Morgunblaðið - 01.08.1987, Síða 64
I'ramtíð
ER VIÐ SKEIFUNA
aaaa
t SUZUKi
12 DAGAR
KRINGWN
KI5IHeNI/l
LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Fulltrúar ríkisvaldsins í Framkvæmdanefnd búvörusamninga:
Oheimilt að selja afurð-
ir umfram fullvirðisrétt
Tvímælalaust brot á búvörusamningnum
FULLTRÚAR ríkisvaldsins í
Framkvœmdanefnd búvðru-
samning'anna hafa sent Stéttar-
sambandi bænda bréf þar sem
lögð er fram sú spurning hvern-
ig nnnt. verði að stöðva sölu
einstakra framleiðenda á sauð-
fjár- og mjólkurafurðum sem eru
framleiddar umfram fullvirðis-
rétt. Telja fulltrúarnir að ef
einstakir framleiðendur ætli sér
að hefja sölu á þessum afurðum
innanlands sé um tvímælalaust
brot á samningi rikisins og Stétt-
arsambands bænda að ræða.
Á fundi Framkvæmdanefndar
búvörusamninga sem haldinn var á
fímmtudag var rætt um ráðstöfun-
arrétt sem framleiðendur hafa tekið
sér á afurðum umfram fullvirðis-
rétt. Fulltrúar ríkisvaldsins í
Morgunblaöið/Sverrir
Mikið annriki var við Umferðarmiðstöðina síðdegis í gær er fólk
bjó sig til ferðar um verslunarmannahelgina.
Mesta ferðahelgi
ársins gengin í garð
STÖÐUG umferð var frá höfuð-
borginni í gær og í gærkveldi,
Bakkafjörður
Sjö slasast
HARÐUR árekstur varð skammt
utan við Bakkafjörð í gær, þegar
tveir bílar lentu saman með þeim
afleiðingum að sjö manns slösuð-
ust.
Einn hinna slösuðu var fluttur
með flugvél Flugmálastjómar á
Borgarspítalann, þar sem hugað var
að meiðslum hans. Hann er ekki
talinn vera í lífshættu. Einnig fíaug
vél frá Flugfélagi Austurlands með
einn hinna slösuðu á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri og var þar
hugað að meiðslum hans, sem ekki
voru talin mjög alvarleg.
Veðríð:
Hæg norðan-
átt um helgina
ALLT bendir til að hæg norðlæg
átt verði allsráðandi um allt land
yfir helgina og 8 til 10 stiga hiti.
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofunni er hæð yfir Græn-
landi, en lægð yfír Skandinavíu.
í dag má búast við skýjuðu veðri
og sumstaðar verða skúrir á Norð-
ur- og Norðausturlandi en skýjað
með köflum, án úrkomu annars
staðar.
Á sunnudag og mánudag er spáð
svipuðu veðri með skúmm við
ströndina um norðanvert landið.
Sunnanlands er hætt við síðdegis-
skúrum.
Sjá veðurkort á bls. 4.
bæði um Suðurlands- og Vestur-
landsveg, er fólk lagði land undir
fót til þess að eyða verslunar-
mannahelginni út í náttúrunni.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar í Árbæ gekk umferðin
snurðulaust fyrir sig og lá öllu
meira um Vesturlandsveg, enda
virðist Húsafell ætla að verða vin-
sælast um helgina. Sömu sögu var
að segja frá Reykjavíkurflugvelli.
Þar ríkti annríki og mikið flogið
með gesti á þjóðhátíðina í Eyjum.
FYRRUM framkvæmdastjóri og
einn stærsti hlutkafi f fisksölu-
fyrirtækinu Icescot, sem nýlega
var kærður af nokkrum meðeig-
endum sínum fyrir meint
auðgunarbrot, hefur nú sent
kæru til Rannsóknarlögreglu
ríkisins. í kærunni er farið fram
á rannsókn á meintum hegning-
arlagabrotum framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins ísskott.
