Morgunblaðið - 07.07.1987, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1987
STEFNUYFIRL YSINGOG STARFSAÆTLUN RIKISSTJORNAR ÞORSTEINS PALSSONAR:
kjörtímabil þannig að skattakerfíð
verði einfaldara, réttlátara og skil -
virkara.
★ Að endurskoða útgjöld ríkisins
þannig að skatttekjur nýtist sem
best til verkefna á vegum hins opin-
bera.
★ Að bæta framkvæmd og eftirlit
með skattalögum og framkvæma
tillögur um aðgerðir gegn skatt-
svikum.
Við endurskipulagningu á ríkis-
búskapnum verða eftirfarandi
sjónarmið lögð til grundvallar:
4. 1. Heildarendurskoðun
skattakerfisins
★ Megintekjustofnar hins opin-
bera verði sem almennastir þannig
að skattlagning verði sem hlutlaus-
ust.
★ Skattlagning mismuni ekki fyr-
irtækjum eftir rekstrarformum.
★ Undanþágum og sérreglum
verði fækkað þannig að unnt verði
að hafa álagningarhlutföll sem
lægst.
Stefnt verður að því að samræma
og einfalda löggjöf um tekjuöflun
ríkisins að lokinni endurskoðun.
Helstu þættir í hinu nýja skatta-
kerfí verði:
1. Staðgreiðsla beinna skatta ein-
staklinga kemur til framkvæmda í
ársbyijun 1988.
2. Tekjuskattsálagning atvinnu-
rekstrar verður jafnframt endur-
skoðuð og einfölduð og að því stefnt
að ný skipan taki gildi á árinu 1988.
3. Launaskattur og tryggingagjöld
atvinnurekenda vegna launþega
verða einfölduð og samræmd og
leggist sem jafnast á allar atvinnu-
greinar.
4. Athuguð verður skattlagning
fjármagns- og eignatekna og sam-
hengi slíkrar skattlagningar og
eignarskatts og skatta af öðrum
tekjum.
5. Tekin verður upp ný, samræmd
og einfölduð gjaldskrá aðflutnings-
og vörugjalda sem gæti komið til
framkvæmda á árinu 1988.
6. Virðisaukaskattur, eða nýtt og
endurbætt söluskattskerfí, verði
komið í varanlegt horf 1989. Und-
anþágum frá núverandi söluskatti
verður fækkað í áföngum sem að-
draganda að breyttu skattkerfí.
Fyrsta skref í þessa átt kemur til
framkvæmda um mitt ár 1987 og
annað í ársbyijun 1988.
7. Stefnt verður að því að skatt-
byrði einstaklinga af tekjuskatti
lækki í áföngum samhliða endur-
skoðun annarra tekjustofna ríkis-
ins. Um leið og undanþágum frá
söluskatti verður fækkað eða virðis-
aukaskattur tekinn upp verða
sérstaklega gerðar breytingar á
öðrum sköttum, beinum og óbein-
um, meðal annars til þess að tryggja
sérstaklega hag hinna tekjulægstu
og barnafjölskyldna.
8. Lög um happdrætti, getraunir
og ráðstöfun tekna af þeim verða
endurskoðuð.
9. Einn þáttur í heildarendurskoð-
un skattakerfísins verður breyting
á tekjustofnum sveitarfélaga, þann-
ig að íjárhagslegt svigrúm þeirra
og ákvörðunarvald um álagningu
verði aukið í tengslum við breytta
verkaskiptingu milli þeirra og ríkis-
ins.
4. 2. Endurmat
ríkisútgjalda
Ríkisútgjöld verða endurmetin í
því skyni að halda aftur af vexti
þeirra á næstu árum, þannig að
útgjöld hins opinbera í heild vaxi
ekki örar en þjóðartekjur. For-
gangsröð viðfangsefna verður
þannig að skatttekjur nýtist sem
best í þágu almennings.
Helstu þættir í endurmati ríkisút-
gjalda verða:
1. Dregið verður sem mest úr sjálf-
virkni ríkisútgjalda. Framlög til
einstakra verkefna og málaflokka
verða ákveðin í fjárlögum sem mest
án tengsla eða viðmiðunar við þjóð-
hagsstærðir og vísitölur.
2. Ýmsar stofnanir ríkisins, til
dæmis þær sem gagngert þjóna
atvinnuvegunum, fái aukið sjálf-
stæði og rekstrarábyrgð og afli sér
í auknum mæli tekna fyrir veitta
þjónustu. Jafnframt verður lögð
meiri íjárhagsleg ábyrgð á stjóm-
endur stofnananna, meðal annars
hvað varðar starfsmannahald og
launamál starfsmanna.
