Morgunblaðið - 15.08.1987, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1987
Jón Baldvin Hannibals-
son fjármálaráðherra:
Tilboð sem
ekki erhægt
að hafna
„ÞETTA ER tilboð sem ekki er
hægt að hafna hver sem í hlut
á,“ sagði Jón Baldvin Hannibals-
son, fjármálaráðherra og
formaðurAlþýðuflokksins.
„Hrun Útvegsbankans þýddi að
ríkissjóður yfirtók skuldir bankans
upp á 764 milljónir auk lífeyris-
skuldbindinga bankans. Ákveðið
var að breyta bankanum í hlutafé-
lag og selja á almennum markaði.
Fiskveiðisjóður hefur þegar keypt
hlut í nýja bankanum upp á um 200
milljónir. Nú hefur Sambandið gert
ákveðið tilboð sem er í samræmi
við þá skilmála sem settir voru í
hlutafjárútboðinu.
Það er ljóst að bankakerfið þarfn-
ast róttækrar endurskipulagningar.
Við þurfum færri og stærri banka.
Hlutafjárbanka þar sem rekstrar-
ábyrgð er skýr án ríkisábyrgðar.
Ef þessi breyting sem nú er í vænd-
um leiðir til samruna, í fyrsta kasti
þriggja banka, með hlutaaðild er-
lends viðskiptabanka í leiðinni, eins
og rætt er um, þá er það þróun í
rétta átt.
Aðrir, sem hafa lýst áhuga á að
gera þetta, eins og ýmis hagsmuna-
öfl í sjávarútvegi, geta sjálfum sér
um kennt. Það var augljóst að þetta
ástand gat ekki varað. Málið verður
rætt í ríkisstjóminni á þriðjudaginn
en mér finnst yfirgnæfandi rök
hníga að því að þessu tilboði eigi
að taka.
Jón Sigurðsson, við-
skiptaráðherra:
Þetta
tilboð er
athyglisvert
„ÞETTA tilboð er athyglisvert,“
sagði Jón Sigurðsson, viðskipta-
ráðherra um tilboð Sambandsins:
„Það er gert á grundvelli útboðs
ríkisins frá þvi í vor og miðast
við þau kjör sem þá voru boðin.“
Jón Sigurðsson sagði að tilboðið
væri athyglisvert af tveimur ástæð-
um. í fyrsta lagi vegna þess að það
virðist geta stuðlað að fækkun
banka og aukinni hagkvæmni í
bankakerfínu, sem er stefna ríkis-
stjómarinnar. Og í öðm lagi vegna
þess að með því væri hægt að draga
úr ábyrgð og afskiptum ríkisins af
bankarekstri. „Þetta gæti verið
byrjun að uppstokkun í bankakerf-
inu sem talað hefur verið um í 20
ár,“ sagði Jon og bætti við: „Auk
þessa er það mikilvægt að létta af
skattþegnum þessa lands þeim íjár-
skuldbindingum sem ríkið tók á sig
fyrir þeirra hönd vegna Útvegs
bankans í vetur." Ráðherra sagðist
ætla að skoða tilboðið á næstu dög-
um og taka afstöðu til þess.
Jón Sigurðsson benti á að þama
væru tengd fyrirtæki sem sumir líti
á sem einn aðila að ná mikilvægum
tökum á banka, en það liggi í hlutar-
ins eðlis að möguleikamir séu ekki
margir hér innanlands að fá svo
mikið hlutafé.
„Ég hef tilhneigingu að líta á
bankarekstur fyrst og fremst sem
atvinnurekstur og lít á þetta tilboð
í því ljósi. Ég veit af þessum sjónar-
miðum og lít ekki fram hjá þeim,
svaraði Jón Sigurðsson þegar hann
var spurður að því hvort það væri
gleðiefni fyrir Alþýðuflokkinn að
Sambandið eignist meirihluta í Út-
vegsbankanum þegar það hafi
þegar mikil áhrif á rekstur Búnað
arbankans og einhver áhrif í
rekstur Landsbankans, eins og
margir haldi fram. „Ég tel hins
vegar að fjárhagsleg bankasjónar-
mið eigi fyrst og fremst að ráða
æssari ákvörðun.