Fisksölufyrirtækið Icescot er í
eigu ísjenskra, skoskra og sænskra
aðila. ísskott er hins vegar dóttur-
fyrirtæki hins fyrmefíida og í
meirihlutaeign þess. Hinn íslenski
fyrrum framkvæmdastjóri Icescot
er jafnframt stjómarformaður ís-
skott.
15. júlí síðastliðinn sendi lög-
mannsstofa hér í bæ bréf til
Rannsóknarlögreglu ríkisins í um-
boði meirihluta hluthafa og stjómar
ísskott. Þar var þess farið á leit,
að hafín yrði opinber rannsókn á
ákveðnum ráðstöfunum stjómar-
framkvæmdanefndinni, þeir Sig-
urður Þórðarson skrifstofustjóri
fjármálaráðuneytisins og Guð-
mundur Sigþórsson skrifstofustjóri
landbúnaðarráðuneytisins, rituðu
bréf til Stéttarsambands bænda af
því tilefni.
Þar segir að nú liggi fyrir að
einstakir framleiðendur ætla sér að
heija sölu innanlands á mjólkur-
og sauðfjárafurðum sem þeir hafa
framleitt umfram fullvirðisrétt.
Verði af því er um tvímælalaust
brot á samningi ríkisins og Stéttar-
sambands bænda að ræða. Þeirri
spumingu er varpað til Stéttarsam-
bandsins á hvem hátt það telji unnt
að stöðva sölu einstakra framleið-
enda á þessum afurðum, eða að
öðmm kosti á hvem hátt sé unnt
að færa afurðimar sem um ræðir
innan þess magns sem samningur-
inn kveður á um og þar af leiðandi
að taka þær af fullvirðisrétti ann-
arra framleiðenda.
Fram kemur að það er skoðun
fulltrúa ríkisvaldsins að verði ekki
unnt að mæta sölu einstakra fram-
leiðenda á afurðum sínum á þennan
hátt séu þeir með framferði sínu
að bijóta samninginn sem Stéttar-
samband bænda hefur gert fyrir
þeirra hönd. Fulltrúamir leggja til
að Stéttarsambandið geri grein fyr-
ir því á hvem hátt það telur unnt
að tryggja að einstakir framleiðend-
ur bijóti ekki gegn samningi þess
við ríkisstjómina.
Áhersla er lögð á að búvöm-
samningar ríkisstjómarinnar og
bænda Qalli um verðábyrgð ríkis-
sjóðs á ákveðinni framleiðslu hjá
bændum. Ríkissjóður tryggir bænd-
um með samningnum fullt verð
fyrir allan útflutning afurða um-
fram innanlandssölu og innan
samnings með tilliti til nánara sam-
komulags um birgðastöðu hveiju
sinni. Því heildarmagni sem þannig
er samið um er síðan skipt á milli
bænda á grundvelli ákvæða sem
tiltekin eru í reglugerðum um full-
virðisrétt.
formannsins, vegna gruns um
refsivert athæfi varðandi fjármála-
stjóm fyrirtækisins.
Rekstur ísskotts hafði ekki geng-
ið sem skyldi og tapaði það miklum
fjármunum. Oánægðir hluthafar
tóku daglegan rekstur fyrirtækisins
úr höndum stjómarformannsins og
af hálfu þeirra var sett í gang end-
urskoðun og endurskipulagning á
starfsemi fyrirtækisins. Þessir aðil-
ar telja sig hafa rekist á fjölmörg
atriði við þessa athugun sem þeir
vilja að verði rannsökuð. Telja þeir
fyrmm stjómarformanninn hafa
nýtt sér sjóði félagsins tölvert um-
fram umsamin laun sín og dregið
sér fé úr reikningum fyrirtækisins.
í bréfínu til RLR er þess óskað
að eftirfarandi atriði séu tekin til
athugunar: í fyrsta lagi viðskipti
fyrirtækisins við bróður stjómar-
formannsins, í öðru lagi greiðslur
ísskott til ýmissa aðila, sem hlut-
hafamir telja að séu greiðslur á
persónulegum skuldum stjómar-
0
Icescot/Isskott:
Kærumál á
Morgunblaðið/Einar Falur
Jón Jónsson jarðfræðingur með picrit-hraunmola, sem alsettur
er grænum kristöllum.
