Morgunblaðið - 26.08.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1987
25
Glistrup bítur í skjaldarrendur
Valdabarátta í Framfaraflokknum sem getur
komist í oddaaðstöðu eftir kosningarnar
eftir Jens Erik
Rasmussen
Refsivöndur danskra stjórn-
málamanna, Mogens Glistrup í
Framfaraflokknum, siglir nú
hraðbyri inn í öldurót danskra
stjómmála á ný. Hann hefur af-
plánað þriggja ára fangelsisdóm
fyrir skattsvik, orðið gjaldþrota
og verið álitinn pólitískur trúður
en samt er þessi litríki stjóm-
málamaður aftur á leiðinni i
danska Þjóðþingið.
Refsingin er afstaðin og í
kosningunum 8. september býð-
ur Glistrup sig fram í ömggu
kjördæmi. Allt bendir því til þess
að hann geti aftur tekið sæti á
þinginu sem lýsti hann óalandi
og óferjandi vegna dómsins í
skattsvikamálinu fyrir fjómm
ámm.
Það er mjög líklegt að Glistrup
og flokkur hans komist í oddaað-
stöðu í þinginu. Skoðanakannanir
undanfarna fjóra mánuði benda til
þess að stjórn borgaraflokkanna
Qögurra geti aðeins verið áfram við
völd með stuðningi hins hægrisinn-
aða Framfaraflokks sem nú hefur
fjögur þingsæti. Talið er að hann
bæti við sig nokkru fylgi.
Það er því hætta á að ekki verði
hægt að mynda ríkisstjórn án
stuðnings Framfaraflokksins og sá
möguleiki veldur forystumönnum
borgaraflokkanna miklu hugar-
angri. Baráttuglaður Glistrup, sem
aldrei hefur verið í sérstöku vin-
fengi við borgaraflokkana, gerir
ástandið ekki betra. Vináttan hefur
ekki vaxið síðustu fjögur árin er
fangelsisrimlarnir hafa hamlað
ERLENT
stjómmálaþátttöku Glistmps. Hann
þyrstir í athygli og hefnd eftir
hvíldarhlé sem hann bað ekki um.
Ráði hann og flokkur hans úrslitum
í baráttunni milli borgaraflokkanna
og sósíalísku flokkanna á þingi ótt-
ast stjómmálamenn að upplausn
taki við eftir kosningamar. Átökin
um ríkisstjómarvöldin geta breyst
í hryllingssögu þar sem Glistrup
leikur aðalhlutverkið.
Slæm reynsla
Forystumenn borgaraflokkanna
hugsa enn með skelfingu til fyrstu
18 mánaðanna sem þeir vom við
völd eftir kosningamar 1982 en þá
var Framfaraflokkurinn í oddaað-
stöðu. Þrátt fyrir ijölmarga samn-
ingafundi talsmanna ríkisstjórnar-
flokkanna með fulltrúum
Framfaraflokksins fóm leikar svo
að þingmenn hans felldu jíkisstjóm-
ina ásamt þingmönnum vinstri
flokkanna. í næstu kosningum
hmndi flokkurinn og fékk aðeins
sex þingsæti borið saman við sextán
áður (tveir þingmenn hafa síðan
yfirgefið flokkinn). Þegar þetta
gerðist sat Glistmp bak við lás og
slá í ríkisfangelsinu í Horserod
vegna skattamála sinna.
Kjósendur hafa einu sinni refsað
Framfaraflokknum fyrir að fella
ríkisstjórn borgaraflokkanna og
þess vegna efast leiðtogar borgara-
flokkanna um að flokkurinn þori
að endurtaka leikinn.
Poul Schlúter, forsætisráðherra
og formaður íhaldsflokksins, hefur
lýst því yfir að atkvæði Framfara-
flokksins hljóti að teljast með
atkvæðum borgaraflokkanna. Þetta
merkir að hann hyggst vera áfram
við stjórnvölinn enda þótt Glistmp
og félagar hans komist í oddaað-
stöðu í þinginu.
Schlúter er hins vegar einnig
háður stuðningi Róttæka vinstri
flokksins, miðjuflokks, sem stutt
hefur núverandi stjórn borgaraflok-
kanna frá upphafi. Róttækir em
ósammála hægri róttæklingunum í
Framfaraflokknum á nánast öllum
Aurskriður á
Italíu og 20 þús-
und f luttir á brott
París, Reuter.