3. Arlega verður starfsemi tiltek-
inna opinberra stofnana og einstak-
ir þættir ríkisútgjalda tekinn til
gagngerrar endurskoðunar í því
skyni að bæta rekstur og draga úr
kostnaði.
4. Einstakir þættir í rekstrarverk-
efnum ríkisins verða boðnir út í
auknum mæli, þar sem henta þyk-
ir, og útboðum beitt við innkaup
ríkisins á vöru og þjónustu þar sem
því verður við komið.
5. Aðferðum við undirbúning fjár-
laga verður breytt í þá átt að
heildarfjárhæðir verða ákveðnar til
einstakra verksviða og ráðuneyti
og ríkisstofnanir beri í aukinum
mæli ábyrgð á skiptingu slíkra fjár-
veitinga. Aðhalds verði gætt við
stjóm ríkisstofnana og strangt eft-
iriit haft með útgjöldum þeirra; hins
vegar njóti þær sjálfar hagkvæmni
í rekstri.
6. Eftirlit Alþingis með aukaijár-
veitingum, fjárhagsskuldbindingum
ríkisins utan fjárlaga og útgjöldum
ríkissjóðs verður treyst.
7. Undirbúningur og eftirlit með
opinbemm framkvæmdum, svo og
viðmiðanir er ráða kostnaði við
þær, verða tekin til endurskoðunar.
Skýrari starfsreglur verða settar
um þjónustu og ábyrgð þeirra er
fara með framkvæmdir á vegum
hins opinbera.
8. Unnið verður að því að bjóða
ríkisfyrirtæki og hlutafé ríkisins í
fyrirtækjum, sem stunda atvinnu-
rekstur, almenningi til kaups þar
sem henta þykir. Skipulega verður
unnið að spamaði og hagræðingu
í opinbemm rekstri og framkvæmd-
um.
5. Banka- og lánamál
Dregið verður úr ábyrgð ríkisins
og afskiptum af bankarekstri og
lánastarfsemi. Stefnt verður að
sammna banka með því að setja
um það efni almennar reglur, en
einnig með endurskipulagningu á
viðskiptabönkum í eigu ríkisins.
Markmiðið er að ná aukinni hag-
kvæmni og rekstraröryggi í
bankakerfínu en tryggja jafnframt
eðlilega samkeppni milli alhliða við-
skiptabanka. Þátttaka erlendra
banka í lánastarfsemi hér á landi
verður heimil samkvæmt ákveðnum
reglum.
I bankalög verða sett skýr
ákvæði um starfsábyrgð stjórn-
enda, svo og ákvæði til að tryggja
óháðar ákvarðanir um lánveitingar
og um skyldu bankaráða til að setja
reglur um lán til einstakra lántak-
enda og tryggingar fyrir lánum.
Sett verður ný löggjöf um fjár-
festingarlánasjóði. Fjárfestingar-
lánasjóðir verða ekki bundnir við
eintakar atvinnugreinar. Stefnt
verður að því að viðskiptabankar
og útibú þeirra annist afgreiðslu
fjárfestingarlánasjóða sem geti
meðal annars tekið til ávöxtunar
fé lífeyrissjóða úti um land.
Lög um Seðlabanka Íslands
verða endurskoðuð.
Sett verði ný löggjöf um verð-
bréfafyrirtæki og verðbréfaverslun
til þess að tryggja eðlileg viðskipti
með verðbréf og hagsmuni almenn-
ings í því sambandi. Settar verða
reglur um fjármögnunarleigu, af-
borgunarviðskipti og greiðslukort.
Aðhald verður veitt að erlendum
lántökum með almennum reglum
og gjaldtöku.
6. Samræmt lífeyriskerfi
og almannatryggingar
Ríkisstjómin mun koma á sam-
ræmdu lífeyriskerfi fyrir alla
landsmenn er taki gildi á grund-
velli fyrirliggjandi frumvarps til
laga um starfsemi lífeyrissjóða.
Bætt verður í frumvarpið ákvæðum
þess efnis að ekkja/ekkill haldi
lífeyrisréttindum maka, hafi þau
verið meiri en hennar/hans. Sama
gildi um fólk í óvígðri sambúð sem
jafna má til hjúskapar. Sett verði
í frumvarpið ákvæði um lágmarks-
fjölda sjóðsfélaga. Að því verður
stefnt að sjóðum fækki verulega.
