Morgunblaðið - 16.06.1987, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987
Grenivík:
Yngsti sjómaðurinn
fór fyrst til sjós 10 ára
Grenivík.
Morgunblaðið/Vigdís Kjartansdóttir
Gísli Gíslason að flá sel um
borð í Óskari.
Gísli í bátnum Ingólf Dan, sem
pabbi hans er nýbúinn að
kaupa.
í TILEFNI sjómannadagsins
gekk fréttaritari Morgunblaðs-
ins við á bryggjunni á Grenivík.
Um borð í einum bátnum, Óskari
ÞH, hitti hann að máli yngsta
sjómanninn á Grenivík, Gísla
Gíslason, 15 ára gamlan.
„Ég er að flá sel,“ sagði Gísli.
„Við fengum hann í netin í dag.“
Gísli er háseti á Óskari ÞH og er
skipstjóri bátsins og eigandi Heiðar
Baldvinsson. Aðspurður sagðist
Gísli fyrst hafa farið til sjós 10 ára
gamall með bróður sínum og „þeg-
ar ég var 12 ára fór ég fyrst með
pabba. Við vorum á færum og
flotlínu. Ég var með pabba þar til
ég byijaði með Heiðari Baldvins-
sjmi á Óskari í vetur, fyrst á
netaveiðum og síðan á grásleppu.
Grásleppuveiðin gekk mjög vel.
Ætli við höfum ekki fengið um 110
tunnur og við vorum fyrst fjórir á
bátnum og nú síðast þrír. Við vor-
um að hætta á grásleppunni og
erum að fara á þorskanet. Við
stoppum um mánaðamótin í einn
og hálfan mánuð, en í því stoppi
ætla ég að hjálpa pabba við að
mála húsið. Pabbi var að kaupa
3,3 tonna bát og ætli ég verði ekki
með honum á Ingólfi Dan á færum
og kannski verð ég einn með bát-
inn.“
Aðspurður hvað hann ætlaði
síðan að gera í haust sagði Gísli:
„Ég ætla að reyna að fá að vera
með Heiðari á Óskari vegna þess
að þar líkar mér vel.“
— Vigdfs
Hátt í 500 þátttakend-
ur í Brekkuhlaupi
HIÐ árlega Brekkuhlaup var
haldið á Akureyri nýlega og voru
þátttakendur 470 talsins. Keppt
var i þremur aldursflokkum og
þeim skipt í stelpu- og stráka-
flokka. Urslit urðu:
Stelpur 8 ára og yngri:
1. Linda Hrönn Sigfúsdóttir
2. Sigríður R. Gylfadóttir
3. Rósa Sigurbjömsdóttir
Strákar 8 ára og yngri:
1. Benjamín Ö. Davíðsson
2. Víðir Guðmundsson
3. Þórir Sigmundsson
9—11 ára stelpur:
1. Kolbrún Sævarsdóttir
2. Valdís Þorsteinsdóttir
3. Jóhanna H. Pétursdóttir
9—11 ára strákar:
1. Kristján Ömólfsson
2. Ómar Ámason
3. Stefán Gunnlaugsson
12—14 ára stelpur:
1. Harpa Örvarsdóttir
2. Elsa M. Gunnarsdóttir
3. Hildur R. Símonardóttir
12—14 ára strákar:
1. Konráð Þorsteinsson
2. Ólafur Theodórsson
3. Þorvaldur Sigurbjömsson
Á meðan á Brekkuhlaupinu stóð
tefldi Jóhann Hjartarson, stórmeist-
ari, fjöltefli við hátt í 40 manns.
Tveimur tókst að gera jafntefli við
stórmeistarann, þeim Magnúsi
Leifssyni og Sveinbimi Sigurðssyni.
Þá kom hópur frá Húsavík og setti
upp leiksýningu fyrir yngstu þátt-
takenduma.
í verðlaun voru átján bikarar og
dregið var í happdrætti þar sem
rásnúmer giltu sem happrættis-
númer. í vinning var hjól sem gefíð
var af Skíðaþjónustunni. Þá gaf
HÓTEL Stefanía á Akureyri hef-
ur nú aukið þjónustuna með þvi
að bjóða upp á bílaleigu. Hótelið
festi kaup á nokkrum bíla-
leigubílum nú fyrir skömmu af
gerðinni Volkswagen Golf og
Jetta og býður nú öllum hótel-
gestum upp á afslátt af bíla-
Sana öllum keppendum gos, Linda
gaf súkkulaði og karamellur, sem
fallhlífastökkvarar dreifðu um
svæðið.
leigubílum.
