Morgunblaðið - 26.08.1987, Síða 39

Morgunblaðið - 26.08.1987, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1987 39 Stjörnu Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Meyja í dag ætla ég að fjalla um Meyjarmerkið (23. ágúst-23. september). Einungis er fjall- að um hið dæmigerða fyrir merkið og lesendur minntir á að hver maður á sér nokkur stjömumerki. Það táknar að merkin þurfa alltaf að gera maiamiðlun sín á milli. Meyja sem hefur Tungl í Bogmanni er t.d. ólík þeirri sem hefur Tungl í Steingeit. JarÖbundin Það er alltaf sagt um Meyjuna að hún sé dugleg, jarðbundin, nákvæm, samviskusöm og gagnrýnin svo nokkuð sé nefnt. Þetta er rétt, svo langt sem það nær, en þarfnast kannski betri skýringar við. Uppskerutími Meyjan er fædd á breytilegum árstíma, í lok sumars. Á þeim tima er hámarki gróðurs náð, tré eru í fullum vexti og ávextir jarðarinnar þroskaðir. Árstími Mejrjunnar er því upp- skerutími. Áhrif þess á fólk sem þá fæðist, þ.e. á Meyjar, eru sú að gefa því alvörugef- inn tón. Nú þarf að taka til höndunum. Þetta er ekki tími til að leika sér eða liggja í hitanum og sleikja sólskinið eins og i merkinu á undan, Ljóninu. Þetta er raun- sæistími. Raunsœ Meyjar eru því raunsæjar, þær sjá umhverfið og vita að einhver þarf að taka til hönd- unum. Þær sleikja ekki sól, þær draga sig ekki í skel og skapa heim þar sem enginn er, eins og gagnstæða merkið Fiskurinn gerir. í febrúar- mars er náttúran í klakabönd- um og menn í hálfgerðu hýði. Þeir sem fæðast á þessum tíma fæðast með bið í hjart- anu. ímyndunarafl þarf að skapa heiminn, horft er aftur og horft er fram. Gamlir menn sitja við eldana og segja sög- ur. HraÖur árstími Þeir sem hafa litið upp frá vinnu sinni og skoðað sept- embermánuð og lífið á þeim tíma hafa séð að í náttúrunni er mikill hraði. Allt er á iði. Náttúran sjálf er að breytast, einni árstíð að ljúka, önnur að taka við. Menn eru að hefja undirbúning fyrir haust og vetur. Það er eins með Meyj- una. Hún er alltaf á iði, sifellt að. Hún hefur því lítinn tíma fyrir sjálfa sig og verður jafn- vel hvumsa við og vandræða- leg ef við nefnum hana með nafni eða beinum athyglinni að henni. Hún er vinnumaður heimsins. Maðurinn á ökrun- um sem vinnur í sveita síns andlitis en fæst lítið við að standa á sviði og beija bumb- ur. Mál og vog Á uppskerutíma er ekki ein- ungis unnið við að týna kom af engjum. Það þarf einnig að vikta komið, mæla og vega og útdeila jafiit. Þaðan er komin nákvæmni Meyjunnar. Það má kannski segja að það að vega og meta sé einnig og kannski frekar undir merki uppskeruhátíðanna, þegar fólkið safnast saman og held- ur upp á það að uppskeran er komin ( hlöður, í Voginni. En eigi að sfður þarf Meyjan einnig að gæta nakvæmni. MarkaÖur Það þarf ekki einungis að flokka matinn og búa undir vetur. Það þarf einnig að selja uppskeruna. Þar eru komin tengsl Meyjunnar við mark- aði, við það að versla og selja afurð. Þaðan er komin versl- unarhlið Meyjunnar. GARPUR GRETTIR FERDINAND SMÁFÓLK Afsakaðu, kennari... ég ætlaði ekki að koma of seint... Ég ætlaði ekki að gleyma heimadæmunum. AHP I PIPN T MEAN TO BE THE CAU5E OF VOUR HAIR TURNIN6 ® WHAT APPEARS TO BE | PREMATURELV GRAV.. | Og ég ætlaði ekki að valda þvi að hárið á þér gránaði fyrir aldur fram, eins og mér sýnist... I AL50 PIPN'T MEAN TO SAV THAT.. Ég ætlaði heldur ekki að segja þetta ... Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Það sem við köllum „bjamar- greiða" á íslensku nefna ensku- mælandi þjóðir „Greek gift“. Sögulegrót þess orðtaks er auð- vitað Trójuhesturinn, en það var ekki hestlíkan fyllt hermönnum með alvæpni sem Grikkinn Zotos gaf Austurríkismanninum Ku- bak í spilinu hér að neðan. Það var slagur á tromp! Austur gefur; AV á hættu. Norður ♦ ÁK953 ¥976 ♦ K1073 ♦ G Vestur Austur ♦ D102 ♦ 87 ¥ D4 11 ¥ G83 ♦ DG65 ♦ Á984 ♦ D765 Suður ♦ G64 ♦ Á842 ¥ ÁK1052 ♦ 2 ♦ K1073 Vestur Norður Austur Suður — — Pass 1 hjarta Pass 1 spaði Pass 2 hjörtu Pass Pass 4 hjörtu Pass Pass Zotos var með spil vesturs og kom út með tíguldrottningu. Hann fékk að eiga þann slag og sýndi nú mikla gjafmildi með því að skipta yfir í lítið tromp! Félagi hans Lambrinos var ekki nískur heldur, því hann lét átt- una duga og sagnhafi fékk ódýran slag á tromptíuna. Kubak fór nú inn á blindan á spaðaás og spilaði laufgosa og hleypti honum þegar austur gaf mjúklega. Zotos drap á lauf- drottningu og spilaði aftur trompi. Nú varð sagnhafi að ** treysta á trompsvfningu fyrir Iaufásinn, sem gekk ekki og spilið fór því einn niður. Það merkilega er að samning- urinn er óhnekkjandi á undan- bragði ef vömin spilar ekki trompi. Sagnhafi getur stungið þijú lauf í blindum og þijá tígla heima. Það eru sex slagir. AK í hálitunum eru fjórir til viðbótar og vömin faer síðasta slaginn „tvöfaldan" á trompgosa og spaðadrottningu. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Brezka meistaramótið stend- ur nú yfir í Swansea. Þessi staða kom upp í skál stórmeistarans Jonathan Mestel, sem hafði hvítt og átti leik gegn alþjóða- lega meistaranum Andrew Martin. Síðasti leikur svarts var 21. - e5 - e4? Svartur hefur sýnt mikla hug- kvæmni og dirfsku með því að stilla kóngi sínum upp á d6. Ef skiptist upp á drottningum væri þetta geysilega góð staðsetning, en í miðtafli er ekki hægt að leyfa sér slfkan munað, eins og Mestel sýndi fram á: 22. Hxf6+! *■ - gxf6, 23. Df4+ - He5 (Eða 23. - Kd7?, 24. Bh3+) 24. Dxf6+ - Kd7, 25. Bh3+ - Ke8, 26. d6 og svartur gafst upp. Það vekur athygli að báðir brezku keppendumir f væntan- legri áskorendakeppni, þeir Short og Speelman, eru báðir á meðal þátttakenda.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.