Það er hugsanlegt að þessi
bankaítök og viðskipti sem þú
nefndir í öðmm bönkum flytjist
milli banka, en um það skal ég
engu spá. Það væri í andstöðu við
stefnu ríkisstjómarinnar að leggja
alltof mikið upp úr þessu, þar sem
)að er hennar yfírlýsta stefna að
draga úr pólitískum áhrifum í bönk-
unum og fækka þeim," sagði Jon
Sigurðsson, viðskiptaráðherra.
Sigurður Einarsson for-
stjóri Hraðfrystistöðvar
Vestmannaeyja:
Ákveðið áfall
,ÞETTA eru stórfréttir og líka
ákveðið áfall,“ sagði Sigurður
Einarsson, forstjóri Hraðfrysti-
stöðvar Vestmannaeyja í samtali
við Morgunblaðið.
„Ég hafði gert mér þær vonir
að fyrirtæki í sjávarútvegi myndu
sameinast um að kaupa bankann,
eftir að ákveðið var að breyta hon-
um í hlutafélag. Maður átti síst von
á að Sambandið myndi vilja kaupa
Útvegsbankann.
Ég er frekar uggandi. Útvegs-
bankinn er eini bankinn sem er með
útibú í Vestmannaeyjum og það er
jafnframt stærsta bankaútibúið ut-
an Reykjavíkur. Þar em heldur
ekki nein fyrirtæki sem selja í gegn-
um Sambandið og einu ítök þess í
Vestmannaeyjum er lítið kaupfélag.
Maður veit ekki hvort þetta á eftir
að breytast ef af þessu verður."
Jónas H. Haralz, banka-
stjóri Landsbankans:
Tilefni til
meiriháttar
breytinga á
ríkisbönkum
„MÉR virðist það vera umhugs-
unarvert hvort þessi uppstokkun,
ef af henni verður, eigi ekki að
verða tilefni til meiriháttar
breytinga á skipulagi ríkisban-
kanna tveggja, Landsbankans og
Búnaðarbankans,“ sagði Jónas
H. Haralz bankastjóri Lands-
bankans þegar hann var spurður
um álit hans á tilboði SÍS í hluta-
bréf Útvegsbankans.
„Ég tel eins og oft hefur komið
fram að mikil þörf sé á breytingum,
samanber grein Þorvaldar Gylfa-
sonar, prófessors um bankamál í
Morgunblaðinu í gær.“ Jónas hefur
oft fært rök fyrir því að breyta eigi
ríkisbönkunum í hlutafélög og að
hlutabréf verði seld á nokkmm
ámm, a.m.k. í öðmm bankanum.
Að öðm leyti vildi hann ekki að
sinni segja frekar um málið.
Guðmundur Hauksson,
bankastjóri
Utvegsbankans:
Góð
fjárfesting
„Ég skil mjög vel að Sambandið
vilji kaupa hlutabréf því þetta
er góð fjárfesting,“ sagði Guð-
mundur Hauksson, bankastjóri
Útvegsbanka íslands hf.
„Bankinn er öflugur og á góða
framtíð, þannig að þetta er sterkur
leikur." Guðmundur sagði að því
öflugri og stærri sem bankastofn-
anir væm því betur gætu þær sinnt
sínu hiutverki og hafði þar í huga
áform um að sameina Útvegs-
bankann og Samvinnubankann og
hugsanlega Alþýðubankann.
Baldur Guðlaugsson,
bankaráðsmaður í
Útvegsbankanum:
Þetta er ekki
undrunarefni
„ÞAÐ var ekki vonum fyrr að
einhver tæki við sér, þegar í
boði eru hlutabréf í banka sem
hefur þá möguleika sem Útvegs-
bankanum hefur," sagði Baldur
Guðlaugsson, ritari bankaráðs
Útvegsbankans hf. þegar hann
var spurður um álit hans á til-
boði SÍS.
