Morgunblaðið - 26.08.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1987
Gott ágústveður
þriðja árið í röð
Stefnir í mesta sólskin í rúm 20 ár
„ÓVENJU sólríkt hefur verið í
Reykjavík það sem af er ágúst-
mánuði og eru nú þegar fleiri
sólskinsstundir en á sama tíma í
fyrra,“ sagði Trausti Jónsson,
veðurfræðingur. „Það stefnir í
mesta sólskin í ágúst i rúm tutt-
ugu ár og er svipað og undan-
gengfin tvö ár en þá voru
ákaflega góðir ágústmánuðir."
Meðalsólskinsstundir í Reykjavík
í ágúst eru 164 og í gærkvöldi var
búist við að þær yrðu komnar í um
213. „En það er langt í metið frá
árinu 1960 sem er 278 klukku-
stundir. Til að ná því þyrfti fimm
til sex sólardaga en spáð er skýjuðu
veðri með rigningu næstu tvo til
þijá daga,“ sagði Trausti.
Úrkoman hefur verið með
minnsta móti í ágúst en þó hafa
fallið 18 mm í Reykjavík það sem
af er mánuðinum. Árið 1985 féllu
18,4 mm.
Hitastig er enn nokkuð hátt og
útlit fyrir að þessi ágústmánuður
verði í hópi hlýrri ágústmánaða.
Það sem af er er hann hlýrri en
árið 1985, en kaldasta vikan er
eftir.
Félagsmálaráðuneytið:
Mikið spurt um
leyfisveitingar fyr-
ir erlent vinnuaf 1
Þrír slösuðust þegar krani brotnaði
ÞRÍR menn slösuðust í gær-
morgun þegar krani á körfubíl
féll niður. I fyrstu var talið að
mennirnir hefðu slasast alvar-
lega, en síðar kom í Ijós að
meiðsli þeirra voru ekki jafn
mikil og á horfðist.
Slysið varð um kl. 8.30 í gær-
morgun. Mennimir þrír voru að
vinna við að skipta um gler í
gluggum efstu hæðar Mennta-
skólans í Reykjavík. Kraninn, sem
mennimir notuðu við vinnuna,
brotnaði skyndilega af bifreiðinni
og féllu mennimir þá niður í körf-
unni. Þeir skullu niður á lóð
Menntaskólans og munu hafa
beinbrotnað og marist. Þeir voru
fluttir á slysadeild Borgarspítal-
ans þar sem gert var að meiðslum
þeirra.
ERLENT vinnuafli á íslandi hef-
ur ekki aukist verulega það sem
af er árinu miðað við fyrri ár.
Töluvert meira er þó um fyrir-
Vísitala
byggingar-
kostnaðar
hækkar
um 1%
VÍSITALA byggingarkostnaðar
var 1% hærri í ágúst en í júlí sam-
kvæmt útreikningum Hagstof-
unnar. Vísitalan reyndist vera
101,3 stig ( júní 1987=100) og
gildir hún fyrir september 1987.
Síðustu 12 mánuði hefur vísitala
byggingarkostnaðar hækkað um
18% en undanfama þrjá mánuði
hefur vísitalan hækkað um 3,3% sem
jafngildir 14% verðbólgu á heilu ári.
Tæplega 0,4% af hækkun vísi-
tölunnar nú stafa af hækkun
gatnagerðargjalda, um 0,4% af
hækkun á verði steypu og um 0,2%
af hækkun ýmissa efnisliða.
spumir til félagsmálaráðuneytis-
ins um hvemig leyfisveitingum
sé háttað fyrir útlendinga og
mörg fyrirtæki em um þessar
mundir að kanna möguleikana á
að fá vinnuafl frá Norðurlöndun-
um og Bretlandi.
