Morgunblaðið - 15.08.1987, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1987
Deilan um v-þýzku eldf laugarnar:
Svar Kohls
enn ókomið
Bonn, Reuter.
KANZLARI Vestur-Þýzkalands, Helmut Kohl, hefur enn ekkert sagt
um það hvort Pershing 1—A lgarnorkuflaugarnar í landinu verði
taldar með í samningum risaveldanna um útrýmingu meðaldrægra
flauga. Mikill ágreiningur er nú meðal flokkanna í samsteypustjórn
Kohls um flaugarnar.
Talsmaður stjómarinnar, Her-
bert Schmiilling, sagði á frétta-
mannafundi í gær að Kohl myndi
ekki svara strax opnu bréfi frá jafn-
aðarmönnum í stjómarandstöðu,
þar sem hann er hvattur til að gera
flaugamar ekki að hindmn í vegi
fyrir samningum risaveldanna.
„Hann er ekki vanur að svara opn-
um bréfum," sagði Schmulling og
bætti við að staðan innan stjómar-
innar hefði ekkert breytzt.
Jafnaðarmannaflokkurinn bíður
ERLENT
nú eftir því að Kohl svari bréfínu
áður en ákveðið verður hvort flokk-
urinn gengur til liðs við græningja
í því að krefjast þess að þingið verði
kallað saman og sérstök atkvæða-
greiðsla um flaugamar fari fram.
Tveir af foringjum fijálsra demó-
krata, þeir Uwe Ronneburger
vamarmálafulltrúi og Martin Ban-
gemann efnahagsráðherra, hafa
opinberlega gagnrýnt þá stefnu
stjómarinnar að halda í flaugamar.
Frjálsir demókratar tryggja þing-
meirihluta stjómarinnar.
íhaldsmenn innan stjómarinnar
vörðu í gær stefnu Kohls og sögðu
kröfu Sovétmanna um eyðingu
Pershing-flauganna, ætti að verða
af samkomulagi, aðeins bragð til
þess að gera erfíðara um samninga
og skaða tengsl Þýzkalands og
Bandaríkjanna.
Háhyrningurá sædýrasafni
Reuter
Háhymgingurinn Guðrún er á sædýrasafni í Harder-
wijk í Hollandi. Háhymingurinn verður fluttur í
dýragarð í San Diego í Bandaríkjunum í október.
Segja hollenskir embættismenn að hvalurinn verði
brátt kynþroska og þurfi að svamla með hvölum af
sömu tegund til þess að kynnast staðreyndum lífsins.
Guðrún hefur hingað til verið í samfloti við höfr-
unga. Á mjmdinni er starfsmaður sædýrasafnsins í
Harderwijk í þá mund að gefa háhymingnum að éta.
Finnland:
Hægrímenn njóta mests fylgis
Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins í Helsinki.
FINNSKI hægriflokkurinn Kokoomus hefur nú mest fylgi finn-
skra stjómmálaflokka samkvæmt nýlegri skoðanakönnun.
Hægrimenn unnu mikið á í þingkosningunum í vor og samkvæmt
könnun, sem finnska Gallup-stofnunin framkvæmdi fyrir helstu
stjóramálaflokkana nýtur Kokoomus eða Sameiningarflokkurinn
nú meira fylgis en jafnaðarmenn, sem eru stærsti flokkurinn á
finnska þinginu. Saman höfða flokkarair til um helmings kjósenda.
Skoðanakönnunin var framkvæmd
í júní, en niðurstöður hennar voru
ekki ætlaðar til opinberrar birting-
ar heldur aðeins sem leiðarvísir
handa flokkunum. Samkvæmt
könnuninni eru 25,2% þjóðarinnar
fylgismenn Sameiningarflokksins
og 24,8% hlynnt jafnaðarstefn-
unni. Munurinn er lítill ogtalsmenn
flokkanna segja hann innan eðli-
legra óvissumarka, þannig að ekki
sé ráðlegt að taka of mikið mark
á honum. Þingmenn Sameiningar-
flokksins fögnuðu þó fréttunum á
sumarfundi sínum í borginni St.
Michel.
Þessa dagana halda helstu
stjómmálaflokkar sumarfundi til
að hugsa upp herbrögð til að nota
í umfjöllun um ijárlög næsta árs.
Þau munu koma til umræðu í ríkis-
stjóminni á næstunni. Eitt helsta
stefnumál ríkisstjómar jafnaðar-
manna og hægrimanna er end-
umýjung skattakerfísins, en
flokkana hefur greint á um fram-
kvæmd hennar.
Þetta er í fyrsta skipti sem
hægri- og jafnaðarmenn eiga að
koma sér saman um sameiginlegt,
fjárlagafrumvarp, og þykir þvii
skiljanlegt að flokkamir vilji vita.
hvort samstjóm þeirra sé vinsæl
meðal almennings. Jafnaðarmenn
vilja ekki gera mikið úr því að
þeir séu með meira fylgi en Sam-
einingarflokkurinn, flokkur Harris
Holkeri forsætisráðherra. Hægri-
menn hafa áður fengið meira fylgi
í skoðanakönnunum, en hingað til
hafa fleiri kjósendur fylkt sér um
Jafnaðarmannaflokkinn á kjör-
degi.
Stjómin er sú fyrsta, sem hægri
menn taka þátt í í tvo áratugi.
Talsmenn flokkanna benda sérs-
taklega á að skoðanakönnunin sýni
aukið fylgi beggja, sem bendi til
þess að kjósendur séu tiltölulega
ánægðir með samstarf flokkanna,
sem áður voru taldir erkifjendur í
fínnskum stjómmálum.
Þegar ríkisstjóm Holkeris var
mynduð í vor vom margir þeirrar
skoðunar að flokkamir fæm í
stjóm eingöngu vegna valdafíkni,
og að stefnuskrá stjómarinnar
væri svo óglögg að þar væri í raun
engu heitið. Nú hafa flokkamir
undirbúið kröfur sínar um fjárveit-
ingar af fjárlögum 1988, hvor í
sínu lagi. Sameinigarflokkurinn
hefur einbeitt sér að skattamálum
og þörfum bamafjölskyldna. Jafn-
aðarmenn hafa hins vegar lagt
áherslu á þátttöku ríkisins í barát-
tunni gegn atvinnuleysi. Skoðana-
könnunin gæti verið vísbending um
að stjómin hafí tryggt sig í sessi
og flokkamir geti nú einbeitt sér
að því að hrinda stefnumálum
sínum í framkvæmd. Þriðji stærsti
flokkurinn, Miðflokkurinn, fékk
ekki nema 16,3% fylgi og Alþýðu-
bandalagið, þar sem kommúnistar
em sterkasti aðildarflokkurinn,
fékk 9,2%. Aðrir flokkar fengu
minna fylgi.
PANASONIC
FOTORAFHLAÐAN
Sú rétta í myndavélina.
Rafborgsf.
s.11141.
AMERISKAN BIL.
NIPPARTS
Það er sama hverrar
þjóðar bíllinn er.
Við eigum varahlutina.
EIGUM A LAGER:
KÚPLINGAR, KVEIKJUHLUTI/BREMSUHLUTI,
STARTARA, ALTERNATORA, SÍUR,AÐALLJÓS,
BENSÍNDÆLUR, ÞURRKUBLÖÐ ofl.
KREDITKORTA ÞJÓNUSTA
Úrvals varahlutir
■&W
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300