Morgunblaðið - 24.07.1987, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1987
Ráðmn þá hæfustu
kennara sem tök eru á
/ i* -wr i 1 / 1 *w 1 1
- segir Þorvarður Elíasson skólastjóri
„VIÐ höfum ekki gefið fyrirheit
um neitt þó skólanefiid hafi lýst
yfir áhuga sínum á að bæta við
námið og gefa mönnum þar með
kost á að taka BS-gráðu, hugsan-
lega eftir tveggja ára nám,“
sagði Þorvarður Elíasson skóla-
stjóri Verslunarskóla íslands, um
þau ummæli sem höfð eru eftir
Oddi Benediktssyni prófessor í
tölvunarfræðum við HÍ í Þjóðvilj-
anum í gær. Þar segir Oddur að
fyrirhugaður tölvuháskóli VÍ sé
alls maklegur sem starfsnám, en
geti vart talist til háskólanáms.
Þá segir Oddur að ef VÍ ætlaði
að kenna til BS-prófs, yrði skól-
inn að bjóða upp á svipað nám
og HÍ og erlendir háskólar.
„Það má alltaf ræða um hvort
námið á að vera til tveggja eða
þriggja ára. Hinsvegar finnst mér
það liggja í augum uppi að s_am-
vinna verður að vera á milli HÍ og
VÍ með hvaða hætti námið verður
skipulagt. Ef gráðan á að njóta við-
urkenningar, verður hún m.a. að
njóta viðurkenningar HÍ. Þó tel ég
að tölvuháskólinn eigi ekkert frekar
að binda sig við það sem gert er í
HI fremur en við þær aðferðir sem
uppi eru í erlendum háskólum þar
sem víða er boðið upp á tveggja
ára háskólanám í tölvunarfræðum,"
sagði Þorvarður í samtali við Morg-
unblaðið.
Oddur segir að í auglýsingu frá
VÍ sé ekki krafist háskólaprófs af
kennurum og það eitt sýni að tölvu-
háskóli VÍ geti tæpast talist háskóli.
Þorvarður sagði að VI myndi ráða
þá hæfustu kennara sem tök væru
á að ráða og vissi hann ekki til að
HÍ gæti ráðið menn með öðrum
hætti í sínar stöður. „Ég er mjög
bjartsýnn á kennararáðningar eftir
þeim undirtektum sem ég hef feng-
ið á meðal vel menntaðra manna.
Ég held að samt að menn skulu
hafa það hugfast að ýmsir þeir sem
staðið hafa fyrir þróun mála í tölv-
unarfræðum hér á landi, hafa ekki
haft háskólagráðu í þeim fræðum,"
sagði Þorvarður.
Ekki hefur verið ákveðið á hvaða
kjörum kennarar verða ráðnir við
tölvuháskólann, en aðrir kennarar
VÍ eru ráðnir samkvæmt sömu kjör-
um og almennt gilda um kennara
á framhaldsskólastigi. Þorvarður
sagði að VÍ væri óbundinn af launa-
kerfi HÍ, en upphaflega hefði verið
lagt til að miða við almennan kostn-
að við kennslu í Kennaraháskóla
íslands, að sögn Þorvarðar.
VEÐUR
ÍDAGkl. 12.00:
Heimild: Veíursloia islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gaer)
VEÐURHORFUR I DAG, 24.07.87
YFiRLIT á hádegi í gœr: Um 400 km austur af Langanesi er 1008
millibara lægð sem þokast austur. Yfir landinu er minnkandi lægðar-
drag. Um 100 km suður í hafi er 1032 millibara hæð og hæðar-
hryggur að myndast á Grænlandshafi.
SPÁ: Norðvestlæg átt á landinu, víðast gola eða kaldi (3-5 vind-
stig). Sunnanlands og á Austfjörðum verður bjart veður en skýjað
að mestu við norður- og vesturströndina. Hiti á bilinu 12 til 16
stig suðaustaniands en 8 til 13 stig annars staðar.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA
LAUGARDAGUR og SUNNUDAGUR: Fremur hæg breytileg átt.
Smá skúrir á annesjum vestanlands en þurrt og víða bjart veður
annars staðar. Hiti á bilinu 10 til 17 stig.
x Norðan, 4 vindstig:
v Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r t
r r r r Rigning
r r r
* / *
/ * / * Slydda
r * r
# * *
* # * * Snjókoma
* * *
■J 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
Skúrir
*
V E'
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
xm VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12:00 i gær að ísl. tíma
Akureyri hitl 13 veóur skýjaö
Reykjavfk u skýjað
Bergen 17 skýjað
Helsinki 27 léttskýjað
Jan Mayen 6 skýjað
Kaupmannah. 20 skýjað
Narsaarssuaq 12 hólfskýjað
Nuuk 9 skýjað
Osló 27 léttskýjað
Stokkhólmur 28 léttskýjað
Þórshöfn 12 skýjað
Algarve 23 þokumóða
Amsterdam 17 rigning
Aþena 41 helðsklrt
Barcelona 24 mistur
Beriín 21 hélfskýjað
Chicago 23 þokumóða
Feneyjar 30 þokumóða
Frankfurt 22 skýjað
Glaskow 8 reykur
Hamborg 20 skúr
Las Palmas 24 léttskýjað
London 15 alskýjað
Los Angeles 16 léttskýjað
Lúxemborg 18 skýjað
Madríd 29 heiðsklrt
Malaga 28 heiðsklrt
Mallorca 28 léttskýjað
Miami Montreal 22 vantar lóttslcýjaö
NewYork 24 mistur
París 19 skýjað
Róm 31 heiðskfrt
Vín 27 léttskýjað
Washington 29 mistur
Winnipeg 18 skýjað
Morgunblaðið/Einar Falur
Um 450 manns, iðnaðarmenn, handlangarar, sóparar og stjórn-
endur leggja nótt við dag að ganga frá í Kringlunni fyrir opnun.