Að'sögn Stefáns Sigurðssonar,
hótelstjóra, er fyrirhugað að bjóða
upp á hótel og bflpakka með haust-
inu og verður þá hægt að fá leigða
bfla nokkra tíma á dag upp í nokkra
daga.
Stefán Sigurðsson hótelstjóri við bílaleigubila hinnar nýju bílaleigu.
Hótel Stefanía hef-
ur rekstur bílaleigu
Gústaf Geir (t.v.) og Þorri við myndir sínar. Morgunblaðið/Jóhanna
Gústaf Geir Bollason
og Þorri Hringsson sýna
í Möðruvallarkjallara
ÞEIR Gústaf Geir Bollason og
Þorri Hringsson halda þessa dag-
ana málverkasýningu í Möðru-
vallarkjallara, húsnæði
Menntaskólans á Akureyri. Þeir
eru báðir nemar í Myndlista- og
handíðaskóla íslands og hafa lok-
ið öðru ári af fjórum. Sýningin
stendur fram á sunnudagskvöld
og er opin frá kl. 14.00 til 22.00
alla daga.
Þeir félagar sögðu í samtali við
Morgunblaðið að þetta væri frum-
raunin í sýningarhaldi. Á sýning-
unni eru rúmlega 50 verk, unnin á
þessu og síðasta ári og eru þau til
sölu. Uppistaðan í verkunum eru
olíumálverk á striga og akiýlverk
á pappa. Auk þess eru nokkrar
pastelmyndir, vatnslitamyndir og
mónóþrykk.
Þorri sagðist hafa unnið pastel-
myndimar sínar á Dalvlk í vor, en
annars kæmu hugmyndimar beint
frá huganum og hjartanum eins og
þeir félagamir orðuðu það. Þeir
sögðu að hugurinn stefndi til fjar-
lægari landa að tveimur árum
liðnum. Enda mikið um það að lista-
fólk haldi til Hollands og Þýska-
lands í framhaldsnám. Bandaríkin
þykja heldur dýrt land fyrir lista-
menn. „Það hefur enginn sagt að
maður deyi af listinni, en það lifir
ömgglega enginn af henni. Fólk
bjargar sér með því að starfa hálfan
daginn við eitthvað annað en listina
og við nemarnir reynum auðvitað
að afla okkur svartra tekna yfír
sumartímann á þennan hátt svo að
við fáum áfram námslán," sagði
Þorri og bætti því við að nú væri
tækifærið að fjárfesta í verðandi
snillingum.
Bifreið valt
við Laugaland
- ökumaður mikið slasaður
MEIRA BAR á ölvun á Akureyri
um síðastliðna helgi en endra-
nær, en hátíðarhöld sjómanna
fóru vel fram að sögn lögreglu.
Fólksbíll valt um kl. 7 á laugar-
dagsmorgun við Laugaland á
Þelamörk. Ökumaðurinn, ungur
piltur, var fluttur í Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri höfuðkúpu-
brotinn og mikið slasaður að öðru
leyti.
Tveir ökumenn vom teknir gmn-
aðir um ölvun við akstur um
helgina, þá urðu tveir árekstrar á
föstudagskvöldið, annar á Nausta-
vegi og hinn á aðalvegi í Kjama-
skógi. Meiðsl á ökumönnum vom
minniháttar. Aðrir tveir árekstrar
urðu á sunnudag, annar á Drottn-
ingarbraut við Kaupangsstræti og
hinn á gatnamótum Glerárgötu og
Þómnnarstrætis. Þá bar mikið á
hraðaakstri um helgina, tveir öku-
menn vom teknir á Svalbarðsströnd
á 110 km hraða og fjórir ökumenn
vom teknir um helgina innanbæjar
á rétt undir 100 km hraða. Ökumað-
ur var tekinn fyrir að keyra yfír á
rauðu ljósi, en að sögn lögreglunnar
virðast flestir árekstrar sprottnir
af því að menn virða ekki umferðar-
réttinn.
Gamli bær-
inn í Lauf-
ási opinn
GAMLI bærinn í Laufási við Eyja-
fjörð var opnaður til sýningar nú
í byrjun júní-mánaðar.
Hann er opinn frá kl. 10.00 árdeg-
is til kl. 18.00 síðdegis alla daga
nema á mánudögum og verður svo
allt til ágústloka. Sem kunnugt er
þá er Laufásbær ekki byggðasafn
heldur svonefndur sýnibær. Er reynt
að láta hann líta svo út sem búið sé
í honum. Til glöggvunnar ferðamönn-
um má benda á það að Laufás er á
austurströnd Eyjafjarðar á leiðinni
frá Akureyri til Grenivíkur.