„Frá byijun var það ætlun ríkis-
ins sem hafði fmmkvæði að því að
stofna hlutafélag til jrfírtöku á Út-
vegsbankanum, að selja hlutabréf-
in. Hér er um gamalgróin banka
að ræða með víðtæk bankasambönd
og sem nýtur trausts og tiltrúar
um allt land þrátt fyrir undangeng-
ið erfiðleikatímabil. Það er því
ekkert undmnarefni þó aðilar eins
og Sambandið sækist eftir að eiga
hlutabréf í slíkum banka," sagði
Baldur Guðlaugsson.
Magnús Gunnarsson
framkvæmdastjóri SIF:
Ekki óeðlilegt
aðSÍSviIji
tryggja
stöðu sína á
fjármagns-
markaðinum
„ÞAÐ ER ekkert óeðlilegt að SÍS
vilji tryggja sér sterka stöðu á
fjármagnsmarkaðinum. Þeir eru
að gera fyrir sjálfa sig það sem
ég hefði viljað sjá sjávarútveginn
gera,“ sagði Magnús Gunnars-
son, framkvæmdastjóri Sölusam-
bands íslenskra fiskframleið-
enda.
„Eins og komið hefur fram þá
höfðu aðilar innan sjávarútvegsins
áhuga á að eignast stóran hlut í
Útvegsbankanum og var málið til
umræðu í vor. Þessi umræða hægði
á sér í sumar en ég held að menn
hafi almennt ætlað sér að kanna
betur þegar líða tæki á sumarið
hvort ekki væri hægt að ná saman
nægilega stómm hóp innan sjávar-
útvegsins til þess að framkvæma
þessar hugmyndir. Það var ljóst að
ef til þess ætti að koma þyrfti
breiða samstöðu. Það má segja að
samstaðan hafi ekki verið nægilega
ákveðin til þess að menn gætu lok-
ið þessu og því tók þetta lengri tíma.
Niðurstaðan er sú að kominn er nýr
kaupandi og ekkert við því að segja.
Mín persónulega skoðun er sú
að æskilegt hefði verið fyrir sjávar-
útveginn að sameinast um eignar-
aðild á nýjum banka með mikil
erlend viðskipti og sambönd. Það
hefði verið styrkur fyrir sjávarút-
veginn, í ljósi hins aukna frelsis í
gjaldeyris- _og lántökumálum, að
geta keypt Útvegsbankann og verið
í sameiningu með þessi tengsl sem
munu í framtíðinni þróast milli
íslenskra og erlendra lánastofnana.
Það er gott að vera með góð tengsl
við það sem er að gerast í fjármála-
heiminum og því hefði verið gott
að eignast svona þjónustustofnun.
Lærdómurinn sem sjávarútveg-
urinn verður að draga af þessu
máli er að efla sína innri samstöðu
til að geta byggt sig vel upp.“
Gísli Ólafsson,
bankaráðsformaður
Útvegsbankans:
Hagkvæmt
tilboðfyrir
SÍS
„ÉG TEL þetta vera hagkvæmt
tilboð fyrir SÍS og dótturfélög
þess,“ sagði Gísli Olafsson, for-
maður bankaráðs Útvegsbank-
ans.
„Sambandið á þegar einn banka
fyrir og ef af þessum kaupum verð-
ur á það eflaust eftir að styrkja
stöðu sína í þjóðfélaginu. Það liggur
þó ekki fyrir hvemig og til hve langs
tíma eigi að greiða eftirstöðvamar.
Um það virðist ósamið samkvæmt
fréttatilkynningu Sambandsins.
Viðskiptaráðherra hefur tilkynnt
mér að hann muni ekki taka af-
stöðu til þessa tilboðs fyrr en á
þriðjudaginn en fundur hefur verið
kallaður saman í bankaráðinu á
miðvikudaginn."
Jón Ingvarsson stjórnar-
formaður SH:
Kemur veru-
lega á óvart
„ÞETTA kom okkur óneitanlega
verulega á óvart vegna þeirrar
afstöðu Sambandsins, sem kom
fram á sínum tíina, að það hefði
ekki áhuga á hlutafjárkaupum,"
sagði Jón Ingvarsson, stjórnar-
formaður Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna.