SJÖ manns létust í miklum rign-
ingum í Evrópu aðfaranótt
gærdagsins. Rúmlega tuttugu þús-
und menn voru fluttir úr Adda-dal
i Langbarðalandi í norðurhluta
Ítalíu vegna vatnavaxta.
Flytja þurfti fólk úr tuttugu þorp-
um í Adda-dal þegar hækkaði í vatni,
sem myndaðist þegar aurskriður féllu
í júlí og tvö þorp grófust á kaf með
þeim afleiðingum að fjörutíu manns
fómst.
Embættismenn vömðu við því í
gær að vatnið gæti brotist fram belj-
andi innan tveggja daga ef rigning-
arnar héldu áfram. Kváðust
stjórnvöld ætla að reyna að lækka
yfirborð vatnsins með því að grafa
afveituskurð.
Ein kona lést og tveggja manna
er saknað eftir að skriður féllu í
Niardo í Langbarðalandi. Nokkur hús
eyðilögðust í skriðunum.
í borginni Mílanó flæddi inn í kjall-
ara og fór rafmagn af. Hlutar
borgarinnar vom enn rafmagnslausir
síðdegis í gær.
Járnbrautargöng- lok-
uðust í Sviss
Flóð og skriður hrifsuðu með sér
þijá menn í kantónunni Valais í Sviss
og létu þeir lífið, að því er lögregla
sagði. Kantónan Uri í miðhluta Sviss
lokaðist nánast af frá umheiminum
er Gotthard-járnbrautargöngin, sem
liggja gegnum Alpana og tengja
Norður- og Suður-Evrópu, lokuðust.
Beina þurfti jámbrautarlestum gegn-
um Brenner-skarðið í Austurríki, sem
er 250 km austar. Svissnesk járn-
brautaryfirvöld sögðu að Gotthard-
göngin yrðu væntanlega lokuð í eina
viku.
Þyrlur vom notaðar til að flytja
brott fólk og nautgripi frá þorpum
víðs vegar í Sviss. Bað lögregla íbúa
í þröngum dölum um að dveljast
heima við og fara upp á þak til að
forðast vatnavextina ef nauðsyn
krefði.
I París vom mestu rigningar í heila
öld og sögðu veðurfræðingar að
mælst hefði 97 mm úrkoma á einum
sólarhring, frá klukkan átta á mánu-
dagsmorgun til átta í gærmorgun.
Árið 1887 mældist 67 mm úrkoma á
einum sólarhring.
Franska sjónvarpið sagði að tvö
þúsund ferðamenn hefðu verið fluttir
frá tjaldbúðum víða um landið. Rok
og rigning hefði gereyðilagt dvalar-
stað í Languedoc-Roussillon héraði.
Fimmtán hjólhýsi og tjaldvagnar
hefðu oltið og tré rifnað upp með
rótum.
sviðum og vilja ekki deila stuðningi
við stjómina með Glistrupsmönn-
um.
Innri barátta
Baráttumál Framfaraflokksins
eru enn sem fyrr lægri skattar og
minni opinber útgjöld. Árið 1973
fékk flokkurinn 28 þingsæti með
því að leggja til að skattar og tollar
yrðu afnumdir, opinberri þjónustu
hætt og herinn lagður niður. I stað-
inn fyrir stöðug og einstrengingsleg
mótmæli hefur með tímanum verið
lögð meiri áhersla á að ná sam-
komulagi enda þótt slá hafi þurft
af ýtrustu kröfum flokksstefnunn-
Mogens Glistrup. Stofnandi
Framfaraflokksins berst nú fyrir
þvi að flokkur hans slaki hvergi
á ýtrustu kröfum sínum. Hörð
valdabarátta er nú háð í flokkn-
um samtímis kosningabarát-
tunni.
Þessi þróun hefur ekki orðið með
samþykki Mogens Glistrups. Hann
vill halda áfram að ögra og þetta
hefur leitt til stöðugrar valdabar-
áttu í flokknum. Sem stendur slást
tveir armar um það hvaða einstakl-
ingur eigi að vera í fararbroddi
flokksins í kosningabaráttunni.
