Morgunblaðið - 15.08.1987, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1987
39
I dag stendur fyrir dyrum Rykkrokk, tónleikar á vegum Fellahellis, þar sem
óreyndum hljómsveitum er gefinn kostur á að koma fram með þeim sveitum
sem ráðsettari eru. I þetta sinn verður Rykkrokkið, sem nú er skipulagt af Fella-
/ Da9skráiir~~~~
/ v&rðurá
/ />ennan veg:
\1?/s píimahkúrsbandi*.
\l9Jo ÓþT^n' /
[20.30 S/HH Íam /
2J.0S Bleik?hmUr h
2i.4o r
■—1—^í‘Urniolarnir /
Ljósmynd/BS
Rauðir fletir
S/H draumur
Blátt áfram
Blátt áfram er ekki meðal yngri
hljómsveita en hefur samt ekki
spilað víða. Hljómsveitin var form-
lega stofnuð fyrir tveimur árum en
hefur verið í núverandi mynd í um
tvo mánuði. Hljómsveitarmeðlimir
eru Geir Gunnarsson trommuleik-
ari, Sigvarður Ari Huldarsson
gítarleikari, Gunnlaugur Guð-
mundsson bassaleikari og Inga
H. Guðmundsdóttir söngkona.
Eins og áður sagði hefur hljóm-
sveitin ekki komiö víða fram en tók
þó þátt í hljómsveitakeppninni í
Húsafelli og varð þar í öðru sæti.
Þau tvö skipti sem hljómsveitin lék
þar eru einu skiptin sem hún hefur
ieikiö opinberlega f núverandi
mynd.
Mor/funblaðið/Svemr
S/H draumur
Ekki er mikil þörf á að kynna
Svart/hvítan draum. Hljómsveitin
er fimm ára gömul og hefur víða
spilað. Hún hefur sent frá sér kass-
etturnar Listir með orma og Itch,
sem gefin var út vestan hafs, og
plötuna Bensínskrímsliö skríður, á
merkinu Erðanúmúsík, og á auk
þess þrjú lög á hinni ágætu safn-
snældu Snarl. Hljómsveitina skipa
nú þeir Gunnar Hilmarsson bassa-
leikari, Guðjón Steingrímur gítar-
leikari og Birgir Baldursson
trommuleikari.
Bleiku bastarnir
Bleiku bastarnir eru Reykjavík-
urhljómsveit sem verður tveggja
mánaða í þann mund sem sveitin
spilar á Rykkrokktónleikunum.
Bleiku bastarnir eru Tryggvi Thay-
er rythmagítarleikari, Páll Thayer
bassaleikari, Björn Baldvinsson
söngvari, Magnús Þorsteinsson
trommuleikari og (var Árnason
gítarleikari. Þetta verður í annað
sinn sem hljómsveitin kemur fram,
en hún kom eitt sinn fram á tón-
leikum í Casablanca og þá undir
dulnefni. Þá léku bastarnir hrátt
rokk með skemmtilega svæsnum
textum.
Sylíw'noiSf^
Rauðir fletir
Rauðir fletir eru búnir að starfa
í rúmt ár, en fyrstu tónleikar sveit-
arinnar voru á afmælistónleikum
Reykjavíkur í fyrrasumar. Hljóm-
sveitina skipa Davíð Traustason
söngvari, Kolbeinn Einarsson
gítarleikari, Hermann Jónsson
bassaleikari, Bragi Bragason gítar-
leikari og Ingólfur Sigurðsson
trommuleikari. Hljómsveitin sendi
frá sér tólftommu með fjórum lög-
um á fyrir jólin í fyrra og lag af
þeirri plötu, Þögn af plötu, náði
nokkrum vinsældum. Þá spilaði
hljómsveitin melódískt létt rokk og
gerir reyndar enn þó rokkið sé
kannski orðið eitthvað harðara.
>ynd/Bs
Sykurmolarnir
Sykurmolamir eru lokahljóm-
sveit kvöldsins og einnig reynd-
asta hljómsveitin. Þeir hafa víða
spilað og sveitarmeðlimir eru nær
allir vel sjóaðir í tónlistinni. Hljóm-
sveitina skipa Þór Eldon gítarleik-
ari, Einar Örn Benediktsson
söngvari, Björk Guðmundsdóttir
söngkona, Bragi Ólafsson bassa-
leikari og Sigtryggur Baldursson
trommuleikari. Eftir hljómsveitina
liggur lítil plata sem kom út seint
á siðasta ári og væntanleg er tólf-
tomma sem einnig verður gefin
út á Englandi.
helli í samvinnu við Bylgjuna, haldið í porti Fellaskóla í Breiðholti. Rykkrokkið
hefur verið haldið tvisvar frá árinu 1984, féli niður 1986 vegna afmælis Reykjavík-
ur, og er óðum að vinna sér sess sem árviss viðburður. Að þessu sinni taka
tíu hljómsveitir þátt, hljómsveitirnar Bláa bílskúrsbandið, Prima, Bootlegs,
Múzzólíní, Oþekkt andlit, Blátt áfram, Bleiku bastarnir, S/H draumur, Rauðir flet-
ir og Sykurmolarnir. Þrjár sveitanna, S/H draumur, Rauðir fletir og Sykurmolarnir,
teljast ráðsettar en hinar eru aliar ýmist búnar að koma tvisvar/þrisvar fram,
eða alis ekki. Af ofangreindu má sjá að á tónleikunum verða nokkrar af áhuga-
verðustu sveitum landsins og á varla að þurfa að hvetja alla til að koma og hlýða
á. Sérstakir gestir kvöldsins verða síðan þeir Bubbi Morthens og Megas en það
var ákveðið á síðustu stundu. Auglýst dagskrá raskast eitthvað af þeim sökum,
en ekki er Ijóst hve mikið. Aætlað er að þeir félagar komi fram um 20.30.
Ekki sakar að geta þess að lokum að aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Texti Árni Matthíasson