Morgunblaðið - 07.07.1987, Page 64
Viðlaga
þjónusta
STERKTKORT
ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Tillögur Hafrannsóknastofnunar um minni þorskveiði:
3,0 til 3,5 milljörðum
lægri útflutningstekj ur
Lögreglan
er snör í
snúningum
BIFREIÐ var stolið í miðbæ
Reykjavíkur í gær, en þegar lög-
reglunni barst tilkynning um það
var hún þegar búin að grípa þjóf-
inn.
Síðdegis í gær hvarf bifreiðin af
bflastæði hjá pylsuvagninum í
Tryggvagötu. Þegar eigandinn
kærði þjófnaðinn var tilkynnt um
málið í talstöð lögreglunnar. Svör
bárust strax frá tveimur lögreglu-
þjónum, sem voru staddir í Lækjar-
götu við Skólabrú. Þeir höfðu séð
ástæðu til að stöðva bifreið þar sem
aksturslag ökumannsins var ekki
upp á marga fiska. Var þar kominn
bflþjófurinn, svo för hans varð ekki
löng.
Mun vera sjaldgæft að lögreglan
hafi hendur í hári þjófa áður en
vitað er um brot þeirra.
Hafskipsmál:
Málflutn-
ing^urá
mánudag
MUNNLEGUR málflutningur um
frávisunarkröfu forráðamanna
Hafskips verður í Sakadómi
Reykjavíkur mánudaginn 13. júli
kl. 9.30.
Mál ákæruvaldsins gegn fjórum
forráðamönnum Hafskips hf. var
þingfest í sakadómi 5. maí sl. og
kröfðust þeir þess að málinu yrði
vísað frá dómi, þar sem ríkissak-
sóknari hefði átt að víkja sæti.
Áður en krafan var tekin fyrir ósk-
uðu veijendur eftir þvi að vitni
kæmu fyrir dóminn og vissra upp-
lýsinga aflað, en þeirri kröfu
hafnaði sakadómur.
Hæstiréttur staðfesti þann úr-
skurð 5. júní síðastliðinn og verður
munniegur málflutningur um frá-
vísunarkröfu fjórmenninganna á
mánudag.
„ÉG ER sammála Hafrannsókna-
stofnun að draga verði úr
þorskveiðum, en hversu mikið
það verður er ekki hægt að segja
á þessari stundu. Upplýsingar
stofnunarinnar hljóta að verða
aðalforsendan við endurskoðun
fiskveiðistefnunnar í haust,“
sagði Halldór Ásgrímsson sjávar-
útvegsráðherra í tilefni nýút-
kominnar skýrslu Hafrann-
sóknastof nunar um ástand
fiskistofnanna, þar sem lagt er
til að þorskveiðar verði takmark-
aðar við 300.000 tonn næstu tvö
árin. Samkvæmt upplýsingum
Þjóðhagsstofnunar myndi slíkur
samdráttur veiða leiða til 1-2%
minnkunar þjóðarframleiðslu.
Halldór sagði tillögur Hafrann-
sóknastofnunar ekki hafa komið
sérstaklega til umræðu í stjórn-
armyndunarviðræðunum.
Halldór sagði, að hann væri
þeirrar skoðunar, að of mikið hefði
verið veitt undanfarið af þorski og
að draga bæri úr veiðunum. „Það,
hversu mikið við drögum úr þeim,
er komið undir því, hvað við viljum
leggja á okkur." Taldi Halldór að
nú væri rétti tíminn til þess að
draga úr veiðum og rétta við þorsk-
stofninn. Um auknar veiðar á
öðrum stofnum sagði Halldór að
ekki væri um að ræða slíkt magn
að það vegi upp samdrátt í þorsk-
veiðum.
Halldór sagðist fagna því hversu
snemma skýrsla Hafrannsókna-
stofnunar kæmi á þessu ári. „Við
höfum lagt mikla áherslu að flýta
þessari vinnu og er nú árangurinn
af henni að koma fram.“
Guðmundur Hallvarðsson vara-
formaður Sjómannasambands
íslands sagði í samtali við Morgun-
blaðið að Sjómannasambandið
myndi á haustdögum kalla saman
sambandsstjómarfund, þar sem
rætt yrði um viðbrögð við tillögum
Hafrannsóknastofnunar. Guð-
mundur sagðist vera í aðalatriðum
á sama máli, en þar sem hér væri
um mjög mikinn samdrátt að ræða
og þar af leiðandi tekjurýmun, teldi
hann eðlilegt að samráð yrði haft
við hagsmunaaðila. „Við munum
skoða þetta mál mjög vel,“ sagði
Guðmundur að lokum.
Samkvæmt upplýsingum Þjóð-
hagsstofnunar myndi 300.000
tonna þorskafli í grófum dráttum
leiða til 3,0-3,5 milljarða lægri út-
flutningstekna, sem þýðir um 5%
minni útflutning eða væntanlega
um 1-2% samdrátt þjóðarfram-
leiðslu. I samtali við Morgunblaðið
sagði Þórður Friðjónsson forstjóri
Þjóðhagsstofnunar að samdráttur-
inn myndi leiða til þess að í þjóðar-
búskapnum yrði minna tii
skiptanna. „Við þessu yrði að
bregðast með því að draga úr þjóð-
arútgjöldum, annars myndi sam-
drátturinn leiða til aukins viðskipta-
halla gagnvart útlöndum og
aukinna skulda," sagði Þórður.
Hrafnsungi í fóstri
Grindavík.
HJÁ starfsmönnum Hitaveitu
Suðurnesja í Svartsengi hefur
hrafnsungi verið í fóstri siðast-
liðnar fjórar vikur.
Unginn er enn ófleygur en tals-
vert stór, enda étur hann hvað sem
er. Hann er mest úti við en sækir
inn í félagsskap og lætur vita þegar
hann er svangur.
Hann á ekki langt að sækja þenn-
an viðgjöming starfsmanna hita-
veitunnar því foreldrar hans voru
einnig aldir upp á sama stað og
koma af og til í heimsókn, sérstak-
iega á vetuma þegar harðnar í ári.
Starfsmennimir hafa á orði að
tímabært sé að breyta heiti staðar-
ins úr Svartsengi í Hrafnsengi.
Kr. Ben.
Geir Þórólfsson stöðvarsljóri var ekki hrifinn að fá Krumma í
heimsókn inn á áætlanaútreikningana sem voru dreifðir um allt
skrifborðið. Síðast þegar það henti skeit Krummi á dagsverkið.