Morgunblaðið - 01.08.1987, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1987
Morgunblaðið/Sigurgeir
Þjóðhátíðin íEyjum settígær
Þessi glaðlegu mæðgin voru í Heijólfsdal í gær við upphaf þjóð-
hátíðar, bæði í eins þjóðhátíðargalla. Móðirin heitír Sigrún og
sonurinn Sigmar Þór. Gleðilega þjóðhátíð!
Hvalvertíðin 1986:
Búíð að flytja tæp
49% hvalkj ötsins út
Áætlað útflutningsverð 330 milljónir
Frá Jóni Angeiri SigurðBayni, fréttaritara Morgunblaðsin* i BandarOqunum.
HELMINGUR hvalkjötsins, sem
fékkst af þeim 116 hvölum sem
veiddir voru í vísindaskym á
vertíðinni sumarið 1986, hefur
þegar verið fluttur út til Japan.
Heimildarmenn i Washington,
sem fylgst hafa með verðlagi á
hvalaafurðum í Japan, te\ja verð-
mæti afurða hvalveiðanna i fyrra
nema rúmlega 330 miUjónum
króna. Smásöluverðmæti kjöts-
ins, þegar það er komið í verslan-
ir í Japan, er hinsvegar um 820
miiyónir króna.
Samkvæmt áreiðanlegum upp-
lýsingum fengust alls 2.157,7 tonn
af kjöti af þeim 76 langreyðum og
40 sandreyðum sem veiddust á
hvalvertiðinni síðastliðið sumar.
Ennfremur fengust 1.720,7 tonn
af öðrum afurðum en kjöti. Sjávar-
útvegsráðherra féllst í fyrra á óskir
Bandaríkjamanna um að leggja
þann skilning í samþykkt Alþjóða
hvalveiðiráðsins í Malmö vorið
1986, að einungis mætti flytja út
allt að 49 prósent af afurðum sem
fást úr hvalveiðum í vísindaskyni.
Mestur hluti hvalkjötsins var
fluttur út með japanska skipinu
Biyo Maru. Það lestaði 843,8 tonn
af hvalkjöti ( júníbyijun og auk
þess 467,7 tonn af öðrum hvalaaf-
urðum. Álafoss Eimskipafélagsins
lestaði 202,5 tonn af hvalkjöti og
65,5 tonn af öðrum afurðum um
miðjan maí. Alls voru því flutt út
1.046,3 tonn af hvalkjöti eða 48,5
prósent af þvf hvalkjöti sem fékkst
með vísindaveiðum árið 1986.
Minna hlutfall var flutt út af öðrum
hvalaafurðum, alls 533,3 tonn eða
31 prósent.
Samtök í Washington sem fylgj-
ast með verðþróun á hvallgöti í
Japan og annars staðar, en óska
eftir nafnleynd, meta verðmæti út-
flutnings Hvals hf. þannig: Útflutt
hvalkjöt af veiðum árið 1986, kom-
ið um borð í skip (fob-verð), er
metið á 6,9 milljónir bandaríkjadoll-
ara eða 269 milljónir króna. Aðrar
afurðir metnar á 1,6 milljónir doll-
ara eða 62,4 milljónir króna. Þá er
talið að heildsöluverð hvalkjötsins
sé um 14 milljónir dollara i Japan
og smásöluverðmæti alls um 21
milljón dollara. Verðmæti kjötsins
þrefaldast því á leiðinni úr höfn á
Islandi í hendur neytenda í Japan.
Samkvæmt samningi sjávarút-
vegsráðuneytisins ogHvals hf., sem
gerður var í maí 1985, skyldu
100.000 krónur, miðað við bygging-
arvfsitölu í janúar 1985, renna til
Hafrannsóknastofnunar fyrir hvem
veiddan hval. Sfðan skyldi staðinn
straumur af útgerðar-, verkunar-
og framleiðslukostnaði Hvals hf. og
þær tölur staðfestar af endurskoð-
endum. Afgangurinn, ef söluand-
virði hvalaafurðanna reynist hærra
en áðursagðar greiðslur, rennur
óskiptur í sérstakan sjóð í vörslu
sjávarútvegsráðuneytisins. Á hinn
bóginn er tap af rekstrinum alfarið
á áhættu og ábyrgð Hvals hf.
