. Þetta vora fer-
lega fallegir fískar," sagði Snorri.
Að sögn kokksins á Tjamar-
brekku hafa menn séð mikið af
laxi og hann er kominn upp um
alla á, allt fram á efstu staði og
enginn veiðistaður er drýgri en
annar, það er bókstaflega dreifður
lax um allt. „Þetta er ekki bara
á maðkinn, sumir hafa reynt Þing-
eying, bæði túbu og streamer,
með góðum árangri, einn fékk
t.d. þijá físka á þá flugu. Vart
þarf að taka fram, að þetta er
miklu betri byijun en í fyrra og
vora menn þó ekkert að kvarta þá.
Frábær byrjun
í Miðfjarðará
Fýrsti veiðidagurinn í Miðfjarð-
ará var á laugardaginn og komu
þá 20 stórlaxar á land. Alls veiddi
fyrsta hollið 45 laxa, þann stærsta
25 pund og er það stærsti lax
sumarsins enn sem komið er eftir
því sem Morgunblaðið kemst
næst. Laxinn veiddi Bjami Áma-
son í Neðri Hlaupunum í Austurá,
en hún hefur gefíð drýgstu veiðina
ásamt Vesturá, en mest af laxin-
um hefur safnast á Kambsfoss í
Austurá og í Kistunum og Hlíðar-
fossi í Vesturá. Bæði Núpsá og
Miðfjarðará hafa einnig gefíð afla
svo og fleiri staðir að sjálfsögðu
í fyrstnefndu ánum. Meðalþung-
inn er geysigóður, aðeins tveir eða
þrír laxar vora undir 10 pundum
og þeir vora alveg við tveggja
stafa töluna. Þetta er einhver
besta byijun sem um getur í Mið-
fjarðará og jafnast að laxafjölda
til eiginlega aðeins við byijunina
frægu hér um árið (1979??), en
þá kom upp úr dúmum að afíinn
var einkum skipaður hoplöxum á
því kalda vori. Veiðin nú er svo
sannarlega ekta og gefur góð fyr-
irheit fyrir komandi vertíð, því
mikið er talið eftir af stórlaxinum
í ánni og svo á allur smálaxinn
eftir að koma.
Glæðist aðeins í
Laxá í Leirársveit
Veiðin hefur aðeins glæðst í
Laxá í Leirársveit, en næstsíðast
er Morgunblaðið fékk fregnir af
ánni, á föstudagskvöldið, hafði
aðeins ejnn lax veiðst í ánni frá
8. júní. í gærdag ræddi Morgun-
blaðið við Sigurð bónda og veiði-
félagsformann í Stóra Lambhaga
og færði hann þau gleðitíðindi,
að veiðin hefði glæðst með stóra
straumnum og skýjafarinu og
vætunni um helgina. Era nú
komnir 10 laxar á land og menn
famir a sjá laxinn ganga. Mest
hefur veiðst síðustu dagana í Lax-
fossi og við Lónið. Sagði Sigurður
ána vera hægt og bítandi að verða
sjálfri sér lík á ný. „Þetta er allt
að koma,“ sagði formaðurinn.
Þess má geta, að strax upp úr
mánaðamótunum sáu menn þó
nokkuð af laxi á göngu í ánni,
en sá fískur virðist hreinlega guf-
aður upp og eigi ótrúlegt að hann
sé hreinlega genginn fram í Svína-
dalsvötnin. Einn 18 punda fískur
í aflanum er stærstur enn sem
komið er og næstir koma tveir
12 punda laxar. Hinir laxamir era
smærri en vænir samt.
18-pundari í opnun
í Langá
Langá á Mýram opnaði í gær-
morgun og bar það kannski helst
til tíðinda að í hinni frægu smá-
laxaá veiddi Ólafur Ágúst Stef-
ánsson ^ glæsilegan 18 punda
hæng. Ólafur þessi er mikill stór-
laxaskelfir, því í opnun í fyrra dró
hann 16 punda hæng. Annars
vora menn hressir með byijunina,
6 laxar veiddust á fímm stangir
og sáu menn þó nokkuð af laxi.
Misstu þeir og nokkra. Það var
veiðifélagsformaðurinn Jóhannes
Guðmundsson í Ánabrekku sem
veiddi fyrsta laxinn, 6 punda
hæng, á slaginu sjö á Breiðunni.
Jóhannes minnkaði þar talsvert
við sig frá því í opnun í fyrra er
hann dró 21 punda laxhæng í
Glanna. Þessar upplýsingar feng-
ust hjá Runólfí Ágústssyni veiði-
verði sem sjálfur var með í
opnuninni. Veiddi hann fyrsta
flugulaxinn, 6 punda hæng, á
Kattarfossbrún. „Það var saga að
segja frá þeirri veiði, ég var búinn
að reyna ýmsar flugur, en ekkert
gekk. Ég dró þá fram flugu sem
ég hnýtti í veiðihúsinu kvöldið
áður, hnýtti hana á og fékk laxinn
eins og skot," sagði Runólfur og
lýsti svo flugunni: Búkur úr brún-
um selsháram. „Eiturgrænn
rass.“ Vængir brúnleit búkhár úr
ketti sem sér um að mýs vaði
ekki uppi í veiðihúsinu á Langár-
fossi. Flugan hefur enn ekki hlotið
nafn, en uppskriftin hljómar veiði-
lega.