Kringlan:
Bifreiðastæði naum-
lega skömmtuð
- segir Ragnar Atli Guðmundsson
„ÞAÐ MÁ segja að skortur á
bifreiðastæðum sé sameigin-
legt vandamál okkar í Kringl-
unni,“ sagði Ragnar Atli
Guðmundsson framkvæmda-
stjóri Kringlunnar. „Okkur
hefiir verið naumt skammtaðar
lóðir undir bifreiðastæði og
höfiun við leitað eftir lóðum
undir stæði i grenndinni."
Ragnar sagði það kostnaðar-
samt að leysa vandann með
bifreiðageymslu á tveimur hæð-
um. Kostnaður við hvert stæði er
yfir 400.000 krónur og verða um
1.200 bifreiðastæði til reiðu þegar
húsið verður opnað. Þegar næsta
vor verður bifreiðageymslan
stækkuð með viðbyggingu í átt
að Miklubrautinni fyrir 400 bif-
reiðastæði. „Þangað til ætlum við
að leita hófana hjá borgaiyfirvöld-
um um aðgang að lóð væntanlegs
Borgarbókasafns og öðrum lóðum
í kring um okkur, sem enn er
ekki farið að nýta,“ sagði Ragnar.
Verðlagsráð:
Kæra Neytendasam-
takanna rædd
Málefiii Sölufélags garðyrlqu-
manna voru rædd á fundi
Verðlagsráðs í fyrradag. Neyten-
dasamtökin hafa kært Sölufélag-
ið til Verðlagsráðs þar sem þau
telja fyrirkomulag þeirra brjóta
gegn lögum um verðlag, sam-
keppnishömlur og óréttmæta
viðskiptahætti. Verðlagsráð hef-
ur gert athugasemd við starf-
semi Sölufélagsins og bíður nú
eftir skýringum á hvernig
rekstrarfyrirkomulagi og verð-
lagningu sé háttað.
Það er fyrst og fremst starfsemi
markaðsnefndar Sölufélags garð-
yrkjumanna sem Verðlagsráð gerir
athugasemd við. Markaðsnefndin
er skipuð fulltrúum framleiðenda
og ákveður verð á innlendri fram-
leiðslu. Engin afstaða var tekin til
málsins á fundinum.
Halcion:
Veldur ekki aukaverk-
unum sé það tekið í hófi
- segir Olafur Ólafsson landlæknir
„EF svefiilyfið Halcion er tekið
inn samkvæmt læknisráði, á það
ekki að valda mönnum neinum
verulegum aukaverkunum,"
sagði Olafúr Ólafsson landlækn-
ir, en í frétt Morgunblaðsins i
gær frá Hollandi er frá því greint
að lyfið getí haft í för með sér
skaðlegar aukaverkanir.
í fréttinni segir að áfrýjunarrétt-
ur í bænum Amhem hafi komist
að þeirri niðurstöðu að margt benti
til þess að eins miliigramma töflur
af lyfinu sé slæm og hættuleg vara.
Bandaríska lyfjafyrirtækið Upjohn
framleiðir Halcion og sagði lög-
fræðingur þeirra er höfðuðu mál á
hendur fyrirtækinu að slgólstæð-
ingar sínir hafi þjáðst af langvar-
andi minnistapi, kvíðaköstum og
að þeir hafi átt erfítt með að ein-
beita sér eftir að hafa neytt lyfsins
á ámnum 1978 og 1979.
Ólafur sagði að hver Halcion-
tafla í Hollandi væri fjórfold á við
þær töflur sem hérlendis væm látn-
ar fólki í té, en þær innihéldu aðeins
0,25 milligrömm miðað við eins
milligramma töflumar í Hollandi.
íslenskir læknar ráðlegðu sjúkling-
um sínum aðeins eina til tvær töflur
í senn og ætti lyfíð samkvæmt því
að valda litlum aukaverkunum auk
þess sem það er talið vera eitt
hættulausasta svefnlyfið á mark-
aðnum.
Halcion er í svokölluðum bensó-
díazepín-flokki og sagði Ólafur að
um 6% landsmanna tækju lyf úr
þeim flokki, samkvæmt sölutölum,
aðallega þó eldra fólk. Hann sagði
að ekki veitti af því að upplýsa al-
menning um lyf, sem flest hefðu
vissulega hættur í for með sér,
væm þau notuð í óhófi. „Upplýsing-
aseðlar fylgja öllum iyfjum erlendis
frá, en apótekarar hafa tekið það
upp hjá sjálfum sér að rífa upplýs-
ingamar úr pakkningunum áður en
lyfín eru seld. Ég hef reynt að koma
í veg fyrir þetta, en það hefur ein-
faldlega ekki gengið til þessa,"
sagði landlæknir.