Samningar um samruna lífeyris-
sjóða og varðveislu réttinda hefjist
þegar á þessu ári að frumkvæði
ríkisins. Samhliða fari fram endur-
skoðun almannatrygginga. Að því
verði stefnt að lífeyrissjóðir og al-
mannatryggingar tryggi saman-
lagðan lífeyri sem nái lágmarks-
launum.
Fjárhagsskipulag almannatrygg-
inga verður endurskoðað og skil
gerð milli lífeyristrygginga og
sjúkratrygginga.
7. Byggðastefna
og samg'öngiimál
Ríkisstjómin lítur á það sem eitt
meginverkefni sitt að stuðla að
betra jafnvægi í þróun byggðar með
uppbyggingu atvinnulífs og þjón-
ustu á landsbyggðinni. í því skyni
hyggst ríkisstjómin beita sér fyrir
eftirfarandi aðgerðum:
★ Starfsemi Byggðastofnunar
verði efld til að stuðla að upp-
byggingu atvinnulífs og þjónustu á
landsbyggðinni. Jafnframt verði-
henni falið að tryggja samstarf
lánastofnana, þróunarfélaga og
heimamanna og samræma aðgerðir
til styrkingar byggðanna.
★ Fjölbreyttari þjónusta verði
veitt í dreifbýli, meðal annars með
því að ýmis þjónusta opinberra
stofnana verði flutt til stjórnsýslu-
miðstöðva í hveiju kjördæmi á
landsbyggðinni.
★ Atak verði gert í samgöngumál-
um og fyrirliggjandi áætlanir á sviði
samgangna samræmdar í þeim til-
gangi að bæta tengsl milli byggð-
arlaa og stuðla að stækkun atvinnu-
og þjónustusvæða. Unnið verður að
vegagerð á grundvelli langtíma-
áætlunar og hún endurskoðuð með-
al annars með það fyrir augum að
flýta lagningu bundins slitlags á
vegi sem tengja saman þéttbýlis-
staði.
★ Áhersla verði lögð á íbúðabygg-
ingar á vegum félagslega húsnæðis-
kerfísins á landsbyggðinni.
Verkaskiping ríkis og sveitarfélaga
verði gerð skýrari svo að saman
fari ákvörðun, framkvæmd og
ábyrgð. Sveitarstjómir fá aukið
sjálfræði um tekjustofna við endur-
skoðun skattakerfís um leið og þær
taka við fleiri verkefnum, til dæmis
á sviði heilbrigðisþjónustu og skóla-
halds.
★ Fjármagn sjóða verður í aukn-
um mæli geymt og ávaxtað á
heimaslóð.
★ Ríkisstjómin mun beita sér fyr-
ir ráðstöfunum tl þess að bæta
rekstur orkuveitna á landsbyggð-
inni til að draga úr húshitunar-
kostnaði þar sem hann er hæstur.
8. Menningar-
og menntamál
Örar þjóðfélagsbreytingar krefj-
ast þess að stefnan í menntamálum
sé í stöðugri endurskoðun þannig
að hún falli sem best að þörfum
almennings, atvinnulífs og menn-
ingarstarfsemi í landinu.
Markmið menningar- og mennta-
stefnu er að auka veg og virðingu
íslenskrar tungu og menningar, búa
þjóðina undir að takast á við verk-
efni framtíðarinnar og gefa hveij-
um einstaklingi tækifæri til þroska.
★ Fjárhagslegt sjálfstæði skóla
verður aukið. Undirbúin verði ný
löggjöf um skólastigin þijú, gmnn-
skóla, framhaldsskóla og háskóla,
þar á meðal um háskóla á Akureyri.
★ Aukin áhersla verði lögð á full-
orðinsfræðslu, símenntun og
endurmenntun. í því skyni verði ný
tækni hagnýtt í samræmdu átaki
skólayfírvalda, Ríkisútvarps,
Námsgagnastofnunar og aðila
vinnumarkaðarins. Dreifikerfi
Ríkisútvarpsins verði nýtt til fjar-
kennslu.
★ Fram mun fara athugun á fyrir-
komulagi sérkennslu. Kannað
verður hvernig grunnskólinn geti
betur rækt gæsluhlutverk við hlið
fræðslustarfs.
★ Unnið verður að því að koma á
samfelldum skóladegi og skólamál-
tíðum fyrir böm á grunnskólaaldri.