Rannsókn
á tíðum
flugslysum
MATTHÍAS Á. Mathiesen, sam-
gönguráðherra, hefur skipað
finun manna nefnd til að skoða
Vörur Mjólkursamsölunnar undanþegnar söluskatti:
Matarlyst fjármálaráð-
herra kemur á óvart
- segir Davíð Scheving Thorsteinsson
„ÞETTA ER náttúrlega rakin
mismunun,“ sagði Davíð Schev-
ing Thorsteinsson, iðnrekandi, í
samtali við Morgunblaðið þegar
hann var spurður álits á tilkynn-
ingu fjármálaráðuneytisins til
Mjólkursamsölunnar i gær um
að allar mjólkurvörur skuli und-
anþegnar söluskattí. Þetta þýðir
að t.d. Kókómjólk, Mangó-sopi
og Jógi munu ekki bera sölu-
skatt. Skatturinn fellur þó á is
og idýfur.
„Þetta kemur manni þó ekkert á,
óvart því þetta er einungis fram-
hald á þeirri óstjóm sem ríkt hefur
hér á landi undanfarin 27 ár. Þess-
ar vörur Mjólkursamsölunnar bera
engin opinber gjöld en vömr eins
og Svali, sem em í samkeppni við
afurðir Mjólkursamsölunnar, þurfa
að bera bæði 25% söluskatt og 24%
vömgjald.
Það sem kemur manni helst á
óvart er matarlyst Jón Baldvins
Hannibalssonar, flármálaráðherra,
sem þama er að éta ofan í sig eig-
in orð og stefnuyfirlýsingu flokks
síns á þennan hátt. Hann virðist
hafa mjög góða matarlyst."
„Samkvæmt reglugerðinni vom
þessar vömr ekki undanskildar en
Kaupmannahöfn:
LÖGREGLUMENN fíkniefna-
deildar lögreglunnar i Kaup-
mannahöfn leita nú nokkurra
fslendinga, sem fara huldu
höfði. Tengjast þeir máli hins
53 ára gamla íslendings, sem
gripinn var með 1,3 g af am-
fetamíni fyrir nokkru.
Eins og greint hefur verið frá
í Morgunblaðinu hafa fjórir aðrir
íslendingar verið handteknir í
tengslum við þetta mál. Tveir
menn og ein kona vom handtekin
í Málmey og einn íslendingur til
viðbótar var handtekinn í Gauta-
borg. Annar mannanna, sem var
handtekinn í Málmey, hefur þegar
verið framseldur til Kaupmanna-
hafnar, en hinn, sem talinn er
nú er verið að skilgreina þær sem
mjólkurvörur svo þær þurfi ekki að
bera skattinn. Það þurfti að taka
af allan vafa,“ sagði Sigurður Þórð-
arson, skrifstofustjóri f Qármála-
ráðuneytinu f samtali við
Moigunblaðið. „Með þessari
ákvörðun er verið að halda óbreyttu
fyrirkomulagi frá því sem var hvað
varðar þessar vömr. Fyrst og
fremst er auðvitað verið að vemda
fslenskan landbúnað."
Ekki náðist f Jón Baldvin Hanni-
balsson, flármálaráðherra, út af
þessu máli f gær þar sem hann lfkt
og svo margir aðrir hafði bmgðið
sér úr bænum yfir verslunarmanna-
helgina.
sérstaklega orsakir tíðra slysa í
einkaflugi á íslandi og gera tillög-
ur um hvemig auka megi öryggi
i þvi, segir i frétt frá samgöngu-
ráðuneytinu. _
Skal úttekt nefndarinnar m.a. ná
til menntunar og þjálfunar einkaflug-
manna, fyrirkomulags einkakennslu,
þ.m.t. þjálfunar flugkennara, og
regina um flug einkaflugvéla.