„Það hefur ekki orðið nein merkj-
anleg aukning á fjölda erlendra
starfskrafta í sumar en þeir eru
töluvert dreifðari um landið en oft
áður. Þetta hefur verið frá 2-300
manns undanfarin ár og er líklega
nær hærri tölunni núna,“ sagði
Óskar Hallgrímsson, deildarstjóri
vinnumálaskrifstofu félagsmála-
ráðuneytisins, þegar Morgunblaðið
hafði samband við hann vegna
frétta undanfarið um mikinn skort
á vinnuafli og innflutning á erlendu
vinnuafli. „Eg veit um nokkra aðila
sem eru að kanna möguleika á
vinnuafli frá Norðurlöndunum og
Bretlandseyjum. Einnig hafa skipa-
smíðastöðvar athugað með að fá
hingað til lands sérhæfða skipa-
smiði frá Póllandi og að minnsta
kosti eitt skipafélag hefur kannað
möguleika á því að ráða pólska
vélstjóra.
Það er töluvert mikið spurt um
það þessa dagana hvernig leyfis-
veitingum sé háttað fyrir erlent
vinnuafl en það hefur oftast verið
gert í einhveiju mæli á haustin.
Vinnuveitendur eru alltaf hræddir
þegar fer að líða að því að skólafólk-
ið hverfi af vinnumarkaðinum."
Útvegsbankinn:
Sambandið á lagalegan
rétt á hlutabréfunum
segir í álitsgerð Jóns Finnssonar hrl.
Á stjórnarfundi Sambands
íslenskra samvinnufélaga í gær,
var lögð fram álitsgerð Jóns
Finnssonar hæstaréttarlög-
manns. Að sögn Vals Arnþórs-
sonar stjórnarformanns
Sambandsins leiðir Jón sterk rök
að þvi, að Sambandið hafi ekki
eingöngu siðferðilegan rétt held-
ur einnig lagalegan rétt á þeim
hlutabréfum i Útvegsbankanum,
sem Sambandið hefur tilkynnt
kaup á og ríkissjóður býður til
sölu.
„Lögfræðilega spurningin hefur
fyrst og fremst verið þessi: Var
þetta áskorun á vegum ríkisins um
að menn gerðu tilboð eða var þetta
útboð á ákveðnum verðmætum á
föstu verði með tilgreindum kjör-
um? Niðurstaða Jóns er sú að ekki
orki tvímælis að verðmætin eru
boðin út á föstu verði með tilgreind-
r
Veröldin ’87 opnar á morgun:
Leysigeislasýning í kvöld
SYNINGIN Veröldin ’87 verður
opnuð almenningi fimmtudag-
inn 27. ágúst kl. 18. Um 125
innflytjendur og innlendir
framleiðendur taka þátt í sýn-
ingunni en þetta er 16. sýning,
sem Kaupstefnan Reykjavík hf.
stendur að. Samhliða sýning-
unni verða sýndar myndir með
leysigeislum á himninum yfir
borginni.
Að sögn Guðmundar Jónssonar
framkvæmdastjóra Kaupstefn-
unnar, er lögð sérstök áhersla á
allt er tengist íbúðum innanstokks
og utan og ber hæst draumaíbúð
Hólmfríðar Karlsdóttur en Hófí
hefur innréttað íbúð eftir eigin
vali á sýningunni. „Þetta er mjög
víðtæk og góð sýning,“ sagði
Guðmundur. „Allt sýnt sem teng-
ist húsbúnaði og innréttingum.
Við erum mjög ánægðir með þá
sem sýna að þessu sinni en þeir
eru með það nýjasta sem er á
markaðinum."
Meðal nýjunga á sýningunni er
leysigeislasýning með ljósum, sem
sýnd verður á klukkustundar
fresti. Þá er leikin tónlist og ljós
látin blikka í takt við hana. „Ef
veður lofar, gefst borgarbúum
tækifæri til að kynnast örlitlu
broti af því sem í vændum er, en
við munum lýsa yfir borgina um
klukkan hálf-ellefu í kvöld í takt
við tónlist sem útvarpað verður
af Bylgjunni. Við bytjum að senda
geislana upp kl. 10.00 í kvöld svo
fólk geti sett sig í stellingar og
hefst síðan alvörusýningin kl.
