Morgunblaðið - 01.08.1987, Blaðsíða 38
es
38
V8er T8Ú0Á J HIJOAGJLAOUAJ .GIGAJaMUÐHOM
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1987
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna —- atvinna — atvinna
Vantaríheyskap
Vanan ungling eða vinnukraft vantar í hey-
skap á Lokinhömrum í Arnarfirði.
Upplýsingar gefur Sigurjón í gegnum
símstöðina á ísafirði.
Keflavík
Blaðburðarfólk óskast.
Upplýsingar í síma 13463.
fRtfgmiftliifeffe
Sölumaður óskast
Bílasala óskar eftir að ráða duglegan, reglu-
saman og ábyggilegan sölumann strax.
Umsóknir sendist á auglýsingadeild Mbl. fyr-
ir 5. ágúst merktar: „Bílasala — 924“.
Barnagæsla
— Hafnarfjörður
Við óskum eftir góðri konu til að annast
dætur okkar, 10 mánaða og 5 ára. Þá yngri
allan daginn en eldri eftir hádegi. Vinnutími
gæti þó orðið óreglulegur. Erum í Norður-
bænum.
Upplýsingar í síma 651180.
Herrafatnaður
Viljum ráða starfsmann í starf svæðisstjóra
í herradeild í verslun okkar í Kringlunni.
Svæðisstjóri sér um pantanir á vörum frá
lager, hefur umsjón með framsetningu á
vörum og afgreiðir í herradeild ásamt því að
vera staðgengill deildarstjóra.
Æskilegt er að væntanlegir umsækjendur
geti unnið sjálfstætt og skipulega, hafi góða
og örugga framkomu, séu á aldrinum 20-45
ára, hafi þekkingu á fatnaði og geti hafið
störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri
(ekki í síma) þriðjudag og miðvikudag frá kl.
16.00 til kl. 18.00.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá starfs-
mannahaldi.
HAGKAUP
Skeifunni 15.— Starfsmannahald.
Forstöðumaður
matvælasviðs
Sölustofnun lagmetis auglýsir eftir starfs-
manni menntuðum á matvælasviði, til að
undirbúa og veita forstöðu tæknideild, sem
sett verður á stofn hjá S.L. og fyrirhugað
er að hefji störf á næstunni.
Aðalverksvið tæknideildarinnar verður:
a. Vöruþróun.
b. Aðstoð við tæknilega uppbyggingu í verk-
smiðjum.
c. Eftirlit með framleiðslu.
d. Stöðlun vörutegunda og umbúða.
Starf forstöðumanns mun fela í sér mikil
samskipti við lagmetisframleiðendur og
kaupendur og þar með talsverð ferðalög
utanlands og innan.
Sölustofnun lagmetis leitar eftir manni með
staðgóða þekkingu og nokkra reynslu í mat-
vælaiðnaði. Einnig með vakandi frumkvæði
varðandi nýjungar og framfarir í framleiðslu
og vilja til að tengja þær markaðsstörfum.
Forstöðumanni mun verða falið að ráða tvo
aðstoðarmenn í tæknideildina.
Umsóknir sendist Theodór S. Halldórssyni,
framkvæmdastjóra Sölustofnunar lagmetis,
Síðumúla 37,108 Reykjavík, fyrir 20. ágúst.
ICEL4ND
W0TERS
SÖLUSTOFNUN LAGMETIS
ICELAND WATERS CORP.
Frá Hitaveitu
Rangæinga
Hitaveita Rangæinga óskar að ráða mann
til starfa. Vélvirkja- eða vélstjóramenntun
æskileg.
Upplýsingar um starfið veitir hitaveitustjóri
í síma 99-5109 eða á skrifstofu veitunnar,
Eyjasandi 9, Hellu, virka daga á milli kl. 9.00
og 12.00. Umsóknir þar sem meðal annars
koma fram upplýsingar um aldur, menntun
og fyrri störf skulu sendar fyrir 15. ágúst nk.
til Hitaveitu Rangæinga, pósthólf 97,
850 Hellu.
Hitaveita Rangæinga.
Ert þú
hjúkrunarfræðingur,
sjúkraliði
með áhuga fyrir skapandi starfi við öldrunar-
þjónustu/hjúkrun?
★
Dvalarheimilið Hlíð á Akureyri þarfnast þín!
