Morgunblaðið - 16.06.1987, Blaðsíða 40
I Js • VPtQ? í!TJOÁ(IÍÍT.,CSHcT <Tffrf A jfln/rTjrvqroTf
40 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987
Skátamótið „Fjör í
flokk“ á Hafravatni
Ljósmyndin Jón Haukur Steingrímsson
Hver skátaflokkur fékk úthlutað mat, sem hann þurfti sjálfur að matreiða yflr eldi eða prímus.
eftir Guðmund F.
Sigurjónsson
Um hvítasunnuhelgina _ hélt
skátafélagið Árbúar í Árbæ
fyrsta stórmót sitt og voru gestir
á mótinu rúmlega fimmhundruð.
Það er þvi óhætt að segja að
straumurinn hjá skátum af suð-
vesturhorninu hafi legið að
Hafravatni um síðustu helgi.
Mótið markaði á margan hátt
tímamót í sögu skátastarfs og
skátamóta á Islandi. Þetta var
fyrsta skátamótið, sem algerlega
var skipulagt sem flokkamót og
þetta var jafnframt fyrsta skáta-
mótið þar sem farið var alger-
lega eftir svokallaðri „nýrri
dagskrá", sem Bandalag
íslenskra skáta (BÍS) hefur út-
búið.
Hafravatn er stöðuvatn í Mos-
fellssveit, skammt suður af Reykj-
um. Vatnið liggur fremur lágt og
er umlukt lágum flöllum og Ieitum
á alla vegu og ber þar hæst fjallið
Hafrafell. Við vatnið er töluverð
sumarbústaðabyggð og yfír NV-
enda þess trónir jarðstöðin Skyggn-
ir sem horfír árvökulum augum
yfír dalinn. Að vatninu er innan við
hálfrar klukkustundar akstur frá
Reylq'avík u.þ.b. 17 km. Svæðið er
mjög hentugt til mótshalds af
náttúrunnar hendi þó á því sé frek-
ar frumstæð salemisaðstaða. Mál
manna var að mótið hafí verið vel
skipulagt og mjög vel heppnað. Það
>er ekki síst að þakka sjötíu drótt-
skátum (skátar eldri en 15 ára) sem
dvöldust í vinnubúðum í grennd við
mótssvæði yngri skátanna. Starf
dróttskátanna var þannig skipulagt
að þeir höfðu minnst hálfa vinnu-
skyldu, en gátu þess utan tekið
þátt í nokkrum atriðum almennu
dagskrárinnar auk sérstakra lauf-
léttra dróttskátadagskráratriða svo
sem sjóskíðaferða, seglbrettasigl-
inga, næturgrills og kvöldvöku.
Á þetta stórgóða mót voru mætt-
ir rúmlega 55 skátaflokkar frá yfír
tíu félögum af suðvesturlandi og
voru mótsgestimir eins og fyrr var
frá greint rúmlega 500. Mótið var
sett um ellefu leytið á föstudags-
kvöld með kvöldvöku, sem haldin
var við varðeld undir hlíðum Hafra-
fells og lauk henni með kakódrykkju
að hætti sannra skáta. En nóttin
var ung og vinnubúðarliðið safnað-
ist saman og undir stjóm Guðmund-
ar Pálssonar stórskáta gáfu menn
sér tíma til að undirbúa þá dag-
skrárliði morgundagsins sem eftir
átti að undirbúa. Þar var efst á
blaði alræmt atriði, sem bar nafnið
„vatnasafarí" og er óhætt að segja
að enginn hafí sloppið þurr í gegn-
um þær þrekraunir sem fólust í
línudansi yfír hyljum Seljadalsár.
Laugardagurinn var tekinn
snemma, eins og allir aðrir morgnar
meðan á dvölinni stóð. Að loknum
Merki mótsins.
morgunþvotti, fánahyllingu, tiltekt
og morgunverði völdu flokkamir sér
hina ýmsu dagskrárliði. Mögulegt
Líf og fjör í vatnasafaríinu.
Ungur skáti reynir sig í bjargsigi
í fyrsta skipti.
var að velja um rúmlega tuttugu
dagskráratriði. Þar á meðal var
atriði, sem nefndist bjargsig, en í
því gafst þátttakendum kostur á
að síga fram af himinháum klettum
undir leiðsögn hins þaulreynda
klifrara Haraldar Dungals. Besti
flokkurinn var sæmdur hinni kunnu
„Dungalsorðu" sem þegar er orðin
fræg meðal skáta um land allt.
Eftir kvöldvökuna var næturleikur
á dagskrá, þar sem markmiðið var
að fínna sjö stjömur sem hrapað
höfðu af himni ofan fyrr um kvöldið.
Á mótið komu einnig tuttugu og
sex skátar frá bænum Safíjoki á
Finnlandi. Þeir ætla að ferðast um
landið næstu daga og skoða
íslenska náttúru. Finnamir lýstu
yfír ánægju sinni með mótið, en
sögðust hafa búist við stærra móti.
Þeir sögðu ennfremur íslenska
skáta vera miklu óþvingaðri og
hressari en skáta í Finnlandi. A
mótið komu einnig 16 bandarískir
drengskátar frá skátafélagi
Keflavíkurflugvallar og líkaði þeim
einnig mjög vel.
Á sunnudagskvöldið var haldin
lokakvöldvaka og spilaði hin óvið-
jafnanlega hljómsveit „Lýðveldis-
bandið" undir söng skátanna.
Vökunni lauk með stórkostlegri
flugeldasýningu í anda afmælishá-
tíðar Reykjavíkurborgar.
Klukkan tvö mánudaginn 8. júní
var mótinu slitið við mikla sorg
þátttakenda og er stefnt að því hjá
Árbúum að endurtaka leikinn að
ári.
Úrslit dagfskrárkeppni
mótsins
Dagskrárliður: Flokkur:
Vatnasafarí Hellisbúar
Undankeppni íslandsmóts
Labbakútar
Fjölþraut Íkomar
Refaveiðar Uglur
Þegnskylda Garpar & Húbbar
Sterkasti flokkurinn
Frisbýkeppni
íþróttamót
Hike (8 tíma)
Bjargsig
Trönubyggingar
Flekaferðir
Emir
Uglur
Móíar
Varúlfar
Mistök
Spúkar
Sjö stjömur
I
Höfundur er sveitarforíngi t
SkÁtafélaginu Urðarköttum.
Setið við varðeld.