10.30 og stendur í fímmtán
mínútur. Fólk getur horft á sýn-
inguna heiman frá sér, en best
er að vera staðsettur í austan-
verðri borginni. Geislamir eru í
öllum regnbogans litum og fara
þeir hæst í 10 km hæð við góð
skilyrði sem er níu sinnum Esjan,"
sagði Guðmundur. Það eru bresk-
ir aðilar sem setja leysigeislasýn-
inguna upp hér og settu þeir upp
sýningu í sama anda í Rio de
Janeiro í Brasilíu.
Sýningin verður opin alla daga
frá kl. 16 til 23 en um helgar frá
kl. 13 til 23, fram til 6. september.
um kjörum, og að menn hafí rétt
til að biðja um sérstök greiðslukjör,
en verði að sæta þeim kjömm sem
útboðið tilgreinir vilji ráðherra ekki
fallast á önnur greiðslukjör," sagði
Valur.
Hann sagði að Sambandið hefði
tilkynnt kaup á hlutabréfunum á
grundvelli útboðsins á því verði sem
þar er tilgreint. „Við höfum farið
fram á betri greiðslukjör á hluta
andvirðisins en jafnframt lýst yfír
að ef svo ber undir munum við hlíta
þeim greiðslukjörum sem útboðið
gerir ráð fyrir."
Ekkert hefur verið rætt um hugs-
anleg málaferli ef Sambandið
verður af kaupunum og sagði Valur
að sá möguleiki hefði ekki verið til
umræðu á stjómarfundinum. Hann
sagði að nú væri beðið'eftir við-
brögðum viðskiptaráðherra og
ríkisstjómar sem tekin yrðu til at-
hugunar. „Við höfum engu sleppt
í okkar stöðu og teljum að rétturinn
sé okkar megin,“ sagði Valur.
Ekki náðist í Jón Sigurðsson við-
skiptaráðherra í gærkvöldi vegna
máls þessa.
Sjá viðtal við Krislján Ragn-
arsson fulltrúa fyrirtækjanna
33 sem einnig hafa boðið í
Útvegsbankann, bls. 16.
Ljómarall 1987:
Allt á síðustu
stundu í tolli
„ÞETTA er allt á síðustu stundu.
Við náðum ekki bílnum úr tolli
í dag en bráðvantar hann. Það
er eitthvað erfið pappírsvinnan.
Það á eftir að gera svo margt
fyrir bílinn, sem var sérsmíðað-
ur fyrir Ljómarallið,” sagði
Skotinn Gordon Dean í samtali
við Morgunblaðið, en hann
keppir í Ljómarallinu sem hefst
á morgun kl. 12.00 við Hótel
Loftleiðir í Reykjavík.
Gordon keppir með Ivor Clark á
Talbot Lotus og em þeir meðal
fjögurra breskra áhafna í rallinu.
„Við eigum allt eftir, bíllinn er
ekki klár í keppni. Það á eftir að
laga drifíð, skipta um gírkassa og
bremsur! Við vinnum fram á nótt
og getum lítið skoðað, Ivor fór að
vísu að skoða Fjallabaksleið í dag.
Hann hefur mikla reynslu, hefur
m.a. ekið í Suður-Afríku í mótum
sem svipar til Ljómarallsins. Við
ætlum að ljúka keppni og reyna
að verða ofarlega,“ sagði Gordon.
Gordon var ekki einn að bíða,
Andy Bassett og Alan Roberts biðu
líka eftir Piat 131 Racing bíl
sínum. „Við erum búnir að skoða
sumar leiðimar. Þetta er erfíð
keppni og krefst 100% einbeiting-
ar. Vegimir eru mjög misjafnir,
yfírlagið breytist svo oft, stundum
er aska, gijót eða ár og allt þar á
milli. Það er mjög auðvelt að verða
fyrir óhappi, ef einbeitinguna vant-
ar. Bíll okkar fór hálfkláraður í
skip, ómálaður, aðeins grunn-
málningu var skellt á hann. Svo
er ýmislegt óklárt og veldur okkur
sjálfsagt vandræðum í keppninni,"
sagði Andy.