Það era fleiri svæði í Langá,
Ingvi Hrafn ræður yfír einu og
hefur tekið nágrannasvæði sín
sum hver á leigu. Morgunblaðið
sló á þráðinn til hans: „Við voram
nú satt að segja ekki byijuð enn-
þá, en þetta lítur vel út, höfum
séð lax víða á svæðinu og eram
að tygja okkur út. Ég hef bæði
fylgst með því sjálfur og heyrt
af öðram, að það hefur lax verið
að ganga í ána alveg síðan 20.
maí, er Jóhannes á Ánabrekku sá
þá fyrstu skríða upp í ána. Hann
er trúlega genginn upp um allt
og ég yrði ekki hissa þótt þeir
fengju veiði á efsta svæðinu nú í
opnun, hann er stundum kominn
alveg upp í Sveðjuhyl á þessum
tíma,“ sagði Ingvi.
Búnir að sjá
30-pundara ...
„Þórður Pétursson veiðivörður
og aflakló sá einn í Bjargstreng
í gær sem hann áætlaði 30 pund.
Doddi er spar á svona yfirlýsing-
ar, þess vegna hlusta menn og
trúa þegar hann opnar munninn.
Svo er hann þar að auki ótrúlega
naskur að tippa svona og era
margir til vitnis um það,“ sagði
Orri Vigfússon Laxárfélagsform-
aður í samtali í gær, en hann var
staddur í veiðiheimilinu Vökuholti
á Laxamýri. Orri sagði veiðina í
Laxá vera sérstaklega skemmti-
lega í „uppánni", en þar er ennþá
aðeins veitt með einni stöng. Lax-
inn er hins vegar kominn þarna
um allt og víða mikið af honum.
í gærmorgun fengu Þórður Pét-
ursson og Hilmar Valdemarsson
6 laxa efra og daginn áður fengu
Birgir Steingrímsson yngri og fólk
með honum 5 laxa. Allt á flugu,
allir ellefu, og flestir laxanna í
efri ánni til þessa hafa fengist á
flugu. „Mesti krafturinn er farinn
úr veiðinni fyrir neðan Fossa, en
þar er þó enn góð veiði samt og
íaxinn alltaf að ganga,“ sagði
Orri og bætti við að Þórður Pét-
ursson hefði skotið sel á Kistuhyl
um helgina. Vora veiðimenn fegn-
ir að losna við dýrið, enda veitti
það illa séða samkeppni um bráð-
ina.
Að sögn Gerðar Eyjólfsdóttur
ráðskonu í Vökuholti voru komnir
135 laxar af svæðum Laxárfél-
agsins, sá stærsti 22,5 pund, og
þann hæng veiddi gamall Húsvík-
ingur, Jón Jakobsson, á Devon á
Breiðunni. Fimm 20-pundarar
hafa og komið á land og meðal-
þunginn er 12,5 pund. Orri bætti
við, að í gær hefðu 4 laxar veiðst
á tvær stangir á Núpaveiðum og
ásamt með einhveijum afla af
Nessvæðinu svo og nokkram löx-
um sem silungsmenn nældu sér í
fyrir laxveiðivertíðina, væra trú-
lega komnir um 160 laxar á land
í það heila. Á sama tíma í fyrra
vora komnir um 60 laxar á land
af Laxárfélagssvæðunum og þótti
eigi afleitt.
Glæðist ögn í
Elliðaánum
Það hefur aðeins hýmað yfír
mönnum við Elliðaámar, í fyrra-
kvöld vora þar komnir 7 laxar á
land og var það stóram betra
heldur en föstudagskvöldstalan
sem verður ekki einu sinni nefnd
héma. En eitthvað hefur komið
með stóra straumnum og vætu-
veðrinu. Þó ekkert að ráði og
miklu minna en sambærilegt á
sama tíma í fyrra. Þetta þarf þó
auðvitað alls ekki að boða neitt
illt, laxinn er bara aðeins seinni
á ferðinni en áður. í fyrrakvöld
vora 33 laxar komnir I teljara-
skrána. Auðvitað vilja Elliðaámar
vera með í stórlaxafjörinu. Einn
afar vænn er sagður á sveimi í
Teljarastreng, a.m.k. 20 punda
ágiskunarvigtun sérfræðinga.
Kanski er hann genginn upp?
Borgarfjörður
Það hefur dofnað veralega yfír
Norðurá og Þverá/Kjarrá eftir
góða byijun í báðum ánum, en
flestir telja þetta vera logn á und-
an storminum og smálaxinn sé í
þessu tilviki stormurinn. Norður-
árhópur sem hætti í gær, um
miðjan dag, náði aðeins 21 laxi,
þar af komu 8 stykki á sömu
stöngina (Guðlaugur og frú).
Svipaða sögu er að segja frá
Þverá/Kjarrá, sem dæmi má
nefna, að hópur sem lauk sér af
í Kjarránni um helgina náði aðeins
11 löxum og einn þátttakenda
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að það væri varla hægt að segja
meira en reyting af laxi í ánni og
það væri enn verið að veiða úr
fyrstu göngunum. Ekkert að ráði
hefði bæst við. Þessi kappi hafði
fengið einn 12 punda físk og var
ánægður með hlutinn í ljósi að-
stæðna.
Hins vegar er að heyra að mik-
ið sé um sel í jökulvatninu, selur
hafí sést allt upp að Svarthöfða,
þar sem Flóka og Reykjadalsá
renna saman til móðunnar miklu
og tveir selir hafa verið öðra hvora
við Brennuna upp á síðkastið og
skipt með sér veiðisvæðinu eins
og þaulæfðir veiðifélagar. Meira
að segja skipt um svæði á miðjum
degi! Þama hefur eitthvað veiðst
af laxi, en sá afli hefði örugglega
verið meiri ef minna færi fyrir
nærvera selanna. Ekki era mörg
veiðisumur síðan selir eltu laxa-
göngumar langt upp eftir berg-
vatninu og einn var skotinn f
Þverá og til annars sást í Stekkn-
um í Norðurá.