★ Lögð er áhersla á mikilvægi
íþrótta- og æskulýðsmála og hvers
kyns annarra heilbrigðra tóm-
stundastarfa. Mikilvægt er að öllum
þjóðfélagsþegnum sé gert kleift að
nýta tómstundir sínar til hollra og
þroskandi viðfangsefna.
★ Menntunaraðstaða verði jöfnuð
svo sem kostur er.
★ Endurskoðun fari fram á lögum
og reglum um námslán og náms-
kostnað í samráði við samtök
námsmanna.
★ Undirbúin verði ný löggjöf um
nám í Tónlistarskólanum í
Reykjavík, Leiklistarskóla Íslands
og Myndlista- og handíðaskólaum,
meðal annars með tilliti til náms á
háskólastigi. Listfræðsla verði auk-
in í grunnskólum og framhaldsskól-
um.
★ Stofnsettur verði sjávarútvegs-
skóli þar sem sameinuð verður
kennsla í sjávarútvegsfræðum.
★ Verkefnastyrkjum til vísinda-
rannsókna verður fjölgað, einkum
á sviði nýtæknigreina.
★ Stuðningur við menningarstarf
verður endurskoðaður með aukinni
áherslu á verkefnastyrki og viður-
kenningu fyrir vel unnin störf.
★ Stuðlað verði að því að innlent
efni í dagskrám sjónvarpsstöðva
verði aukið.
9. Húsnæðismál
Fjárhagsgrundvöllur húsnæðis-
kerfísins verði treystur. Markmiðið
er að það geti sjálft staðið undir
skuldbindingum sínum til lengri
tíma litið. Þetta verði gert með
breyttum útlánareglum til að draga
úr eftirspurn eftir lánum og með
ríkisframlagi, einkum til hins fé-
lagslega kerfís.
★ Uppbygging og fjármögnun fé-
lagslega íbúðakerfisins verði
endurskoðuð.
★ Sett verði sérstök lagaákvæði
um kaupleiguíbúðir og fjármögnun
þeirra, samkvæmt sérstöku sam-
komulagi stjórnarflokkanna sem
gert hefur verið.
★ Þeim, sem lent hafa í greiðslu-
erfiðleikum vegna öflunar íbúðar-
húsnæðis á undanfömum árum,
gefíst kostur á endurfjármögnun á
lánum vegna öflunar eigin hús-
næðis með vaxtakjörum húsnæðis-
lánakerfísins. Hluti af ráðstöfun-
arfé Húsnæðisstofnunar gangi til
þessara lána, en jafnframt verði
leitað samninga við viðkomandi
lánastofnanir um kaup á skulda-
bréfum Byggingarsjóðs ríkisins.
Ráðgjafarþjónusta Húsnæðisstofn-
unar meti umsóknir þeirra sem hér
um ræðir.
★ Áhersla verði lögð á fjármagn
til íbúða fyrir aldraða og öryrkja í
vemduðu þjónustuumhverfi og til
stúdentagarða og annarra náms-
mannaíbúða.
★ Gerð verður áætlun um umbæt-
ur í húsnæðis- og vistunarmálum
aldraðra og fatlaðra.
★ Samið verði um að afgreiðsla
húsnæðislána geti farið fram í lána-
stofnunum.
Markmið húsnæðislánakerfisins
er að fullnægja eðlilegri lánaþörf
og að greiðslubyrði fjölskyldna
vegna húsnæðisöflunar verði ekki
óeðlilega mikill hluti ráðstöfunar-
tekna.
10. Fjölskyldu- og
jafnréttismál
Unnið verður að því að treysta
stöðu fjölskyldunnar með mark-
vissri fjölskyldustefnu, fyrst og
fremst með velferð barna fyrir aug-
um.
Í samráði við aðila vinnumarkað-
arins og sveitarfélögin verður unnið
að því að tekið verði meira tillit til
þarfa fjölskyldunnar og þess að
foreldrar beri jafna ábyrgð á börn-
um sínum, meðal annars með
sveigjanlegum og styttri vinnutíma
og bættri dagvistarþjónustu.
Átak verður gert til að koma á
jafnrétti kvenna og karla með sér-
stakri áherslu á launajafnrétti.
Störf kvenna hjá hinu opinbera
verði endurmetin. Við þetta endur-
mat verði m.a. tekið tilliti til
mikilvægis umönnunar- og að-
hlynningarstarfa og starfsreynslu á
heimilum.