Margir flokksfélagar álíta að kjós-
endur séu orðnir þreyttir á ögrandi
framkomu Glistrups og vilja að
málefnaleg kona, Pia Kjærsgaard,
taki við forystunni. Margt bendir
þó til þess að Glistrup fari með sig-
ur af hólmi í þessari valdabaráttu.
Það sem helst gæti ógnað
pólitískum ferli hans eru ný réttar-
höld. Ixigreglunni hefur borist kæra
á hendur Glistrup fyrir meint kyn-
þáttahatur en hann hefur sagt um
flóttamenn, er sækja um hæli í
Danmörku, að þeir „fjölgi sér eins
og rottur." Hljóti hann dóm fyrir
þessi ummæli á hann enn á hættu
að þingmenn vísi honum burt.
Höfundur er blaðamaður í
Árósum.
Alnæmi kemur verst
niður á minnimáttar
ÞÓ FLEST fórnarlömb alnæmis
í Bandarikjunum séu hvít er Ijóst
að hærra hlutfall svertingja og
annarra minnihlutahópa fær
sjúkdóminn.
Spænskumælandi fólk, einkum
ólöglegir innflytjendur, eiga ekki
sjö dagana sæla ef þeir sýlq'ast af
alnæmi. Að vera utangarðs veikir
einungis stöðu þessa fólks. Það
þekkir hvorki sjúkdóminn né ein-
kennin.
Árum saman hefur tíðni alnæm-
is verið meiri meðal svartra og
spænskumælandi en hvítra. En
hvers vegna er ekkert gert í mál-
inu? Margir segja að upplýsinga-
herferðin á vegum hins opinbera
hafi einfaldlega ekki náð eyrum
þessa fólks. Á hinn bóginn virðast
leiðtogar minnihlutahópanna halda
að sér höndum, kannski af ótta við
að meirihlutasamfélag hvlta
mannsins mjmdi bregðast við af
hörku ef hinir minnimáttar risu
upp. Samtök homma eru undan-
tekning, þau eru nú áhrifamikill
þrýstihópur og það hefur skilað sér
í minnkandi tíðni alnæmis meðal
samkynhneigðra. En betra er seint
en aldrei. Sumir telja að örlítið
lægra hlutfall alnæmistilfella með-
al minnihlutahópanna á síðasta ári
gefi vísbendingu um að þeir verði
smám saman upplýstari um hætt-
una.
Ein mikilvægasta baráttuað-
férðin gegn alnæminu er meðferð
eiturlyfjasjúklinga að sögn Frank
Tardalo, sjálfboðaliða í baráttunni
gegn alnæmi, en hann var áður
eiturlyfjasjúklingur. Einnig verður
að koma þeim sem ekki láta af
fíkniefnaneyslu í skilning um að
lífshættulegt sé að deila nálinni
með öðrum. Stungið hefur verið
upp á því að dreifa hreinum nálum
meðal fíkniefnaneytenda en það
hefur strandað á pólitískri and-
stöðu. Mörg ljón eru í veginum,
margir sjúklinganna fá ekki inni á
meðferðarstofnunum. Aðrir fylgja
ekki fyrirmælum og sprauta sig
af og til.
Það er svo spuming um sið-
ferðisþrek Bandaríkjamanna hvort
þeir eru reiðubúnir að kosta því sem
til þarf til að hjálpa minnimáttar í
þjóðfélaginu. Ed Koch, borgarstjóri
New York, er efins: „Ég óttast að
hreyfíngin til að finna lækningu
og hjálpa öllum sem á þurfa að
halda fjari út vegna þess að
áhættuhópurinn er í minnihluta."
(Heimild: U.S.News & World Report)
Fatasöfnun
27.-29. ágúst
til hjálpar f lóttafólki f rá Mósambik
Tekið verður á móti fatnaði í flestum kirkjum
og safnaðarheimilum landsins.
Móttökustaðir í Reykjavík og nágrenni verða
opnir kl. 17.00-20.00 fimmtudag og föstu-
dag. En á laugardag kl. 10.00-14.00.
Hjálpið okkur að koma fatnaðinum til skila
með því að greiða 50 kr. fyrir hvert kíló.
Vinsamlegast afhendið fatnaðinn
hreinan.
f
Hjáíparstofnun kirkjunnar.