1 nefndinni em eftirtaldir menn:
Karl Eirfksson, forstjóri, en hann er
formaður Rannsóknamefndar flug-
slysa. Karl er jaftiframt formaður
nefndarinnar. Pétur Einarsson, flug-
málastjóri, Jóhannes Snorrason,
fyrrv. yfirflug8fjóri, Leifur Ámason,
flugmaður, en hann er tilneftidur af
Félagi ísl. atvinnuflugmanna, og
Skúli Jón Sigurðsson, deildarstjóri í
Loftferðaeftirlitinu, en hann verður
ritari nefndarinnar.
Samgönguráðherra hefur óskað
eftir þvf við neftidarmenn, að þeir
ljúki störfum fyrir nk. áramót.
Heimsmeistaramótið í Bagiuo:
Slæmt gengi Islendinganna
Lögreglan leitar að
Islendingum í felum
ÞRÖSTUR Þórhallsson og
Hannes Hlífar Stefánsson, sem
keppa á heimsmeistaramóti
unglinga i Bagiuo á Filippseyj-
um áttu frekar slæman dag i
gær. Þröstur Þórhallsson
gerði jafntefli við Femandes
frá Spáni og Hannes Hlífar
tapaði fyrir Martin frá Nýja
Sjálandi.
Anant frá Indlandi er nú í efsta
sæti með 9lA vinning og í 2.-3.
sæti eru Sovétmennimir Ivanchuk
og Serper með 8V2. Þröstur er í
10.-16. sæti með 7 vinninga og
Hannes Hlífar er nokkru aftar
með 4*/2VÍnning. Keppendumir
eiga frí í dag, en lokaumferðin
verður tefld á sunnudag.
Á fimmtudaginn gekk þeim fé-
lögum heldur ekki sem skyldi;
Þröstur gerði jafntefli við Rechlis
frá ísrael og Hannes Hlífar tapaði
fyrir DeGarve frá Frakklandi.
höfuðpaur þessa máls, áfrýjaði
ákvörðun um framsal, þ.a. framsal
hans tefst.
Að sögn lögreglunnar í Kaup-
mannahöfn er lögreglan fallin frá
þeirri kenningu sinni, að um sé
að ræða flutning 3 kg af amfet-
amíni frá Hollandi, aðeins sé um
1 kg að ræða og það sé þegar
fundið.
Lögreglumaður sá, sem stjómar
rannsókninni í Kaupmannahöfn,
sagði, að enn væri ieitað nokkurra
íslendinga f Danmörku í tengslum
við þetta mál og starfsfélagar
þeirra í Málmey og víðar væru að
svipast um eftir fleirum. „Fólk
þetta fór f felur þegar sá fyrsti
var handtekinn, en ég geri ráð
fyrir að ná til þeirra í næstu viku.“
Fríðrik Sophusson iðnaðarráðherra:
Hljótum að leiðrétta
hugsanlegt misræmi
„ÞAÐ VAR ekki ætlunin, þegar
um það var rætt i stjómar-
myndunarviðræðunum að
leggja söluskatt á matvæli, að
mismuna samkyiya fram-
Ieiðslu,“ sagði Friðrik Sophus-
son, iðnaðarráðherra, í samtali
við Morgunblaðið. „Sé hægt að
sýna fram á að sú sé raunin
h(jótum við að leggja áherslu á
að það misræmi verði leiðrétt.“
Eins og kom fram í Morgun-
blaðinu f gær telja iðnrekendur
að listinn yfir þær vörur sem und-
anþegnar eru söluskatti, hafi
vísvitandi verið sniðinn til þess
að hlífa vinnslustöðvum land-
búnaðarins en söluskatturinn með
ráðnum hug lagður á samkypja
framleiðslu iðnfyrirtækja.
„Iðnrekendur hafa borið þetta
mál undir mig,“ sagði Friðrik, „og
munum við Jón Baldvin Hanni-
balsson, Qármálaráðherra, eiga
saman fund á þriðjudaginn þar
sem þetta verður rætt ásamt öðr-
um málum."