Morgunblaðið - 16.06.1987, Page 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987
ást er...
... aö vera eins og
veggjablóm
TM Reg. U.S. Pat. Off.—all rights reserved
© 1986 Los Angeles Times Syndicate
Er þetta rex og pex deild
in?
Blessaður hafðu ekki
áhyggjur. Hann hefur
örugglega tekið allar
bankabækurnar þínar
upp á myndband...
HÖGNI HREKKVÍSI
Slökkvistarf ný hafið
Askorun til
hugvitsmanna
Til Velvakanda.
Slökkviliðsmaður á landsbyggð-
inni skrifar:
Mig langar til að koma á fram-
færi áskorun til íslenskra hugvits-
manna. Ég skora á þá að hanna
búnað sem komið gæti að gagni
fyrir fólk sem býr á annarri hæð
eða ofar til að komast út úr húsun-
um þegar eldur brýst út. Þetta
getur verið mikið vandamál og hef-
ur kostað mannslíf. Hugsum okkur
konu sem er ein heima á annarri
hæð með þrjú böm. Ef eldur brýst
út í stiganum kemst hún ekki þá
leiðina og ef engar svalir eru á
húsinu er hún í miklum vanda stödd
með að koma bömunum út. Hanna
þyrfti einhvem einfaldan og fyrir-
ferðarlítinn búnað sem kæmi að
gagni við þessar kringumstæður.
Ég vona að einhver íslenskur hug-
vitsmaður sjái sér fært að ráðast í
þetta verkefni. Þörfín fyrir búnað
sem þennan er mjög brýn.
Kann ein-
hver allar
vísurnar?
Til Velvakanda.
Fyrir nokkm sá ég í Morgun-
blaðinu vísur, sem einhver hafði
spurt um. Þetta vom tvær vísur
úr fímm vísna kvæði. Það vill svo
til að ég kann þessar vísur, nema
þrjár línur úr einni, sem ég hef
verið að reyna að rifja upp síðan
ég sá þetta í blaðinu.
Þessar vísur vom á úrklippu úr
gamalli „Fjallkonu", sem ég fékk í
dóti eftir föður minn og lærði ég
þá vísumar, en get nú ekki fundið
Úrklippuna.
Konan í kvæðinu er ekki öll þar
sem hún er séð, hún hugsar alltaf
síðustu setninguna í hverri vísu.
En kvæðið er svona:
Ósköp varstu væn að koma.
Veistu hvað, að ganga í forinni
hélt ég alveg ófært vera.
(Aldrei tollir hún heima í borunni.)
Því kom ekki litla Lára
líka með þér hingað góðasta.
Yndi mitt hún er, það veistu.
(Agæt til að svína út stofuna.)
Sestu niður, sófinn bíður,
segðu mér nú einhvem skandalann.
Nóg er sjálfsagt nýtt að frétta.
(Nú mun talað vel um náungann.)
Svo vantar þrjár línur en vísan
endar á:
(Ekel, nesvís, frek og vemmileg.)
Æji góða, ertu farin?
Aftur komdu hingað bráðasta.
(Mundu Fríða, ef flagið kemur
að farin er ég út að spásséra.)
Magnea S. Hallmundsdóttir
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 13 og 14, mánu-
daga til föstudaga, ef þeir koma
því ekki við að skrifa. Meðal efnis,
sem vel er þegið, eru ábendingar
og orðaskiptingar, fyrirspumir og
frásagnir, auk pistla og stuttra
greina. Bréf þurfa ekki að vera
vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og
heimilisföng verða að fylgja öllu
efni til þáttarins, þó að höfundur
óski nafnleyndar.
Víkverji skrifar
Sú hugsun verður áleitin, þegar
gengið er um Fossvogsdalinn,
að þar megj ekki leggja hraðbraut.
Eins og kunnugt er, hafa yfírvöld
í Reykjavík og Kópavogi lengi deilt
um það, hvort leggja eigi hraðbraut
um dalinn og Reykjavíkurborg telur
sig raunar hafa undirritaðan samn-
ing við Kópavogsbæ um þá fram-
kvæmd. Þeir, sem reyna að komast
inn eða út úr höfuðborginn, þegar
umferð er mikil skilja mæta vel
áhuga borgaryfírvalda á því að
finna nýja leið út úr borginni. En..!
Útivistarsvæðin í höfuðborginni
eða á höfuðborgarsvæðinu eru ekki
ýkja mörg. Fossvogsdalurinn er eitt
þeirra. Að vísu virðast borgarbúar
tæpast hafa uppgötvað það enn,
vegna þess, að umferð gangandi
fólks er ekki mikil um dalinn. Hins
vegar hefur verið lögð þar frum-
stæð göngubraut, þannig að auðvelt
er að ganga t.d. frá Fossvogi inn
að Elliðaám eða þaðan að Foss-
vogi. Þetta svæði er svo stórt, að
það veitir tækifæri til þess að
byggja þar upp smátt og smátt
skemmtilega aðstöðu til útivistar.
Hraðbraut um dalinn hlýtur hins
vegar að útiloka það með öllu. Er
ekki tímabært að borgaryfirvöld
endurskoði afstöðu sína til þessa
máls?
XXX
Nú er verðlaunasamkeppni um
byggingu „lítils" (!) ráðhúss
við Tjörnina lokið. Fróðlegt verður
að fylgjast með framhaldinu. í ára-
tugi hafa borgaryfirvöld haft uppi
áform um að byggja ráðhús við
Tjömina. Borgarbúar hafa jafnan
gert uppreisn gegn slíkum hug-
myndum með svo eftirminnilegum
hætti, að hver borgarstjórinn á
fætur öðmm hefur gefízt upp við
þessar hugmyndir.
Hins vegar er eftirtektarvert, að
hingað til hafa engin andmæli kom-
ið fram gegn nýjustu hugmyndum
um þetta. Þó hefur borgarstjórinn,
Davíð Oddsson, hvað eftir annað
lýst áhuga sínum opinberlega á því
að byggja ráðhús við Tjömina.Þetta
á þó allt eftir að koma í ljós.
Vafalaust mundi ráðhús af hæfi-
legri stærð gefa Tjamarsvæðinu
skemmtilegan svip. Én að ýmsu er
að hyggja m.a. fuglalífi. Það má
ekki til þess koma að framkvæmdir
við ráðhús verði til þess að draga
úr því við Tjömina.
XXX
egar gott er veður er varla
hægt að komast leiðar sinnar
um göngugötuna á Lækjartorgi og
í Austurstræti. Það sem verra er
þó er, að sóðaskapur er þar tölu-
verður. Er þessi göngugata ekki
orðin of lítil fyrir þá starfsemi, sem
þar fer fram? í upphafi voru ráða-
gerðir um að taka allt Austurstræti
undir göngugötu. Er það kannski
orðið tímabært? Það er hvort sem
er orðið nánast ómögulegt að kom-
ast akandi inn í Austurstræti.