Morgunblaðið - 01.08.1987, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1987
49
Afmæliskveðja:
A
Ingi Ardal
stórkaupmaður
Öðlingurinn, stórkaupmaðurinn,
og stórvinur minn og mágur, Ingi
Árdal á Lokastíg 7 í Reykjavík er
áttræður mánudaginn 3. þ.m. Heið-
arleiki, snyrtimennska, lipurð og
greiðvikni eru höfuðkostir góðs
verslunarmanns. Svo vill til að með
þessari upptalningu eru höfuðein-
kenni afmælisbamsins jafnframt
tíunduð. Grandvarari og betri
dreng, ávallt reiðubúinn til að rétta
öðmm hjálparhönd, er örðugt að
ímynda sér. Færi betur að verslun-
arstéttin, og fleiri stéttir, ættu
marga slíka innan sinna vébanda.
Mér fínnst stórafmæli vinar míns á
hátíðisdegi verslunarmanna lyfta
þeirri stéttarímynd.
Ingi Árdal fæddist austur í
Stakkahlíð í Loðmundarfirði, höfuð-
bóli þeirrar fögru sveitar, sem dýr
og blóm landsins byggja nú orðið
ein. 0g einstaka kvikmyndagerðar-
menn um stundarsakir. Foreldrar
hans voru Theódóra Pálsdóttir Ár-
dal skálds og Sigurður Baldvinsson
frá Stakkahlíð, síðar póstmeistari í
Reykjavík; og hæfíleikann til að
breiða sig út yfir alla, hlífa sjálfum
sér í engu, og vera öðrum innan
handar með glöðu geði, hefír hann
beint frá móður sinni. Um það get
ég best borið, hún var tengdamóðir
mín.
Örlög réðu því að heiðurshjónin
Guðný Vilhjálmsdóttir og Einar
Sveinn Einarsson, föðurbróðir Inga
Árdal, tóku hann að sér komungan
á Seyðisfírði um stundarbil. En svo
fór að hann ólst að öilu leyti upp
hjá þeim og fluttist með þeim nokk-
urra ára gamall til Reykjavíkur.
Þeim Guðnýju og Einari Sveini varð
ekki bama auðið. En auk Inga,
gengu þau þremur systurbömum
hennar í foreldrastað, að foreldrum
þeirra látnum; þeim Sigfríði,
Guðnýju og Vilhjálmi Bjamar.
Guðný Vilhjálmsdóttir var annáluð
merkiskona, sem ég var svo lánsam-
ur að kynnast, en þá hafði hún
misst mann sinn. Enginn sonur
hefði getað reynst henni betri og
umhyggjusamari en Ingi. Henni
varð aldrei oflaunað atlætið í upp-
vextinum.
Ingi var 2 vetur í Menntaskólan-
um í Reykjavík, en hélt síðan til
Ameríku og var þar nokkur ár við
verslunamám og störf, sem síðar
kom í góðar þarfír. Eftir heimkom-
una starfaði hann um stundarsakir
á pósthúsinu í Reykjavík, en síðan
allmörg ár hjá heildsölufýrirtæki
Hallgríms Benediktssonar & Co.
Upp úr því stofnaði hann eigið fyrir-
tæki, Heildverslunina Ölfu, og rak
það um langt skeið eða þar til fýrir
fáeinum árum. Síðan hefír hann
rekið snyrtivömverslunina Hygeu.
Ingi Árdal kvæntist ágætri konu,
Helgu Bjömsdóttur frá Karlsskála
við Reyðarfjörð, árið 1934 og hafa
þau ætíð búið á Lokastíg 7, þar sem
Guðný fósturmóðir hans bjó einnig
til dauðadags. Þeim Helgu og Inga
varð tveggja bama auðið. Þau em
Guðný Ardal, er starfar hjá Flug-
leiðum, gift Gísla Alfreðssyni
þjóðleikhússtjóra, og Bjöm Árdal,
læknir, kvæntur Kolbrúnu Sæ-
mundsdóttur, píanóleikara. Bama-
börnin em 9 að tölu, hæfileikafólk.
Ingi og Helga komu sér snemma
upp sumarhúsi við Elliðavatn, sem
þau hafa verið að byggja við og
rækta skóg. Þar hefír löngum verið
unaðsreitur þeirra, bama þeirra og
bamabama og fleiri skyldmenna.
Þar hafa þau dvalist allt sumarið
og notið sældar og fegurðar lífsins
með vinum sínum. Vinur minn má
heita við sæmilega heilsu eftir at-
vikum og aldri, kvartar a.m.k. ekki.
Þó var líðanin slakari um skeið en
þá herti hann fangbrögðin við Elli
kerlingu og lætur ekki undan síga
fyrr en í fulla hnefana. Hann var
heldur ekki og er ekki einn í ráðum
í þeirri glímu, heldur hefír eiginkon-
an verið honum ómetanlegur
styrkur og þeim mun meiri sem
meira afls var þörf. Þá hefír honum
einnig reynst dtjúgt að hann var
íþróttamaður á yngri árum, og á
seinni ámm hefir sundið áorkað
miklu. Það er einlæg ósk okkar
Álfheiðar að þessi vinur okkar og
bróðir lifi enn lengi, en umfram
allt vel, eins og hann hefír ávallt
gert. Guð blessi góðan dreng.
Emil Björnsson
BrSds
Arnór Ragnarsson
50 pör mættu í sumarspila-
mennskuna sl. fímmtudag og var
þá spilað í 4 riðlum.
A-riðill Stig
Steinunn Snorradóttir —
Þorgerður Þórarinsdóttir 255
Gróa Guðnadóttir —
Guðrún Jóhannesdóttir 242
Júlíana Isebam —
Margrét Margeirsdóttir 242
Sigrún Pétursdóttir —
Gunnþórunn Erlingsdóttir 234
Sigríður Ingibergsdóttir —
Jóhann Guðlaugsson 221
B-riðiU Stig
Þórður Bjömsson —
Birgir Öm Steingrímsson 195
Friðjón Margeirsson —
V aldimar Sveinsson 194
Eyjólfur Magnússon —
Ólafur Bergþórsson 184
Karen Vilhjálmsdóttir —
Þorvaldur Óskarsson 175
C-riðUl Stig
Anton R. Gunnarsson —
Hjálmar Pálsson 223
Sigurður B. Þorsteinsson —
Haukur Ingason 199
Stefán Pálsson —
Steinberg Ríkharðsson 186
Amar Ingólfsson —
Magnús Eymundsson 177
Valdimar Elísson —
Lúðvík Wdowiak 163
D-riðill Stig
Albert Þorsteinsson —
Sigurður Emilsson 107
Erlendur Jónsson —
Oddur Jakobsson 105
Jacqui McGreal —
Þorlákur Jónsson 86
Skor Antons og Hjálmars í C-
riðli er sú hæsta á sumrinu. Eftir
22 spilakvöld í sumarbrids gæti
staðan í bronsstigakeppninni varla
verið tvísýnni: Sveinn Sigurgeirsson
288, Jacqui McGreal 287, Þorlákur
Jónsson 258, Jón Stefánsson 255,
Hulda Hjálmarsdóttir og Þórarinn
Andrewsson 230, Þórður Bjömsson
179, Anna Þóra Jónsdóttir og
Hjördís Eyþórsdóttir 159.
Hressilega skemmtunl
SÓL
Þverholti 17-21, Reykjavik