Morgunblaðið - 24.07.1987, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1987
21
Reuter
Til vinstri má sjá risaolíuskipið Bridgeton, en á undan því fara bandarísku herskipin Kidd og Fox.
Persaflói:
Skipalestin fær
að sigla sína leið
Washington, London, Persallóa, Reuter.
SKIPALEST olíuskipa frá Kuwa-
it og fylgdarskipa þeirra úr
bandaríska flotanum hélt sigl-
ingu sinni óhindrað áfram á
Persaflóa í gær, en hún sigldi
um Hormuz-sund í gær. íranskar
herþotur og þyrla nálguðust
skipalestina, en sneru á brott, er
þær höfðu fengið aðvörun. Sov-
éskt herskip sigldi einnig upp að
skipalestinni, en hafði sig ekki í
frammi. íranir tilkynntu í gær
að floti þeirra myndi hafa heræf-
ingu á flóanum i dag.
1 gær voru skipin vel hálfnuð á
siglingu sinni til olíustöðva í Kuwa-
it, og búist var við að þau næðu
þangað í dagrenningu. Skipin sigla
undir bandarískum fána.
Ahafnir bandarísku herskipanna
voru í viðbragðsstöðu, og stóðu til-
búnar til orrustu er siglt var um
þau svæði undan íransströndum,
þar sem flestar árásir hafa verið
gerðar á olíuskip.
Um borð í skipunum frá Kuwait,
olíuskipinu Bridgeton og gasflutn-
ingaskipinu Gas Prince, voru
bandarískir foringjar, sem skyldu
vera talsmenn skipanna ef íranir
krefðust þess að stöðva þau og
rannsaka, en til slíks hafa þeir
heimild samkvæmt alþjóðalögum.
Til slíks kom þó ekki.
íranir stöðvuðu átta önnur skip
í Hormuz-sundi í gær. Sjö fengu
að halda áfram ferð sinni, en eitt
var fært til hafnar til rannsóknar
og því haldið fram að það flytti
vörur til íraka. Aðgerðir þessar telja
menn til þess ætlaðar að sýna vald
írana.
íranir sögðu í gær að skipin
fengju ekki að flytja olíu frá írök-
um, og að íranir myndu koma í veg
fyrir það, sama undir hvaða fána
skipin sigldu. Einnig var tilkynnt
að í dag myndu hefjast flotaæfing-
ar á Persaflóa, báðum megin
Hormuz-sunds. Fyrir fimm dögum
tilkynntu íranir að heræfingar væru
áætlaðar á þessu svæði í ágúst, og
íranska fréttastofan IRNA sagði
þá að æfingamar væru aðvörun til
stórveldanna.
Sovéskur andófs-
maður látinn laus
Moskvu, Reuter.
NIZAMETDIN Akhmetov, so-
véskur andófsmaður, fékk í gær
leyfi til að flytjast til Vestur-
Þýskalands að sögn heimildar-
manna meðal andófsmanna.
Akhmetov er 38 ára gamall og
var fyrr á árinu látinn laus eftir
18 ára vist i þrælkunarbúðum og
á geðveikrahælum.
Heimildarmennimir sögðu að
Akhmetov vænti þess að geta snúið
aftur heim til Sovétríkjanna fljót-
lega. Hann er frá Bashkiríu í
suðurhluta Úral-fjallanna.
Árið 1969 var hann dæmdur í
10 ára þrælkunarvinnu og fímm ára
útlegð fyrir „and-sovéskan áróður".
1972 var enn bætt við tíu ára þrælk-
unarvinnu og fímm ára útlegð,
sennilega fýrir afbrot framin í
fangavistinni. Árið 1982 var Akh-
metov úrskurðaður geðveikur af
sovéskum læknum en líkur vom
taldar á því að hann hefði dreift
röngum upplýsingum til hnjóðs Sov-
étríkjunum af ásettu ráði.
AP
Ekki fótfúin
Hulda Crooks, 91 árs gömul amma frá Kalifomíu, sést hér taka
við vegabréfinu sinu á Los Angeles-flugvelli. Gamla konan var
á leiðinni til Japan en þar hóf hún í fyrradag að klífa hið fræga
og heilaga Qall Fuji sem er tæplega 3800 metrar að hæð.
Crooks væntir þess að ljúka prílinu á föstudaginn en hún er
enginn nýgræðingur í þessari íþrótt; t.d. hefur hún meira en
tuttugu sinnum klifið Whitney-fjall í Bandaríkjunum en það er
um 4400 metra hátt. 500 starfsmenn japansks fyrirtækis, sem
styrkir Crooks til fararinnar, munu verða á tindi Fuji ásamt
fjölskyldum sínum til að samfagna Crooks á föstudaginn. Fyrir
tveim árum komst niræð japönsk kona upp á tind fjallsins.
(U)PIOI\IŒŒR
•I* BILTÆKI
Nýja línan '88 — Gæði í hverjum tón
Verð frá kr. 11.533,- ísetning samdægurs.
Aukþess höfum við LW/MW/FM stereo-bíltæki með segulbandi frá kr. 4.915.
HUOMBÆR
HVERnSGÖTU 103 SÍMI 25999
Radióþjóniista Bjarna
SÍÐUMÚLA 17. SÍMI 83433
Umboðsmenn: Bókaskemman Akranesi, Kaupfélag Borgfirðinga, Hljómtorg ísafirði, Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki, KEA
Akureyri, Radiover Húsavík, Skógar Egilsstöðum, Kaupfélag Héraðsbúa Egilsstöðum, Myndbandaleiga Reyðarfjarðar Reyðarfirði,
Ennco Neskaupsstað, Djúpið Djúpavogi, HornabærHornafirði, Kaupfélag Rangæinga Hvolsvelli, M.M. búá/nSelfossi, RásÞorláks-
höfn, Fafava/Keflavík, Rafeindaþjónusta Ómars Vestmannaeyjum, Radioröst Hafnarfirði, JL-húsið Reykjavík.