„Við höfum hinsvegar, ásamt
einkaaðiium og fyrirtækjum, eink-
um í sjávarútvegi og verslun, rætt
um verulega þátttöku margra aðila
við kaup á hlutafé. Það hefur verið
unnið að þessu að undafomu og
töldum við okkur hafa frest til
haustsins. Þess vegna kemur þetta
okkur á óvart."
Magnús Kristinsson,
útgerðarmaður í
Vestmannaeyjum:
Sambandið
getur farið að
stilla okkur
upp við vegg
„ÞAÐ ER vissulega ánægjuefni
að loksins skuli einhver taka sig
til og bjóða í hlutafé Útvegs-
bankans," sagði Magnús Krist-
insson útgerðarmaður i
Vestmannaeyjum. „Aðilar í sjáv-
arútvegi eru búnir að hafa ár til
þess að bjóða í hlutaféð, en ekk-
ert aðhafst. Hins vegar hlýtur
maður að óttast það sem er að
gerast."
Magnús taldi að útgerðarmenn
og fiskverkendur hefðu aldrei boðið
í meira en 50% hlutaíjár, þannig
að afgangurinn hefði verið eftir
óseldur. Aðspurður kvaðst hann
ekki eiga von á því að þessir aðilar
tækju nú kipp og byðu í hlutaféð.
I fyrsta lagi væri ríkisstjóminni
vart stætt á því að selja aðeins hluta
hlutaíjárins, enda viðbúið að Sam-
bandið kærði sig ekki um að kaupa,
hefði það ekki meirihluta, í öðru
lagi fæli tilboð Sambandsins í sér
mikla hagræðingu í bankakerfínu
og í þriðja lagi væri örðugt að sjá
arðsemina í því að bjóða betur en
Sambandið.
Magnús kvaðst hafa verið á móti
því að gera bankann að hlutafé-
íagi; eðlilegra hefði verið að seija
eignir bankans og skipta viðskipt-
um hans upp á milli hinna ríkis-
bankanna; ríkið hefði þannig
uppskorið um milljarð króna. Ekki
hefði verið hlustað á þessar hug-
myndir, heldur hefði ofuráhersla
verið lögð á að gera bankann að
hlutafélagsbanka. „Frjálshyggju-
gauramir súpa nú seyðið af þessari
þráhyggju sinni og nú sitjum við
Vestmanneyingar uppi með það að
stór einvaldur tekur yfír „okkar"
banka og getur að vild farið að
stilla okkur, samkeppnisaðilum
sínum, upp við vegg."
Ólafur Stefánsson,
varaformaður
starfsmannafélags
Útvegsbankans:
Starfsmenn
ættuekkiað
hafa áhyggjur
„Útvegsbankinn verður mjög
stór og öflug eining ef af þessum
kaupum verður og varla nema
gott eitt um það að segja,“ sagði
Olafur Stefánsson varaformaður
starfsmannafélags Útvegsbank-
ans í tilefni af tilboði Sambands-
ins í hlutabréf Útvegsbankans.
„Samkeppnisaðstaða bankans
ætti að batna og yrði þetta hon-
um væntanlega til góðs.
Ólafur kvað þessa fregn vera það
nýja, að lítii tækifæri hefðu gefíst
til þess að ræða þessi mál hjá starfs-
mannafélaginu. „Margir stjómar-
manna í félaginu em í sumarfríi,
en við sem eftir erum munum
líklega funda í kvöld." ólafur sagði
að almennur fundur hjá starfs-
mönnum ekki yrði fyrr en endanleg
ákvörðun í málinu lægi fyrir af
hálfu ráðherra. Hann kvað starfs-
menn bankans líklega ekki þurfa
að hafa áhyggjur af því að þetta
bitnaði á þeim; hagræðing í starfs-
mannahaldi myndi líklega fara
þannig fram, að fækkað yrði á
nokkram áram með þvi ráða ekki
nýtt starfsfólk; slíkt ætti að taka
skamman tíma, enda væri mikil
hreyfíng á bankastarfsfólki.