★ Launastefna ríkisins, sem aðila
að kjarasamningum, miði að því að
bæta kjör hinna tekjulægstu og að
endurmeta störf kvenna og stuðla
að jafnrétti í launakjörum og hlunn-
indagreiðslum hjá ríkinu; jafnframt
verði kannað hvemig unnt sé að
gefa foreldrum færi á að fá launa-
laust leyfí vegna umönnunar bama
þegar sérstaklega stendur á.
★ Unnið verður samkvæmt fram-
kvæmdaáætlun til fjögurra ára um
aðgerðir til að ná fram jafnrétti
kynjanna.
★ I skatta- og lífeyrismálum og
almannatryggingum verður tekið
meira tillit til heimavinnandi fólks.
★ Frirkomulag dagvistunar bama
og tilhögun greiðslna fyrir hana
verður athugað. I því sambandi
verður litið á þátt bamabóta og
hvemig þær geti stuðlað að auknum
samvistum barna og foreldra.
★ Lokið verði endurskoðun fram-
færslulaga.
Aðstaða aldraðra og fatlaðra
verður bætt og unnið að því að
tryggja þeim jafnrétti í þjóðfélag-
inu. _
★ Áætlun verði gerð í samráði við
sveitarfélög um átak til að bæta
heimilisþjónustu og vistunarað-
stöðu fyrir aldraða og fatlaða.
★ Starfsemi Framkvæmdasjóðs
fatlaðra verði styrkt samkvæmt
fjögurra ára áætlun um fram-
kvæmdir og fjármögnun þeirra.
Sérstök áhersla verður lögð á upp-
byggingu sambýla fyrir fatlaða og
verndaða vinnustaði.
11. Heilbrigðismál
Fjárhagslegt skipulag heilbrigð-
isþjónustu og sjúkratrygginga
verður tekið til gagngerrar endur-
skoðunar með það fyrir augum að
nýta sem best þá íjármuiii sem
varið er til þessara mála. Meðal
annars verður verkaskipting milli
ríkis og sveitarfélaga á sviði heil-
brigðisþjónustu endurskoðuð.
Mikilvægir þættir í heilbrigðis-
stefnunni eru:
★ Auknar forvamir, heilsuvemd
og sjúkdómaleit til að stemma stigu
við sjúkdómum og slysum, svo og
fræðslustarf um ábyrgð einstakl-
inga á eigin heilsu.
★ Stefnt verði að því að nýta nýj-
ustu tækni og framfarir í vísindum
til að efla sérhæfðar lækningar.
★ Ákvarðanir um áherslur byggist
á mati á líklegri þróun og framtíðar-
horfum í heilbrigðis- og heilsufars-
málum.
★ Lög verði endurskoðuð með
hliðsjón af stefnu í heilsuvemdar-
málum, sem sett er fram í íslenskri
heilbrigðisáætlun, með forvamar-
starf að meginmarkmiði.
★ Samræmdar verði aðgerðir
stjórnvalda til að auðvelda fram-
kvæmd neyslu- og manneldisstefnu
með heilbrigði landsmanna að leið-
arljósi.
★ Leitað verði leiða til að lækka
lyfjakostnað í heilbrigðiskerfinu.
Verðlagning á lyfjum verði endur-
skoðuð í því skyni að lækka verð
þeirra.
★ Sérstök áhersla verður lögð á
að styrkja ávana- og fíkniefnavarn-
ir. Samstarfsnefnd þeirra ráðu-
neyta, sem ávana- og fíkniefnamál
heyra undir, samræmi og efli að-
gerðir á þessu sviði, meðal annars
með aukinni löggæslu, en fyrst og
fremst með auknu fræðslu- og upp-
eldisstarfi.
12. Umhverfismál
Ríksstjórnin mun samræma að-
gerðir stjórnvalda að umhverfis-
vernd og mengunarvörnum, meðal
annars með eftirfarandi hætti:
★ Sett verða almenn lög um um-
hverfismál og samræming þeirra
falin einu ráðuneyti.
★ Gerð verður áætlun um nýtingu
landsins sem miðar að því að endur-
heimta, varðveita og nýta landgæð-
in á hagkvæman hátt.
★ Ríkisjarðir verða nýttar til úti-
vistar, skógræktar og orlofsdvalar
fyrir almenning þar sem því verður
við komið.
★ Skógrækt, landgræðsla og
gróðurvernd verða aukin í samvinnu
ríkis, sveitarfélaga og ftjálsra sam-
taka.