Garðabær:
Hraunlög með möttulefni
finnast í gamalli eldstöð
„MER dettur helst í hug að þarna sé gömul eldstöð, sem hafi
gosið þessu sérstæða hrauni," sagði Jón Jónsson jarðfræðingur,
en við gatnaframkvæmdir við Lyngás í Garðabæ er talið að i
ljós hafi komið hraunlög með svokölluðu picrit-hrauni. í picrit-
hrauni er möttulefni úr iðrum jarðar og er sjaldgæft að slikt
hraun komi upp í eldstöðvum hér á landi.
„Það er nokkuð óvænt að fínna
litla eldstöð á þessum afmarkaða
stað, ekki síst innan um þetta
venjulega grágrýti sem hér er allt
í kring," sagði Jón. „Bergið norð-
an í Hraunsholti nær neðan frá
sjó og upp í 30 metra að minnsta
kosti en holtið er hæst 35 metrar
yfír sjó. Þetta eru því all nokkur
hraunlög þó millilögin sjáist ekki
og hefur líklega runnið með litlu
eða engu millibili."
Hann sagði að vitað væri um
nokkrar aðrar smá dyngjur á
Reykjanesi, þar sem svipað hraun
hefði komið upp, og nefndi sem
dæmi dyngju austur við Hlíðardal
þar sem heitir Dimmidalur og
Ásar, sem eru rétt vestan við
Hlíðardalsskóla í Ölfusi. „Þar hef-
ur komið upp hraun sem mér
sýnist vera svipað þessu en ég vil
hafa þann vara á að við erum
ekki búnir að rannsaka hraunið í
Garðabæ til hlitar. Þetta hraun
er verulega áberandi og mjög fal-
legt,“ sagði Jón.
báða bóga
formannsins, og í þriðja lagi
launagreiðslur stjómarformannsins
til sjálfs sín, sem væru langt yfír
umsamin launakjör.
í gær sendi fyrrum fram-
kvæmdastjóri Icescot og stjómar-
formaður ísskott kæra til
Rannsóknarlögreglu ríkisins á
hendur_ núverandi framkvæmda-
stjóra ísskott, þar sem óskað var
rannsóknar á eftirfarandi kæraat-
riðum: í fyrsta lagi að fram-
kvæmdastjórinn, sem hafi annast
öll kaup á físki fyrirtækisins, hafí
tekið öll hrogn og alla lifur til sín
frá upphafi fram í maíbyijun og
þannig hlunnfarið fyrirtækið. í öðra
lagi hafí óeðlileg rýmun átt sér stað
á físki og ástæða sé til að ætla að
hann hafí stolið físki frá fyrirtæk-
inu.
í bréfinu segir síðan: Það var
stefna fyrirtækisins, sem stofnsett
var síðastliðið haust, að kaupa sem
mest af físki hér á landi, sem síðan
var seldur á uppboðsmörkuðum í
Hull og Grimsby. Um þetta vora
allir sammála, en sú stefna var
bersýnilega röng, því útkoman var
stórfellt tap. Nú vilja skoskir með-
eigendur (hér er ekki átt við hinn
skoska byggðasjóð) kenna mér ein-
um um þessar ófarir og er mér
meinaður aðgangur að bókhalds-
gögnum fyrirtækisins. Ég get því
ekki lagt fram gögn til stuðnings
kæra minni."
Um kærana gegn sér segir
stjómarformaður Isskott: „Vegna
framkominnar kæru um auðgunar-
brot á hendur mér, vil ég taka
sérstaklega fram, að ég hef ekki
gerst sekur um auðgunarbrot og
er tilgangur skoskra meðeigenda
sem era ákaflega gramir vegna
tapsins á fyrirtækinu, sá einn að
koma á mig höggi. Mun rannsókn,
ef fram fer, ieiða þetta í ljós. Það
er aftur annað mál, að það má fínna
að nokkram atriðum í bókhaldi, en
að um refsivert athæfí sé að ræða,
er hrein fjarstæða."