Morgunblaðið - 15.08.1987, Page 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1987
fclk í
fréttum
Morgunblaðið
Systkinin fjögur með böm sín í fanginu. Fyrir aftan standa makar þeirra. Frá vinstri em Haraldur
með Freyju Rós i fanginu og María kona hans, Kristín með Elvar Má og Halldór, Margrét með Bjaraa
og Valgeir, Björg með Aðalstein og Sigfús maður hennar.
Sérstæð skírn í
Hagakirkju á Barðaströnd
Fjögur systkini frá Haga á
Barðaströnd létu skíra böm sín
samtímis í Hagakirkju 1. ágúst
síðastliðinn, þtjá drengi og eina
telpu. Hlutu bömin nöfnin Aðal-
steinn, Bjami, Elvar Már og Freyja
Rós.
Systkinin em böm Kristínar
Haraldsdóttur og Bjama Hákonar-
sonar og heita Björg, Margrét,
Kristín og Haraldur.
Þórarinn Þór prófastur á Pat-
reksfirði skírði, en hann hafði
jafnframt fermt systkinin. Til gam-
ans má geta þess að bömin eru öll
fædd á tímabilinu apríl til júlí í
fyrra.
Að halda uppi merkinu
Þegar Yoko Ono kom með Sean, ellefu ára son þeirra John Lennons heitins, á opnun sýningar á mál-
verkum eftir Lennon í Beverly Hills, ráku margir upp stór augu. Drengurinn er nefnilega mjög líkur
foður sínum, eins og sjá má á mynd sem tekin var við þetta tækifæri. Yoko hefur fram til þessa haldið
drengnum utan við sviðsljósið, en er farin að taka hann með sér nýverið. Hún segir þá feðga ekki síður
vera líka í lund en útliti.
Nú er bara spumingin hvort sonurinn getur í framtíðinni samið jafnljúf lög og faðirinn gerði.
Gígja Sigurðardóttir látúnsbarki og textahöfundur.
Látúnsbarkí
á Hótel Söffu
Gígja Sigurðardóttir er einn
látúnsbarkanna sem Stuð-
menn uppgötvuðu og sungu fyrir
landsmenn í beinni útsendingu frá
Tívolí í Hveragerði. Nú mun Gígja
syngja á Hótel Sögu í kvöld og
næstu helgar við undirleik hljóm-
sveitarinnar Klassík. En Gígja er
ekki nýgræðingur á dægurlaga-
sviðinu. Hún er nú nítján ára en
var ekki nema fimmtán ára göm-
ul þegar hún samdi textann við
lagið Pamela í Dallas sem Dúk-
kulísumar fluttu og varð geysivin-
sælt árið 1984. Og seytján ára
byijaði hún söngferil sinn með
hljómsveitinni Náttfara frá Egils-
stöðum, sem hinn góðkunni Ami
ísleifsson stjómaði. Hún hefur
sungið allar götur síðan, með
hljómsveitinni Ökklabandinu sem
varð til úr Náttfara og í seinni tíð
líka með hljómsveitinni Ef til vill,
sem ef til vill breytir bráðlega um
nafn að sögn Gígju. Og hún seg-
ist semja talsvert af textum
jafnframt því að syngja.
Allan þennan tíma í tónlistar-
stússinu hefur Gígja numið við
Menntaskólann á Egilsstöðum, á
uppeldisbraut, sem hún braut-
skráist frá um næstu áramót. Hún
er spurð hvort það hafi ekki verið
erfítt að gera hvorttveggja í senn,
að æfa og syngja með danshljóm-
sveit allan veturinn og að vera í
skóla.
„Nei, ekki svo mjög,“ svarar
Gígja. „Á meðan aðrir fóru út í
íþróttahús á körfuboltaæfmgu,
fór ég og æfði með hljómsveit-
inni. Mín vinna var svo mest um
helgar og maður varð að lesa vel
þegar fríar stundir gáfust. Stund-
um er ég auðvitað þreytt á þessu
og vildi helst vera heima og horfa
á sjónvarpið og borða poppkom,
en þetta aflar manni peninga og
hefur borgað að mestu mína
skólagöngu. Oft er líka mjög gam-
an í þessu."
Gígja er Grindvíkingur, þótt
hún sæki menntaskóla á hinum
enda landsins. Hana segist hafa
langað svo mikið í heimavistar-
skóla þar sem ekki væri bekkja-
kerfí og þá hefði ME einn komið
til greina. Nú segist hún vera
orðin mikill Austfírðingur í sér.
„Það er mjög gott að vera þama.
Það er fallegt á Héraði og gott
fólk.“
Aðspurð um látúnsbarkakeppn-
ina segir Gígja að hún hafí verið
mikil upplifun. „Maður var svo
stressaður," segir hún. „Ifyrst
þegar maður heyrði í hinum
fannst manni þeir vera svo góð-
ir.“ Gígja skar sig úr á sviðinu,
stutthærð með pottlok á höfðinu
söng hún Stuðmannalagið Strax
í dag af krafti og var afar lífleg
í framkomu, á meðan hinar stelp-
umar í keppninni sungu róleg lög.
Og nú er væntanleg plata með
öllum látúnsbörkunum.
Gígja hyggst flytja til höfuð-
borgarinnar eftir áramótin, þegar
hún er búin með stúdentinn, ætlar
að taka sér frí frá skóla, helga
sig söngnum, eignast einhveija
peninga eftir mögur ár náms-
mannsins og hamast við að vera
til eins og hún sagði sjálf. En í
kvöld geta menn sumsé tekið for-
skot á sæluna og hlýtt á söng
hennar á Hótel Sögu.
COSPER
Þeir koma í fyrramlið að gera við lyftuna,
tengdamamma, og þá færam við þér kaffi.