Á Hlíð eru:
- 48 eins manns herbergi.
-11 tveggja manna herbergi.
-12 raðhúsaíbúðir.
- Ný uppgerð 19 rúma hjúkrunardeild.
- Dagvistun.
- Ný viðbygging tekin í notkun á næstunni.
★
Dvalarheimilið í Skjaldarvík er 7 km norðan
við Akureyri. Þangað vantar nú þegar eða
eftir nánara samkomulagi sjúkraliða til að-
stoðar þeim 70 heimilismönnum sem þar
búa í eins og tveggja manna herbergjum.
★
Þér er velkomið að leita nánari upplýsinga
um störfin og markmið okkar.
Þessar upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri
Anna Guðrún Jónsdóttir. Þú nærð henni í
símum 96-23174, 96-24530,96-21640.
DvalarheimiliAkureyrar, Hlíð
og í Skjaidarvík.
Akraneskaupstaður
Kennarar
— kennarar
Okkur vantar enn nokkra kennara á Akranes
við Grundaskóla. Kennara yngri barna, sér-
kennara, kennara á bókasafn.
Upplýsingar veita skólastjóri, Guðbjartur
Hannesson, sími 93-12723 og Ólína Jóns-
dóttir, yfirkennari sími 93-11408.
Við Brekkubæjarskóla vantar sérkennara við
deild fjölfatlaðra.
Upplýsingar veita yfirkennari, Ingvar Ingva-
son, sími 93-12820, heimasími 93-13090 og
formaður skólanefndar, Elísabet Jóhannes-
dóttir, sími 93-12304.
Við aðstoðum við útvegun húsnæðis.
Skólanefnd.
Kennarar
Kennara vantar við grunnskólann á Hellu
næstkomandi skólaár. Meðal kennslugreina:
Kennsla yngri barna, íslenska og handmennt.
Hringið og leitið nánari upplýsinga hjá skóla-
stjóra í síma 99-5943 eða formanni sköla-
nefndar í síma 99-8452.
Afgreiðslumaður
Afgreiðslumaður óskast til starfa í bílavara-
hlutaverslun okkar.
Upplýsingar gefur verslunarstjóri.
RÆSIR HF
AAalumboö Daimler-Benz AG á Islandl
Skúlagötu 59,
sími91-619550.
Varahlutaverslun
Óskum eftir að ráða afgreiðslumann nú þeg-
ar í varahlutaverslun okkar. Starfsreynsla
æskileg. Við bjóðum 1. flokks vinnuaðstöðu
í nýju og glæsilegu húsi.
Upplýsingar um starfið gefur Eiður Magnús-
son í síma 681299.
Bílaborg hf.,
Fosshálsi 1.
Hf. Eimskipafélag
íslands
óskar eftir að ráða starfsmann á smurstöð/
dekkjaverkstæði félagsins í Sundahöfn.
Verkstæðið annast:
- Smurningu og eftirlit með minni tækjum
félagsins (lyftarar).
- Dekkjaþjónustu við ökutæki EIMSKIPS.
Við leitum að manni til framtíðarstarfa, við-
komandi þarf að hafa góða almenna þekk-
ingu á farartækjum og uppbyggingu þeirra.
Nánari upplýsingar veittar í síma 82923 hjá
viðhaldsdeild. Umsókn skal skilað í starfs-
mannahald, Pósthússtræti eða stjórnstöð,
Sundahöfn.
Starfsmannahald.
Lausstaða
Við rannsóknadeild skattstjóra Norðurlands-
umdæmis eystra eru tvær stöður rannsóknar-
fulltrúa lausar til umsóknar. Um er að ræða
krefjandi og áhugavert starf, sem veitir inn-
sýn í rekstur fyrirtækja og reikningsskil. Hér
er kjörið tækifæri fyrir ungan viðskiptafræð-
ing til að öðlast góða starfsreynslu og innsýn
í hringiðu atvinnulífsins. Umsækjendur þurfa
að geta unnið að nokkru leyti sjálfstætt.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist fyrir 15. ágúst nk. til
skattstjóra Norðurlandsumdæmis eystra,
sem jafnframt gefur frekari upplýsingar.
Skattstjóri Norðurlandsumdæmis eystra,
Hafnarstræti 95,
600Akureyri.